Morgunblaðið - 15.12.1990, Blaðsíða 39
MORQUNBLAÐIÐ .LAÍJÍIAROAflUR/lÞ. PÍ!ÍSBMBBR',l(99fl
Timisoara í Rúmeníu:
Verkamenn styðja
kröfur námsmanna
gengu verkamenn úr fimm stærstu
verksmiðjum borgarinnar fylktu
liði að háskólasvæðinu og mót-
mæltu þar versnandi lífskjörum.
Námsmenn eru í setuverkfalli
til að leggja áherslu á kröfur sínar
um afsögn Ions Iliescus forseta
og ríkisstjórnar Þjóðfrelsisfylking-
arinnar. Þeir ásaka ríkisstjómina
um að hafa hrifsað völdin í skipu-
lögðu valdaráni um leið og upp-
reisn almennings fór fram.
Þetta er í fyrsta skipti síðan í
desemberbyltingunni í fyrra sem
verkamenn flykkjast út á götur
og styðja kröfur námsmanna.
Verkamennirnir kröfðust einnig
launahækkana og meiri matar og
lyfja, sem eru af mjög skornum
skammti í landinu.
Reuter
Hvalveiðum mótmælt
'Grænfriðungar standa nú fyrir mótmælaaðgerðum gegn hvalveiðum
Japana í Suðurhöfum. Hér sést hvar félagi í samtökunum stekkur
í gúmbát úr þyrlu til þess að trufla siglingu Nisshan Maru 3., jap-
ansks hvalveiðiskips.
Búkarest. Reuter.
UM ÞAÐ BIL 10.000 rúmenskir
verkamenn lögðu niður vinnu í
gær og gengu eftir götum borg-
arinnar Timisoara, þar sem des-
emberbyltingin í fyrra átti upp-
tök sín, og hvöttu verkalýðsfé-
lög til að styðja stúdentamót-
mæli sem staðið hafa síðustu
fjóra daga.
Tveimur dögum fyrir ársafmæli
uppreisnarinnar í Timisoara, sem
leiddi til falls kommúnistaharð-
stjórans Nicolae Ceausescus,
Svissneski
rithöfund-
urinn Fried-
Hong Kong:
Víetnamskir
flóttamenn
kveikja í sér
Genf. Reuter.
SJO víetnamskir flóttamenn
reyndu í gær að fremja sjálfsmorð
með því að kveikja í sér í flótta-
mannabúðum fyrir bátafólkið
svokallaða í Hong Kong.
Talsmaðúr Flóttamannahjálpar
Sameinuðu þjóðánna (UNHCR)
sagði að enginn sjömenninganna
væri i líféhættu þótt tveir þeirra
hefðu brunnið illa. Þeir höfðu ásamt
þremur öðrum flóttamönnum efnt
til mótmælasyeltis í búðunum. Þeim
hafði verið néitað um hæli í nýlend-
unni og áttu yfir höfði sér að verða
sendir til Vietnams, þar sem komm-
únistar eru við völd.
Meira en 52.000 Víetnamar eru í
flóttamannabúðum í bresku nýlend-
unni eftir að hafa siglt á bátum frá
heimalandi sínu. Hartnær 44.000
þeirra uppfylla ekki skilyrði sem
Sameinuðu þjóðirnar hafa sett fyrir
aðstoð til að flytja til þriðja landsins.
rich Diirr-
enmatt látinn
Neuchatel. Reuter.
SVISSNESKI rithöfundur-
inn Friedrich Diirrenmatt,
sem hlaut ýmis bókmennta-
verðlaun fyrir leikrit, ljóð
og skáldsögur, lést á heimili
sínu í Neuchatel í gær. Bana-
mein hans var hjartaáfall.
Dúrrenmatt var einn af
þekktustu rithöfundum sem
skrifað hafa á þýsku frá síðari
heimsstyrjöldinni. Hann var
69 ára gamall, hafði lengi
þjáðst af sykursýki og þegar
fengið hjartaáfall þrívegis er
hann lést. Þrátt fyrir veikindi
sín hélt hann áfram allt til loka
að gagnrýna þá sem hann áleit
heilagar kýr samtímans, eink-
um stjórnmálamenn, og veija
trúleysi sitt.
Hann hlaut ýmis bók-
menntaverðlaun, svo sem
Búchner-verðlaunin, helstu
verðlaun þýskumælandi rithöf-
unda. Hann fékk þó aldrei
Nóbelsverðlaunin þótt margir
teldu hann verðskulda þau.
Dúrrenmatt varð þekktur
árið 1956 er leikrit hans „Der
Besuch der alten Dame“, eða
„Sú gamla kemur í heimsókn",
var sett á svið. Það fjallar um
gamla konu, sem var eitt sinn
vændiskona en giftist síðan
ríkasta manni heims. Er hún
kemur til heimabæjar síns,
orðin ekkja, býðst hún til að
bjarga bæjarfélaginu frá yfir-
vofandi gjaldþroti. Hún setur
aðeins eitt skilyrði - að bæj-
arbúar drepi mann, verðandi
bæjarstjóra, sem hafði svikið
hana í tryggðum eftir að hafa
gert hana ófríska.
Hann er einnig þekktur fyr-
ir annað leikrit, „Die Physiker“
eða „Eðlisfræðingarnir"
(1962), sem fjallar um geð-
heilsu þriggja kjarneðlisfræð-
inga, sem kalla sig Einstein,
Newton og Möbius. Tveir
þeirra reynast njósnarar.
Friedrich Diirrenmatt
Ý PARKER
Fallegir hlutir gefa lífinu gildi
Þaö á einnig við um penna. Parker Duofold blekpenninn hér að neðan er vissulega-fallegur,
enda hefur ekkert verið til sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður;
Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki og gæðir rithöndina persónu-
legum þokka. Það er hrein unun að skrifa með Parker Duofold.
Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum.
REYKJAVÍK
Penninn, Hallarmúla
Mál og menning, Síðumúla
Eymundsson, Mjódd
Penninn, Kringlunni
Griffill, Síðumúla
Mál og menning, Laugavegi
Eymundsson, við Hlemm
Penninn, Austurstræti
KÓPAVOGUR
Bókaverslunin Veda
HAFNARFJÖRÐUR
Bókabúð Olivers Steins
KEFLAVÍK
Bókabúð Keflavíkur
ISAFJÖRÐUR
Bókaverslun Jónasar
Tómassonar
AKUREYRI
Bókaverslun Jónasar
Jóhannssonar
Tölvutæki - Bókval