Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 26
MORGUNBtóÐIt) LAUGARIMGUK 15.íÐESEMBKR11990
Hvað höfðingjarnir hafast að
eftir Ólaf Oddsson
Heldur hefur verið dapurlegt að
lesa blöðin undanfarna daga, er þau
fjalla um hin illræmdu bráðabirgða-
lög frá 3. ágúst sl. Sumir áhrifa-
menn á blöðum og „aðilar“ vinnu-
markaðar segja það eðlilega hætti
og „rétt“, að samningur undirritað-
ur af ráðherra og bókaður í ríkis-
stjórn skuli afnuminn af sömu ráð-
herrum. Hér er beinlínis boðað, að
orð skuli ekki standa, samningur
skuli svikinn. Þá er það sagt eðli-
legt og „rétt“, að úrskurður dóm-
enda um ágreiningsefni ráðherra
og stéttarfélaga skuli afnuminn
með bráðabirgðalögum. Hér er í
raun fallist á afnám þrískiptingar
valdsins. Það er einkenni á öllum
siðmenntuðum þjóðum, að ágrein-
ingsefni eru leyst með samningum
eða útkljáð fyrir dómstólum. Ef frá
þessu verður horfið, blasir siðferði-
leg upplausn við. — Rétt er að
nefna, að í blöðunum hafa birst
ágætar greinar eftir ýmsa menn
um þetta efni, t.d. grein aðstoðarrit-
stjóra Morgunblaðsins, er birt var
í blaðinu 11. desember sl.
ÚT ER komin hjá Máli og menn-
ingu bókin Ljóshærða villidýrið
— Arfur Islendinga í hugar-
heimi nasismans eftir Arthúr
Björgvin Bollason.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „I bókinni er fjallað um þær
sérkennilegu hugmyndir sem mót-
uðust hjá þýskum fræðimönnum á
19. öld um íslendinga til forna,
siði þeirra og menningu. Þessar
hugmyndir færðu nasistar sér í nyt
og lögðu mikla rækt við lestur
íslenskra fornbókmennta í skólum,
veifuðu norrænni goðafræði og
efldu norræn félög. Greint er frá
því að sérstæðar útleggingar
íslenskra fombókmennta voru
kenndar í skólum á nasistatíman-
um og Þjóðveijar voru hvattir til
að taka íslenska fornkappa sér til
fyrirmyndar. Þá lýsir höfundur því
hvernig nasistar leituðust við að
fá til liðs við sig íslenska rithöf-
unda og listamenn, en sumir þeirra
voru veikir fyrir þeirri ræktar-
semi.“
Fordæmi höfðingjanna
Einn af máttarstólpum atvinnu-
lífsins sagði nýlega í fjölmiðlum,
að fulltrúar þess hefðu samið við
stjórnvöld um það, að stjómvöld
svikju þann samning, er þau höfðu
gert við háskólamenn. Hann krafð-
ist þess, að stjórnvöldin stæðu við
sitt, þ.e. efndu það heiðursmanna-
samkomulag, staðfest með handsöl-
um, að svíkja samning við aðra!
Þetta finnst sumum mönnum rétt
og eðlilegt. Mikið er dapurlegt að
lesa um þetta.
. Fólk fylgist með því sem höfð-
ingjarnir gera. Hallgrímur Péturs-
son orti um þetta efni.
Yfirmönnum er því varit,
undirsátamir hnýsa grannt
eftir því, sem fyrir augun ber,
auðnæmast þó hið vonda er.
Hvað höfðingjamir hafast að,
hinir meina sér leyfist það.
Hallgrímur er hér að benda á,
að fólk taki vel eftir háttum höfð-
ingjanna. Hið vonda sé auðlærðast
og almenningur muni huga að for-
dæminu. Og hið sama á við nú. Ef
samningur undirritaður af stjórn-
völdum er blygðunarlaust svikinn
Arthúr Björgvin Bollason
Bókin er 159 bls., prentuð í G.
Ben. prentstofu hf. Auglýsinga-
stofan Næst hannaði kápu.
og ef þau una ekki úrskurði dóm-
enda um ágreiningsefni, þá er hætt
við því, að aðrir geri það ekki held-
ur. Þá verða svik í ýmsum viðskipt-
um talin hin eðlilega leið og „rétt“,
og ágreiningur verður ekki leystur
fyrir dómstólum, heldur með hnefa-
rétti. Menn segja þá bara rétt eins
og stjórnvöldin, að dómarar séu í
„efnahagslegu tómarúmi", þ.e. þeir
hafi ekkert vit á efnahagsmálum,
og því ástæðulaust að una þeirra
úrskurði. Menn einfaldlega afnema
„forsendur" dómaranna, eins og
höfðingjarnir gera.
Orð skulu ekki standa!
í dag, 12. desember, er orðið
ljóst, að alþingismenn vorir, eða
meirihluti þeirra, munu samþykkja
bráðabirgðalögin, þótt margir virtir
lögfræðingar hafi talið, að þau fari
í bág við stjórnarskrána. Sumir
þingmenn virðast þar með leggja
blessun sína yfir það, að orð skuli
ekki standa, og stjórnvöldin þurfi
ekki að una endanlegri dómsniður-
stöðu í deilu um túlkun samninga.
Ég hygg, að háttvirtir þingmenn
hafi ekki hugað hér að afleiðingun-
um. Ef þetta teljast réttir hættir,
hvernig á þá að vera hægt að semja
við stjórnvöld um nokkurn skapað-
an hlut?
