Morgunblaðið - 28.02.1991, Side 25

Morgunblaðið - 28.02.1991, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1991 25 Framan við þinghúsið í Tallinn hafa þessi virkisveggir verið reistir. Götuvígi hafa verið reist í Tallinn, höfuðborg Eistlands, til að hindra beitingu sovésks hervalds. min jnnnm verkfæri í höndum þessarar sam- steypu. Ein aðferðin er að koma af stað kviksögum. Jarovoj, for- stjóri stærsta fyrirtækisins í Eist- landi, sagði til dæmis einu sinni: „Ef við vinnum ekki sigur núna, verðum við að pakka saman og fara.“ — Hver er hlutur Gorbatsjovs forseta í þessum málum? — Mér finnst Gorbatsjov vera orðinn leppur í höndum hersins. Ég man eftir því að fyrir u.þ.b. mánuði hrópuðu hershöfðingjar á fundi Æðsta ráðs Sovétríkjanna, að nú yrði forsetinn að bjarga sér án hers- ins. Eftir það sagði Gorbatsjov í hverri ræðu, að við yrðum að styðja hetjuherinn okkar. Eftir það talaði hann nákvæmlega eins og hershöfð- ingi sjálfur. Honum hafði greinilega verið hótað öllu illu. - Er hugsanlegt að atburðirnir íLitháen endurtaki sig í Eistlandi? — Ég ætla ekki að gagnrýna stjórnvöld í Litháen. Lýðræði okkar er ungt. Það eru því miður fáir, sem hafa stjórnmálareynslu. Ég held, að við í Eistlandi höfum meira at- hafnafrelsi en Litháar. Málin eru rædd. Við höfum náð samkomulagi við herinn. Það breytir engu um það, að við teljum hann vera her- námslið. Og yfirmenn heraflans sem eru í Eistlandi, hafa lýst því yfir, að þeir munu ekki beita sér gegn eistnesku þjóðinni. Fyrir skömmu var fundur með sendiherr- um frá ýmsum löndum þ. á m. Svíþjóð og fulltrúi Gorbatsjovs sagði að herinn mundi aldrei aftur skipta sér af breytingum í Eystra- saltslöndunum. Fyrir tveinrur vik- um var tekin ákvörðun að fiytja herafla til Eistlands líka. Forsætis- ráðherra okkar talaði þá við Gor- batsjov og sannfærði hann um að það borgaði sig ekki að gera það á þessum tíma. Ég endurtek, að við- ræður fara fram. Mér finnst afstaða Litháa of róttæk. Tilraunir til við- ræðna hófust ekki fyrr en allt var komið í bál og brand. Það réttlætir þó ekki framferði Sovétmanna. — Þegar ég var að koma frá íslandi var ég vöruð við ástandinu í Eistiandi. — Ég man hvernig ástandið var fyrir tveimur árum. Þá urðu árekstrar meðal almennings: Þú, Rússi! — Þú andskotans Eistlend- ingur! Að undanförnu hefur þetta gjörsamlega horfið, af því að fólkið gerir sér grein fyrir, að jafnvel árekstrar manna á meðal geta skap- að hættuástand. Þetta skilja bæði Eistlendingar og Rússar. Kerfið vill beina þróuninni á aðrar brautir. Við viljum ekki gefa kerfinu neina átyllu til að flytja hingað herlið. Ég held, að hefði ekki komið til íhlutun að utan, hefðum við leyst okkar vandamál fyrir löngu. Ég held að í sjálfstæðu Eistlandi verði búsettur stór hluti rússneskumæl- andi manna. Það er óhjákvæmilegt. Klofningurinn byggist ekki á mis- munandi þjóðerni, heldur á mismun- andi pólitískum skoðunum. Lýðræð- issinnar annars vegar og íhaldssam- ir hins vegar. Meðal Eistlendinga eiga íhaldsmenn engin ítök. Það eru miklu fleiri eldheitir rauðliðar í Finnlandi, en í Eistlandi. Ástæðan er sú að eftir að Eistland var innlim- að í Rússland, voru fáir Eistlending- ar í nomenaklatúrunni. (Valdastétt kommúnistaflokksins.) Þetta var mest fólk, sem kom frá Rússlandi, en bar eistnesk nöfn. Það var ekki fyrr en árið 1988 að ósvikinn Eist- lendingur var kosinn forseti. í Lit- háen var þetta öðruvísi. Það voru alltaf innfæddir litháískir kommún- istar við völd (sem er í sjálfu sér kannski gott frá sjónarmiði menn- ingar og þjóðernis). Og þegar gömlu