Morgunblaðið - 15.12.1990, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
43
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Fasteignamat
og þjóðarsátt
Með heildarkjarasamningum
launþegasamtakanna og
vinnuveitenda frá því í febrúar-
mánuði sl., þjóðarsáttinni svo-
nefndu, tóku launþegar og at-
vinnureksturinn í landinu á sig
verulegar byrðar í því skyni að
ná niður verðbólgunni. Um árabil
hefur hún veikt undirstöður
íslenzks atvinnulífs, og þar með
atvinnuöryggis, og rýrt kjör alls
almennings. Til að ná markmiðum
þjóðarsáttarinnar hafa launþegar
sætt sig við litlar kauphækkanir,
og reyndar nokkra kaupmáttar-
rýrnun, til viðbótar um 16-17%
rýrnun kaupmáttar næstu misseri
þar á undan. Fyrirtækin í landinu
hafa flest hver orðið að hagræða
og skera niður í rekstri sínum til
að standa undir auknum kostnaði
án þess að velta honum út í verð-
lagið.
Ríkisstjórnin hefur að undan-
förnu reynt að eigna sér þjóðar-
sáttina og hagnast á henni
pólitískt, þótt hún hafi með engu
móti átt frumkvæðið eða hug-
myndina. Sá heiður er aðila vinnu-
markaðarins. Það er hins vegar
ríkisstjórnin, sem er mesta ógnun-
in við markmið þjóðarsáttarinnar.
Það gerir skattagleði hennar, stór-
felldur halli á ríkissjóði, skulda-
söfnun og ótrúleg tregða til að
hagræða og skera niður útgjöld í
ríkisrekstrinum. Reyndar á þetta
sama við vel flest sveitarfélög
landsins, svo og opinberar stofn-
anir yfirleitt.
Á sama tfma og launþegar og
fyrirtækin herða mittisólina
hækka opinberir aðilar hvers kyns
gjöld og álögur. Það er ekki haft
hátt um þessar hækkanir. Nýjasta
dæmið um þetta er veruleg hækk-
un fasteignamats, sem tók gildi
1. desember sl. Samkvæmt til-
kynningu Fasteignamats ríkisins
hækkar mátsverð fasteigna á
landinu öllu að meðaltali um 12%,
nema í Kjalameshreppi þar sem
matsverð íbúða og lóða hækkar
um 20%. Hlunnindamat hækkar
um 57%. Þessi 12% hækkun á
fasteignamati nær jafnttil íbúðar-
húsnæðis og atvinnuhúsnæðis.
Fasteignamatið er sá grunnur,
sem fasteignagjöld eru reiknuð
út frá og þau renna til sveitarfé-
laganna. Auk þess hefur fast-
eignamatið mikil áhrif við álagn-
ingu eignarskatts, eignarskatts-
auka og álags á endurbótasjóð
menningarstofnana (áður Þjóðar-
bókhlöðuskattur). Þessir skattar
renna til ríkisins. .
Það er óskiljanlegt, hvernig
unnt er að verja þá miklu gjalda-
og skattahækkun, sem felst í 12%
hækkun fasteignamatsins. Hún
er langt umfram það, sem eðlilegt
má teljast miðað við markmið
þjóðarsáttarinnar. Launavísitalan
hefur hækkað um 6,5% í ár eða
rúmlega helming af hækkun fast-
eignamatsins. Á þessu ári er
kaupmáttarrýrnun launþega um
1% að meðaltali. Þeim er hins
vegar ætlað að bera 12% hækkun
fasteignagjalda, auk hækkunar
eignarskatta, sem stafa af hækk-
un matsins. Það fer hins vegar
eftir eignastöðu hvers og eins,
hversu mikil hækkun eignar-
skattsins verður.
Ekki er fjarri lagi að miða við,
að fasteignamat íbúðarhúsnæðis
á höfuðborgarsvæðinu hækki um
eina milljón króna með þessu nýja
mati. Fasteignagjöld eru mismun-
andi í sveitarfélögum, en fast-
eignaskattur, vatnsskattur, hol-
ræsagjald og lóðarleiga var hjá
flestum um 0,7%-0,9% við síðustu
álagingu. Viðbótargjöldin nema
því um 7 til 9 þúsund krónum.
