Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 74
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
74
fólk f
fréttum k.
Rúnar og Fyrsti kossinn.
TONLEIKAR
Bubbi, Rúnar og Amma Lú
Bubbi Morthens sendi frá sér
fyrir stuttu 26. plötuna á ell-
efu árum, Sögur af landi, og hefur
sú plafa ekki selst síður en þær
sem á undan eru komnar. Hann
hélt fyrir stuttu útgáfutónleika í
Ömmu Lú, nýjum glæsilegum veit-
ingastað í Kringlunni.
Uppselt var á tónleikana í
Ömmu Lú og komust færri að en
viidu. Bubbi byrjaði tónleikana á
því að troða upp einn með gítar-
inn, eins og hann gerir iðulega,
og lék gömul og ný lög í bland.
Eftir að hafa leikið þannig í um
klukkustund kallaði hann á svið
aðstoðarmenn sína, þá Reyni Jón-
asson harmonikkuleikara, Þorleif
Guðjónsson bassaleikara og Kristj-
án Kristjánsson gítarleikara. Þeir
renndu sér svo í að kynna plötuna
nýju betur. Undir lok tónleikanna
kailaði svo Bubbi á G. Rúnar Júl-
íusson á sviðið, tónlistarmann sem
hann sagðist hafa mikið dálæti á
og hafa haft í fjölda ára. Fyrst
flutti Rúnar með sveitinni gamalt
Hijómalag og síðan Fyrsta kossinn
og þá fóru áheyrendur heldur en
ekki á ið. Lokalag tónleikanna var
svo gamalt Bob Dylan-lag, Knock-
in’ on Heaven’s Door, en þá tók
Bubbi við söngnum aftur.
Áhorfendur vildu meira og
klöppuðu hann og sveitina aftur á
svið og fengu fyrir sinn snúð þrjú
korter af tónlist í viðbót. í lokin
kom Steinar Berg svo á svið og
flutti stutta tölu áður en hann af-
henti Bubba fyrstu gullplötu vetr-
arins fyrir yfir 3.000 eintök seld
af Sögum af landi.
Steinar og Bubbi hampa gull-
plötunni, en platan hefur víst
náð platínusölu þegar þetta
birtist.
Bubbi kynnti 26.
Bubbaplötuna í
Ömmu Lú.
Morgunblaðið/Sverrir
Afmælisbarnið tekur á móti Indriða G. Þorsteinssyni ritsljóra.
AFMÆLI
Hestamenn heiðra
Gunnar Bjamason
Gunnar Bjamason ráðunautur
varð 75 ára s.l. fimmtudag.
Fáksfélagar héldu afmælisbarn-
inu hóf í félagsheimili Fáks og
var það mjög fjölsótt. Margar
ræður voru fluttar í hófinu. Aðal-
ræðuna flutti Jónas Kristjánsson
ritstjóri og sagði að Gunnar væri
allt í senn höfðingi, fræðimaður,
lífsnautnamaður og hestamaður.
Sjötta bindi Ættbókar og sögu
íslenzka hestsins eftir Gunnar
kom út á afmælisdaginn og sagði
Jónas samningu þess tvöfalt ævi-
starf venjulegs manns.
Sveinbjörn Dagfínnsson ráðu-
neytisstjóri rifjaði upp þegar
Gunnar varð sjötugur fyrir fimm
árum og átti að fara á eftirlaun.
Þá kom hann með pappíra í ráðu-
neytið sem hann sagði sanna að
hann væri fæddur þremur vikum
fyrir tímann og hefði hann því
að öllu eðlilegu átt að fæðast árið
eftir. Var það bón Gunnars að
tekið væri tillit til þessa og hann
fengi að vinna eitt ár í viðbót!
Þótti ráðherra þessi málatilbúnað-
ur svo frumiegur að hann fór að
ósk Gunnars. I hófinu var Gunnar
sæmdur gullmerki Fáks, en fyrr
í haust hafði hann verið sæmdur
gullmerki Landssambands hesta-
manna.
Meðal gesta í afmælinu voru Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri
og E. Sigurðsson fyrrverandi ráðherra.
COSPER
- Hvað á ég að segja þér það oft að loka dyrunum á
eftir þér.
KYNBOMBA
Gitte fær tækifæri
til að sýna kroppinn
Kynbomban stórvaxna og silikon-
bætta Gitte Nielsen, sem hefur
sérstakt lag á að koma sér í fréttim-
ar, hefur nú orðið að aflýsa ýmsum
uppákomum á næstu vikum. Um-
boðsmenn hennar og fréttafulltrúar
segja stúlkuna „sjúka“, en neita að
útskýra það nánar. Meðal þess sem
Gitte hefur afskrifað vegna þessa
er nokkurra vikna ferð heim til Dan-
merkur þar sem hún ætlaði sér að
troða upp vítt og breitt og biðu
Danir spenntir þessarar umtöluðu
dóttur sinnar, en eru nú sárir og
leiðir.
Fregnir herma að krankleiki Gittu
eigi rætur að rekja til andlegrar
þreytu, að hún sé búin að misbjóða
sér með mikilli vinnu samhliða
hörkuátökum í einkalífinu en það
hefur verið íjörugt, enda ekkert ein-
kalíf í sjálfu sér. Ekki er langt.síðan
að hún giftist myndbandaframleið-
anda einum og skömmu síðar voru
bæði handtekin áf lögreglu fyrir
utan næturklúbb eftir að hafa flog-
ist á. Þau segjast þó bæði vera yfir
sig ástfangin og slagsmálin hafi
verið byijunarörðugleikar og slíkt
muni ekki endurtaka sig.
Annars var Gitte að áskotnast
draumahlutverkið i Hollywood-kvik-
mynd sem vinna hefst senn við. Það
er ný og endurbætt kvikmynd um
frumskógakempuna Tarzan, en
Gitte fær hlutverk Jane, sem varð
Gitte Nielsen
strandaglópur hjá Tarzan í frum-
skóginum forðum og tókust þannig
með þeim ástir. Gitte segir þetta
hlutverk sniðið fyrir sig, líkaminn
mikli sem hún hafi ræktað og endur-
bætt með ýmsum hætti fái nú notið
sín, ekki síst bijóstin sem munu
dingla klæðalaus í flestum frum-
skógartökunum ...