Morgunblaðið - 19.10.1990, Blaðsíða 20
ÍS
20
oeei ííaaöTaío .ei fliroAciuTaöa QiQAJaMuoflOM
MORGUNBLAÐIÐ FÓSTUDAGUR 19. OKTÓBER 1990
Hispurslaus úttekt á ýmsum
málum varðandi Islendinga
- segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson um bók sína „Island - Ar-
vet frán Thingvellir“
„ISLAND - Arvet frán Thingvell-
ir“, eða Island - Arfurinn frá
Þingvöllum, er heiti nýrrar bókar
eftir dr. Hannes H. Gissurarson
lektor, sem nýlega er komin út
hjá Timbro-forlaginu í Stokk-
hólmi. í bókinni, sem þýdd hefur
verið á sænsku, fjallar Hannes
um nokkra þætti íslenzks samfé-
lags og menningar.
„Þessi bók er hispurslaus úttekt
mín á ýmsum málum varðandi ís-
land og íslendinga, skoðun mín á
landi og þjóð,“ sagði Hannes í sam-
tali við Morgunblaðið um bók sína.
„Ég leyni ekkert skoðunum mínum,
þannig að bókin er ekki félagsfræði-
leg greining eða hlutlaus ferða-
mannabæklingur, engin almælt
tíðindi um ísland. Sterkir menn og
fegurðardrottningar koma þar lítt
við_ sögu.“
Í bók sinni fjallar Hannes Hólm-
steinn um fimm svið íslenzks samfé-
lags. í fyrsta kafla lýsir hann rétt-
ar- og þjóðfélagsskipan íslendinga
á miðöldum og tengir þá lýsingu
við nýrri rannsóknir, sem erlendir
vísindamenn hafa gert á íslenzku
samfélagi. í öðrum kafla er svo ij'all-
að um íslenzkt nútímaþjóðfélag.
Þriðji kaflinn skiptist í stuttar
svipmyndir af sjö íslendingum; þeim
Davíð Oddssyni borgarstjóra, Brynj-
ólfi Bjamasyni framkvæmdastjóra,
Elínu Hirst fréttakonu, Þór White-
head prófessor, Önnu Júlíusdpttur
húsmóður, Hrafni Gunnlaugssyni
leikstjóra og Jóni Steinari Gunn-
laugssyni lögmanni. „Ekkert þeirra
er dæmigerður íslendingur (ég vona
að engir dæmigerðir íslendingar séu
til), en þau eru öll þess virði að
heimsækja þau,“ segir höfundur í
formála bókarinnar.
Halldór Kiljan Laxness er aðal-
persónan í fjórða kafla bókarinnar.
„Ferill hans er skýrt dæmi um það
hvemig hugmyndir vekja mennta-
manni tálsýnir, í hans tilfelli um að
hægt sé að skipuleggja velmegun á
vísindalegan hátt,“ segir í formálan-
um.
Fimmti kaflinn fjallar um eignar-
rétt á fiskimiðunum og sá sjötti um
íslenzka fjölmiðla. Bókinni lýkur á
eftirmála, þar sem höfundur veltir
fyrir sér ýmsum nauðsynlegum
breytingum í íslenzku stjórnmála-
og efnahagslífi á næstu ámm.
Timbro-forlagið í Stokkhólmi fór
þess á leit við Hannes fyrir nokkru
að hann skrifaði bók um ísland.
Timbro hefur á undanförnum árum
gefið út ýmis verk fijálslyndra,
borgaralega sinnaðra höfunda.
„Mér hafði ekki dottið í hug að
skrifa bók um ísland og íslendinga
en Timbro gerði mér tilboð, sem ég,
gat ekki hafnað," sagði Hannes. „Þá
vantaði bók um ísland, sem ekki
væri skrifuð af þessum sáróánægðu
íslenzku menntamönnum, sem
reyna að bæta sér það upp með
kveinstöfum erlendis að þeir em
homrekur í þjóðfélaginu hér. Það
vantaði hreinskilna, hressilega og
hispurslausa lýsingu á Islandi og
íslenzkum málum, sem væri skrifuð
frá fijálslyndu, borgaralegu sjónar-
miði. Vinstri sinnaðir menntamenn
hafaeinokað skoðanamyndun gagn-
vart íslandi."
Eitt verka Birgis sem ber titilinn Bæn.
Myndlist
BIRGIR Snæbjörn Birgisson opn-
ar laugardaginn 20. október kl.
