Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 4
4
oeer Haawaaaa .ði HUOAaíiAOUAJ aiaAjaKuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
Spaugstofan á skjá-
inn á ný eftir áramót;
Ragnar Reyk-
ás mun taka
virkan þátt í
kosninga-
baráttunni
SPAUGSTOFUÞÆTTIR sjón-
varpsins, sem hefja göngu sína
að nýju eftir áramót, verða með
svipuðu sniði og i fyrravetur.
Flestar gömlu persónanna verða
áfram í þáttunum en nokkrar
nýjar bætast í hópinn. Fyrsti
þátturinn verður á dagskrá laug-
ardaginn 12. janúar.
„Við ákváðum að vera ekki með
breytingar einungis breytinganna
vegna,“ sagði Öm Ámason í sam-
tali við Morgunblaðið. Einhvetjar
áherslubreytingar verða gerðar en
„þættimir verða með svipuðu sniði
og áður. Reyndar verða fleiri per-
sónur og við verðum með úrklippur
úr sjónvarpsþáttum sem við skeyt-
Ragnar Reykás í hlutverki sínu í leikritinu Örfá sæti laus.
um við okkar atriði. Auk þessa
höfum við verið að velta því fyrir
okkur að hafa meira af heims-
pólitík en verið hefur.“
Öm sagði ekki endanlega ákveð-
ið hvaða persónum yrði bætt við.
„Við emm með nokkrar í huga en
eiginlega er ekki hægt að ákveða
svona fyrr en farið er að taka upp.“
Hann sagði að Ragnar Reykás yrði
áfram í þáttunum en bætti við að
ekki væri búið að ákveða hvemig
farið yrði með hann. Til athugunar
væri að sýna Ragnar eitthvað
heima við og væntanlega myndi
hann taka virkan þátt í kosninga-
baráttunni næsta vor.
Spaugstofuþættimir tilheyra
vetrardagskrá sjónvarpsins og
verða á skjánum á laugardags-
kvöldum fram á vor. Þættimir
verða 15-20 mínútna langir.
Litháar biðja um opinbera stuðnings-
yfirlýsingu frá Islendingum:
Beiðnin hvorki
kynnt í ríkis-
stjóm né á Alþingi
Amælisvert, segir Þorsteinn Pálsson
LANDSBERGIS forseti Litháens
hafði símasamband við Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra
síðastliðinn þriðjudag og bað um
að Islendingar veiti Litháum opin-
berlega allan þann stuðning sem
þeir telja sér fært. Þessi beiðni
hefur hvorki verið kynnt né rædd
í ríkisstjóminni eða á Alþingi.
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, telur það í
meira lagi ámælisvert að forsætis-
ráðherra skuli ekki hafa gert Al-
þingi grein fyrir þessari beiðni
forseta Litháens.
„Landsbergis hafði samband við
mig og bað um að við veittum Lit-
háum allan þann stuðning opinber-
lega, sem við teljum okKír fært.
Hann greindi mér frá því að Litháar
væru mjög óhressir með að fá hvergi
opinberan stuðning. Hann virtist
vera mjög áhyggjufullur vegna
ástandsins en var þakklátur fyrir það
sem ég sagði í París um þessi mál.
Ég ætlaði að ræða þetta mál í ríkis-
stjórninni í morgun, en það gafst
ekki tími til þess,“ sagði forsætisráð-
herra í samtali við Morgunblaðið í
gær.
„Ég sagði honum að vitanlega
væri sjálfsagt af okkar hálfu að end-
urtaka allt sem við höfum sagt og
ítreka. Það. sem við höfum sagt,
stendur allt, en það er hins vegar
spurning hvað annað við getum gert,
sem gagn er að,“ sagði Steingrímur.
„Mér finnst það mjög einkennilegt
að forsætisráðherra skuli ekki hafa
gert Alþingi grein fyrir þessu, reynd-
ar í meira lagi ámælisvert," sagði
Þorsteinn Pálsson. „Þetta sýnir enn
frekar að það er full ástæða fyrir
Alþingi að hraða afgreiðslu á tillög-
unni sem ég flutti, þar sem gert er
ráð fyrir að ítreka viðurkenningu
okkar á fullveldi þessara ríkja. En
stjórnarmeirihlutinn liggur á þeirri
tillögu í utanríkisnefnd," sagði Þor-
steinn.
Páll Pétursson forseti Norðurlandaráðs:
Ekkí borist form-
legt erindi enn
PÁLL Pétursson, forseti Norður-
landaráðs, segist ekki vilja tjá sig
á þessu stigi um hugmynd Kaz-
imiera Prunskiene, forsætisráð-
herra Litháens, að efnt verði til
alþjóðlegrar ráðstefnu um
framtíð Litháens, Eistlands og
Lettlands á vegum Norðurlanda-
ráðs, eins og greint var frá á
forsíðu Morgunblaðsins í gær.
„Það hefur ekki borist neitt form-
legt erindi til Norðurlandaráðs um
þetta mál. Þegar það berst, munum
við að sjálfsögðu taka afstöðu til
þess,“ sagði Páll í samtali við Morg-
unblaðið í gær. Hann sagðist ekki
vilja tjá sig um sínar skoðanir í
þessum efnum, á þessu stigi. „Mér
finnst sjálfsagt að reyna að gera
allt sem við getum til þess að þessi
vandamál leysist skikkanlega,"
sagði Páll.