Þessu til viðbótar hækka svo eign-
arskattarnir, en þeir geta numið
allt að 2,2%, eða 22 þúsund krón-
um af milljóninni. Það er lág-
markskrafa, að sveitarfélögin og
ríkið breyti álagningarreglum til
að vega upp á móti þessum hækk-
unum.Hver og einn getur reiknað
út sjálfur, hversu miklum viðbót-
arálögum hann á von á miðað við
fasteignamat íbúðarhúsnæðis síns
á þessu ári og eignastöðu. Það
er allavega ljóst, að stór hluti af
kauphækkun launþegans á þessu
ári hverfur á tíma þjóðarsáttarinn-
ar í skattahítina, eingöngu vegna
hækkunar fasteignamatsins. Þá
má einnig benda á, að fasteigna-
gjöld af atvinnuhúsnæði eru miklu
hærri en af íbúðarhúsnæði, svo
um verulega íþyngingu er að ræða
fyrir fyrirtækin í landinu. Ætli
launþegar og vinnuveitendur hafi
búizt við þessari 12% hækkun ein-
mitt þá sömu daga sem ríkis-
stjórnin og stuðningslið hennar
hafa sem hæst um óbifanlegan
stuðning sinn við þjóðarsáttina?
Þegar allt kemur til alls er þessi
hækkun fasteignamatsins aðeins
lítið dæmi um þá miklu hækkun
skatta og gjalda, sem ríkisstjórn-
in, ríkisstofnanir og ríkisfyrir-
tæki, svo og sveitarfélög, hafa
staðið fyrir á þessu ári. Og enn
meira er í bígerð á næsta ári.
Þegar er gert ráð fyrir 2 milljarða
króna nýjum álögum á atvinnulíf-
ið samkvæmt fjárlagafrumvarp-
inu.
Á Alþingi er nú verið að ganga
frá fjárlögum fyrir 1991. Enn sem
komið er hefur aðeins heyrzt um
verulega hækkun útgjalda frá því
sem fjárlagafrumvarpið gerði ráð
fyrir, þegar það var lagt fram í
haust, og enn á eftir að bætast
við. Hallinn á fjárlögunum stefnir
nú í 4,5-5 milljarða króna, ef ekki
koma til nýjar hækkanir á skött-
um og gjöldum. Gildi svardaga
ríkisstjórnarinnar um stuðning við
þjóðarsátt kemur í ljós um það
leyti sem landsmenn búa sig und-
ir að halda gleðileg jól.
SVIKALOGN
eftir Þorstein Pálsson
Sú ákvörðun þingflokks sjálf-
stæðismanna að snúast gegn þeirri
ólögmætu valdbeitingu og því sið-
leysi er býr að baki bráðabirgðalaga
ríkisstjórnarinnar um iaunamál hef-
ur hleypt af stað líflegri þjóðmála-
umræðu. Sú umræða hefur snúist
um virðingu fyrir lögum og rétti
og almennar siðareglur í þjóðfélag-
inu.
Það var ætlun ríkisstjórnarinnar
að fá skjól fyrir siðleysi sitt í al-
mennum vilja þjóðarinnar til þess
að standa vörð um markmið for-
ystumanna launþega og atvinnu-
rekenda í baráttunni við verðbólg-
una. Þó að ríkisstjórnin reyndi að
þyrla upp einstöku áróðursmoldviðri
hefur þessi tilraun hennar eigi að
síður mistekist.
Umræðan hefur augljóslega skil-
að þeim árangri að menn trúa því
ekki að það sé forsenda fyrir
árangri í baráttunni við verðbólgu
að grundvallarreglur réttarríkisins
séu fótum troðnar. Þetta hefur ver-
ið kjaminn í boðskap okkar sjálf-
stæðismanna og það hefur verið
ánægjulegt að fylgjast með snörp-
um viðbrögðum fólks sem ekki er
daglegir þátttakendur í orrahríð
stjórnmálabaráttunnar eða hefur
hagsmuna að gæta.
