Morgunblaðið - 11.11.1990, Síða 1

Morgunblaðið - 11.11.1990, Síða 1
104 SIÐUR B/C 257. tbl. 78. árg. Græðir á ný- fengnu frelsi JERZY Urban, fyrrverandi talsmaður, ríkisstjórnar kommúnista í Póllandi, ger- ir það gott í viðskiptum þessa dagana. Urban nýtir sér til hins ítrasta nýja lög- gjöf um útgáfufrelsi og hefur bók hans með níðskrifum um stjórnmálamenn selst í 600.000 eintökum. Háðsádeilu- tímarit sem hann stofnaði og gefur út vikulega er orðið eitt mest selda tímarit Póllands á aðeins nokkum vikum og kemur nú út í 200.000 cintökum. í tíma- ritinu, sém iieitir Nie eftir pólska orðinu fyrir „nei“, 'hafa birst háðsgreinar um Tadeusz Mazowiecki forsætisráðherra, Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, og jafn- vel uin Jóliannes Pál páfa II, kunnasta son Póllands. Fær Thatcher mótframboð? Breska sjónvarps- stöðin ITN sagði á föstudag að Micha- el Heseltine, fyrr- verandi varnar- málaráðherra Bretlands, íhugaði nú að bjóða sig fram gegn Margar- et Thatcher forsæt- isráðherra í leiðtogaembætti íhalds- flokksins. Heseltine gaf ekkert út á þess- ar vangaveltur en hann hefur gagnrýnt stefnu Thatcher í Evrópumálunum harð- lega og um nokkurn tíma verið talin hugsanlegur eftirmaður hennar sem leiðtogi íhaldsflokksins. Heseltine hefur sagt opinberlega að hann muni ekki vinna gegn Thatcher í leiðtogakjöri flokksins en í ræðu í Oxford á föstudag tók hann Evrópumálin upp að nýju, benti á að samstarf væri betra en einangrun og þykja ummælin benda til þess að hann gæti verið að undirbúa framboð gegn Thatcher. Gorbatsj o v-vodka: Málsókn vegna nafngiftarinnar SOVÉSK stjórnvöld hyggjast höfða mál gegn þýsku fyrirtæki er framleiðir áfengi sem nefnist Gorbatsjov-vodka fyr- ir að nota nafn Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna. Þýsku framleið- endurnir segja liins vegar að vodkað sé nefnt eftir einum af hershöfðingjum Rússakeisara, L. Gorbatsjov, er stofnaði fyrirtækið í Pétursborg, nú Leníngrad, árið 1880. Hershöfðinginn flúði tií Berlínar 1919 og hélt þar áfram rekstri fyrirtækisins. Sovétmenn segja þetta ekkert annað en auglýsingabrellu. Þrátt fyrir leit í skjalasöfnum finnist engar frekari upplýsingar um hershöfðingj- ann. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 0 • • Askorun leiðtoga Eystrasaltsríkjanna fyrir leiðtogafund ROSE: Parísarfundurinn viður- kenni sjálfstæði ríkjanna Moskvu. Reuter. EYSTRASALTSRlKIN fóru þess í gær á leit við leiðtogafund ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE/CSCE) sem hefst í París 19. nóvember nk. að sjálfstæði þeirra verði viðurkennt af ráðstefnunni og Sovétinenn knúnir að draga heri sína frá þeim. Isameiginlegri yfirlýsingu Eystrasaltsríkj- anna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens, til ráðstefnunnar sagði að friður, öryggi og framfarir yrðu ekki tryggðar í Evrópu nema RÖSE léti ólögmætt hernám ríkjanna til sín ’taka og legði að Sovétmönn- um að hætta því. Leiðtogar ríkjanna hittust í Vilnius, höfuðborg Litháens, á föstudag og gengu þar frá yfirlýsingu sinni en þar sagði að Sovétmenn hefðu ekkert forræði yfir Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Leiðtogar ríkjanna hvöttu jafnframt til þess að í nýjum samningi um hefðbundin vopn í Evrópu (CFE) yrðu Sovétmenn skyld- aðir til að draga heri sína frá Eystrasaltsríkj- unum. Nauðsynlegt væri að nafngreina ríkin þijú hvert fyrir sig svo þau gætu fylgst með að staðið yrði við ákvæði samkomulags- ins á þeirra yfirráðasvæði. Gert er ráð fyrir að fulltrúar Atlantshafsbandalagsins (NATO) og Varsjárbandalagsins undirriti CFE-samkomulag í lok RÖSE-ráðstefnunn- ar. í yfirlýsingu leiðtoga Eystrasaltsríkjanna sagði að léti RÖSE hersetu Sovétmanna í ríkjunum ekki til sín taka gætu sovésk stjórnvöld litið á það sem óbeina viðurkenn- ingu á innlimun rikjanna í Sovétríkin sem átti sér stað með leynisamningufn Jósefs Stalíns og Adolfs Hitlers 1939. Eystrasaltsríkin hafa sótt um aðild að RÖSE-ráðstefnunni en nýlega var beiðni þeirra um að senda áheyrnarfulltrúa til leið- togafundarins í París synjað, að sögn frétta- stofu í Vilnius. Hafði hún eftir Vytautas Landsbergis forseta Litháens í gær að hann gerði sér enn vonir um að fulltrúar Eystra- saltsríkjanna gætu tekið þátt í Parísarfund- inum sem gestir í sendinefnd einhvers hinna 34 RÖSE-ríkja. Landsbergis heldur í dag til London til viðræðna við breska ráðamenn og mun hann eiga fund með Margaret Thatcher forsætis- ráðherra á þriðjudag. Mun hann leggja að breskum stjórnmálamönnum að styðja sjálf- stæðisbaráttu Litháa. Þá munu fulltrúar Eystrasaltsríkjanna eiga fund með fulltrúum Sovétstjórnarinnar í Moskvu í dag um sjálfstæðismál ríkjanna þriggja. DAGAR í JEMEN: NÚTÍMASTÚLKAN NIMA, UPP ÁTINDA KAKOWBANS OG SKOTÆFINGAR í SKÓGARFERÐ 1M,, 16 BLAÐ c

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.