Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 23
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991
I
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Kosningayfirlýsing
Sjálfstæðisflokksins
Nýr búvörusamningur;
Fjarri því að samn-
ingurinn sé ásættan-
legur í óbreyttu formi
- segir Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins
JÓN BALDVIN Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, segir að
nýundirritaður búvörusamningur sé aðeins drög að samningi, og
nánast pólitísk stefnuyfirlýsing. „Því fer fjarri að samningurinn sé
ásættanlegur í óbreyttu formi, og það er mikil vinna eftir til að geta
lokið þessu verki með traustum hætti,“ segir hann.
Morgunblaðið/Sverrir
Hreinsað við Borgarleikhúsið
LEIKARAR Borgarleikhússins tóku sig til í gær og hreinsuðu allt
rusl umhverfis leikhúsið. Leikurunum þótti nóg um allt ruslið sem
safnast hefur í kringum leikhúsið í vetur og notuðu góða veðrið í gær
til að gera fínt.
Stefnuyfirlýs-
ing en ekki venju-
legur samningur
- segir Pálmi Jónsson, alþingismaður
„EG TEL að gerð á samningi af þessu tagi sé ákaflega hæpin á þessu
stigi. I fyrsta lagi skortir lagaheimildir, en samningurinn er undirritað-
ur af ráðherra með fyrirvara um samþykki alþingis um nauðsynlegar
lagabreytingar. Það kemur því þegar fram í samningnum sjálfum að
hann byggist ekki á gildandi lögum, heldur á lögum sem kunna að verða
sett á næsta alþingi. Þess vegna er hér um að ræða einskonar stefnu-
yfirlýsingu en ekki venjulegan samning,“ sagði Pálmi Jónsson, alþingis-
maður, um búvörusamninginn sem landbúnaðarráðherra og samninga-
nefnd Stéttarsambands bænda hafa undirritað.
Istjómmálaályktun landsfundar
Sjálfstæðisflokksins, sem
jafnframt er kosningayfirlýsing
flokksins, kveður á ýmsan hátt
við nýjan tón. Athygli vekur strax
í upphafi hennar þegar sjálfstæð-
isstefnan er skilgreind, að þá er
virðing fyrir gæðum jarðar nefnd
þar samhliða mannúðlegum sjón-
armiðum, frelsi einstaklingsins
og kristinni trú og siðgæði. Með
því að taka þennan nýja þátt inn
þegar rætt er um grundvallar-
atriðin er komið til móts við kröf-
ur tímans og ekki síst ungs fólks
um að stjómmálaflokkar leggi
aukna áherslu á vemdun um-
hverfis.
Sjálfstæðismenn halda þeirri
staðreynd á loft að stefna þeirra
sé í andstöðu við sósíalisma og
kommúnisma og lögð er sérstök
áhersla á, að flokkur þeirri óttist
ekki fortíð sína eins og ýmsir
keppinautar hans.
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar fær kaldar kveðjur
frá sjálfstæðismönnum vegna
stefnu sinnar og ekki síður vegna
starfshátta. Þar er ekki töluð
pf'n tæpitunga. Þegar rætt er
um stjórnarsamstarf eftir kosn-
inga- er bent á vilja vinstri fjokk-
anna til að halda áfram sam-
starfi sínu og sagt, að aðeins
með öflugum stuðningi við Sjálf-
stæðisflokkinn geti kjósendur
hindrað myndun nýrrar vinstri
stjómar.
í stefnuskránni em ekki boð-
aðar skyndilausnir á þeim við-
fangsefnum sem setja svip sinn
á stjömmál líðandi stundar. Hún
vísar veginn í anda sjálfstæðis-
stefnunnar. Um samstarf Evr-
ópuþjóðanna er sagt, að íslend-
ingar hljóti að tengjast þróuninni
til stóraukinnar samvinnu
V-Evrópuríkja innan Evrópu-
bandalagsins og þeir geri það nú
þegar í samningaviðræðum um
evrópskt efnahagssvæði. í álykt-
un fundarins um utanríkismál
segir, að ekki sé unnt að útiloka
fyrirfram þátttöku íslendinga í
Evrópubandalaginu en jafnframt
lögð áhersla á yfirráð yfir auð-
lindum, sjálfstæði og sjálfs-
ákvörðunarrétt þjóðarinnar. Bent
er á að öryggishagsmunir íslands
verði best tryggðir með því að
lýðræðisríkin beggja vegna Atl-
antshafs haldi áfram varnarsam-
starfi sínu.
