Morgunblaðið - 19.10.1990, Qupperneq 31
MORGUttÉLAÖÍÐ FÖSTUDAGUR 19; OKTÓBER 1990
31 .
AKUREYRI
Sláturhús KEA:
Um þrjátíu
þúsund slát-
ur seld í haust
Mun fleiri skrokkar
lenda í fituflokkum
en í fyrra
SLÁTURSALA hefur verið mjög
mikil hjá Sláturhúsi KEA á Akur-
eyri, en þar hafa verið seld upp
undir þrjátiu þúsund slátur.
Sauðfjárslátrun lýkur á laugar-
dag. Fallþungi er mun meiri en
var á siðasta ári og hafa umtals-
vert fleiri skrokkar lenti í fitu-
flokki.
Óli Valdimarsson sláturhússtjóri
sagði að slátrað yrði út þessa viku
og lyki slátrun um hádegi á laugar-
dag, en reikna mætti með að eftir
yrði að slátra um 500 íjár fyrir
helgina og vart tæki því að geyma
slátrun fram á mánudag. „Það er
best að ljúka þessu af,“ sagði Óli.
Meðalþyngd dilka er nokkru
hærri en var á síðasta ári, eða 15,9
kg á móti 15,3 kg þegar búið var
að slátra um þrjátíu þúsund fjár.
Miðað við 12. október eða síðasta
föstudag höfðu 572 skrokkar lent
í úrvalsflokki, en fyrir sama tíma í
fyrra voru þeir nokkru færri eða
433. Hins vegar hafa fleiri skrokk-
ar lent í feitari flokkunum nú en í
fyrra. AIls hafa 3.079 skrokkar lent
í b-flokki á móti 2.429 á síðasta
ári og í c-flokki eru 824 skrokkar
nú á móti einungis 240 í fyrra.
„Féð hefur haft það gott í vor og
sumar, það er greinilegt, vænleiki
þess er mikill," sagði Óli. En í.kjöl-
farið hafa bændur sent færra fé í
sláturhús.
Slátursala hefur verið mikil og
lætur nærri að um þijátíu þúsund
slátur hafi verið seld í haust. „Þetta
fer jafnóðum út og ennþá er reyt-
ingur, talsvert að gera allan dag-
inn,“ sagði Óli, en vegna mikillar
ásóknar í innmatinn hefur slátur-
húsinu ekki tekist að útvega eld-
húsi FSA 200 hjörtu sem þar áttu
að vera á matseðli. Vonir standa
til að úr rætist þessa síðustu daga
þegar ögn fer að draga úr umferð
sláturgerðarfólks. Slátur hefur ver-
ið sent frá Húsavík og einnig frá
Kópaskeri eða samtals tæplega sex
þúsund slátur til að anna megi eftir-
spum. Á síðasta ári vom send um
fjögur þúsund slátur austan að til
Akureyrar.
Fjölmenni við minningarathöfn
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Mikið fjölmenni var við minningarathöfn um Val Arnþórsson bankastjóra Landsbanka íslands og fyrrver-
andi kaupfélagsstjóra Kaupfélags Eyfirðinga sem fram fór í Akureyrarkirkju í gær. Hvert sæti kirkjunnar
var skipað og fengu ekki allir sæti. Kirkjukór Akureyrarkirkju söng við athöfnina, Björn Steinar Sólbergs-
son organisti lék og Guðrún Þórarinsdóttir lék einleik á fiðlu. Séra Birgir Snæbjörnsson prófastur flutti
ritningalestur og minningarræðu. Útför Vals Arnþórssonar verður gerð frá Dómkirkjunni kl. 13.30 í dag,
föstudag.