16.00 sýningu á verkum sinum i
Djúpinu, neðri hæð veitingastað-
arins Hornsins, Hafnarstræti 15.
Á sýningunni gefur að líta tré-
ristur, steinþrykk og teikningar.
Birgir er fæddur og uppalinn á
í Djúpinu
Akureyri. Hann útskrifaðist úr
grafíkdeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1989. Þetta er fyrsta
einkasýning Birgis, en hann hefur
átt verk á samsýningu í Finnlandi.
Sýningin stendur í mánuð eða til
17. nóvember og er opin á opnun-
artíma Hornsins.
Braust inn í sjö bíla
UNGUR piltur er talinn hafa
brotist inn í sjö bíla við Skeifuna
í gær og stolið úr þeim. Vegfar-
andi sá til piltsins og veitti honum
eftirför en missti af honum á
Grensásvegi.
Pilturinn er talinn vera 15-16 ára
gamall, dökkhærður um 180 sm á
hæð, og var hann klæddur í leður-
jakka með brúnum röndum og
svartar gallabuxur. Hann fór inn í
bílana með því að bijóta rúður, en
úr þeim stal hann meðal annars
greiðslukorti, ávísanaheftum,
myndavélum, töskum og fleiru.
Gary Kasparov slapp
snilldarlega fyrir hom
___________Skák________________
Margeir Pétursson
EKKERT lát er á hörðum
vopnaviðskiptum í heimsmeist-
araeinvígi þeirra Kasparovs og
Karpovs. Samið var jafntefli í
fjórðu skákinni í gær eftir geysi-
lega tvísýna baráttu. Karpov
valdi nú mjög hvasst afbrigði
með svörtu og með nýrri og
sterkri hugmynd setti hann
heimsmeistarann upp að vegg.
Kasparov varð að fórna tveimur
peðum fyrir sóknarfæri, sem
voru greinilega ófullnægjandi.
Með snilldartaflmennsku tókst
honum þó að slá ryki í augu
Karpovs og þegar skákin fór í
bið eftir 40 leiki hafði heims-
meistarinn tryggt sér jafntefli
með þráskák. Kasparov heldur
því eins vinnings forskoti sínu,
en þriðja snilldarskákin í röð sá
dagsins ljós.
Svo virðist sem Anatoly Karpov,
fyrrum heimsmeistari, ætli ekki að
koma andstæðingi sínum á óvart í
þessu einvígi, en treysta frekar á
sín gömlu þaulreyndu vopn. Eftir
afhroð hans í annarri skákinni var
beðið með mikilli eftirvæntingu
eftir því með hvaða byijun hann
myndi veijast á svart í þeirri fjórðu.
Karpov leitaði ekki langt yfir
skammt, hann fylgdi annarri skák-
inni fram í fimmtánda leik og valdi
þá leið sem hann beitti með lélegum
árangri í heimsmeistaraeinvíginu
1986. Þá tapaði hann tveimur
skákum með henni.
Karpov ber geysilegt traust til
Karpov-Zaitsev-afbrigðisins í
spænska leiknum sem sézt bezt á
því að hann beitir því nú gegn
Kasparov þrátt fyrir að hann megi
vita að heimsmeistarinn hefur þaul-
rannsakað það í sumar.
Þessi íhaldssemi Karpovs virtist
þó ætla að skila árangri því eftir
byijunina hristi hann fram úr er-
minni stórsnjalla leið sem setti
Kasparov hreina afarkosti. Heims-
meistarinn varð að taka á allri sinni
snilld til að skapa sér mótfæri. Það
tókst honum að gera en þau varð
hann að gjalda háu verði, hann
missti tvö peð og ljóst var að ef
Karpov næði að létta á stöðunni
væri sigurinn hans.
Allt benti líka til að sóknin væri
ekki nægilega öflug til að réttlæta
fómimar, en í tímahraki fann
Karpov ekkert betra en að leyfa
heimsmeistaranum að þráskáka.
Mér sýnist þó að hann hafi misst
af nokkuð ömggri vinningsstöðu í
39. leik.
Þegar upp var staðið virtist Ka-
sparov dasaður eftir átökin en
Karpov sýndist hins vegar í uppn-
ámi, sem sérfræðingar túlkuðu sem
éftirsjá eftir glötuðum vinnings-
möguleikum
Það er greinilegt af ijórðu skák-
inni að Kasparov má fara að gæta
sín, Karpov hefur staðið af sér
miklar hamfarir, er að vísu einum
vinningi undir, en var nálægt því
að jafna metin í fyrrakvöid. Það
verður því spennandi að sjá hvað
gerist í kvöld þegar Karpov hefur
hvítt í fimmtu skákinni. Það verður
líka fróðlegt að sjá hvemig Ka-
sparov mun svara spæanska leikn-
um með hvítu í þeirri sjöttu.