Varað er við þeirri stöðnun í
lifskjömm sem hefur orðið í tíð
núverandi ríkisstjómar. Hvatt er
til víðtækrar samstöðu um gerð
kjarasamninga, sem byggist á
raunhæfu mati á efnahagslegum
forséridum og viðskiptakjörum
þjóðarinnar og sagt,'Áð,)fífskjör
verði ekki bætt nema atvinnuveg-
irnir búi við þau skilyrði að þeir
valdi því. Sagt er að flokkurinn
standi vörð um afkomu þeirra
sem minnst megi sín í lífsbarátt-
unni o g styðji þá til sjálfsbjargar.
Mælt er fyrir um að mótuð
skuli sjávarútvegsstefna og
minnt á þá gagnrýni sem núgild-
andi löggjöf um stjórn fiskveiða
hafi sætt og að hún verði endur-
skoðuð á næsta ári. Sagt er að
mynda þurfi sem víðtækasta
samstöðu um sanngjama og
réttláta fiskveiðistefnu, þar sem
pólitísk afskipti verði sem minnst
og frumkvæði einstaklinga og
fyrirtækja fái best notið sín.
Markmiðið með stjóm fiskveiða
felist í því að hamla gegn ofveiði
og tryggja hagræðingu, treysta
byggð og sem besta nýtingu fjár-
festingar. Á landsfundinum var
ekki komið til móts við sjónarmið
þeirra sem vilja nýja fiskveiði-
stefnu en látinn í ljós vilji til end-
urskoðunar í anda sanngirni og
réttlætis.
í yfirlýsingunni eru nefnd 17
áhersluatriði, þegar rætt er um
verkefni komandi mánaða og ára.
Heitið er lækkun skatta eftir að
horfíð hefur verið frá skatta-
hækkunarstefnu ríkisstjómarinn-
ar og náðst hefur jafnvægi í ijár-
málum ríkisins. Hvatt er til að
fjölskyldan njóti þeirrar virðingar
sem henni ber, stuðningi lýst við
kristni og kirkju, sagt að gildi
skólastarfs verði ekki ofmetið,
lögð áhersla á forvarnarstarf í
heilbrigðismálum og gæði og
hagkvæmni öldrunarþjónustu.
Sjálfstæðismenn vilja að staðinn
verði vörður um sjálfseignar-
stefnuna í húsnæðismálum og
tafarlaust hafist handa um að
bæta úr ástandinu sem þar ríkir.
Þeir vilja einnig að þingmönnum
verði fækkað og kosningalög
tryggi jafnræði kjósenda. Þá er
sagt að löggæsla, rettarkerfi og
rekstur fangelsa eigi að vera í
samræmi við kröfur tímans.
Samhliða því sem þessi al-
menna ályktun var samþykkt á
landsfundinum afgreiddi hann
fjölda ályktana málefnanefnda
þar sem stefnan í einstökum
málaflokkum er mótuð. Augljóst
er, að fundarmönnum hefur verið
kappsmál að ná samkomulagi.
Málefnalegar deilur settu ekki
svip á störf fundarins.
Kosningayfirlýsing sjálfstæð-
ismanna byggist á málamiðlun
án þess að horfið sé frá grund-
vallarsjónarmiðum. Yfirlýsingin
ber merki þess að sjálfstæðis-
menn vilja ganga fram með frelsi
og'íríaririúð að leiðarljosi, sem var
kjörorð 29. landtetundkri þeirra.
Jón Baldvin sagði að það væri
hin mesta ósvinna að ætla að binda
hendur kjósenda, nýs þingmeiri-
hluta og nýrrar ríkisstjórnar með
skuldbindandi hætti í svo stóru gjöld
ríkissjóðs. „Við höfum ekki skrifað
undir þennan búvörusamning. Und-
irskrift landbúnaðarráðherra er með
rækilegum fyrirvörum um laga-
heimildir í byijun næsta sumars.