Varðstaða um
grundvallarréttindi
Tveir kunnir hæstaréttarlög-
menn, Árni Grétar Finnsson og Jón
Steinar Gunnlaugsson, riðu á vaðið
með athyglisverðum greinum, þar
sem lagarök voru færð fyrir því að
bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
stönguðust á við grundvallarreglur
íslenskrar stjórnskipunar.
Árni Grétar Finnsson sagði í
grein sinni að setning bráðabirgða-
laganna hefði í för með sér alvar-
legt fordæmi. Þar með gætu ríkis-
stjórnir í framtíðinni breytt efnis-
lega eftir á dómum sem féllu ríkinu
í óhag. Menn sem ættu kröfur á
ríkið og fengju þær staðfestar með
dómi yrðu þá að sætta sig við að
þær yrðu efnislega ógiltar með lög-
um eftir að dómur væri genginn.
Jón Steinar Gunnlaugsson sagði
í grein sinni: „Það er því miður of
sjaidgæft í íslenskum stjórnmálum
að sjá stjórnmálamenn standa vörð
um þau grundvallarréttindi sem eru
okkur öllum þýðingarmest þegar
okkur hefur tekist að þurrka
skammsýnisglýjuna úr augunum.
Nú hafa þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins gert þetta. Ég er viss um
að þar hvíiir aðeins trúnáður við
meginreglur að baki.“
Veila í stjórnskipun og gróft
dæmi um siðferðisbrest
Orator, félag laganema, hélt sér-
stakan fund vegna þessa máls. Þar
talaði prófessor Sigurður Líndal og
sagði að allt málið væri vitnisburður
um veilu í stjórnskipan okkar sem
ráða yrði bót á.
í tilefni bráðabirgðalaganna
efndu háskólamenn til borgara-
fundar í Háskólabíói um siðferði
stjómvalda. Þar talaði m.a. Eiríkur
Tomasson hæstaréttarlögmaður.
Hann hefur verið í forystusveit
Framsóknarflokksins og var kallað-
ur til sérstakrar ráðgjafar áður en
bráðabirgðalögin voru gefin út.
Hann komst svo að orði að íslensk
stjórnmál einkenndust af siðferðis-
kreppu og bráðabirgðalögin á
BHMR væru gróft dæmi um það.
Það er athygli vert að þessi harði
dómur yfir vinnubrögðum forystu-
manna Framsóknar kemur úr
innstu röðum flokksins. Það segir
sína sögu.
Kristján Torfason bæjarfógeti
segir í grein í Morgunblaðinu að
alþingismenn verði að gera það upp
við sig, hvort þeir vilji að við búum
í réttarríki. Hann áréttar að umræð-
ur um það, hvort bráðabirgðalögin
bijóta í bága við stjórnarskrána eða
ekki, hafí ekkert með það að gera
hvort svokölluð þjóðarsátt sé góð
eða vond, eins og hann komst að
orði.
Þjóðarsátt án svika og
lögbrota
Tvær blaðagreinar ungra manna
hafa vakið athygli mína. Þannig
skrifar Viktor Jens Vigfússon verk-
fræðingur: „Það hlýtur að vera ljóst
hversu alvarlegar afleiðingar það
hefur ef þessi vinnubrögð hljóta
samþykki löggjafarvaldsins Alþing-
is... I ljósi þessa er hin ábyrga
afstaða forystumanna stærsta
stjórnmálaflokks landsins mikið
fagnaðarefni. Ég tel að það yrði
mikill álitshnekkir fyrir flokkinn til
lengri tíma litið ef afstaðan væri
önnur.“
Þorsteinn Siglaugsson segir m.a.