Staðan er nú 2 'h—l '/2 heims-
meistaranum í vil og hann má
óneitanlega vel við una, því fari
einvígið 12-12, heldur hann titlin-
um á jöfnu.
2. einvígisskákin:
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Anatoly Karpov
Spænski leikurinn
I. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5
- a6 4. Ba4 — Rf6 5. 0-0 - Be7
6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3
- 0-0 9. h3 - Bb7 10. d4 - He8
II. Rbd2 - Bf8 12. a4 - h6 13.
Bc2 — exd4 14. cxd4 — Rb4 15.
Bbl - c5
í annarri skákinni lék Karpov
hér 15. — bxa4, sem var nýjasta
uppáhald hans, en eftir 16. Hxa4
- a5 17. Ha3 - Ha6 18. Rh2 -
g6 kom Kasparov með nýjungina
19. f3! og náði að byggja upp þægi-
lega og heilbrigða stöðu. Karpov
grípur því aftur til leiks sem hann
notaði tvívegis gegn Kasparov í
einvíginu 1986 en tapaði í bæði
skiptin.
16. d5 - Rd7 17. Ha3 - f5!?
Mjög hvass leikur, sem virðist
ekki henta stíl Karpovs, en hann
hefur áreiðanlega rannsakað hann
þeim mun betur. Hann beitti leikn-
um líka í síðustu einvígisskákinni
við Timman í marz, en flestir túlk-
uðu það sem ögmn þar sem Karpov
var hvort eð var orðinn öruggur
með sigur í einvíginu. Það kemur
vissulega á óvart að Karpov skuli
beita leiknum gegn Kasparov, því
hann má vita að heimsmeistarinn
hefur rannsakað hann og flækjum-
ar sem nú fara í hönd falla vel að
stíl heimsmeistarans. Árið 1986 lék
Karpov í bæði skiptin 17. — c4 í
stöðunni.
Nú svaraði Timman með 18.
Hae3!? - f4 19. H3e2 og náði að
rugla Karpov í ríminu, þótt hann
léki skákinni af sér síðar. Það er
nú vitað að sú leikaðferð stenst
ekki ströngustu kröfur
18. exf5 - Rf6 19. Re4 - Bxd5!?
Þetta er nýr leikur í stöðunni. í
skákum Bandaríkjamannanna
NickS DeFirmians og Alexanders
Ivanovs hefur tvívegis verið leikið
hér 19. — Rbxdö
20. Rxf6+ Dxf6 21. Bd2
í skýringum við áðurnefndar
skákir hefur Ivanov metið þessa
stöðu sem hagstæða hvítum, en
greinilega hafa Karpov og aðstoð-
armenn hans skyggnst mun dýpra
í stöðuna.
21. - Dxb2! 22. Bxb4 - Bf7!
Eftir þennan geysisterka milli-
leik, sem að öllum líkindum hefur
fundist í heimaundirbúningi
Karpovs er ekki hlaupið að því fyr-
ir hvítan að blása lífí í sóknina.
Svartur vinnur manninn óumflýj-
anlega til baka og ef hvíta sóknin
rennur út i sandinn blasir sigur við
svörtum, vegna frípeðanna á
drottningarvæng og biskupapars-
ins. Sem dæmi má taka leiðina 23.
Dd3 - Dxb4 24. Hxe8 - Hxe8
25. f6 — g6 og hvítur er strand
því 26. Rh4 er ekki mögulegt.
Kasparov fínnur athyglisverðan
möguleika:
23. He6!— Dxb4 24. Hb3 - Dxa4
25. Bc2
Fyrir tvö peð hefur Kasparov
náð sterkum tökum á hvítu reitun-
um og svarta drottningin er úr
spilinu, en það skortir þó enn um
sinn beinar hótanir. Svartur á hins
vegar erfitt með að losa um sig
og næstu leiki er staða hans mjög
vandtefid. Hann má ekki taka
skiptamuninn á e6 því þá verður
hann vamarlaus á hvítu reitunum.
25. - Had8 26. Hbe3 - Db4 27.
g3 — a5
Býsna hlutlaus leikur, en 27. —
d5 leyfír 28. Re5 og 27. - c4 28.
