Morgunblaðið - 28.02.1991, Side 46

Morgunblaðið - 28.02.1991, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1991 KÖRFUBOLTI || KÖRFUKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Hreiðar með 300 leiki Hreiðar Hreiðarsson, fyrirliði Úrvalsdeildarliðs og bikar- meistara Njarðvíkur, hefur náð því marki að leika 300 leiki fyrir félag sitt. Um síðustu helgi þegar Njarðvíkingar léku gegn Þór frá Akureyri var Hreiðar háðraður af þessu tilefni. Hreiðar er 25 ára og hefur leikið með öllum flokkum UMFN. Hann lék fyrsta meistaraflokksleik sinn 16 ára. Tveir aðrir liðsmenn UMFN hafa leikið meira en 300 leiki, ísak Tómasson og Teitur Örlygsson. Guðmundur með 200 Annar Suðurnesjamaður Guð- mundur Bragason, landsliðsmaður frá Grindavík, náði einnig merkum áfanga á dögunum er hann lék 200. leik sinn fyrir meistaraflokk UMFG. Og blómaleikurinn var eft- irminnilegur — sigurleikurinn gegn Njarðvíkingum í bikarkeppninni, þar sem Guðmundur gerði einmitt sigurkörfu liðs síns á lokasekúnd- aeunni. Thomas adstodar Torfa KR-ingarnir Páll, Guðni og Axel aftur í landsliðið Jón Kr. Gíslason, ÍBK Falur Harðarson, ÍBK Sigurður Ingimundarson, ÍBK Albert Óskarsson, ÍBK Guðni Guðnason, KR Páll Kolbeinsson, KR Axel Nikulásson, KR Pétur Guðmundsson, UMFT Valur Ingimundarson, UMFT Teitur Örlygsson, UMFN Friðrik Ragnarsson, UMFN Jón Arnar Ingvarsson, Haukum Pálmar Sigurðsson, Haukum Guðmundur Bragason, UMFG Rúnar Árnason, UMFG Magnús Matthíasson, Val Guðjðn Skúlason, Auburn Montg. Glenn Thomas, þjálfara Hauka í úrvalsdeildinni í körfuknatt- leik, hefur verið ráðinn aðstoðar- þjálfari íslenska landsliðsins í körfu- knattleik. Hann kemur til með að aðstoða Torfa Magnússon við þjálf- un karla- og kvennalandsliðs ís- lands. Torfi hefur valið 17 manna hóp fyrir Evrópukeppni landsliða sem fram fer hér á landi í bytjun maí. Þrír leikmenn koma að nýju inní liðið: KR-ingarnir Páll Kolbeinsson, Axel Nikulásson og Guðni Guðna- son en ívar Ásgrímsson getur ekki kost>á sér í liðið. Eftirtaldir leikmenn eru í lands- liðshópnum: Morgunblaðið/Björn Blöndal Hreiðar Hreiðarsson á að baki 300 leiki með UMFN. FELAGSLIF Herrakvöld Stjörnunnar Herrakvöld Stjörnunnar verður haldið að Garðaholti föstudaginn 1. mars og hefst með borðhaldi kl. 19.30. Ræðumaður kvöldsins verður Þor- steinn Pálsson, formaður Sjáifstæðis- flokksins. Menn eru beðnir að tilkynna komu sína í síðasta lagi í dag, fimmtu- daginn 28. febrúar, í síma 651940. (Úr fréttatilkynningu) Guðni Guðnason á ný í landsliðshópinn. Morgunblaöið/Einar Falur SUND / MEISTARAMOTIÐ Falla met í Eyjum? „VIÐ munum gera allt til að mótið verði hið glæsilegasta, en þetta er annað árið í röð sem við höldum íslandsmeist- aramótið í sundi,“ sagði Helga T ryggvadóttir úr Sunddeild ÍBV. Sundmenn vonast eftir að met eiga eftir að falla og þá sérstaklega íkarlaboðsunds- greinunum. Karla§veit Sundfélags Suður- nesja er mjög öflug eftir að bræðurnir Magnús Márs og Arnars Freys Ólafssonar gengu til liðs við SFS. Met í þremur greinum eru í hættu - fjórum sinnum 100 og 200 m skriðsundi og fjórum sinnum 100 m fjórsundi. Keppendur frá fjórtán félögum keppa í Eyjum og verður nær allt besta sundfólk landsins í sviðsljós- inu. Eðvarð Þór Eðvarðsson er kom- inn í mjög góða æfingu og má KORFUKNATTLEIKUR / NBA Lakers sigraði í Detroit Meistarar Detroit Piston hefurtapað sjö af síðustu 11 leikjum sínum Ingibjörg Arnardóttir. reikna með að hann sýni gamla takta. Félagi hans Magnús Már er einnig sterkur um þessar mundir. Ingibjörg Arnardóttir, lang- sundskona úr Ægi, hefur sýnt