í grein: „Sú ákvörðun að greiða
atkvæði gegn lögunum var því
nauðsynlpg og um leið aðdáunar-
verð. Hún sýnir trúnað formanns
flokksins og þingflokks hans við
stefnu flokksins. Hún sýnir þor til
að takast á við hagsmunahópa sem
löngum hafa viljað seilast til auk-
inna áhrifa innan Sjálfstæðisflokks-
ins. Hún sýnir að sjálfstæðismenn
eru óhræddir við að ganga til kosn-
inga og leysa úr þeim vanda sem
skapast hefur. Flokkur sem gerist
gólftuska ríkisstjórnar þegar hvik-
ulir stuðningsmenn hennar bregð-
ast er ekki líklegur til stórra af-
reka.“
Um afstöðu þingflokks sjálfstæð-
ismanna segir Þorsteinn Siglaugs-
son: „Hún sýnir að flokkurinn hefur
festu til að vinna að heilindum og
treysta þá þjóðarsátt sem skapast
hefur, ekki með svikum og lögbrot-
um, heldur sjálfstæðisstefnunni,
þeirri stefnu sem verið hefur flokkn-
um Ieiðarljós í 60 ára baráttu gegn
ofstjórn og spillingu."
„Rödd úr hópnum“
Mest þótti mér um vert að lesa
grein Gísla Jónssonar undir fyrir-
sögninni „Rödd úr hópnum“. Gísli
kemst m.a. þannig að orði: „Til er
flokkur í þessu landi og heitir Sjálf-
stæðisflokkurinn. Hann hefur haft
að kjörorði: Gjör rétt — þol ei órétt.
Svo vill til að ég gekk í þennan flokk
Þorsteinn Pálsson
„Sjálfur tel ég einsýnt
að fella eigi þessa heim-
ild niður, Það var tíma-
bært, en atburðirnir að
undanf örnu gera það
óhj ákvæmilegt. “
tvítugur og hef verið þar síðan.
Þessi flokkur hefði brugðist trausti
mínu illilega ef hann hefði þolað
þá óvaldvendni sem að framan er
lýst. Ég fagnaði því mjög einarðri
andstöðu flokksforystunnar gegn
staðfestingu bráðabirgðalaganna á
alþingi og þótti miður að vomur
voru á sumum þingmönnum flokks-
ins. Gjör rétt — þol ei órétt.“
Þessi dæmi úr þjóðmálaumræð-
unni síðustu daga sýna að krafan
um siðferði í stjórnmálum og virð-
ing fyrir lögum og rétti á djúpar
rætur í íslenskri þjóðarvitund. Þó
að áróðursleikbrögð forystumanna
ríkisstjórnarflokkanna hafi rétt sem
snöggvast ruglað suma í ríminu
bregst Sjálfstæðisflokkurinn og for-
ystumenn hans ekki á varðstöðunni
um þau verðmæti sem úrslitum ráða
um það hvort að við erum og verð-
um sjálfstæð menningarþjóð, sem
virðir leikreglur lýðræðis og mann-
réttinda.
Afnám heimildar til útgáfu
bráðabirgðalaga
Tveir stuðningsmanna ríkis-
stjórnarinnar sem andvígir voru
vinnubrögðum hennar í þessu máli
ákváðu að veita henni hlutleysi. Rök
þeirra voru fyrst og fremst þau að
koma í veg fyrir að stjórnin lenti í
þeirri ófæru sem forsætisráð-
herrann virtist hafa komið henni í
með hótunum um það gerræðisverk
að ijúfa þing og endurútgefa bráða-
birgðalög og fótum troða þannig
meginreglur íslenskrar stjórnskip-
unar. Þeir sáu að upphlaup ráð-
herranna stefndi í að rýra enn meir
siðferðilegt traust stjórnmálaflokk-
anna.
Upplýst var í umræðum á Al-
þingi að formaður þingflokks fram-
sóknarmanna hafi hafnað hug-
myndinni um að afnema réttinn til
útgáfu bráðabirgðalaga á þeirri for-
sendu að í slíkri ákvörðun fælist
vantraust á formann Framsóknar-
flokksins. í þessu sambandi er at-
hygli vert að fjölmargir stuðnings-
manna ríkisstjórnarinnar, og þar á
meðal formaður Alþýðuflokksins,
hafa lýst því yfir í tilefni þessarar
umræðu að rétt sé að afnerna
stjórnarskrárákvæðin til útgáfu
bráðabirgðalaga.
Sjálfur tel ég einsýnt að fella
eigi þessa heimild niður. Það var
tímabært, en atburðirnir að undan-
förnu gera það óhjákvæmilegt. Iðr-
un sumra stjórnarsinna vegna sið-
leysis ríkisstjórnarinnar kemur
fram í stuðningi við þessa kröfu.