Rd4 er éinnig varasamt.
28. Rh4 - d5 29. De2 - Dc4
Vegna peðafylkingar sinnar get-
ur Karpov leyft sér að fóma manni
til að komast út í endatafl. Eftir
30. Hxe8 — Dxe2 31. Hxf8+ —
Kxf8 32. Hxe2 — d4 flæða svörtu
peðin yfir hvítan.
30. Bd3 - Dcl+ 31. Kg2?
Hér virðist 31. Kh2! vera ná-
kvæmara. í afbrigði a-1 í skýring-
um við 39. leik svarts nær hvítur
jafntefli með kónginn á h2
31. - c4 32. Bc2 - Bxe6
Svartur gat ekki beðið lengur
með að taka skiptamuninn á e6,
því hvítur hótaði einfaldlega 33.
Hxe8. Næstu leikir eru meira og
minna þvingaðir, svo það er stór
spurning hvort svartur hafi ekki
átt öflugra framhald einhvers stað-
ar á bilinu 25. til 29. leik.
33. Hxe6 — Hxe6 34. Dxe6+ —
Kh8 35. Rg6+ - Kh7 36. De2! -
Dg5
Ekki gekk 36. - d4 37. Rxf8+
- Hxf8 38. f6+ - d3 39. De4+ -
Kh8 40. fxg7+ - Kxg7 41. De7+
— Hf7 42. De6 og hvítur nær jafn-
tefli með þráskák. Ef svartur næði
nú að stífla með 37. — Df6 gæti
hvítur gefist upp, svo Kasparov á
ekkert val:
37. f6 - Dxf6 38. Rxf8++ - Kg8
39. Rg6
Sjá stöðumynd.
39. - Df7?
í tímahrakinu velur Karpov mjög
traustan leik sem leiðir beint til
jafnteflis. Hann gat teflt til vinn-
ings, fremur áhættulítið eins og
eftirfarandi afbrigði sýna:
a) 39. — d4 og hvítur á tvo mögu-
leika:
a-1) 40. Bf5 - Dc6+ (40. - d3?
41. De4 — d2 42. Be6+ — Dxe6
43. Dxe6+ - Kh7 44. Df5 - dl=D
45. Re7+ og þráskákar) 41. Be4
og nú hefur svartur góða mögu-
leika eftir bæði 41. — Dd6 eða 41.
— Dd6, en ekki 41. — He8? 42.
Bxc6 — Hxe2 43. Bd5 og þráskák-
ar. a-2) 40. Re7+ - Kf8! (En ekki
40. - Kf7 41. Bg6+ - Kf8 42.
Rd5 - Dd6 43. Df3+ - Kg8 44.
Bf7+ - Kh8 45. Rf4! - Df6 46.
Rg6+ 47. De4, eða 42. — Dxg6
43. De7+ - Kh7 44. Dxd8+ -
Kh7 45. Re7 - De4+ 46. Kgl -
De6 47. h4! með góðum jafnteflis-
möguleikum) 41. Rg6+ — Kf7 og
það er engin þráskák í stöðunni
og svartur hlýtur að vinna.
39. — d4 ætti því að leiða til
vinnings á svart og svartur á einn-
ig annan athyglisverðan möguleika
í stöðunni:
b) 39. — b4!? en gegn honum á
hvítur skemmtilega lausn: 40. Bf5!
(40. Re7+? - Kf8! 41. Rg6+ -
Kf7 þjónar hins vegar engum til-
gangi) 40. — b3 41. h4!? — b2
(Þetta er ekki fallegur leikur, en
hann virðist þvingaður. Ef hvítur
fengi meiri tíma leikur hann h5 eða
g4-g5. Eftirfarandi afbrigði er t.d.
athyglisvert: 41. — c3? 42. h5 —
c2 43. Be6+ - Kh7 44. Dd3 -
Dxe6 45. Re6++ — Kg8 46. Rxe6
— cl=D 47. Dg6 og hvítur ætti
að vinna) 42. Bbl og þrátt fyrir
liðsmuninn er alls ekki hægt að
bóka neinn vinning á svart. Dæmi:
42. - a4 43. h5 - a3 44. Re7+ -
Kf8 45. Rg6+ - Kf7 46. De3 -
d4 47. Dxa3 - d3 48. Da7+ -
Kg8 49. Re7+ og heldur sínu.
40. Re7 + — Kf8 og hér fór skák-
in í bið, en í gær var síðan samið
jafntefli því hvítur þráskákar ein-
faldlega.