Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 16

Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 16
iö M0RGUNI5LAÐIÐ I.AUGARDAGUR 15. DiÍSEMBER 1990 4 STÓRGÓDAR SÖGUR TVEGGJA VERÐLAUNAHAFA nacíb MAH FU2 MÍRAMAR efttr NóbelsskAldið Noglb Mahfúi Miramar er nafn á gistiheimili í Alexandríu þar sem 5 karlmenn hafa vetursetu. Sagan fjallar um samband þeirra við þjónustustúlkuna, hina fögru Zóhru. Þessi stolta bóndadóttir verður miðdepill í mikilli flækju er snýst um ástir, völd og auðæfi. Sigurður A. Magnússon þýddi. k n i ii IRl m MMtRÍKU TIL AMERÍKU eftlr Antfl TuuH Erkki Hakala hefur flækst í þvílíka fjármálaóreiðu að hann sér þann kost vænstan að flýja undan yfirvofandi málssókn. Leið hans liggur til Bandaríkjanna með fúlgu fjár en þau reynast ekki sá griðarstaður sem hann hélt Þetta er hröð frásögn þar sem á snilldarlegan hátt er fléttað saman spaugi og alvöru. Höfundurinn hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1985. Njörður P. Njarðvik þýddi. SETBERG Viöburðaríkt sumar Bókmenntír Súsanna Svavarsdóttir Þegar stórt er spurt Höfundur: Gunnhildur Hrólfs- dóttir Myndskreyting: Elín Jóhanns- dóttir Útgefandi: ísafold ast þeir flestum í hreppnum — ekki sist eftir að Árni vinnur óvænt kepppni í skeiði á Yrpu gömlu, öll- um að óvörum. En mest snýst at- burðarásin í kringum heimilisfólkið á Eyri. Vinirnir Tommi og Árni eru á leiðinni í sveit í upphafi bókarinnar. Það er laugardagur í lok maí og ferðinni er heitið að Eyri, rétt aust- an við Hellu, þar sem afi og amma Tomma, Friðsemd og Kristján, búa. Þeir vinirnir búa í Reykjavík; Tommi flutti þangað, frá Hellu, fyrir einu ári og átti í fyrstu erfitt með að aðlagast umhverfinu, eða þar til Árni flutti í hverfið. Að Eyri er tvíbýli og búa þau Soffía, móðursystir Tomma, og Hallur, maður hennar, þar — ásamt fjórum börnum sínum: Ingva, Lilju Sif, Björgu og Sveini litla. Á næsta bæ, sem í sveitinni er kallaður Endi, er einbúinn Ófeigur, aldraður mað- ur sem strákarnir taka sama ást- fóstri við og aðrir á bænum. Og eftir því sem líður á sumarið kynn- Persónurnar í sögunni eru dregn- ar mjög skýrum dráttum. Þær eru skemmtilega kynntar. Þegar hef ég minnst á Tomma og um Árna er það að segja að hann hefur hingað til verið alinn upp hjá einstæðri móður sinni, en fyrir stuttu slasað- ist hann og lenti á sjúkrahúsi. í framhaldi af því „flutti pabbi hans til þeirra og hafði þá ræst langþráð- ur draumur Árna.“ Þegar þeir Árni og Tommi koma í sveitina er Björg úti við, að passa Svein litla bróður sinn og hún er ekkert alltof lukku- leg yfir því, en hlýðir. Lilja Sif er í ástarsorg — afundin og fýld, þar til hún verður ástfangin aftur og stöðugt skiptast á skin og skúrir í þeim efnum hjá henni. Ingvi, elsti bróðirinn, er kominn með bílpróf og stendur sí og æ í einhveijum vélaviðgerðum. Hann er rogginn og raupsamur og þykist heldur betur karl í krapinu þegar hann talar við Tomma og Árna. Þau Lilja Sif og Gunnhildur Hrólfsdóttir Ingvi eru eiginlega fremur illa hald- in af unglingaveiki — og kannski dálítið dekruð. Það drífur margt á daga þeirra Tomma og Árna í sveitinni. Árni hefur ekki komið í sveit áður og fyrir honum er þetta allt mikið ævintýri, sérstaklega að fá að fara LÆKNISÆVI Bókmenntir Erlendur Jónsson ÆVIMINNINGAR Erlings Þorsteinssonar læknis. 