Morgunblaðið - 11.11.1990, Side 27

Morgunblaðið - 11.11.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNtJÖAGUÍÍ 11. NÓVEM15RR 1990 27 Schiesser® FLUGLEIÐIR Þegar ferðalögin liggja í loftinu PULITZER FRÁ KR. 37.180,- ASCOT FRÁKR. 35.700,- SAS ROYAL FRÁ KR. 37.180,- OWL (UGLAN) FRÁKR. 32.050,- 'Miðað við gistingu i tvíbýli í 4 nætur. Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir í síma 690 300. Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum. HELSTU SÖLUSTAÐIR: Amaro, Akureyrí • Embla, Hafnarfiröi • Fell, Mosfellsbæ • H. búðin, Garðabæ • Kaupstaður í Mjódd • KF.Þ. Húsavík • KF.VH. Hvammstanga • KF.H. Egilsstöðum • MikllgarAur v. Sund • Perla, Akranesi • Rut, Glæsibæ/Kópavogi • Vöruhús KÁ, Selfossi Amsterdam erengri lík. Þarfinnurðu örugglega eitthvað, sem lífgar upp á tilveruna. Þú átt það inni hjá sjálfum þér. Verslun hefur blómstrað í Amsterdam í mörg hundruð ár. Kaupmenn þar vita hvað kemurfólki vel þegar það ætlar að versla og veita því að sjálfsögðu góða þjónustu og mjög hagstætt verð. í Amsterdam er auðvelt að komast leiðar sinnar. Þar er einnig gott að skemmta sér; u.þ.b. 30 leikhús, 10 tónleikasalir, 50 bíó, fjöldinn allur af diskótekum, dansstöðum, djass- og næturklúbbum, 40 söfn og 60 sýningarsalir. KRASNAPOLSKY DE ROODE LEEUW FRÁ KR. 37.840,- FRÁ KR. 32.550,- Marías B. Kristjáns- son frá Isafirði urgatan ekki söm eftir. Ég veit að amma er ekki ánægð með mig núna. Hennar fyrirskipun var „engin eftir- mæli“, en ég gat ekki stillt mig. Ég verð að þakka henni einu sinni enn, þó af vanmætti sé, fyrir mig, Gunna, Soffíu og Jónas Reyni. Fari hún í friði með þökk fyrir allt og allt. Maríanna Fæddur 13. febrúar 1916 Dáinn 4. nóvember 1990 Margs er að minnast, margt er hér að þakk’a. Guði sé lof fyrir Íiðna tíð. (V. Briem) Ég kveð nú hinstu kveðju tengda- föður minn, Marías B. Kristjánsson, en hann lést á Landakotsspítala að morgni sunnudagsins 4. nóvember. Marías fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð 13. febrúar 1916, sonur hjónanna Kristjáns Guð- mundar Maríassonar og Guðbjargar Lovísu Magnúsdóttur. Um 2ja ára aldur flyst hann með foreldrum og systkinum, en þau voru 7, til Bol- ungai’víkur og átti þar heima fram yfir fermingu er þau flytja til ísa- fjarðar en þar átti Marías heima til 1973 að hann flyst til Reykjavíkur. Ein systir Maríasar er á lífi, Rann- veig, og býr hún í Kópavogi. A unglingsárum fór Marías á sjó og hreifst hann svo af sjómennsk- unni að ef segja má að einhver hafi haft sjómannsblóð í æðum þá hafði hann það. Hann stundaði sjó- inn meðan heilsan leyfði og eftir að hann kom í land, var hugur hans oft við sjóinn og alltaf hafði hann ánægju af að keyra niður á höfn og skoða bátana. Marías kvæntist eiginkonu sinni, Fanneyju Halldórsdóttur, 16. nóv- ember 1946 og eignuðust þau 7 börn, sem eru: Kristján Óli, kvænt- ur Helgu G. Axelsdóttur og eiga þau 4 börn; Guðbjörg Sólveig, á hún 2 börn; Guðmundur Geir, kvæntur Gladýs Maríasson, á hann 2 börn; Friðgerður Kristín, gift Jóni Bald- urssyni, eiga þau 3 börn; Halldór Bjarni, kvæntur undirritaðri, eiga þau 3 börn; Fanney María, gift Heimi F. Guðmundssyni, eiga þau 4 börn; Nanna Bára, gift Guðmundi I. Einarssyni og eiga þau 2 börn. Barnabarnabörnin eru orðin 3. Marías var einstaklega hógvær og ljúfur maður og sannur vinur vina sinna. Hann var góður eigin- maður og faðir og tók öllu sem að höndum bar með stakri ró og still- ingu. Ég veit að við eigum öll eftir að sakna hans mikið svo stóran sess skipaði hann í lífi okkar allra, ekki síst barnabörnin sem elskuðu og dáðu afa í Safamýri. Hann átti Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Biiem) Áslaug F. GuðniundsdótUr Elsku afi er farinn frá okkur börnunum. Hann sem var alltaf svo hlýr og góður við okkur. Við gleym- um aldrei jólaljósunum og fallega jólatrénu hjá afa og ömmu. Þó afi væri mikið veikur áttum við vísa athygli hans og vissum alltaf að hann var að hugsa um okkur, jafn- vel á hinum síðustu