Morgunblaðið - 19.10.1990, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.10.1990, Blaðsíða 43
MORGUNÉLAÐIÍ) VöSTUDXdÚR 19. ÖÚÍ'ÓBÉR i'öbó' 43 SJONVARP Sir David Attenborough búinn að gera þriðju náttúrulífssyrpuna Sir Richard Attenborough hefur nú nýlokið við sinn þriðja flokk náttúrulífsmynda fyrir sjón- varp, en fyiTÍ flokkamir tveir hafa verið sýndir um víða veröld og hlotið einróma lof fyrir stórfeng- legt handbragð. Þeir vora m.a. sýndir hér á landi og hétu „Life on Earth“ og „The Living Planet". Nýi flokkurinn heitir „The Trials of Life“ og er í tólf hlutum. „The Trials of Life“ fjallar um hegðun dýra, tímgun, uppvöxt, fæðuöflun, veiðar, búferlaflutn- inga, helgun óðala, bardaga, tjá- skipti, pöran og eðlun. Attenboro- ugh var í fjögur ár að safna efni í myndaflokkinn og var ekkert til sparað. Á þessum fjóram áram ferðaðist Attenborough um allan heim, alls um 250.000 mílur ýmist í lofti, á láði eða legi. Það er mál manna að sjón sé sögu ríkari, en roargt sem fyrir augu ber í þáttun- um hefur ekki sést í dýralífsmynd- um til þessa og er þá mikið sagt. Má þar nefna, að í einum þætt- inum fylgjumst við með háhym- ingi sem æðir í gegn um brimgarð og skellir sér upp í fjöra til þess að grípa sæljónshvolp. Og við fylgjumst með leðurblökumóður bijóta sér leið í gegn um mergð skrækjandi unga á hellislofti uns hún fínnur ungann sinn, hvemig svo sem hún þekkir hann, og gef- ur honum að drekka. Honum og engum öðram. Við fylgjumst með flokki simpansa sem elta uppi og veiða litla colobus-apa, bókstaf- lega rífa þá í tætlur og við sjáum sjálfan David Attenborough á sundi við Bahamaeyjar í félags- skap 60 höfranga. ATAK Rokkað gegn hvítblæði Brian May, gítarleikari rokk- hljómsveitarinnar Queen, hef ur hleypt af stokkunum átaki til aðstoðar þeim sem þurfa bein- mergsígræðslu til að stemma stigu við hvítblæði. Hann hefur sett sér það takmark að safna 150.000 sterlingspundum til að koma á fót stofnun sem bæði sæi um að safna saman beinmerg- gjöfum og að koma á fót birgðum af beinmerg. Afskipti Mays era til komin vegna þess að félagar hans í hljómsveitinni fréttu af ungum hvítblæðisjúklingi sem bað um það á dánarbeðinu að hljómplata með Queen yrði leikin við útförina og gekk það eftir. „Það er ljóst að hægt er að bjarga lífi þúsunda barna með því að skipta um beinmerg í þeim. Það er með ólíkindum að ekkert sé að gert þrátt fyrir þessa vitneskju. Ég vil taka af skarið og koma málinu á rek- spöl, síðan verða aðrir að taka við,“ segir May, sem hefur í fjár- öflunarskyni hljóðritað gamalt og gott Queen-lag, „Who wants to live forever?" ásamt tveimur þrettán ára krökkum, Ian Mee- son og Belindu Giilet. Stofnunin verður tengd við Brian May ásamt Meeson og Gillet. blóðbanka í Bristol þar sem blóð- gjafar munu jafnframt vera próf- aðir sem hugsanlegir beinmergs- gjafar. Er það von May og fleiri aðstandenda, að stofnunin geti farið að miðla beinmerg innan tveggja mánaða og að fleiri stofnanir af sama tagi líti dags- ins ljós á næstu mánuðum. Fullorðið fólk þarf aðeiga sér steikiui málsiara stefiiunnar á Alþingi. Kjósum Sólveigu Pétursdóttur í þriðja sætið Málefni þeirra sem komnir eru á efri ár verða sífellt fyrirferðarmeiri og vandasamari úrlausnar. Þrátt fyrir mikla skattbyrði og sívaxandi umsvif ríkisins ferþví fjarri að fólk geti gertgið að þeirri þjónustu og þeim lífskjörum vísum, sem það á sannarlega skilið við starfslok. Lífeyrissjóðir standa höllum fæti, opinber þjónusta, svo sem á sviði heilbrigðismála, líður stórlega fyrirþað samkeppnis-og metnaðarleysi, sem fylgir einhliða ríkisrekstri og miðstýringu og hið félagslega húsnæðiskerfi ræður ekki við verkefni sitt. Ekkert er líklegra til að tryggja okkur gæfuríkt líf á efri árum en öflug sjálfstæðisstefna í framkvæmd. Stefna, sem gefur einstaklingnum færi á að nýta hæfi- leika sína til fulls og bera sjálfur ábyrgð á eigin ákvörðunum. Þess vegna þurfum við sterkan málsvara stæðisstefnunar á Alþingi. Þess vegna kjósum við Sólveigu Pétursdóttur í þriðja sæti í próf- kjörinu i Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.