Þessi samningur skuldbindur ríkis-
sjóð ekki, hvorki varðandi iaga-
breytingarnar, sem nauðsynlegar
eru í mjög mörgum greinum, né
heldur fjárútlátin sem koma í kjöl-
farið, fyrr en næsta alþingi hefur
fjallað um það og sagt sitt seinasta
orð. Samkomulag hefur aðeins tek-
ist um einn hlut, en við höfum allir
samþykkt það í ríkisstjórn að fjár-
málaráðherra fái heimildir fyrir
hönd ríkissjóðs til útgáfu á skulda-
bréfum, sem þarf til þess að ná
fyrsta áfanga í kerfisbreytingunni,
en það er að kaupa upp 55 þúsund
fjár til förgunar í haust. Þetta sýnir
að við höfum ekki viljað leggja stein
í götu þess að vinnan gæti haldið
áfram, og við höfum líka tekið gild
þau rök að það þurfi að eyða óvissu,
sem kann að ríkja hjá bændum um
hvert framhaldið verði, þegar þeir
þurfa í vor að taka ákvörðun um
áburðarkaup, og í haust að taka
ákvarðanir um ásetning. Þetta var
nauðsynlegt til að tefja ekki málið
og til þess að vinna tíma til þess
að ljúka þeim verkum sem eftir er
að vinna. Um það er fullt samkomu-
lag, en niðurstaða málsins er í hönd-
um næsta þings.“
Hann sagði að kostirnir við samn-
inginn væru fyrst og fremst þeir
að horfíð væri frá ríkisábyrgð á
föstu fyrirfram ákveðnu magni af-
urða, útflutningsbótum yrði útrýmt
að mestu og beinar greiðslur kæmu
til bænda, sem hefðu örlítil áhrif til
lækkunar á verði. „Aðalatriðið er
þó að framleiðsluréttur verður fram-
vegis framseljanlegur í viðskiptum
milli bænda, sem gerir þeim bænd-
um sem hafa góða aðstöðu fært að
stækka og efla bú sín og ná hagræð-
ingu. Vonin um verðlækkun er fyrst
og fremst tengd því. Þessi drög að
búvörusamningi eru hins vegar ekki
heildstæður samningur. Það er alls
ekki ljóst samkvæmt honum að sú
verðlækkun sem þar er gert ráð
fyrir til bænda skili sér endanlega
til neytenda fyrr en tekið hefur ver-
ið á einokunarkerfi vinnslu- og
dreifingarkerfisins.“
Pálmi sagði að fyrirsjáanlegt væri
að skortur yrði á fjármagni til þess
að hægt yrði að leggja í fyrstu að-
gerðir samkvæmt samningnum um
kaup á fullvirðisrétti. Möguleiki væri
á að heimilda til slíkra samninga
yrði aflað í lánsfjárlögum, þó enn
væri ekki hægt að segja til um hvort
það myndi takast, en lánsfjárlög
hafa ekki ennþá verið afgreidd á al-
þingi.
„Það, að farið er að verðleggja
fullvirðisréttinn með þessum hætti
og hefja viðskipti með hann, hlýtur
það að kalla á það að kannaðar verði
lagalegar undirstöður fullvirðisrétt-
arkerfisins, en þeir menn eru til sem
draga í efa að þær undirstöður séu
traustar. í bókunum með samningn-
um eru meðal annars fyrirvarar um
skattalega meðferð á söluverði full-
virðisréttar, og talað um það að skipa
nefnd til að fjalla um það mál. Krefj-
ist niðurstöður nefndarinnar laga-
breytinga kemur það enn til kasta
alþingis. Þeir bændur, sem kynnu
að skrifa undir samninga um sölu á
sínum fullvirðisrétti á næstu mánuð-
um hafa ekki hugmynd um það á
hvern hátt alþingi kynni að taka á
því rnáli," sagði hann.
„í heild er hér um að ræða gem-
ing, sem flestar forsendur skortir að
mínum dómi til þess að hægt sé að
gera á þessu stigi. Þetta er einskon-
ar stefnuyfirlýsing ríkisstjómar sem
er að kveðja. Að vísu er næsta ríkis-
stjórn sett í óþægilega aðstöðu, því
að það hefur auðvitað áhrif að
bændasamtökin eru búin að skrifa
undirþessa stefnuyfírlýsingu, að vísu
með fyrirvara enn sem komið er.
Eigi að síður er alþingi óbundið, og
það hlýtur að koma í hlut næstu ríkis-
stjórnar að beita sér fyrir þeim laga-
breytingum sem hún vill koma fram,
og ekki er hægt að segja á þessu
stigi hvort verða þær sömu eins og
núverandi ríkisstjórn vill að verði.