Litlu jólin í grunn-
r
f
f
>
í
I
I
*
>
VEÐURHORFUR í DAG, 15. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við strönd Grænlands vestur af Jan Mayen er 987
mb lægð á leið norðnorðaustur og lægðardrag suðvestur um Græn-
landssund. Yfir Bretlandseyjum er 1032 mb hæð. Milli Labrador
og S-Grænlands er 983 mb lægð á hreyfingu norðnorðaustur.
SPÁ: Suðvestan- og vestanátt, stinningskaldi eða jafnvel allhvasst
vestast á landinu en mun hægara annars staðar. Skúrir sunnan-
og vestan, en úrkomulaust í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Allhvöss suðvestanátt með skúrum eða
slydduéljum suðvestan- og vestanlands en bjartviðri um austan-
vert landið. Hiti 2 til 3 stig.
HORFUR Á MÁNUDAG:Fremur hæg suðvestan- og vestanátt, él
vestanlands en að mestu úrkomulaust annars staðar. Frost 1 til 2
stig.
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
t r r
r / / / Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-|Q° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j* Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veflur
Akureyri 10 skúr
Reykjavik 5 úrkomaígr.
Bergen 4 skýjað
Helsinki ■54 mistur
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Narssarssuaq 4*8 snjóéi
Nuuk +8 snjókoma
Osló 5-2 skýjað
Stokkhólmur 4*1 rign. á s. klst.
Þórshöfn 8 súld
Algarve 13 þokumóða
Amsterdam 3 hálfskýjað
Barcelona 10 léttskýjað
Berlín 4-1 atskýjað
Chicago •5-2 alskýjað
Feneyjar 8 skýjað
Frankfurt 4 skýjað
Glasgow 4 mlstur
Hamborg 0 skýjað
Las Palmas 18 alskýjað
London 1 þokuruöningur
LosAngeles S helðskirt
Luxemborg 2 skýjað
Madrfd 7 léttskýjað
Malaga 17 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Montreal vantar
NewYork 1 léttskýjað
Orlando vantar
Parfs 4 skýjað
Róm 10 skýjað
Vín 4 skýjað
Washington vantar
Winnipeg +8 heíðskírt
skólum í næstu viku
LITLU jólin verða haldin í flest-
um grunnskólum landsins á mið-
vikudag eða fimmtudag í næstu
viku. Dansað verður í kringum
jólatré og jólasveinar koma
gjarnan í heimsókn. Jólafri hefj-
ast víðast hvar þann 20. desemb-
er.
í flestum skólum verður venju-
legt skólastarf fram til 18. desemb-
er en síðustu dagarnir notaðir til
að undirbúa jólin og skapa stemn-
ingu.
„Þann 18. desember heldur hver
kennari litlu jólin með sínum bekk
í skólastofunum með því að syngja
jólasöngva og segja sögur sem
tengjast jólunum auk þess sem
krakkarnir skreyta stofumar sínar.
Þau hafa þá gjarnan með sér kerti,
smákökur og gos,“ sagði Guðrún
Bentsdóttir, yfirkennari í Æfinga-
9g tilraunaskóla Kennaraháskóla
íslands, í samtali við Morgunblaðið.
I flestum skólum verða svo jóla-
trésskemmtanirnar eða litlu jólin
haldin 19. eða 20. desember.
„Við bytjum litlu jólin á sal, þar
sem hver bekkur kemur með
skemmtiatriði en dönsum svo í
kringum jólatré auk þess sem við
reynum að fá jólasvein til að koma
í heimsókn. Jafnframt er hefð fyrir
því hjá okkur að unglingarnir fari
í kirkju og undirbúi þá athöfn sjálf-
ir. Þeir fá þá gjarnan einhvern af
kennurunum til að halda hugvekju
svo er sungið og kveikt á kertum.
Það er mjög hátíðlegt," sagði Guð-
rún. |
Borgarstjóri:
Æskilegt að
reisa fram-
haldsskóla í
austurborginni
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri seg-
ir að sú breyting sem gerð var á
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga á síðasta ári hafi haft í för
með sér að frumkvæði að ákvörð-
unum um byggingu framhalds-
skóla hafi verið færð yfir á ríkið.
„Við menntamálaráðherra höfum
rætt um nauðsyn þess að koma
upp framhaldsskóla austan til í
borginni,“ segir Davíð.
Davíð sagði engan ágreining rikja I
milli borgar og ríkis um að æskilegt
væri að reisa nýjan framhaldsskóla.
Skv. lögum ber borginni að leggja |
til 40% af byggingarkostnaði og
sagði Davíð að ekki stæði á borginni
ef ráðist yrði í framkvæmdir. Hann ^
sagði ennfremur að ekki væri skyn-
samlegt að stækka núverandi skóla
til að mæta fjölgun framhaldsskóla-
nemenda. „Það er áreiðanlega skyn-
samlegra að byggja sameiginlega
nýjan framhaldsskóla á austursvæði
borgarinnar," sagði Davíð Oddsson.