Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 37
MORGHNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBRR 1990,
37
Fjórar barnabækur í nýjum flokki
HJÁ Máli og menningu eru
komnar út fjórar bækur í nýjum
flokki sem hlotið hefur nafnið
Bókasafn barnanna. Bækurnar
eru ætlaðar börnum sem eru
byrjuð að lesa sjálf og þurfa að
ná betra valdi á lestri.
Bækurnar urðu til í samvinnu
Máls og menningar og Barnaútg-
áfunnar undir ritstjóm Áma Árna-
sonar og Hildar Hermóðsdóttur en
Anna Cynthia Leplar sá um útlit
og hönnun bókaflokksins.
Bækurnar eru Bangsi í lífsháska
'eftir Árna Árnason, myndskreytt
af Önnu Cynhtiu Leplar, Dregið
að landi eftir Árna Árnason og
Halldór Baldursson, Langamma
eftir Þórð Helgason og Margréti
Laxness og Unginn sem neitaði
að fljúga eftir Birgi Svan Símonar-'
son og Halldór Baldursson.
Á myndinni eru söguhetjur bókaflokksins og höfundar. Fyrir fram-
an: Birgir Svan Símonarson og Hildur Hermóðsdóttir. Fyrir aftan:
Árni Árnason, Margrét Laxness, Halldór Baldursson, Anna Cynhtia
Leplar og Þórður Helgason.
Ljóðabók eftir
Sturlu Friðriksson
KOMIN er út ný ljóðabók eftir
nefnir Ljóð líffræðings.
í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í bókinni era íjörutíu ljóð sem ort
eru á hefðbundinn hátt og flest eru
um náttúrufræðilegt efni.
Eru þau ýmist af innlendum eða
erlendum vettvangi og er stundum
leitað á enn fjarlægari mið út í al-
heiminn. í þessum kvæðum er eink-
um ijallað um umhverfismál eða
ýmis svið líffræðinnar, svo sem
erfðafræði ogþróunarsögu, en einn-
ig eru þar kvæði um einstaka lífver-
ur, plöntur og dýr, svo sem gras,
dr. Sturlu Friðriksson, sem hann
kóngulær og maura eða hugrenn-
ingar um örlög risaeðlunnar.
Nokkur kvæðanna fjalla um
frummyndun lífsins við sjávargos í
líkingu við það, sem gerðist þegar
Surtsey myndaðist.
Þá eru þama einnig þýðingar á
nokkrum ljóðum eldri náttúrufræð-
inga, svo sem Erasmus Darwin, sem
var afi Charles Darwins, höfundar
þróunarkenningarinnar og einnig
þýðingar á tveimur dönskum kvæð-
um Jónasar Hallgrímssonar."
Sturla Friðriksson
Jóla- og af-
mælistón-
leikar FÍH
JOLA- og afmælistónleikar
verða í Tónlistarskóla FÍH
Rauðagerði 27 laugardaginn 15.
desember og hefjast þeir kl.
13.30. Tíu ár eru liðin frá því
skólinn hóf starfsemi sína.
Frá og með síðasta hausti geta
nemendur valið um þrjár náms-
brautir í Tónlistarskóla FIH, en það
eru sígild braut, jassbraut og popp-
braut. Á tónleikunum á laugardag
koma fram einstakir nemendur og
hljómsveitir af öllum þessum tón-
listarbrautum.
Frá áramótatónleikum í Tónlistarskóla FÍH 30. desember 1989,
VEGURINN, KRISTIÐ SAMFÉLAG
minnir á opnunarhátíð í tilefni af nýjum húsakynnum á
SMIÐJUVEGI 5 sunnudaginn 16. desember kl. 14.00.
Við bjóðum þér að koma, gleðjast með okkur og fagna
frammi fyrir Drottni Jesú Kristi.
ÆTLIMENN AÐ YRKJA UOÐ
ER BETRA AÐ HAFA BAKIÐ í LAGI
Þurfirðu að sitja mikið er Nada-bakið heillaráð. Nada-
bakið breytir verk í vellíðan á skrifstofunni, í bílnum,
fyrir framan sjónvarpið og við lærdóminn.
Samanbrotið er Nada-bakið lítið og létt veski.
Tilvalin jólagjöf. Fæst í tveimur mismunandi útfærslum.
Verð kr. 3.950 og 2.150.
Bakveiki er líklega algengasta mein sem hrjáir fólk á
blómaskeiði starfsævinnar.
Lærðu að sitja rétt með Nada-bakinu.
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 98-34700, Heilsu-
búðinni, Hótel Ork, Hveragerði. Sendum í póstkröfu.
Greiðslukortaþjónusta.