Rafverktakar frá Akureyri selja upp lýsingu í Múlagöngum:
Vekur upp grunsemdir um
að maðkur sé í mysunni
- segir Sigurður Björnsson bæjarfulltrúi, en bæjarsljórn
hefur mótmælt þessari ákvörðun Vegagerðarinnar
BÆJARSTJÓRN Ólafsfjarðar hefur mótmælt harðlega þeirri ákvörð-
un Vegagerðar ríkisins að afhenda rafverktökum á Akureyri, en
ekki Ólafsfirði, vinnu við uppsetningu á lýsingu i Múlagöngum, eins
og segir í ályktun sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í vik-
unni. Sigurður Björnsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks bar fram
ályktunina og var hún samþykkt samhljóða. Þar segir að þess sé
krafist að ákvörðunin verði endurskoðuð og verktökum í Ólafsfirði
verði gefinn kostur á verkinu. Þá vísar bæjarsljórn á bug rökum
umdæmisverkfræðings sem fram koma á minnisblaði sem hann sendi
henni fyrir skömmu um ástæður þess að verktakar eru ráðnir frá
ir frá Akureyri til að tengja raf-
magn í húsin. Lái okkur í bæjar-
stjórn hver sem vill þó okkur þyki
þessi vinnubrögð grunsamleg. Ókk-
ur hefur ekki sýnst Vegagerðin eiga
það mikla peninga afgangs að þeir
geti leyft sér svona lagað,“ sagði
Sigurður.
Fyrsta frumsýning
vetrarins hjá LA:
Nýtt íslenskt
verk um utan-
garðsmenn á
öskuhaugum
LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýn-
ir í kvöld, föstudagskvöld, „Leikri-
tið um Benna, Gúdda og Manna“
eftir Jóhann Ævar Jakobsson, en
þetta er fyrsta frumsýning vetrar-
ins hjá LÁ. Þetta er fyrsta leikrit
Jóhanns Ævars.
„Leikritið um Benna, Gúdda og
Manna“ fjallar um þijá utangarðs-
menn sem reynt hafa sárar raunir.
Benrti og Gúddi eru vinir sem búa í
skúr á öskuhaugunum, harðir karlar,
breyskir en skemmtilegir og lögmál
þeirra erum mjög miskunnarlaus.
Þeir hafa báðir hrasað á vegi dyggð-
arinnar og búa við sérkennilegt böl;
Benni er með skeifu undan hesti á
floti í hausnum og Gúddi fláði af sér
hálft andlitið í nautshúðarsköfu í
verksmiðju á Akureyri. Fortíð þeirra
er óljós, en hugsanlega voru þ'eir eitt
sinn miklir menn. í byijun leiks kem-
ur óvænt til þeirra þriðji ógæfumað-
urinn sem ekki á síður skrautlega
fortíð. Sá heitir Manni og flyst hann
til þeirra í skúrinn. Þá gerast óvænt-
'ir atburðir sem enginn fær ráðið.
Leikstjóri er Sunna Borg, hún er
fastráðinn leikari hjá LA og formað-
ur leikfélagsins. Þetta er þriðja verk-
ið sem hún leikstýrir hjá félaginu.
Leikmynd gerir Hallmundur Krist-
insson og er það hans fimmtánda
leikmynd hjá LA. Lýsingu hannar
Ingvar Bjömsson, en hann hefur
hannað lýsingu í allar sýningar LA
sl. tíu ár. Leikendureru Þráinn Karls-
son, Gestur Einar Jónasson, Hannes
Örn Blandon og Jón St. Kristjáns-
son. Þráinn og Gestur hafa leikið um
80 hlutverk á sviði, en Jón St. er
ungur fastráðinn leikari hjá félaginu
frá fyrra hausti. Hannes Örn Blan-
don er sóknarprestur í Laugalands-
prestakalli í Eyjafirði og leikur nú
annað hlutverk sitt hjá Leikfélagi
Akureyrar.
Akureyri.
Sigurður sagði að bæjarstjórn
hefði óskað eftir því á fundi með
Snæbirni Jónassyni vegamálastjóra
að kannað yrði hvaða ástæða lægi
að baki því að gengið var framhjá
rafverktökum í Ólafsfirði. í fram-
haldi af því hafi Guðmundur Svaf-
Kvennakórinn Lissý heldur tvenna tónleika í Eyjafjarðarsýslu um
helgina.
