Morgunblaðið - 03.10.1990, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 1990
49
Húsdýrafangelsið
Til Velvakanda.
Undir sakleysislegu yfirbragði
hins nýja dýrafangelsis Reykjavíkur-
borgar í Laugardalnum ríkir hin
miskunnarlitla niðurlægingarstefna
hótelhaldaranna þar. Að ógleymdu
því að saxið stóra bíður „vistmann-
anna“ handan næsta horns við væg-
ast sagt lítil brot þeirra ef brot skal
kalla.
Eða svo mátti a.m.k. lesa í grein
í Tímanum þ. 15. ágúst sl. undir
fyrirsögninni Skipt útaf í hálfleik.
Þar var sagt frá vesalings ungu svín-
unum í húsdýragarðinum í Laugard-
alnum og örlögum þeirra þegar þeir
stækkuðu ögn, eins og náttúrulög
annars gera ráð fyrir almennt.
Litlu sætu grísirnir voru sem sagt
sendir beint í sláturhúsið einn daginn
þar sem „þeir voru orðnir of stórir
og fyrirferðamiklir" að sögn forstöð-
umannsins fangelsisins. í þeirra stað
voru svo fengnir aðrir „litlir sætir
grísir“ fyrir krakkana .til að halda
áfram að dást að og gefa þeim nöfn.
En svo þegar litlu nýju svínaung-
arnir hafa leyft sér þá ósvífni að
stækka og vaxa eifthvað lítilræði í
fangelsinu þá eru þeir auðvitað send-
ir beina leið undir saxið líka.
Á sama tíma og sífellt háværari
gagnrýnisraddir erlendis eru gegn
þessum dýrafangelsum þá reisir
Reykjavíkurborg eitt slíkt nánast í
miðjum bænum án þess að nokkur
segi hér orð. Hvar er nú siðferðið
gagnvart okkar minnstu bræðrúm?
Það var von að maðurinn hér forðum
yrði bæði undrandi og sár þegar
sápuJóninn sagði með allnokkrum
hneykslunarsvip við harin: „Á ég að
gæta bróður míns?“
Ekki virðist því manninum hafa
farið mikið fram þessar tuttugu ald-
ir sem liðnar eru síðan, nema síður
sé.
Þegar litið er um öxl verður því
tæpast annað séð en að þjáningin
vaxi stöðugt í heiminum. Bæði hjá
mönnum og dýrum. Sýnu verst þó
hjá dýrunum. Málið aðeins við þetta
er að öll þessi samfellda þjáningar-
aukning í heimi hér virðist nánast
öll sömul af mannavöldum.
Enn eitt sandkomið bættist því í
þennan samfellda táradal menningar
okkar þegar þessi óþverrans Hús-
dýragarður var opnaður í vor sl. Því
að hvað sem mönnum finnst anna'rs
gaman að sjá dýrin þarna þá skyldu
þeir aldrei gleyma því að þetta er
hvorki náttúrulegt umhverfí þeirra,
né að minnsta von sé til að þeim líði
vel þama þótt annað sé látið í veðri
vaka. Og ekkert er þetta annað en
fangelsi hvaða felunöfnum sem menn
vilja annars viðhafa til að fegra
^mmHína
Það er vel hægt að sjá og kynn-
ast ögn langflestum þessum sem og
öðrum dýrum í sínum náttúrulegu
heimkynnum án þess að reka þessi
gerviheimili þeirra í formi fangelsa/
Og þar er líká miklu skemmtilegra
að sjá þau og heyra í þeim. En það
er nú ekki uppi á teningnum á þess-
um bænum. Ekki aldeilis.
Því skora ég á fólk að hundsa
þessar skipulögðu sýningarferðir í
dýrafangelsið í Laugardalnum. Það
eykur aðeins umsvif fangelsisins og
flýtir beinlínis fyrir því að nýju grís-
irnir verði sendir líka í sláturhúsið
og í þeirra stað enn öðrum rænt frá
Nýir grísir l 1 [ Húsdýragarðinn: 1 ■ Skipt útaf I í hálfleik 1 í dagkomanýirgrísiríHusdýra 1 ■ garðimiiUugaidal.alsimr.sa" 1 ■ ’ Guðjónsson, 1 1 Viinum grisunum, nema | |
mömmu sinni til að vera til sýnis
fyrir aðgangsgesti fangelsisins.
Magnús H. Skarphéðinsson
HEILRÆÐI
VARUÐ
Geymið lyf þar sem börn ná ekki til.
LAUSBLAÐA-
MÖPPUR
frá Múlalundi...
... þær duga sem besta bók.
Múlalundur
SfMI: 62 84 50
oo
Macintosh fyrir byrjendur
©
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á
15 klst námskeiöi fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
%
Tölvu- og verkfrœöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
. <#>
Skrifstofutækni
vandað nám sem kemur að góðum notum við
inuleit. Við kennum einungis hagnýtar greinar.
Besta verðið
Bestu kjörin
Mesta reynslan
Tölvuskóli íslands
Sími: 67 14 66, opið til kl. 22
Veröld tryggir
þérlægstu
faigjöldin til stór-
borga Evrópu
Með einstökum samningum sínum tryggir Veröld
þér hagstæðustu fargjöldin og úrval vandaðra
hótela í stórþorgum Evrópu.
Hvert sem leiðin liggur færðu ferðina
hjá Veröld.
LONDON
Brottfarir í október
meó fararstjóra kr.
PARIS
Victoria Hotel kr.
33.900
29.690
LUXEMBURG
Hotel Italia kr. 29.690
* Brottfarir í október. Veró m.v. 2|a manna herbergi i 3 nætur.
AUSTURSTRÆT117,101REYKIAVÍK. SÍMI: (91)622011 &622200.