Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 28
GS _______-__ oeei aaaMaeaQ ,ar auoAQflADUAJ qiqAjanuoflOM
28 MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
Landbúnaður í læðingi
Fyrri grein
eftirÞorvald
Gylfason
i
Það er ánægjulegt og lofsvert,
að landbúnaðarráðuneytið skuli
hafa staðfest upplýsingar hagfræð-
inga við Háskóla Islands og annars
staðar um það, hvað núverandi
stefna stjórnvalda í landbúnaðar-
málum kostar þjóðina. Samkvæmt
útreikningum ráðuneytisins nam
beinn og óbeinn stuðningur íslenzka
ríkisins við landbúnað 1908 um 13
milljörðum króna á núverandi verð-
lagi eða rösklega 4% af þjóðartekj-
um. Það hefur að vísu komið á
daginn, síðan ráðuneytið birti þess-
ar upplýsingar fyrir fáeinum vikum,
að í þær vantar nokkra kostnaðar-
liði: uppbætur á útfluttar landbún-
aðarafurðir, endurgreiðslu kjarn-
fóðurgjalds og framlag ríkisins í
framleiðnisjóð, en þessir liðir námu
um 2 milljörðum króna til viðbótar.
Heildarkostnaður ríkisins og um
leið almennings í landinu vegna
landbúnaðarstefnunnar 1988 nam
því um 15 milljörðum króna á nú-
verandi verðlagi samkvæmt leið-
réttum upplýsingum ráðuneytisins
eða næstum 5% af þjóðartekjum.
Þessi fjárhæð jafngildir um
240.000 krónum á hverja fjögurra
manna ljölskyldu í landinu eða
20.000 krónum á mánuði. Á þessu
ári og næsta er líkast til um enn
hærri tölur að tefla, ef eitthvað er.
Það er mikiivægt, að menn geri sér
grein fyrir þ ví, að hér er ekki um
einhveijar ímyndaðar reikniíjár-
hæðir að ræða, eins og sumir mál-
svarar núverandi landbúnaðar-
stefnu hafa látið í veðri vaka, held-
ur endurspegla þessar tölur raun-
verulegan kogtnað, sem er lagður
á almenning í landinu ýmist með
skattheimtu eða óhóflega háu mat-
arverði. Þessar tölur eru að vísu
ekki einhlítur mælikvarði á kostnað
almennings vegna núverandi land-
búnaðarstefnu. Þær taka til dæmis
ekki tillit til þess, að niðurgreiðslur
landbúnaðarafurða skila sér aftur
til neytenda að nokkru leyti, en þær
taka ekki heldur tillit til þess, að
bændur njóta aðgangs að niður-
greiddu lánsfé á kostnað almenn-
ings.
Til samanburðar skýrði Þórólfur
Matthíasson lektor við viðskipta-
og hagfræðideild Háskóla íslands
frá því fyrir ári, að stuðningur ríkis-
ins við landbúnað næmi 12-17 millj-
örðum króna á ári á núverandi verð-
lagi. Ýmsir aðrir hagfræðingar hafa
tekið í sama streng. í þessu sam-
bandi skiptir það auðvitað ekki höf-
uðmáli, hvort upphæðin er 12 eða
17 milljarðar króna, þegar allt kem-
ur til alls. Kjami málsins er sá, að
hér er um stjarnfræðilegar fjárhæð-
ir að tefla, hvernig sem á er litið.
Um það er enginn ágreiningur leng-
ur milli hagfræðinga og stjórnvalda.
II
Nú kann íhugull lesandi að
spyrja: en er ekki nauðsynlegt að
styrkja landbúnað af almannafé?
Er vemlegur ríkisstuðningur við
landbúnað ekki alsiða meðal ann-
arra þjóða?
