Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 13

Morgunblaðið - 19.10.1990, Side 13
 1- 'CPI JKIMÖTXO cr HUOACI íTRÓ’í GIGA.13Vr’):'HOV MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990 Lágt gengi ríkisstjórnar eftir Birgi ísleif Gunnarsson Enn ein niðurstaðan hefur verið birt um fylgi ríkisstjórnarinnar með- al almennings. í nýlegri skoðana- könnun DV kom í ljós að einungis rúmlega þriðjungur kjósenda er fylgjandi ríkisstjórninni. Það er með ólíkindum hve þessi ríkisstjórn hrap- aði fljótt í áliti hjá fólki. Hún hafði ekki setið nema í örfáa mánuði þeg- ar fylgi hennar hrundi niður í það sem það mælist í dag. Að vísu hefur það farið enn neðar eða allt niður í 18% 1989. Algjört einsdæmi Þetta er algjört einsdaémi í íslenskri stjórnmálasögu. Það hefur aldrei gerst fyrr að aðeins þremur mánuðum eftir stjórnarmyndun þá skuli ríkisstjórn glata svo trausti almennings. Þegar ráðherrarnir eru spurðir um ástæður gefa þeir svipuð svör: Þetta sé skiljanlegt því að ríkis- stjórnin hafi þurft að standa fyrir óvinsælum ráðstöfunum. Þessi skýr- ing stenst hins vegar ekki. í efna- hagsmálum hefur stjórnin ekki grip- ið til neinna óvinsælla ráðstafana. Hún hefur aðallega tekið fé að láni erlendis og dreift því um landið og ætlar svo næstu ríkisstjórnum að borga reikninginn. Lágt verðbólgu- stig nú er hins vegar fyrst og fremst verk samtaka launþega og atvinnu- rekenda sem gripu fram fyrir hend- urnar á ríkisstjórninni. Birgir ísleifur Gunnarsson „En hvað er það þá sem veldur hinu lága gengi ríkisstj órnarinnar? Skýringin liggur fyrst og fremst í þeim mikla trúnaðarbresti sem orð- ið hefur milli ráðherr- anna og fólksins í landinu.“ kosningar, en nú duga ekki lengur orðin tóm. Alþýðubandalagið er í þeirri stöðu að hafa yfirgefið nánast öll sín stefnumál. Seta í ríkisstjórn og ráð- herrastólar eru öllum hugsjónum æðri. Þetta sér fólk í gegnum. Ekki bætir það úr skák að formaður Al- þýðubandalagsins hefur reynst óvenjulega ótrúverðugur stjórnmála- maður. Hann hefur margoft orðið uppvís að því að fara með rangt mál og orð hans standa ekki. Stjórnmálaþroski Framsóknarflokkurinn kemur þannig fram að æ augljósara verður að í rauninni er flokknum og forystu- mönnum hans sama hver verður nið- urstaða mála. Aðalatriðið er að halda völdum. Kosti það sem kosta vill. Þar er að fínna meistara hrossakau- panna. Lestina rekur síðan hinn horfni Borgaraflokkur. Allt þetta veldur því að ríkisstjórn- in hefur ekki trúnaðartraust fólks- ins. Skoðanakannanir sýna að stjórnmálaþroski almennings er meiri en ráðherrarnir halda. Fólki er ofboðið. Því fyrr sem þessi ríkis- sTjórn þekkir sinn vitjunartíma og fer frá því betra. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og tekur þátt í prófkjöri í Reykja vík. Verð kr. 1.995,- Kvenskór úr leðri m/spennu Litir: Svart og brúnt Stærðir: 36-41 Póstsendum samdægurs 5% staðgreiðsluafsláttur. Metsölublað á hverjum degi! i i i Trúnaðarbrestur —" En hvað er það þá sem veldur síðustu kosningar fijálslynda stefnu hinu lága gengi ríkisstjórnarinnar? á ýmsum sviðum. „Við ætlum að Skýringin liggur fýrst og fremst í moka út Framsóknarfjóshaugnum," þeim mikla trúnaðarbresti sem orðið sagði fonnaður flokksins digur- hefur milli ráðherranna og fólksins barkalega. Nú situr hann í miðjum í landinu. Öll loforð eru svikin og haugnum sjálfur og fijálslyndis- engin orð standa. Tökum til dæmis' stefnan er týnd. Vafalaust verður Alþýðufbkkinn. Hann boðaði fyrir reynt að draga hana upp fyrir næstu Libby’/ Stórgóða tómatsósan FBDERAL SKOT 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.