Morgunblaðið - 11.11.1990, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.11.1990, Blaðsíða 14
u MQRGJJNBÍ.AÍHÐ SUNNUlTAG.UK 11. NQVEMBUB 1990 Kurr vex í röðum breskra íhaldsmanna: JaminiiD pykii ol herská eftir Kristjón Jónsson ÉG hef í rauninni engar áhyggjur af fullveldi okkar. Mér finnst Evrópubandalagið (EB) hafa full mikil áhrif á það sem gerist hérna en ég held ekki að sameiginlegur gjaldmiðill breyti miklu þar um — og það yrði auðveldara að ferðast í útlöndum." Þannig lýsir 76 ára gömul húsmóðir í Finchley, kjördæmi Margaret Thatcher forsætisráð- herra í Bretlandi, áliti sínu á deilunni sem fær Thatcher til að nota stóryrði gegn ráðamönnum EB. Thatcher reynir nú að höfða til sterkra þjóðernistilfinninga meðal þeirra Breta er óttast að öll þjóð- leg verðmæti séu á hverfanda hveli vegna samræmingaráráttu og valdafíknar kommissaranna í Brussel. Sir Geoffrey Howe, náinn vopnabróðir og einn helsti ráðgjafi Thatcher í tvo áratugi, sagði nýlega af sér embættum aðstoðarforsætisráðherra og leiðtoga þing- flokksins í neðri deUd þingsins. Hann bar við óánægju með tilfinninga- þrungið orðaval og áherslur Thatcher í umræðum um væntanlegt myntbandalag (EMU) þar sem Evrópumyntin, ecu, á að verða sameig- inlegur gjaldmiðill. Alit Thatcher meðal kjósenda hrapar í skoðana- könnunum, Ihaldsflokkurinn bíður afhroð í hverjum aukakosningun- um á fætur öðrum og efnahagsvandamálin hrannast upp, tölur um verðbólgu og atvinnuleysi hækka stöðugt. Er Járnfrúin búin að tapa áttum, klýfur hún Ihaldsflokkinn með herskárri andúð sinni á frekari Evrópusamvinnu? Og hver tekur við af henni ef hún fellur í leiðtogakjöri eða hættir af sjálfsdáðum? Thatcher hefur nú verið forsætisráðherra í 11 ár eða lengur sam- fleytt en nokkur ann- ar breskur stjórnar- leiðtogi á þessari öld. Evrópumálin hafa áður valdið hremm- ingum í stjórn hennar og Paddy Ashdown, formaður Lýðræðislega jafnaðar- mannaflokksins, hélt því fram eftir afsögn Howe að þau yrðu Thatcher að falli. Fyrir nokkrum mánuðum varð Nicholas Ridley, þáverandi iðn- aðarráðherra, að segja af sér eftir að hafa úthúðað Þjóðveijum og Frökkum, voldugustu þjóðum EB, í tímaritsviðtali. Á síðasta ári sagði Nigel Lawson fjármálaráðherra af sér vegna andstöðu Thatcher við tengsl breska pundsins við Evr- ópska gjaldeyrissamstarfið (EMS). 1986 sagði Michael Heseitine, þá- verandi varnarmálaráðherra, af sér vegna þess að Thatcher vildi ekki nota Evrópusamstarfið til að halda þyrluverksmiðju í breskri eigu. Thatcher var andvíg einingarlögum EB sem samþykkt voru um miðjan áratuginn og lögðu grundvöll að þeirri hröðu þróun sem orðið hefur síðan til samruna ríkjanna 12 en sætti sig síðar við þau eftir nokkrar málamyndabreytingar. Fyrir nokkru lét hún sig einnig í deilunni um aðild að EMS. Einleikur Járnfrúarinnar í Evrópumálunum hefur oft verið hávaðasamur og hljómað illa í eyrum annarra EB- leiðtoga en ekki reynst jafn hættu- legur og særingar galdramanna fyrr á öldum, aðallega valdið ólund. Vill engin Bandaríki Evrópu Thatcher hefur barist með oddi og egg gegn ölium tiiraunum í þá átt að Evrópubandalagið verði með tímanum risaveldið Bandaríki Evr- ópu. Jafnframt hefur hún heimtað að menn útskýri nákvæmlega hvað þeir eigi við með yfirlýsingum um aukið samstarf. Hún hefur einnig gagnrýnt harðlega landbúnaðar- sukkið í bandalaginu. Thatcher vill að ákafir Evrópusinnar láti ekki nægja að að ræða um stórbrotna framtíð álfunnar heldur lýsi í smá- atriðum hvernig hægt verði að taka tillit tii ólíkra sjónarmiða og tryggja að