mikl- ar framfarið og er til alls líkleg og fyrir stuttu bætti hún met Þórunnar Guðmundsdóttur í 1500 m skrið- sundi á dögunum er hún synti á 17:23,34 mín., en gamla metið var 18:22,00, sett í Danmörku 1985. Helga Sigurðardóttir, skrið- sundskona úr Vestra, sem hefur æft með Ragnheiði Runólfsdóttur í Alabama, er einnig í góðri æfingu. Mótið verður sett á morgun kl. 17. Lokahófið verður á sunnudags- kvöld. Þá verða veitt verðlaun og valið verður besta sundfólkið sam- Aðalleikur síðustu helgar í NBA-deildinni var viðureign meistara Detroit og Los Angeles Lakers í bílaborginni. Meistararnir hafa átt í erfiðleik- um undanfarið, eftir að Isiah Thómas meiddist og töpuðu fyrir Lakers eftir Staðan var 90:90 éftir venjulegan leiktíma í hörku- spennu, en í framlengingunni náði lið Lakers völdum og vann 102:96. Sem fyrr voru James Worthy (29 stig) og Earvin „Magic“ Johnson (31 stig) yfirburðamenn hjá Lakers. Detroit hefur tapað sjö af síðustu 11 leikjum. Þar af þremur af síðustu St’X heimaleikjum síðan Isiah Frá Gunnari Vatgeirssyni íBandaríkjunum _Jjramlengingu. meiddist, en var taplaust heima áður. Detroit tapaði enn í fyrrinótt, í Cleveland. Lið Lakers er á ferðalagi og leik- ur við lið úr austurdeildinni. Þetta er síðasta útireið liðsins þar á tíma- bilinu, og ef það stendur sig vel gæti Lakers náð Portland sem náð hefur bestum árangri í vesturdeild. Það skiptir miklu máli þegar í úr- slitakeppnina kemur, er efsta liði er umbunað með fleiri leikjum á heimavelli. Lakers hefur aðeins tap- að þremur leikjum meira en Port- land. Portland tapaði mjög óvænt á sunnudag, heima gegn San An- tonio, 88:95. Ekki nóg með það. Liðin mættust öðru sinni á tveimur dögumj San Antonio í fyrrinótt og aftur tapaði Portland, að þessu sinni eftir framlengingu. Liðið hefur unn- ið 44 sigra og tapað 12 leikjum. Lakers er með 41 sigur og 14 töp. Lið Utah er með 35 sigra og 17 töp. Þetta eru þrjú bestu liðin í vesturdeild. í austurdeild hefur Boston verið með bestan árangur og Chicago þann næst besta. En dæmið snérist við í fyrrinótt er Chicago vann inn- byrðisviðureign liðanna. Chicago hefur nú unnið 41 leik og tapað 14. Boston er aftur á móti með 40 sigra og 15 töp. Lið Boston þarf samt ekki að örvænta þó það hafi dottið úr fyrsta sætinu. Kevin McHale hefur ekki spilað í síðustu leikjum liðsins vegna meiðsla, en liðið hefur þó spilað mjög vel án hans. Vann m.a. fjóra af fimm úti- leikjum í röð á vesturströndinni í síðustu viku. Detroit er með þriðja besta ár- angurinn í austurdeildinni, 37-19. Chicago og Boston berjast um að standa uppi sem besta lið deildar- innar, en Detroit á í erfiðleikum án Isiah Thomas. Að lokum má geta þess að lið New York er með 13 sigra og 14 töp á útivelli, en hefur hins vegar unnið 12 en tapað 17 af 39 heima- leikjum. Liðið gæti því orðið hið í deildinni til að ná betri árangri úti en heima í 14 ár. kvæmd alþjóðlegri stigatöflu. Þá verður efnilegasta sundfólkið valið, en það verða þjálfarar liðanna sem mæta til leiks sem velja það. ÚRSLIT Körfuknattleikur NBA-deildin í fyrrinótt: Cleveland - Detroit Pistons..106:103 Milwaukee Bucks - Miami Heat.119:106 New Jersey Nets - Indiana Pacers ...129:104 New York Knicks - Washington...112:109 (eftir framlengingu) Houston Rockets - Denver Nuggets.129: 99 Minnesota - Dallas Mavericks...100: 94 Chicago Bulls - BosLon Celtics.129: 99 San Antonio Spurs - Portland...102:101 (eftir framlengingu) Seattle - Los Angeles Clippers.93: 81 Orlando - Golden State.......131:119

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.