Morgunblaðið - 15.12.1990, Side 53
MOKGUNBI.AJDID I.AL;GAK1M.GI:1í ló, WJvSKMBjiH.aððO
Gunnar og Gísli
Hljómplðtur
Egill Friðleifsson
Flytjendur: Gunnar Kvaran,
selló, Gísli Magnússon píanó.
Höfundar: Ýmsir.
Útgáfa: Fermata.
Fyrir nokkni barst mér í hendur
hljómplata þar sem þeir Gunnar
Kvaran sellóleikari og Gísli Magn-
ússon píanóleikari flytja tólf stutt
verk eftir ýmsa höfunda.
Það þarf varla að kynna þessa
ágætu listamenn mörgum orðum.
Báðir standa þeir í röð okkar
fremstu túlkandi listamanna og
samvinna þeirra hefur staðið í sautj-
án ár. Á næsta ári eru liðnir fjórir
áratugir síðan Gísli Magnússon
kvaddi sér fyrst hljóðs sem einleik-
ari og tæpir tveir áratugir síðan
Gunnar Kvaran hvarf heim eftir
áralangt nám og störf erlendis og
báðir hafa látið að sér kveða í
íslensku tónlistarlífi sem flytjendur
og kennarar. Það má segja að sam-
leikur þeirra einkennist af vönduð-
um vinnubrögðum fagmanna. Hér
eru á ferðinni þroskaðir listamenn,
sem agað hafa leik sinn og túlkun
með áralangri þjónustu við lista-
gyðjuna. Það kemur því ekki á óvart
hversu ágæt þessi hljómplata er,
og mun hún áreiðanlega auka hróð-
ur þeirra enn frekar. Sem fyrr seg-
ir er hér að finna tólf stutt verk
úr ýmsum áttum. Þeir höfundar
sem við sögu koma eru: W.H. Squ-
ire, J.S. Bach, L. Boccherini, P.
Casals, G.B. Pergolesi, E. Grana-
dos, C. Saint-Saens, Hafliði Hallgr-
■ ÚT ER KOMIN hjá Ernl og
Orlygi aukin og endurskoðuð út-
gáfa ensk-íslensku viðskiptaorða-
bókarinnar sem kom fyrst út árið
1982 og hafði þá að geyma 9.000
orð og orðasambönd. Hin nýja út-
gáfa geymir hins vegar 15.000 orð
og orðasambönd auk 202 landa-
heita og upplýsinga um íbúafjölda,
helstu borgir og höfuðborgir. Þá er
gerð grein fyrir muni á breskri og
amerískri ensku og skýrðir við-
skiptaskilmálar.
Jólasálmar
ímsson, Hjálmar H. Ragnarsson og
G. Fauré, og þarna er marga perl-
una að finna sem falla mun vandlát-
um tónlistarunnendum vel í geð.
Það væri of langt mál að geta þess
alls, en má t.d. benda á hið yndis-
lega lag Pergolesis „Nína“, „Svan-
inn“ eftir Saint-Saens, skemmtileg-
ar þjóðlagaútsetningar Hafliða
Hallgrímssonar, hið tregafulla
„Lauffall“ Hjálmars H. Ragnars-
sonar og þá ekki síst „Elegía“ eftir
Fauré þar sem fallegur sellótónn
Gunnars ber áfram breiða laglínuna
í upphafmni ró.
Þetta er eiguleg hljómplata sem
hefur að geyma dýrar perlur í vönd-
uðum flutningi þroskaðra lista-
manna.
Hljómplötur
Oddur Björnsson
„Á þessari plötu eru nokkrir al-
gengustu íslensku jólasálmarnir
eins og flestir muna þá allt frá
barnæsku, með þeim lögum sem
sungin hafa verið í íslensku kirkj-
unni áratugum saman. Platan er
ætluð öllum þeim sem langar að
hlusta á sálmalögin sem öðrum
fremur einkerina islensk jól. Þetta
er plata til að njóta á kyrrðárstund
á heimili. Jafnframt og ekki síður
er platan vel fallin til þess að senda
vinum og vandamönnum sem dvélja
erlendis eða af einhveijum orsökum
öðrum geta ekki notið íslenskrar
jólahátíðar með hefðbundnum
hætti,“ segir á plötuumslagi, og litlu
við þetta að bæta. Lögin eru að
sjálfsögðu ekki íslensk (nema eitt),
og mörg þeirra úr grárri forneskju,
14., 15. og 16. öld, en þau hafa öll
öðlast íslenskan þegnrétt, enda
pælir enginn í því hvaðan þau eru
komin. Sumir textanna eru líka
þýddir, en jafn íslenskir fyrir það.