ekki verði til skrifstofu- bákn í Brussel er ráðskist með líf almennings. Hún óttast að tals- menn aukinna opinberra umsvifa og sósíalískra hugmynda fái vilja sínum framgengt með ýmsum Douglas Hurd. klækjabrögðum. Auk þess gætu þeir einfaldlega náð meirihlutavaldi í valdastofnunum bandalagsins í fijálsum kosningum þar sem Bretar eru aðeins ein af mörgum minni- hlutaþjóðum. Hún bendir á að fari svo að þing EB fái aukin völd hljóti það að verða að nokkru leyti á kostnað þjóðþinganna, þ. á m. breska þingsins sem er ein af hel- gustu stofnunum ríkisins. „Hvert verður hlutverk þess í framtíðinni?“ spyr Thatcher. Þessi sjónarmið hennar virðast flest vera í góðu samræmi við hefðbundnar skoðanir íhaldsmanna. Dulinn ágreiningur Dagblaðið Sunday Telegraph gerði fyrir nokkrum dögum skoð- anakönnun meðal þingmanna íhaldsflokksins. Sögðust þá 75% aðspurðra vera sammála stefnu for- sætisráðherrans í Evrópumálunum. Samt telja fréttaskýrendur að þegar rætt sé um Evrópumálin eigi That- cher sér aðeins fáeina dygga stuðn- ingsmenn í sjálfri ríkisstjórninni (inner cabinet) og er Cecil Parkin- son samgöngumálaráðherra einn af þeim. Þungavigtarmenn á borð við John Major fjármálaráðherra,- Dougias Hurd utanríkisráðherra og Kenneth Baker. Kenneth Baker flokksformnn eru allir sagðir hlynntir aukinni sam- vinnu EB-landanna með ákveðnum skilyrðum þótt þeir láti skoðana- ágreining við Thatcher ekki í ljós opinberlega. Margt bendir til að þessir menn, sem allir eru gallharð- ir talsmenn fijálsrar verslunar og markaðsbúskapar, telji sterkt EB vænlegt til árangurs í þá átt að öll Evrópa lúti með tímanum lögmálum markaðarins. Evrópa verði þá end- anlega laus við lamandi krumlu rík- isafskiptanna og það sé fullkomlega veijandi að fórna einhveijum hluta fullveldis Breta til að ná þessu markmiði. Talsmenn myntbanda- lags benda einnig á að Bretland og Irland hafi árum saman verið í slíku bandalagi en hafi á sama tíma fjar- lægst í stjórnmálalegu tilliti og eng- inn hafi séð merki um að Irar yrðu af sjálfræði sem máli skipti með þessu sambandi. Aðrir segja að fiest lönd séu nú að taka upp metra- kerfið, gildi það ekki fyrir í landinu, og jafn eðlilegt sé að ein mynt sé notuð, helst um allan heim. Howe var settur út í tiorn Sir Geoffrey Howe er talinn deila skoðunum áðurnefndra þungavigt- Sir Geoffrey Howe. armanna í stjórn Thatcher. Hann sagði á flokksþingi íhaldsflokksins fyrir skömmu að Bretar yrðu að eiga fulltrúa í „stjórnklefa EB-lest- arinnar", mættu ekki einangrást í andstöðu við aðrar EB-þjóðir. Síðar ítrekaði hann þessa skoðun sína í viðtali og sagði jafnframt að Bretar krefðust þess aldrei að vita fyrir- fram með vissu hvert ferð lestarinn- ar væri heitið. Fréttaskýrandi Daily Telegraph, Charles Moore, sagði að með þessari viðbót hryndi sam- líking Howe til grunna. „Hver hefur nokkurn tíma heyrt um járnbraut- arlest sem leggur af stað eitthvert út í buskann? Lestir aka á teinum sem þegar er búið að leggja. Lest sem ekki er vitað hvert stefnir er skelfilegt fyrirbrigði. Þegar Thatc- her spyr hvert ferðinni sé heitið en lætur ekki duga að stökkva um borð er hún að'bera upp afar eðii- lega og skynsamlega spurningu." Moore fullyrðir að skoðanamunur- inn um Evrópumálin í ríkisstjórn- inni sé stórlega orðum aukinn, íhaldsflokkurinn sé ekki klofinn þeirra vegna. Howe telji sig, í sönn- um anda hefðbundinna íhalds- manna, vera „raunhæfan" mann er forðist að slá um sig með innantóm- um glamuryrðum og hafi ímugust 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.