Engin svör
Kjarasamningar Alþýðusam-
bandsins og Vinnuveitendasam-
bandsins frá því í febrúar kváðu
'ekki verðbólgudrauginn endanlega
niður. Þeir gáfu hins vegar umþótt-
unartíma, þannig að stjórnvöld
gætu gripið til þeirra almennu efna-
hagslegu ráðstafana sem tryggðu
jafnvægi til frambúðar. í umræðun-
um að undanförnu hefur skýrt kom-
ið fram að ríkisstjórnin er að grafa
undan þjóðarsáttinni sem svo hefur
verið nefnd, með því að nota ekki
þennan umþóttunartíma heldur
hlaða vandamálum upp í stíflur.
í nýútkominni skýrslu Seðla-
bankans um peningamál segir að
allar líkur séu til þess að núverandi
ástand á lánamarkaði sé svikalogn.
Þetta er alvariegur áfellisdómur um
efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar
og sýnir að það er fyrst og fremst
hún sem hefur brugðist þeim vonum
sem fólkið í landinu hefur bundið
við kjarasamningana frá því í febrú-
ar.
Þegar formaður Framsóknar-
flokksins var að því spurður á Al-
þingi hvers vegna peningamagn í
umferð hefur aukist miklu miklu
meira en nemur almennum verð--
lagshækkunum sagði hann að þess-
ar upplýsingar kæmu sér á óvart.
Þegar hann var spurður að því hvers
vegna raunvextir hefðu hækkað svo
gífurlega á þessu ári sem raun ber
vitni um í stað þess að la kka eins
og lofað hafði verið, sagði hann að
það hefði valdið sér vonbrigðum.
Þegar hann var að því spurðurhvort
skattahækkanir þær sem hann hef-
ur verið að beijast fyrir ykju ekki
kostnað atvinnufyrirtækjanna með
sáma hætti og auknar launagreiðsl-
ur og hefðu því sambærileg verð-
lagsáhrif, komu engin svör.
Svikalogn fram yfir kosningar
Þegar formaður Framsóknar-
flokksins var að því spurður hvað
taka ætti við í septembermánuði á
næsta ári svaraði hann með skæt-
ingi og sagðist vona að það yrði
ekki fijálshyggja. Sennilega ber það
svar með sér að Framsóknarflokk-
urinn telur þau ráð ein duga í bar-
áttu við verðbólguna að rýra kaup-
mátt, lögbinda kjarasamninga,
bijóta réttarreglur á sviði samn-
inga, lítilsvirða stjórnskipunarregl-
ur og hundsa almenn siðgæðisvið-
horf.
Þetta virðist vera boðskapur
Framsóknarforystunnar sem for-
ystumenn A-flokkanna styðja með
ráðum og dáð. Þetta er sú fram-
tíðarsýn sem þeir gefa íslendingum
í aðdraganda kosninga.
Ríkisstjórnin vill fá að vera í friði
fram yfir kosningar í svikalogninu.
Vel má vera að einhveijir vilji leita
þar skjóls með henni, en það verður
erfitt fyrir talsmenn ríkisstjórnar-
flokkanna að færa gild rök fyrir
því að þar sé að finna framtíðar-
hagsmuni íslenskra launamanna og
íslenskra atvinnufyrirtækja.
Höfundur er formaður
Sjálfstæðisflokksins.
Sambandið:
Hlutafélag tekur við
starfsemi sjávarafurða-
deildar um áramót
ÍSLENSKAR sjávarafurðir hf. var stofnað í Reykjavík í gær. Fyrirtæk-
ið tekur til starfa 1. janúar næstkomandi og tekur við starfsemi sjávar-
afurðadeildar Sambandsins. Á ensku hetir nýja félagið Iceland Seafo-
od International Ltd. Sambandið á 50% í Islenskum sjávarafurðum
hf. Innborgað hlutafé er yfir 600 milljónir króna en heimilt er að
auka hlutaféð í 700 milljónir króna. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins
verður Benedikt Sveinsson en hann hefur verið framkvæmdastjóri
sjávarafurðadeildar Sambandsins.
