Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 35
MORGUNBtÍAÐIÐ LÁUGAitDAGUU 15. DESKMBER 1990
35
Grein þessi er öll hin furðulegasta
og reyndar varla svaraverð, en þó
skora ég á höfund þessarar greinar
að ganga hreint til verks og nafn-
greina þann mann sem hann velur
í grein sinni viðurnefnið Donki.
Það er heldur lítilrnótlegt af
mönnum sem vilja láta taka sig al-
varlega að viðhafa dylgjur og að-
dróttanir í blaðaskrifum án þess að
þora að nafngreina þá sem átt er
við. Þó trúlega sé hér átt við heil-
brigðisráðherra og honum ætlað að
vilja ráðast á okkar góða og full-
komna heilbrigðiskerfi og rífa það
til grunna, geta ýmsir aðilar legið
undir grun um að átt sé við þá á
meðan nöfn eru ekki birt.
Að standa vörð um eigin hag
Ég hef reynt að sjá til þess þann
tíma, sem ég hef starfað í heilbrigð-
isráðuneytinu, að heilbrigðiskerfið
þjóni þeim sem þurfa á aðstoð að
halda vegna sjúkóma og slysa eða
annarra áfalla. Aftur á móti hef ég
í mínu starfi haft minni áhyggjur
af því þótt þær hagræðingaraðgerð-
ir sem gripið hefur verið til bitni á
þeim, sem versla með lyf eða hafa
á einhvern hátt komið sér svo vel
fyrir í kerfinu að þeir geti óhindrað
sent reikninga til hins opinbera fyrir
þá þjónustu sem þeir veita. Má þar
t.d. nefna ýmsa sérfræðinga.
Það er ekki að undra þótt að
Matthías Kjeld sé viðkvæmur fyrir
þeim hugmyndum, sem nú er að
fínna í frumvarpi um nýja almanna-
tryggingalöggjöf þar sem segir:
„Éáðherra getur í samráði við
Tryggingaráð ákveðið á grundvelli
fjárlaga hveiju sinni hversu mikla
heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa
ríkið kaupir og þann fjölda einstakl-
inga sem þjónustan er keypt af.“
70 milljónir á ári
Þegar stjómendur heilbrigðismála
horfast í augu við það að hið opin-
bera tryggingakerfi er farið að
greiða einstaklingum, sérfræðingum
í heilbrigðisþjónustunni, upphæðir
allt að 70 milljónir króna á ári á
verðlagi ársins 1988 er ekki að undra
þótt mönnum detti í hug að það sé
nauðsynlegt að hafa einhverjar
heimildir í lögum til þess að sporna
við að einstakir menn geti.óhindrað
gert út á sameiginlegan sjóð okkar
allra, sem ríkissjóður er.
Ég hygg að greiðslur sem þessar
komi Matthíasi Kjeld ekki ókunnug-
lega fyrir sjónir. Mér er auðvitað
ljóst að þegar farið er að greiða ein-
staklingum slíkar upphæðir fyrir
þjónustu sína er þar auðvitað um
að ræða greiðslu á ýmsum kostnaði
sem af þessari starfsemi hlýst. Hér
er að sjálfsögðu ekki um launakostn-
að einan að ræða, en verulegur hluti
af þessum upphæðum eru þó laun.
Auk þessa þiggja sumir þessara
ágætu manna laun sem starfsmenn
sjúkrahúsanna.
Ómaklegar dylgjur
í tíð minni sem heilbrigðisráð-
herra tel ég mig hafa með dyggum
stuðningi traustra starfsmanna eins
og aðstoðarmanns míns, Finns Ing-
ólfssonar, og annars starfsfólks í
heilbrigðisráðuneytinu, lagt mig
fram við að ná árangri í hinu vanda-
sama og vanþakkláta starfi sem það
er að veita aðhald og koma við ha-
græðingu í heilbrigðiskerfinu. Heil-
brigðiskerfið eins og annað í ríki-
skerfinu þarf aðhald. Það er því lúa-
legt að þeir menn, sem fyrst og
fremst standa vörð um eigin hags-
muni, skuli sýknt og heilagt dæma
heiðarlega og góða starfsmenn fyrii
óheiðarleg vinnubrögð og óheilindi.
Það er hollt fyrir almenning að vita
að þeir, sem harðast ganga fram í
þeim rógi á starfsmenn heilbrigðis-
ráðuneytisins eru þeir sem mestu
hagsmunina hafa að veija.
Höfundur er heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra.
Verðfrá kr. 9.780-12.330,-
Margargerðir, margir litir.
ÚTILÍF
Glæsibæ, sími 82922.
I dag, laugardaginn 15. desember,
frákl.16-18:
MEQAS
ÞÓRUNN
VALDIMARSDÓTTIR
árita bók sína SÓL í NORÐURMÝRI
í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18.
BókaMð
.MALS & MENNINGAR.
LAUGAVEGI 18 - SÍMI 24240