Svarið er jú, enda hefur enginn
haldið öðm fram. Það er vissulega
nauðsynlegt að styrkja landbúnað
við núverandi skilyrði til að hlífa
bændum að einhveiju leyti við af-
leiðingum tækniframfara, sem gera
þeim kleift að fullnægja fæðuþörf
almennings með sífellt meiri og
betri tækjakosti og færri vinnandi
höndum. Sú staðreynd verður samt
ekki umflúin, að bændum hlýtur
að fækka smám saman með auk-
inni vélvæðingu í landbúnaði, alveg
eins og sjómönnum hlýtur að fækka
smátt og smátt, eftir því sem veiði-
tækninni fleygir fram. Mannafla-
þörf landbúnaðar og sjávarútvegs
hlýtur að halda áfram að dragast
saman hér eins og í öðrum nútíma-
þjóðfélögum, meðan iðnaði, verzlun
og ýmiss konar þjónustu vex fiskur
um hrygg. Það er eðlilegt og þykir
yfirleitt sjálfsagt í okkar þjóðfélagi,
að stjórnvöld reyni þó eftir föngum
og innan skynsamlegra marka að
draga úr þeirri röskun á högum
fólks, sem óhjákvæmilegar atvinnu-
háttabreytingar myndu valda að
öðrum kosti.
En það er ekki sama, hvað hlut-
irnir kosta. Það er fráleitt að halda
áfram 'að eyða næstum 5% þjóðar-
teknanna í stuðning við landbúnað,
eins og við gerum. Aðrar þjóðir
heims láta sér nægja að eyða um
l%-2% þjóðartekna í þessu skyni
að jafnaði, ogþ ykir yfirleitt allt of
mikið. Hvers vegna í dauðanum
skyldum við halda áfram að eyða
margfalt meira fé en aðrar þjóðir
yfirleitt í stuðning við landbúnað á
sama tíma og fársjúkt fólk fær
ekki spítalapláss vegna fjárskorts í
heilbrigðiskerfinu og gríðarlegir
erfiðleikar steðja að gervöllu skóla-
starfí og menningarlífi í landinu af
sömu sökum? Það er að vísu rétt,
að Norðmenn og Finnar eyða líka
mjög miklu fé í stuðning við land-
búnað eins og við, en það er engin
afsökun fyrir okkur. Þessar þjóðir
eru þó ekki eins aftarlega á mer-
Þorvaldur Gylfason
inni og við, því að báðar leyfa þær
innflutning á erlendum kartöflum,
kjúklingum og osti til dæmis. Og
þetta er ekki allt. Hlutdeild land-
búnaðar í þjóðarframleiðslu okkar
íslendinga nemur rösklega 3% á
markaðsvirði samkvæmt upplýsing-
um Þjóðhagsstofnunar. (Hér er átt
við bæði framleiðslu og búvöru-
vinnslu.) Kostnaður almennings
vegna landbúnaðarstefnu stjórn-
valda er því helmingi meiri en fram-
lag landbúnaðarins til þjóðarbúsins.
Virðisaukinn í íslenzkum landbún-
aði er neikvæður, eins og það heit-
ir á hagfræðingamáli. Neytendur
og skattgreiðendur eru með öðrum
orðum neyddir til að borga bændum
og milliliðum fyrir að rýra lífskjörin
í landinu í skjóli ríkisverndaðrar
einokunar.
®Íi|gSgíii||ste
atsssisi
..
Verslun okkar f Hafnarstrœti 19 verður lokað tímabundið
um óramótin v/breytinga og endurbóta.
Opnum aftur fyrir 15. maí nk.
í tilefni bess bjóðum við ýmsar gjafavörur ó sérstöku
jólatilboði í versluninni.