Stofnendur íslenskra sjávaraf-
urða hf. eru annars vegar Samband
íslenskra samvinnufélaga og hins
vegar framleiðendur í Félagi Sam-
bandsfiskframleiðenda (SAFF) en
frá 1. janúar 1969 hefur verið í gildi
samningur á milli SAFF og Sam-
bandsins um starfsemi sjávarafurða-
deildar. Þá standa að hinu nýja fé-
lagi framleiðendur, sem selt liafa
afurðir sínar í gegnum sjávarafurða-
deild Sambandsins, enda þótt þeir
hafi ekki verið félagar í SÁFF fyrr
en nú og fjögur kaupfélög bættust
í hópinn á stofnfundinum.
Hið nýja félag kaupir hlut Sam-
bandsins í Iceland Seafood Corpor-
ation, sölu- og framleiðslufyrirtæki
Sambandsins og frystihúsanna í
Bandaríkjunum, en sá hlutur nemur
um 60% af heildarhlutafé. Félagið
kaupir einnig hlut Sambandsins í
Iceland Seafood Ltd. í Hull í Bret-
landi en þar á Sambandið 55% og
framleiðendur 45%.
íslenskar sjávarafurðir hf. taka í
öllum aðalatriðum við þeim verkefn-
um sem sjávarafurðadeild Sam-
bandsins hefur sinnt, það er að segja
útflutningi sjávarafurða, verslun
með umbúðir, veiðarfæri og rekstr-
arvörur til útgerðar og fiskvinnslu,
gæðaeftirlit og tæknilega aðstoð við
framleiðendur, svo og vöruþróun.
í fyrstu stjórn íslenskra sjávaraf-
urða hf. voru kosnir Sigurður Mark-
ússon, Guðjón B. Ólafsson, Hermann
Hansson, Tryggvi Finnsson, Gísli
Jónatansson, Rögnvaldur Frið-
björnsson og Jón Guðmundsson en
formaður félagsstjórnar er Tryggvi
Finnsson forstjóri Fiskiðjusamlags
Húsavíkur. í varastjórn eru Guð-
mundur Pálmason og Einar Svans-
son.
Kvennalistinn:
Fulltrúar sov-
éskra kvenna-
samtaka
í heimsókn
TVEIR fulltrúar sovésku kvenna-
hreyfingarinnar eru nú í heim-
sókn hcr á landi í boði Samtaka
um kvennalista. Konurnar eru
einkum að kynna sér störf kvenna,
meðal annars í viðskiptalífinu,
stjórnkerfinu og fjölmiðlum.
■Að sögn Ingibjargar Hafstað hjá
Samökum um kvennalista bauð sov-
éska kvennahreyfingin fulltrúum
Kvennalistans til Sovétríkjanna fyrir
hálfu öðru ári og er nú verið að end-
urgjalda það boð. Sovésku konurnar
hafa verið hér í viku.
Ingibjörg segir, að sovéska
kvennahreyfingin vilji kynna sér
stöðu kvenna á Vesturlöndum vel
enda vilji sovéskar konur ekki verða
útundan í þeirri þróun, sem þar á
sér stað nú. Sovéska kvennahreyf-
ingin hafi áður verið hálfopinber
samtök, með tengsl við
Kommúnistaflokkinn, en nú sé verið
að losa um tengslin. Innan samtak-
anna sé jafnvel rætt um að stofna
einhvers konar kvennaflokk, en hlut-
ur kvenna í nýjum stjórnmálasam-
tökum í Sovétríkjunum sé ekki nógu
mikill að þeirra mati.
Jólabjallan sett
upp á ný í mið-
bæ Reykjavíkur
Davíð Oddsson borgarstjóri tendrar
skreytinguna kl. 16.00 í dag
MARGIR muna eftir jólabjöllunni sem í mörg ár hékk á milli Vestur-
götu 2, þar sem Álafossbúðin er nú til húsa, og Aðalstrætis 1, verslun-
arinnar Geysis. Nú hefur samskonar bjöllu verið komið fyrir á sama
stað og tendrar Davíð Oddsson, borgarstjóri, skreytinguna í dag kl.