I KVENNAKÓRINN Lissý, sem
er kór Kvenfélagasambands
Suður-Þingeyinga, heldur tvenna
tónleika á sunnudaginn, 21. októ-
ber. Þeir fýrri verða í félagsheimil-
inu Hlíðarbæ kl. 16, en þeir síðari
í Víkurröst, Dalvík. Tónleikamir
hefjast kl. 21. Á efnisskrá eru
kirkjuleg og veraldleg kórlög
íslenskra og erlendra höfunda, m.a.
eftir Pál ísólfsson, Sigvalda Kald-
alóns, G.B. Pergolexi, Mozart og
Schubert. Einsöngvarar með kórn-
um eru Þuríður Baldursdóttir og
Hildur Tryggvadóttir. Píanóleik-
ari er Guðrún A. Kristinsdóttir
og stjórnandi er Margrét Bóas-
dóttir. í Lissý eru rétt um 60 söng-
konur, sem búsettar eru víðsvegar
um Þingeyjarþing. Kórinn starfaði
mjög ötullega á síðasta starfsári,
söng á 60 ára afmælishátlð Kven-
félagasambands íslands I
Reykjavík og í báðum Þingeyjar-
sýslum. Eyjafjörður er aðeins
fyrsti áfangastaður utan sýslu-
marka, því í júní stefnir kórinn í
söngferð til Þýskalands og Frakk-
lands.
arsson umdæmisverkfræðingur
Vegagerðar ríkisins á Akureyri sent
bæjarstjórn minnisblað þar sem
fram koma ástæður þess að verkinu
var ráðstafað með þessum hætti.
í minnisblaði umdæmisverkfræð-
ings kemur fram að ekki hafi þótt
svara kostnaði að efna til útboðs,
sem kostað gæti um 300 þúsund
krónur fyrir jafn lítið verk og um
ræðir, en það hljóðar upp á 1,5
milljónir króna. Einnig kemur þar
fram að verktími sé stuttur og því
hafi verið lögð áhersla á að fá vana
menn til verksins, Rafiðn sem um
verkið sér hafí nýlokið við uppsetn-
ingu lýsingar í jarðgöngum í
Blönduvirkjun, fyrirtækið hafí einn-
ig spurst fyrir um þessa vinnu.
í ályktun sinni vísar bæjarstjórn
rökum umdæmisverkfræð.ings sem
fram koma í minnisblaði hans á bug
og telur að vegna óvissu um tíma-
mörk á verkinu myndi það leiða til
spamaðar og hagræðis að semja
við heimamenn. „Þá vill bæjarstjórn
upplýsa umdæmisverkfræðing um
að rafverktakar í Ólafsfírði hafa
áratuga reynslu og hafa starfað
með ágætum árangri með hönnuð-
um frá Akureyri og Reykjavík,"
segir í lok ályktunarinnar.
„Ástæðan fyrir því að ég flutti
svo harðorða tillögu var einfaldlega
sú, að Vegagerðin var augljóslega
að velja dýrari kost með því að
semja við verktaka sem var fjarri
verkstaðnum fremur en að velja
heimamenn. Það vekur upp grun-
semdir um að maðkar séu í mys-
unni og minnispunktar Vegagerðar-
innar eru hreint yfírklór. Það má
benda á að þegar Vegagerðin setti
niður tvö hús f Ólafsfirði í fyrra þá
voru þessir sömu rafverktakar flutt-
Útvegsmenn Nordurlandi
Aðalfundur Utvegsmannafélags Norður-
lands verður haldinn þriðjudaginn
23. okt. nk. kl. 10.00 f.h. á Hótel KEA,
Akureyri.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Onnurmál.
/ #
Kristján Ragnarsson, formaður LIU, og
Jóhann Sigurjónsson, sjávarlíffræðingur,
koma á fundinn.
Stjórnin.
Sveitavinna
Starfskraftur, karl eða kona, óskast í sveit frá
10. des. nk. og til vors, eða ca 7 mánuði.
Bústærð um 400 ærgildi. Þarf að geta hirt
sauðfé og kýr og mjólkað, helst vanur búvél-
um. Aldur 18-60 ár.
Umsóknir, er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, ásamt launahugmynd, sendist til Ingi-
bjargar Bjarnadóttur, Gnúpufelli, 601 Akur-
eyri, fyrir 25. okt.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.