Morgunblaðið - 15.12.1990, Qupperneq 82
82
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 1990
KNATTSPYRNA
.
„Vona að ég fari
eícki í jólaköttinn“
- segirGuðni Bergsson, leikmaðurTottenham
KNATTSPYRNAMENN á Bret-
landseyjum fá ekkert jólafrí í
árfrekar en áður. Þrír íslenskir
landsliðsmenn eru í herbúðum
enskra liða og verða þeir því
ekki íjólastemmningunni hér
heima. Það eru þeir Guðni
Bergsson, Sigurður Jónsson og
Þorvaldur Örlygsson.
Guðni Bergsson hefur ekki leik-
ið með Tottenhám að undan-
förnu, en hann er þó ekki á þeim
buxunum að gefast upp. „Ég vona
að ég fari ekki í jólaköttinn í ár,“
sagði Guðni þegar Morgunblaðið sló
á þráðinn til hans í gærkvöldi. „Það
hefur ekki gengið vel hjá okkur að
Tveir gras-
vellir
byggðir
eyjum
FÆREYINGAR hafa ákveðið
að byggja tvo grasveili eftir
hinn glæsilega árangur
þeirra í Evrópukeppni lands-
liða. Eins og menn muna þá
lögðu Færeyingar Aust-
urríkismenn að velli, 1:0, á
dögunum, sem frægt varð.
Færeyingar léku þá í Lands-
kronan í Svíþjóð, en þeir
stafna að því að næsti hei-
maleikur þeirra í Evrópu-
keppninni farii fram í Færeyj-
um - gegn N-írlandi 11.
september 1991.
Færeyingar hafa leikið á
gervigrasi, en gervigras er
ekki löglegt í Evrópukeppninni.
Nýju grasvellirnir verða í Þrós-
höfn og Tóftum, sem er skammt
frá Þórshöfn. Þar verður byggð-
ur völlur sem tekur átta þús.
áhorfendur í sæti. „Við vonum
að vellirnir verða tilbúnir fyrir
leikinn gegn N-írlandi. Það vilja
allir Færeyingar sjá leikinn,“
sagði Páll Guðlaugsson, þjálfari
Færeyinga í viðtali við blaða-
menn í Englandi.
undanförnu. Þrátt fyrir það erum
við ekkí langt frá toppliðunum.“
Liverpool er með 37 stig, Arsé-
nal 36 og Tottenham kemur í þriðja
sæti með 30 stig. Það er langt síðan
að félögin frá Norður-London hafi
byijað eins vel, en mikil barátta
hefur verið á milli þeirra.
Á gögunum var opnugrein um
Guðna í leikskrá Tottenham, þar
sem sagt er fá lögfræðinemanum
sem tók sér hvíld frá námi til að
leika sem atvinnuknattspyrnumað-
ur. Mynd er af Guðna fyrir framan
heimili sitt og mynd af honum
ásamt eiginkonu sinni Elínu. Þá er
skemmtileg mynd af honum og
Gary Lineker, þar sem þeir eru að
fagna marki og mynd af honum í
leik gegn Arsenal.
Guöni Bergsson fyrir framan heimili sitt í Brox-
bourne í Norður-London. Hér til hliðar má sjá
greinina um Guðna sem var í leikskrá Totten-
ham á dögunum, en félagið gefur út afar glæsi-
lega leikskrá. Fyrirsögnin er; Heima og í vinn-
unni.
Gordon Banks varði meistaralega skallann frá Pele.
riy 00 K SIu>
EFTIR JANUS GUÐLAUGSSON
í *
Asta mari'a reynisdöttir,
fslandsmeistari 1990, Breiðabliki:
„Lykilatriði í knattspyrnu er góð tækni,
en tækniæfingar eru oft vanræktar í
þjálfun. Til þess að verða góður knatt-
spyrnumaður þarf að æfa mikið og þá
kemur þessi bók að góðum notum.“
iÐNÚ
Bókaútgáfa
Sími: 91 - 62 33 70
Knattspymukappinn Pele:
„ÞegarBanks
varði hataði
ég hann“
EIN glæsilegasta markvarsla
sem hefur sést á knattspyrnu-
velli var þegar Gordon Banks,
markvörður Englands, varði á
meistaralegan hátt skallabolta
frá knattspyrnusnillingnum
Pele frá Brasilíu í HM í Mexíkó
1970.
Fjölmargir eftirminnilegir at-
burðir úr sögu HM eru skráðir
í bókinni: Ítalía ’90 - 60 ára saga
heimsmeistarakeppninnar í knatt-
spyrnu, sem er nýkomin á markað-
inn. Bókin er óbeint framhald bók-
arinnar HM & Spáni - 1982. í bók-
inni er sagt frá þegar Gordon Banks
kastaði sér niður við marklínu og
náði að veija með einni hönd - sló
knöttinn yfir þverslá. „Þegar Banks
várði hataði ég hann, en strax eftir
leikinn gat ég ekki annað en dáðst
að honum af öllu mínu hjarta. Þetta
var frábærasta markvarsla sem ég
hef séð,“ sagði Pele.
Hvað sagði Banks um atvikið?:
„Þegar ég sá fyrirgjöf Jarzinho
koma fyrir markið hugsaði ég; að
knötturinn færi of hátt til að ein-
hver næði til hans. Þá sá ég Pele
skjótast fram og stökkva hátt í loft
upp 7 og hann náði að skalla knött-
inn. Ég kastaði mér þá strax niður."
Þess má geta að Brasilíumenn
lögðu Englendinga, 1:0. Leikurinn
fór fram í 39 stiga hita og léttust
leikmenn Englands um 4,5 kg í
leiknum vegna vökvataps.