16.00 og lætur klukkuna óma.
Það var Gísli J. Sigurðsson í
Raforku (Vesturgötu 2) sem lét
gera bjölluna á sínum tíma ásamt
Holger P. Gíslasyni og Elíasi Val-
geirssyni, og var hún sett upp árið
1943. Þetta var fyrsta raflýsta úti-
skreyting yfir götu í Reykjavík.
Önnur bjalla hefur nú verið gerð
skv. lýsingu Gísla, Rafmagnsveita
Reykjavíkur lét gera upp klukkuna
sem notuð var í eina tíð, og kemur
hún til með að slá á fimmtán
mínútna fresti næstu vikumar.
I tilkynningu frá Félaginu í Mið-
bænum er fólk hvatt til að koma í
miðbæinn, jólasveinar verði þar á
sveimi auk þess sem boðið verður
upp á eftirtalin atriði:
Útifiskmarkaður verður á
„Stakkstæðinu“ framan Vestur-
götu 2 kl. 10.00-12.00 „ef bátar
hafa róið“ eins og segir í tilkynning-
unni.
Gömlu íslensku fánarnir og
Reykjavíkurfáninn verða dregnir að
húni við Grófartorg kl. 11.15.
Fimmtán mín. síðar dregur hryssan
Fífínella listikerru sem bömin fá
að sitja í. Lagt verður af stað frá
Iðnó, ekið Lækjargötu, Kirkjutorg,
Austurvöll, Austurstræti, Aðal-
stræti og Hafnarstræti.
Kl. 13.00 rifjar Hjálpræðisherinn
upp gamla tíma á Lækjartorgi með
hljóðfæraslætti og söng. Jólapottur-
inn verður með. Gamanleikhúsið
sýnir atriði úr Línu langsokk á
Hótel íslandsplani (Hallærisplani)
kl. 13.30 og kl. 14.00 syngur Dóm-
kórinn á Geysisplani, Vesturgötu 1.
Rokklingarnir skemmta í Hlað-
varpaportinu, Vesturgötu 3, kl.
Jólabjallan milli Vesturgötu 2 og Aðalstrætis 1 eins og margir muna
hana á árum áður.
14.30, og Grýla flengir börnin á
sama stað kl. 15.00. Björk Guð-
mundsdóttir og tríó Guðmundar
Ingólfssonar leika á sama stað kl.
15.30 og á sama tíma fer hryssan
Fífínella aftur af stað með listikerr-
una. Jólasveinar slást í för með
börnunum í þetta skiptið.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
tendrar svo ljós á jólabjöllunni milli
Vesturgötu 2 og Aðalstrætis 1 kl.
16.00 sem fyrr segir. Lúðrasveitin
Svanur leikur fyrir og eftir athöfn-
ina.
Eldsloginn, æskudeild Hjálpræð-
ishersins leikur í Hlaðvarparport-
inu, Vesturgötu 3, kl. 16.30. Milli
atriða í Hlaðvarparportinu lesa ung
skáld upp úr verkum sínum, m.a.
Halldóra Thoroddsen, Björk Örvar,
Þórður Helgason og þær Hanna
Margét Sverrisdóttir og Ásdís Run-
ólfsdóttir leika á fiðlu á Hlaðvarpa-
markaðnum........................
Húseigendatryggingar:
Ekki heimild til hækkunar
Nauðsynleg hækkun vegna aukningar vatnsljóna, segja tryggingafélögin
TRYGGINGAEFTIRLITIÐ hefur ekki veitt heimild fyrir hækkun ið-
gjalda vegna húseigendatrygginga, hvorki hjá Sjóvá-Almennum né
öðrum tryggingafélögum. Umsókn þess efnis liggur þó fyrir en ekki
er vitað hvenær afstaða verður tekin til beiðninnar.
Ragnar Ragnarsson hjá Trygg-
ingaeftirlitinu sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að erindi þessa
efnis frá Sjóvá-Almennum væri til
umfjöllunar hjá eftirlitinu en ekki
hefði verið tekin afstaða til þess.
