Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 56
56
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
JOLAGJÖFINIAR BIG FOOT
STÓRU, LITLU SKÍÐIN
Fyrir alla hressa krakka og ungl-
inga og jafnvel fullorðna líka.
BIG FOOT er einnig upplagður með
ó vélsleðann.
BIG FOOT er með ósettum binding-
um og passar fyrir alla skíðaskó
og margar gerðir af gönguskóm.
Verð:
BIG FOOT með bindingum kr. 9.900
BIG FOOT skíðastafir kr. 3.700
BIG FOOT taska kr. 680
BIG FOOT bakpoki kr. 1.900
BIG FOOT anorak kr. 5.600
Útsölustaðir:
Akranes: Pípulagningaþjónustan, Ægisbr. 27.
Borgarnes: Borgarsport, Borgarbrauf 58.
Hellissandur: Blómsturvellir, Munaóarhóli 25.
Bolungarvík: Versl. Jóns Fr. Einarssonar.
Isafjöróur: Sporthlaðan, Silfurtorgi 1.
Blönduós: Kf. Húnvetningo, Húnabrout 4.
Siglufjörður: Bensínstöðin, Ijornargötu.
Dalvík: Sportvík, Hafnarbraut 5.
Akureyri: Skíðoþjónustan, Fjölnisgötu 4b.
Húsavík: Kf. Þingeyinga, byggingavörud.
Egilsstaðir-. Versl. Skógar, Dynskógum 4.
Eskifjörður: Verslunin Sjómann, Kirkjustíg 1.
Neskaupstaður: Varahlutaversí. Vík,
Hafnarbraut 17.
Reyðarfjörður: Versl. Lykill, Búðareyri 25.
Djúpivogur: B.H. búðin, Borgarlandi 12.
Selfoss: Versl. Ölfusó, Eyrarvegi 5.
Keflavík: Reiðhjólaverkstæði M.J.,
Hafnargötu 55.
Hafnarfjörður: Músik og Sport,
Reykjavíkurv. 60.
Ármúla 40,
sími 35320
/M4R
Afmæliskveðja:
Unnur Ágústsdóttir
Árið 1915 verður ætíð í hugum
kvenna hér á landi sameiginlegt
afmælisár. Þá fengu íslenskar kon-
ur kosningarétt og kjörgengi til
Alþingis. Þjóðin öll var að vakna
til vitundar um, að með sameigin-
legu átaki kvenna og karla væri í
framtíðinni hægt að byggja upp
gott þjóöfélag í fijálsu landi.
Vestur á Bíldudal ríkti einnig
mikil birta yfir þessu ári hjá sæmd-
arhjónunum Jakobínu Pálsdóttur og
Ágústi Sigurðssyni kaupmanni. Þá
fæddist þeim dóttirin Unnur, önnur
í röð sjö barna þeirra hjóna. Á
Bíldudal var á þessum tíma mikið
félags- og athafnalíf. Stór frænd-
garður og systkinahópur á miklu
menningarheimili gaf Unni strax í
æsku sterkan grunn til að byggja
líf sitt á. Til Reykjavíkur hélt hún
svo til tónlistarnáms og vinnu við
skrifstofustörf.
í Reykjavík kynntist Unnur fyrri
manni sínum’, Karli Schram. Eins
og venja var á þeim tíma helgaði
hún heimilinu og uppeldi barna
sinna tveggja, Hrafnhildar og
Ágústs, alla sína krafta, en er eigin-
maður hennar lést fyrir aldur fram
tók hún við starfi hans sem fram-
kvæmdastjóri Veggfóðrarans í
Reykjavík.
Uppeldi barna, umönnun heimilis
og starf utan heimilis þykir í dag
eðlilegt hlutverk kvenna, en þau
margvíslegu störf að félagsmálum
sem Unnur jafnframt hefur innt af
höndum verður að teljast þrekvirki.
Ung að árum gekk hún til liðs við
Thorvaldsensfélagið í Reykjavík og
formaður þess var hún í tuttugu
ár. Formaður Bandalags kvenna í
Reykjavík var hún í níu ár. í stjórn
Kvenfélagasambands Islands í
mörg ár og virkur félagi í fleiri
félögum, svo sem Kvenfélagi Lang-
holtssóknar, Sjálfstæðiskvennafé-
laginu Hvöt, Oddfellowstúkunni
Bergþóru og Kvenréttindafélaginu.
Framkvæmdastjóri Kvennaheimilis
Hallveigarstaða var hún í sex ár, á
miklu erfiðleikatímabili í rekstri
hússins, og má segja, að þá fyrst
er Unnur skilaði af sér störfum þar
hafi reksturinn verið kominn í far-
sælt horf.
Að málefnum allra þessara fé-
laga og samtaka hefur Unnur unn-
ið af miklum dugnaði og ósérhlífni.
Glæsilegur persónuleiki hennar og
málafylgja hafa gert hana að sjálf-
kjörinni forystukonu.
Hér hefur aðeins verið stiklað á
stóru í félagsmálastörfum Unnar.
Svo fjöldamargt er ótalið. í fundar-
gerðarbækur verður aldrei skráð sú
persónulega umhyggja sem Unnur
hefur borið fyrir þeim félagskonum
sem unnið hafa með henni. Unnur
gefur meira en störf sín, hún gefur
sjálfa sig alla. Erfiðleikar félags-
kvenna eru erfiðleikar hennar, sem
með einhveijum ráðum verður að
leysa. Og gleði þeirra er einnig gleði
hennar.
Kvenfélagasamband Islands,
Bandalag kvenna í Reykjavík og
Thorvaldsensfélagið hafa heiðrað
Unni með því að gera hana að heið-
ursfélaga sínum. Þessi félög og þau
önnur sem Unnur hefur starfað
fyrir senda henni árnaðaróskir í til-
efni afmælisins og þakka henni
ómetanleg störf í þeirra þágu.
Persónulega vil ég þakka Unni
fyrir áratuga vináttu og samstarf.
Það er henni að þakka, að ég á
sínum tíma gekk í kvenfélag. Það
varð mér hvatning til frekari starfa
að félagsmálum og þannig hefur
það verið með margar aðrar konur.