stundum spurði hann um okkur. Við hlökkuðum alltaf til að koma í heimsókn í Safamýrina til afa og ömnru. Við biðjum Guð að passa elsku afa fyrir okkur og vitum að hann með okkur. Við þökkum honum all- ar góðu stundirnar. Minningarnar lifa áfram í huga okkar allra. Barnabörnin Þó afi okkar sé búinn að vera lengi veikur og þjáður, eigum við erfitt með að sætta okkur við að hann sé dáinn. Afi fylgdist alltaf með velferð okkar barnanna. Eitt af því var að á hverju vori þegar skólunum lauk, var það fastur vani að koma með einkunnabækurnar til afa. Þá var nú oft opnaður stofu- skápurinn, farið í kassann og seðli lætt í lófa okkar. Okkur á eftir að finnast tómt og skrítið að koma í Safamýrina og sjá ekki afa í sófanum, þó amrna væri að vinna að deginum gátum við alltaf gengið að afa heima og nutum þess að koma til lians á öll- um tímum. Minning hans gleymist aldrei. Við biðjum Guð að geyma og blessa afa okkar og gefa ömmu og okkur öllum styrk í sorginni. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið róít, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dinuna dauðans nótt. (V. Briein) Þórdís Unnur og Marías Kristján. við vanheilsu að stríða hin síðari ár en í febrúar sl. gerði vart við sig sá sjúkdómur er hreif hann frá okkur en aldrei heyrðist nein upp- gjöf né vonleysi hjá honum sjálfum. Hann bar sig alltaf vel þó maður sæi að honum leið illa og er ég kom til hans nokkrum klukkutímum fyr- ir .andlátið, spurði hann eftir strák- unum mínum, hvernig þeir hefðu það, hvort þeir.væru ekki vel frískir. Er ég kynntist Maríasi fyrir rétt um 20 árum undraðist ég hversu vel hann tók mér strax og það hélst alla tíð síðan. Við vorum miklir vin- ir og aldrei skyggði neitt á samband okkar. Því er djúpur söknuður eftir er ég kveð hann en ég er þakklát fyrir árin sem við áttum samleið en þau hefðu mátt vera fleiri og notast betur. En nú er hann farinn frá okkur en við vitum að nú líður honum vel og að hann vakir yfir okkur. Minningin um tryggan og góðan eiginmann, föður, tengdaföður, afa og langafa mun fylgja okkur á meðan við lifum. Blessuð sé minn- ing hans. Gunnhildur Arna- dóttir - Kveðjuorð Fædd 20. september 1898 Dáin 29. október 1990 Það væri ekki í anda ömmu Gú, eins og við börnin kölluðum hana alltaf, að ég færi að skrifa langa lofræðu um hana látna, þó svo sann- arlega væri ástæða til. Þó get ég ekki látið hjá líða að minnast henn- ar með örfáum fátæklegum orðum, sem eru í raun bara veikburða til- raun til að þakka fyrir það, að hafa fengið að vera samferða henni í lífinu síðastliðin 15 ár. Það var oft notalegt að eiga athvarf í skotinu hjá ömmu og afa Gú fyrstu búskap- arárin á Vesturgötunni, þegar eig- inmaðurinn var langdvölum í burtu. Alltaf var lundin léttari eftir að hafa skipst á skoðunum við afa um menn og málefni og þegið kaffisopa hjá ömmu Gú. Aldrei sá ég ömmu öðru vísi en með bros á vör eða stríðnisglampa í augum á hveiju sem bjátaði. í návist hennar gleymdist öll sorg og sút. Hún var heimskona á sína vísu, hafði yndi af myndlist og tónlist og vil ég raunar þakka henni fyrir að hafa opnað augu mín og eyru fyrir þeim heimsins lystisemdum. Þó svo að aldursmunurinn á okkur hafi verið hartnær sextíu ár var aldrei um neitt kynslóðabil að ræða, heldur var amma Gú næstum því bara ein af stelpunum. I barnaaf- mælunum var hún hrókur alls fagn- aðar og þau eru ófá skiptin, sem vinkonur mínar hafa spurt eftir. • hressu ömmunni hans Gunna. Nú er hressa amman hans Gunna hins vegar öll og í mínum huga er Vest- 505 g Þvol er drýgra Þvol er einn elsti I uppþyottalögur hér á landi. Samsetningu Þvols hefur hins vegar margoft verid breyttí kjölfarnýrra hráefna sem komidhafa á markaðinn. Við vékjum sérstaklega athygli á aðÞvol er drýgra i notkun, vegna þessað það inniheldur meira af virkum sápuefnum. það gefur meiri gljáa og er milt fyrir hendur. .FRIQQ Lyngásl 1, Garðabæ, Sími: 65-18-22, Telefax: 65-18-57 •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.