kerfiskarlarnir misstu völdin í Eist- landi, gat enginn komið í þeirra stað. Fyrir skömmu varð klofningur í kommúnistaflokknum í Eistlandi, og í flokksbrotinu sem styður Kommúnistaflokk Sovétríkjanna eru aðeins tíu Eistlendingar. Sviðsetningin var sú sama i Eist- landi, Lettlandi og Litháen, en sýn- ingin fór út um þúfur. Én samt held ég ekki, að það hafí verið meiningin að skjóta fólkið. — Af hveiju gerðist þetta? — Ég held, að það hafi verið hugsunarlaus vanaviðbrögð her- manna, sem áttu sökina. Þeim var skipað að hertaka sjónvarpsturninn hvað sem það kostaði. Fólkið þusti þangað til þess að veija turninn. Enginn trúði, að skotvopnum yrði beitt. Hættulegastir eru þeir Lithá- ar, sem styðja Kommúnistaflokk Sovétríkjanna, enda geta þeir ekki hugsað sér að vera í stjórnarand- stöðu, þeir þola ekki annað en að vera við völd. Ég þekki menn, sem hafa verið í valdastöðum. Þeir geta ekki breyst. Þeir grípa til óyndisúr- ræða. Til dæmis kommúnistar í Eistlandi sem viðurkenna ekki þjóð- fána Eistlands. Þegar þeim var hins vegar skipað að halda fund 15. jan- úar fyrir framan Æðsta ráð lýðveld- isins báru þeir okkar flagg, eins og þeir væru fulltrúar Eistlands. Þess- ir fundir voru hluti af sviðssetn- ingu. Fyrsti fundur var í Litháen 13. janúar. Kommúnistamir draga ekki dul á, að hér var um samræmd- ar aðferðir að ræða. — Hverjar voru kröfur kommún- istanna? — Að leysa upp þjóðþingin og hverfa aftur til gamla kerfisins. Ég endurtek einu sinni enn: þetta er ekki hægt. Við höfum kynnst svo mikilli kúgun, að þeim tekst það ekki nema þeir kannski skjóti tíunda hvern mann. — Hvað um efnahagsörðug- leika? — Ég er alveg sammála því, að það eru miklir efnahagsörðugleikar í Eistlandi. Þeir eru til í öllum Sov- étríkjunum. Miðað við hin lýðveldin lifum við í himnaríki. Já, það hafa orðið verðhækkanir, en ég er ánægður. Áður var fullt af fólki, sem stundaði búðarferðir eins og veiðiskap og allt hvarf í einum grænum hvelli. Núna er hægt að versla á eðlilegan hátt. — Er það satt, að ekki sé hægt að kaupa mat hér ef muður er ekki skrásettur í Eistlandi? — Allir íbúar í Eistlandi eiga kort, sem staðfesta það. Þetta er nauðsynlegt því að annars kæmu -Tierskarar af fólki frá öðrum hlutum Sovétríkjanna, mundu kaupa allt, fara með það heim og selja það á uppsprengdu verði. En það þýðir ekki, að aðkomumaður geti ékki keypt mat til eigin þarfa. — Er barátta fyrir sjálfstæði í Eistlandi skipulögð einhvern veg- inn? — Auðvitað. Það eru til margir flokkar, en samstaða þeirra í sjálf- stæðismálum er augljós. Ýmislegt í Eystrasaltslöndunum er arfur frá Stalínstímabilinu. Hefði þessi kúg- un haldið áfram í tíu ár, hefðu Eystrasaltsþjóðirnar liðið undir lok, orðið hluti af Sovétþjóðinni. í byijun níunda áratugarins var svo komið að Eistlendihgar áttu að tala saman á rússnesku. Að lokum þetta: Upp er runnin úrslitastund. Vandamál Eystra- saltsríkjanna verða leyst, en spurn- ingin er, hvort það verður með frið- samlegum hætti eða blóðugum átökum. Það er óhugsandi, að þjóð- ir Eystrasaltslanda geti sætt sig við að búa við fyrra kerfi. Við erum hrædd við heimsveldishugsunar- háttinn, ekki bara í kommúnista- flokknum, heldur einnig meðal venjulegs fólks. Þeim þætti það slys ef eitthvert lýðveldi segði sig úr lögum við Sovétsambandið. Eins og hermaður nokkur komst að orði um Litháen, Lettland og Eistland: „Þetta eru landvinningar okkar og það er skylda okkar við feður okkar að missa þá ekki.“ Eða svo að vitn- að sé í Lysénko, formann Verk- fallsráðsins í Eistlandi: „Það skiptir ekki máli hvort Sovétvaldið er gott eða vont, það er okkar vald.