259 bls. Iðunn. Reykjavík, 1990. Sú var tíð að sérhver Reykvíking- ur þekkti með nafni, og oftast einn- ig í sjón, alla lækna bæjarins. Erl- ingur Þorsteinsson var þó ekki að- eins kunnur sem slíkur, því fiestir vissu einnig að hann var sonur Þorsteins Erlingssonar skálds og Guðrúnar J. Erlings sem lengi lifði í ekkjudómi, mikils metin af bæj- arbúum. Þorsteinn skáld var löngu horfinn af sjónarsviðinu og ræki- lega kominn í þjóðskálda röð. Það er því ekki að ófyrirsynju að Erlingur læknir byijar endur- minningar sínar á að lýsa foreldrun- um, fyrst föður en síðan móður. Að minni hyggju er sá fróðleikur öðru markverðari í bók hans. Minn- ingin um foreldrana er honum afar kær. Að vísu man hann svo til ekk- ert eftir föður sínum. En að alast upþ á heimili hans, nákvæmlega eins og skáldið hvarf frá því, kom þó næst því að vera með honum sjálfum í lifanda lífi. Þrátt fyrir ást og aðdáun hygg ég að Erlingur leggi raunsætt mat á föður sinn, bæði sem mann og skáld. Svo margt hefur verið um hann skrifað að naumast var að vænta að nýjar upplýsingar kæmu fram í endurminningum þessum. Drættirnir í svipmóti þjóðskáldsins Erlingur Þorsteinsson HORNSOFAR SÓFASETT Nú fer hver að verða síðastur að panta sérsmíðaðan sófa fyrir jól. Vönduð, íslensk framleiðsla á góðu verði Góður staðgreiðsluafsláttur. Greiðslukjör allt að 30 mán. Opið virka daga kl. 9-19. Opið laugardaga kl. 10-18. húsgögn Bíldshöfða 8, símar 686675 og 674080. u eru þó skýrari eftir en áður. Ljóst er að Þorsteinn og Guðrún hafa haft ólíkar skoðanir, t.d. á þjóðfé- lagsmálum. Eigi að síður hefur sambúð þeirra verið farsæl. Þar hefur ríkt gagnkvæm virðing þrátt fyrir mismunandi viðhorf. Þó Þor- steinn skáld gegndi ekki föstu starfi hefur heimilið komist vel af, bæði meðan hans naut við og eins eftir að hann var fallinn frá. Allt hafði þetta áhrif á lífskoðun sonarins, — læknisins. í æsku naut hann þess að vera af góðum og virtum kom- inn. Menntabrautin reyndist bein og greið. Hann bjó sig undir að gegna því starfí sem ekki er aðeins mikils metið í samfélaginu heldur öðru fremur yfír dægurþras og átök hafíð. Hann hefur verið farsæll í starfi. Þannig hefur hann siglt lygn- an sjó gegnum lífíð. Átakasaga er þetta því ekki. Sama máli gegnir um einkalífið, einnig þar hefur leiðin reynst bein og greið. Kunningjahópinn skipa virðulegir borgarar sem rækja starf sitt eins og slíkum ber og njóta svo lífsins hver í annars félagskap. Rúm íjárráð og þægilegur lífstíll telst ekki frásagnarefni meðal slíkra; allt þvílíkt þykir bara sjálfsagl. Tómstundum er þá varið til ferða- laga og laxveiða meðal annars. Hlutlægar eru þessar endurminn- ingar. Og mærðarlausar. Sonur skáldsins reynir hvergi að vera »skáldlegur«. Frásögnin er slétt og felld og látlaus. Fjöldi fólks kemur við sögu. Mjög var gestkvæmt á æskuheimili höfundar. Rithöfundar og listamenn töldu sig öðrum frem- ur eiga þangað erindi. Öllum eru nokkur skil gerð. En Erlingur kann þá list að setja saman- gagnorðar mannlýsingar. í fáum orðum sagt: Að hluta til fróðleg bók en sem heild græsku- laus og notaleg.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.