ULLARVÖRUR; peysur, jakkar, treflar, húfur, vœrðarvoðir o.fl
SKINNAVÖRUR - KERAMIK - GLERVARA - POSTULÍN
OG ÖNNUR GJAFAVARA
RAflMAGERÐIN
Hafnarstrœti 19
lll
Það er að vísu ekki einsdæmi,
að gervallar atvinnugreinar skili
neikvæðum virðisauka. Sænskur
skipasmíðaiðnaður skilaði til dæmis
neikvæðum virðisauka til skamms
tíma. Skattfé almennings í Svíþjóð
var dælt í skipasmíðastöðvarnar í
Gautaborg til að halda uppi óhag-
kvæmri atvinnu á þeim vettvangi,
jafnvel þótt bílaverksmiðjur Volvo
í sömu borg ættu við manneklu að
etja á sama tíma. Flestir skynsamir
Svíar gerðu sér grein iyrir því, að
hér var farið illa með almannafé,
og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína
í þeim efnum. Þessum niðurgreiðsl-
um var hætt.
Svo er auðvitað Austur-Evrópa,
þar sem virðisaukinn hefur verið
minni en enginn í verulegum hluta
þjóðarbúskaparins um áratugabil.
Þvílík óhagkvæmni hleður utan á
sig með tímanum og hefur smám
saman leitt til þess ófremdar-
ástands, sem nýfrjálsar þjóðir þess-
ara landa eru nú að reyna að vinna
sig út úr með erfiðismunum. í Sov-
étríkjunum er til dæmis framleitt
stál í stórum stíl samkvæmt tilskip-
unum stjórnvalda, en stálfram-
leiðslan dugir ekki einu sinni til að
framleiða vélarnar, sem eru nauð-
synlegar til að framleiða stálið.
Gervallur þjóðarbúskapur
Austur-Evrópu er gegnsýrður af
sams konar sóun. Áður en Berlín-
armúrinn hrundi, áttu menn yfir-
leitt von á því, að tvö af hveijum
þrem fyrirtækjum í Austur-Þýzka-
landi gætu staðizt samkeppni við
vestur-þýzk fyrirtæki, en nú bendir
margt til þess, að aðeins þriðja
hvert fyrirtæki þar í landi haldi
velli og varla það. Ástæðan er auð-
vitað ekki sú, að Austur-Þjóðveijar
séu annarrar gerðar en Vestur-
Þjóðveijar. Nei, vandinn er sá, að
fáfróðir, fordómafullir og spi lltir
stjórnmálamenn í Austur-Þýzka-
landi lögðu óbærilegar klyfjar á
austur-þýzk fyrirtæki með því að
taka markaðsöflin úr sambandi í
krafti alræðisvalds. Það var meinið.
Höfundur er prófessor í hagfræði
við Háskóla íslands.
U JÓLA TÓNLEIKAR skólakórs
Fjölbrautarskólans við Ármúla
verða haldnir kl. 20.30 á morgun,
sunnudaginn 16. desember, í Lau-
garneskirkju við Kirkjuteig. Fjöl-
breytt efnisskrá verður á tónleikun-
um. Einsöngvari verður Sigríður
Katrín Halldórsdóttir, undirleik-
ari Svavar Sigurðsson, en kór-
stjóri er Ronald Vilhjálmur Turn-
er. Aðgangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Sverrir •
Heiðar Jónsson
■ SNYRTI- og tiskuhús Heiðars
Jónssonar, Vesturgötu 19, hefur
nú verið starfandi í hartnær 4 ár.
Hingað til hafa farið fram nám-
skeið í litgreiningu, snyrtingu,
framkomu og fatastíl. Nú hefur
þjónustan verið aukin við þá við-
skiptavini sem notið hafa þessarar
þjónustu svo og nýja viðskiptavini,
með söiu snyrtivara, sem aðallega
eru frá First Impressions, No Name
og Elisabeth Arden. Einnig ilmvötn
frá Karl Lagerfeld, Fendi og Rd
Door frá Elisabeth Arden. Fyrir
jólin er sérstaklega boðið upp á
gjafakort sem gilda fyrir öll áður-
nefnd námskeið, hvert fyrir sig, öll
saman og/eða úttekt á snyrtivörum.
Opið er á milli kl. 15.00 og 18.00.
Með Heiðari Jónssyni starfar
Bjarkey Magnúsdóttir.
(Fréttatilkynning)
‘h