“ En Heldi og Avo eiga standandi heimboð frá vinum í Svíþjóð — það er vissara. Polfoto ils-Aslak Valkeapaa hengir fána Sama- nds upp á sviðinu í ráðhúsi Kaupmanna- ifnar. • > Þinff Norðurlandaráðs: íslenska sendinefndin mótmælir bréflega breytingnm á starfsháttum Kaupmaimahöfn. Frá Ólafi Þ. Stephensen, blaðamanni Morgunblaosim,. ÍSLENSKA sendinefndin á þingi Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn mótmælti því í gær bréflega að íslendingar fá nú engan formann í nefndum Norðurlandaráðs. Ólafur G. Einarsson, formaður íslensku sendinefndai-innar, tilkynnti einnig að hann og fleiri af íslensku fulltrú- unum myndu greiða atkvæði á móti tillögu norrænu ráðherranefndar- innar um að fjölgað verði í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, þar sem það geti komið niður á íslendingnm. Undanfarin ár hefur mikið verið um það rætt á vettvangi Norðurland- aráðs hvernig hægt sé að breyta starfsháttum ráðsins. í árslok 1989 var sett á laggirnar starfháttanefnd undir forsæti Bjarnes Mörk Eidem fyrrverandi sjávarútvegsráðherra Noregs, til að gera tillögur um breyt- ingar. Nefndin skilaði af sér rúmlega 270 síðna skýrslu, þar sem meðal annars er lagt til að ráðinu verði auðveldað að fjalla um alþjóðamál, að stofnuð verði ráðherranefnd ut- anríkisráðherra Norðurlandanna og að Norðurlandaráðsþingum verði hugsanlega fjölgað í tvö á ári. For- sætisnefndin á að öðlast aukið vægi í starfi Norðurlandaráðs og stjórn- málaflokkarnir að hafa meira að segja í starfi ráðsins, samkvæmt til- lögum nefndarinnar. Til marks um það síðamefnda, eru það nú flokka- hóparnir, sem skipta formennsku í nefndum á milli sín, án þess að taka tillit til hagsmuna landanna. Það er ástæðan fyrir því að íslendingar fengu engan nefndarformann að þessu sinni. Tillaga ráðherranefndarinnar, sem Ólafur G. Einarsson andmælti, gerir ráð fyrir að nokkrum af þeim breyt- ingum, sem starfsháttanefndin lagði til, verði hrundið í framkvæmd með breytingum á Helsinkisamningum um norrænt samstarf. Ein af mikil- vægustu breytingunum er að sam- setningu forsætisnefndarinnar verði breytt. Núna sitja í henni tíu þing- menn, tveir frá hveiju landi, og eru Páll Pétursson og Ólafur G. Einars- son fulltrúar íslands. Lagt er til að Norðurlandaráð ákveði sjálft hversu margir verði í forsætisnefndinni hveiju sinni. Með- limir hennar verði að minnsta kosti tíu, tveir frá hveiju landi. Ráðið geti síðan kosið fleiri í nefndina til þess að tryggja öllum flokkahópum full- trúa í henni. Þetta telja íslendingar að gæti leitt til þess að jafnvægið milli landa í nefndinni raskaðist og gengið yrði framhjá íslensku sendi- nefndinni við val -á aukafulltrúum. Ólafur G. Einarsson sagði í ræðu sinni að íslenska sendinefndin hefði áður lýst sig samþykka tillögu ráð- herranefndarinnar, en í ljósi þess, sem nú hefði gerst varðandi for- mennsku í nefndum, myndi hann greiða atkvæði á móti tillögunni, og það myndu fleiri í íslensku sendi- nefndinni gera. í bréfí íslensku sendinefndarinnar, sem sent var Anker Jörgensen, for- seta Norðurlandaráðs, segir meðal annars: „Samstarfið í Norðurlandar- áði er samstarf þjóðþinga fimm sjálf- stæðra ríkja. Það byggir á gagn- kvæmri virðingu milli sendinefnd- anna.“ Þar segir jafnframt að ef ætlunin sé að íslendingar verði áfram án nefndarformanns, séu það álvar- legar fréttir fyrir ísland, sem hingað til hafi litið á þátttöku sína í norr- ænu samstarfi sem einn af hornstein- um íslenskrar utanríkisstefnu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.