Ragnar sagði að eftirlitið hefði
hins vegar samþykkt beiðni frá þeim
um breytingu á skilmálum húseig-
endatryggingarinnar. Tryggingafé-
lögum ber að sækja um til eftirlits-
ins varðandi tryggingaskilmála ann-
ars vegar og hins vegar varðandi
gjaldskrá.
Bæði stóru ttyggingafélögin, VÍS
og Sjóvá-Almennar, hafa sótt um
breytingu á tryggingaskilmálum og
Sjóvá-Almennar hafa nýlega sótt um
breytingu á gjaldskrá.
Olafur Jón Ingólfsson, yfirmaður
almenningstengsladeildar Sjóvá-
Almennra, sagði það rétt að fyrir-
tækið væri ekki búið að fá heimild
til breytinga á iðgjöldum.
„Það er rétt að taka fram að einn
valkosturinn, um 50 þúsund kr.
sjálfsábyrgð, á aðeins við um skaða
af völdum vatns. Menn þurfa ekki
að greiða sjálfsábyrgðina af skaða
vegna einhvers annars. Rétt er einn-
ig að nefna að það er brunabótamat
eignar sem notað er til viðmiðunar
en ekki fasteignamat," sagði Ólafur
Jón,
Fyrirhugaðar breytingar ná bæði
yfir gömlu húseigendatrygginguna
og hina nýju fasteignatryggingu,
sem er mun víðtækari en sú fyrr-
nefnda og mun vinsælli.
Þórður Þórðarson, deildarstjóri
eignatrygginga hjá VÍS, sagði að
þeir væru að breyta skilmálum hús-
eigenda- og heimilistrygginga.
„Þessar tryggingar verða víðtækari
en verið hefur og er það ein af ástæð-
um þess að við sækjum um hækkun
iðgjalda. Við vonum að iðgjaldið
þurfi ekki að hækka nema um 30%
hjá okkur, en Tryggingaeftirlitið á
eftir að taka það mál fyrir.“
Helsta ástæða fyrirhugaðrar
hækkunar tryggingafélaganna er
tjónaþunginn í húseigendatrygging-
unum og þá sérstaklega tjón af völd-
um vatns. Þetta sé uppsafnaður
vandi og því verði ekki hjá því kom-
ist að sækja um hækkun nú. „Það
má segja að vatnsskaðar Jiellist yfir
okkur,“ sagði Þórður. Ólafur Jón
sagði að fyrir hveijar eitt þusund
krónur sem þeir fengju í iðgjald
greiddu þeir eitt þúsund og sex
hundruð vegna tjóna.
Húseigendur eru ekki skyldugir
að hafa húseigendatryggingu og hún
getur verið nokkuð mismunandi.
Algengustu áhættuþættir trygging-
arinnar eru vatn, fok, sót, skemmdir
vegna innbrots og svo er svokölluð
ábyrgðatrygging húseigenda.
Hægt er að kaupa þessar trygg-
ingar í heildartryggingum, eða
„pakkatryggingum“ og þá er ið-
gjaldið nokkru lægra. Hjá VÍS ei
það svokölluð fjölskyldutrygging og
hjá Sjóvá-Almennum er það gull-
vernd sem veitir aukinn afslátt.
Múlagöngin opnuð
fyrir umferð á morgun
JARÐGÖNGIN í gegnum Ól-
afsfjarðarmúla verða opnuð
fyrir almennri umferð á
morgun, sunnudag, kl. 14.
Ekki verður um formlega
vígslu ganganna að ræða, en
áformað er að hún verði á næsta
ári þó svo að nákvæm dagsetn-
ing hafi ekki verið ákveðin enn.
Við opnunina á rnorgun mun
Vegagerð ríkisins taka við verk-
inu af verktakanum, Krafttaki
hf. Búist er við Steingrími J.
Sigfússyni samgönguráðherra
til Ólafsfjarðar af þessu tilefni.
Ýmiss konar smáverkefni eru
eftir við jarðgangagerðina, m.a.
á eftir að setja upp hurðir í
gangamunnan auk frágangs-
vinnu og þá verður seinna mal-
bikslagið sett á veginn næsta
vor. Einnig á eftir að taka niður
vinnubúðir og flytja þær burtu
af staðnum.
Starfsmenn í göngunum