Kór Lágafellssóknar, undir stjórn
Guðmundar Ómars Öskarssonar,
syngur með látleysi og fallegum
áherslum, sem er það sem máli
skiptir í jólasálmum. Einsog stund-
umv ill brenna við virðist hljómburð-
ur nokkuð „loðmullulegur" án þess
að koma ■ verulega að sök (nema
einna helst í „í dag er glatt í döpr-
um hjörtum“, sem krefst meiri birtu
og sungið of hægt eins og venjulega
í íslenskri kirkju). Með öðrum orð-
um nokkuð einhæfur söngur, sam-
kvæmt íslenskri hefð, en samt fall-
egur og ,jólalegur“. Semsagt plata,
sem gott er að láta malla í bland
við ljósin af jólatrénu og ilminn af
jólaijúpunni.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Sauðárkrókur
Jólafundur bæjarmálaráðs
Jólafundur í bæjarmálaráði Sjálfstæðisflokksins verður í Sæborg
mánudaginn 17. desember kl. 20.30.
Umræður um bæjarmálin. Veitingar.
Stjórnin.
Jólaglögg
sjálfstæðismanna
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík efna til jóla-
glöggs í Valhöll, Háaleitisbraut 1, milli kl.
16.00 og 18.001 dag, laugardaginn 15. des.
Björn Bjarnason, aðstoðarritstjóri, flytur
stutta hugvekju.
Mætum í jólaskapi.
Sjálfstæðisfélögin.
Borgarnes
Aðal- og varafulltrúar Sjálfstæðisflokksins
i bæjarstjórn, ásamt trúnaðarmönnum
flokksins í nefndum og ráðum bæjarins,
verða með opinn fund um bæjarmálefni í
Sjálfstæðishúsinu, Brákarbraut 1, þriðju-
daginn 18. desember kl. 20.30.
Allir velkomnir.
Hella - jólaglögg
í dag, laugardaginn 15. desember, verður opið hús í Laufafelli á
Hellu. Á boðstólum verður jólaglögg, piparkökur og fleira góðgæti
á jólaverði. Opnað kl. 20.00.
Allt sjálfstæðisfólk velkomið.
Tekið skal fram að síðar um kvöldið mun Smári Eggertsson leika
fyrir dansi í Laufafelli.
Stjórn sjálfstæðisfélagsins.
ísafjörður - FUS - Fylkir
Jólafundur verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu, Hafnarstræti 12, 2.
hæð, í dag, laugardaginn 15. desember, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Veitingar.
2. Önnur mál.
3. Vigsla nýrra félaga.
Nýir og' eldri félagar velkomnir.
Stjórnin.
Austur-Skaftfellingar
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn i Verkalýðshúsinu á Höfn
í dag, laugardaginn 15. desember, kl. 15.00.
Málshefjandi Þorsteinn Pálsson, alþingismaður. Ennfremur mæta á
fundinn alþingismennirnir Halldór Blöndal og Egill Jónsson.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisflokkurinn.
SVERRIR STORMSKER
„GLENS ER EKKERT GRÍN"
Platan „Glens er ekkert grin" meó Sverri
Stormsker er án nokkurs vaf a einhver besta
plata sem Stormsker hefur sent frá sér.
Meóal laga má nefna:
„Hildur" - söngur: Eyjólffur Kristjánsson.
„Göffugugginn" - söngur: Stormsker og Bubbi Morthens.
„Ávallt vióbúnir" (skátasöngurinn) - söngur: Stormsker
„Paradis" - söngur: Alda Björk Ólafsdóttir.
Úr plötudómi:
„Örfáir eru bæði góðir lagahöfundar og textahöfundar og þar í hópi er
Sverrir Stormsker...
Á plötunni „Glens er ekkert grín“ sameinar hann þetta tvennt, afbragðs-
góða texta og prýðileg lög. Þar af leiðandi er platan skemmtileg í hlustun..."
„Það verður aldrei af Stormsker skafið að hann er fjölhæfur tónlistarmað-
ur, eða eins og einhver orðaði það: „Þessi drengur kann bara allt“.
Morgunblaoid -
Sveinn Guðjónsson,
Nánari upplýsingar um þessa afbragós- 11‘ des' 1990,
plötu á popplínunni, simi 991000.
S • K • I • F • A • N