Orð og efndir
Sumir þeir ráðamenn, sem svo
standa að málum, hafa hér áður
fyrr oft harðlega gagnrýnt laga-
setningu á stéttarfélög og þrásinnis
bent á þjóðhagslega nauðsyn þess
að lagfæra kjör kennara og mennta-
manna og gera störf þeirra eftir-
sóknarverð. Þegar þeir svo komast
að völdum, þá efna þeir sín fyrir-
heit með þeim hætti, að þeir setja
galvaskir bráðabirgðalög á þá sem
þeir áður þóttust styðja af heilum
hug. Og hvert er þá samræmið
milli þess sem sömu menn segja sem
þingmenn í stjómarandstöðu og
gera sem ráðherrar? Eða líta þeir
bara. á þetta sem hlutverk í leikriti,
þar sem skipt er um leikendur öðru
hveiju? Ekki er hægt að ætlast til
þess, að_ sá sem leikur Skugga-
Svein í Útilegumönnunum segi hið
sama, ef hann fær það hlutverk að
leika sýslumanninn. Hið sama virð-
ist eiga við um suma valdsmenn.
Svo eru menn undrandi á því, að
sumir ráðamenn njóti takmarkaðrar
virðingar.
Að verja leikreglur lýðræðisins
En þótt hér sé deilt á suma þing-
menn og þeirra hætti, þá er rétt
að benda á, að þingmenn eru ólíkir
Ólafur Oddsson
„Sumir þingmenn taka
að sér að veija grund-
vallarréttindi manna,
þótt þeir viti, að það
kalli á skammir þeirra
áhrifamanna, sem virð-
ast lítt gefa gaum að
leikreglum lýðræðisins,
og þetta sé því líklegt
til þess að verða miður
vinsælt um stund.“
eins og aðrir menn. Margir þeirra
vinna verk sín vel og forðast að
vera í sviðsljósinu um of. Sumir
þingmenn taka að sér að veija
grundvallarréttindi manna, þótt
þeir viti, að það kalli á skammir
þeirra áhrifamanna, sem virðast lítt
gefa gaum að leikreglum lýðræðis-
ins, og þetta sé því líklegt til þess
M I vestursal Kjarvalsstaða
stendur nú yfír sýning Sigfúsar
Halldórssonar á málverkum, og í
austursal stendur yfír málverka-
sýning Gísla Sigurðssonar. Sýn-
ingarnar standa til 23. desember.
■ í tilefni af útkomu bókar Þórs
Indriðasonar um Hannibal Valdi-
marsson og samtíð hans heldur
bókaforlagið Líf og saga málþing
um stjórnmál í veitingahúsinu
Gauki á Stöng laugardaginn 15.
desember kl. 14. Frummælendur
verða Ragnar Stefánsson jarð-
skjálftafræðingur og Össur Skarp-
að verða miður vinsælt um stund.
Slík afstaða er virðingarverð að
minni hyggju, og hún mun reynast
farsæl, þegar horft er til framtíðar-
kinar.
Fyrrgreind lög gera marga
starfsmenn ríkisins ófijálsa, enda
eru slík lög oft kölluð „þrælalög".
Ég er ekki í neinum vafa um, að
óftjáls kennari er mun verri starfs-
maður en fijáls kennari. En mörg-
um virðist öldungis sama um það.
Andúð á
skólum og menntun
Sumir menn reyna að ala á óvild
og andúð í garð kennara og
menntamanna. Því er jafnvel haldið
fram, að meðalkennarinn vinni nán-
ast hálfan daginn hálft árið. Mark-
mið slíkra ósanninda er augljóslega
það að ala á óvild og fordómum í
garð. menntamanna. Ymsir erlendir
valdsmenn, sem kunnir eru að því
að virða ekki leikreglur lýðræðisins,
hafa stundað þá iðju að efna til
óvildar í garð menntamanna. Slík
háttsemi hefur alls staðar orðið til
mikils tjóns.
En þessir hættir geta einnig haft
mjög alvarleg áhrif hér. Margir af
þeim ungu íslendingum, sem nú eru
í námi erlendis, munu ekki koma
heim, að námi loknu. Þeir munu
ekki telja landið heppilegan sama-
stað fyrir sig. Allir hugsandi menn
hljóta að sjá, hvílíkt tjón hlytist af
því í framtíðinni. Þeir sem huga að
framtíð þessarar þjóðar, verða að
reyna að átta sig á því, að efla
þarf samstöðu með þjóðinni. Lærðir
menn eru ekki andstæðingar þjóð-
arinnar, heldur hluti hennar. Það
er illt verk að ala á sundrungu
manna og fordómum í garð ungra
menntamanna, sem eru stórskuld-
ugir eftir langt nám. Þeirra er brýn
þörf hér á landi, en þeir hafa kynnst
þjóðfélögum, þar sem lýðréttindi og
grundvallarreglur í mannlegum
samskiptum eru virt. Af þeim
ástæðum og reyndar ýmsum öðrum
verður að tryggja, að svo verði einn-
ig gert hér.
Höfundur er íslenskufræðingur
ogkennnri.
héðinsson doktor í fískeldisfræð-
um. Á eftir frummælendum tekur
til máls svokallaður umræðuvaki,
sem leggur út af máli frummælendá
og hefur almenna umræðu um
fundarefnið. Umræðuvaki verður
Einar Karl Haraldsson blaðamað-
ur.
■ VEITINGAHÚSIÐ Casablan-
ca mun halda tískukvöld laugar-
dagskvöldið 15. desember, og í til-
efni af því mun dómnefnd útnefna
best klædda strák og best klæddu
stelpu ársins 1990. í dómnefnd
verður fólk sem lifír og hrærist í
tískuheiminum í Reykjavík.
Bók um arf Islendinga
í hugarheimi nasista
Nýkomin sending
af Ijósum I ró
FLOS
arteluce
Borgartúni 29,
sími 20640.