Ég tel því að undirskrift á þessum
svokallaða samningi hefði átt að bíða
næstu ríkisstjórnar. Ég hef ekki séð
fyrirvara Alþýðuflokksins, en það er
rétt að taka það fram að það er óvíst
að þeir hafa eitthvað gildi, vegna
þess að landbúnaðarráðherra fer með
þetta mál fyrir hönd ríkisstjórnarinn-
ar, og undirskriftir hans binda þá
ríkisstjórn sem nú situr. Að þessu
efni er vikið í ályktun landsfundar
Sjálfstæðisflokksins á þessa leið:
„Lagaheimildir skortir til þess að
unnt sé að ganga frá þessum málum
nú, og er því ljóst að mótun landbún-
aðarstefnunnar bíður næstu ríkis-
stjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn vill
koma á^ijý^kþf i^ði^l^i^fójis}
son___________________________________’
Sagnaskáld
hinna sælu daga
eftir Jóhann
Hjálmarsson
William Heinesen var jafn-
gamall öldinni, fæddur árið 1900
í Þórshöfn í Færeyjum. Eins og
fleiri sagnameistarar náði hann
því háum aldri og varla var unnt
að hugsa sér Færeyjar án hans.
Veldi hans í Færeyjum var ekki
ósvipað stöðu Halldórs Laxness
hjá okkur og margt áttu þeir
sameiginlegt.
Fyrsta bók Heinesens var ljóða-
bók, Arktiske Elegier, 1921. Hann
sendi frá sér margar ljóðabækur
og eru sum ljóða hans með því
besta í danskri samtímaljóðlist. En
hann var líka listmálari og lét sér
annt um varðveislu fæðingarbæjar
síns, m. a. með því að skrifa um
hann bók: Tann deiliga Havn.
Heinesen vakti fyrst verulega
athygli með skáldsögunni Blæs-
ende Gry, 1934. Fjórum árum
seinna kom Noatun. í þessum
skáldsögum er færeyskt samfélag
brotið miskunnarlaust til mergjar
og þjóðfélagsgagnrýni áberandi.
Frásagnargleðin er mikil og
hneigðin til dulrænu setur sterkan
svip á sögumar, en þetta einkenni
skáldsagna Heinesens er enn ríkara
í skáldsögunum Den sorte Gryde,
1949 og De fortabte Spillemænd,
1950. Einnig má í þessu sambandi
nefna skáldsöguna Det gode Háb,
1964 (verðlaunasögu Norðurlanda-
ráðs 1965) og smásagnasafnið Kur
mod onde Ánder, 1967.
Ekki út í bláinn hefur verið fund-
ið að skáldsögum Heinesens, bent
á að persónur séu of margar og
stundum laustengdar, skáldsög-
urnar njóti sín ekki alltaf sem
heild. Þetta bætir. Heinesen upp
með ótr.újeg-ri.' f^agnargléðj (o^'
kímni, stemmningum sem gera
bækur hans skemmtilestur, oft
hreina unun. Smásagnasöfnin eru
að sumra dómi til marks um hvar
list hans rís hæst, en varasamt er
að kveða upp slíka dóma. Margar
litríkustu sögur hans eru þó eins
konar sögur í sögunni.
Vel má hugsa sér að Heinesen
höfði beinast til lesenda þegar ljóð-
skáldið er með í för. Þetta gildir
ekki síst um smásögurnar og líka
skáldsögu eins og De fortabte
Spillemænd sem að öðrum ólöstuð-
um er ein hin hugstæðasta af bók-
um skáldsins, hljómkviða um listina
og náttúruna, lífið og dauðann.
Þessi tregaþrungna bók um mann-
inn og snilldina mun kannski lifa
einna lengst ef spá má um hinn
dyntótta smekk sem bitnar að vísu
hart á skáldum.
Það er við hæfi að fara að dæmi
Heinesens og vitna í Þránd í Götu:
„Mangt umskiftist á mansins ævi.“
í verkum Heinesens er Þórshöfn
miðpunktur alheimsins eins og
hann lýsir svo eftirminnilega í
Fortællinger fra Thorshavn, 1973.
Fólkið hans er kynjafólk, mjög jarð-
neskt en lika himneskt, oft skrýtið.
Það býr á milli svefns og vöku,
drauma og veruleika eins og því
hafi verið slöngvað út í geiminn
af tilviljun og kunni ekki alltaf við
sig í hlutverkum sínum á jörðinni.
Hvað þetta varðar er Heinesen
samsinna, en ekki samferða mörg-
um miklum höfundum aldarinnar
sem hafa gert tilvistarstefnu að
takmarki. Það skilur á milli Heines-
ens og þeirra flestra að hann er
gagntekinn af því að segja frá,
segja sögu af örlögum einstakl-
inga. Sérstaklega eru honum kærar
einkennilegar og leyndardótnsfpll- ,
ogviðul"
William Heinesen
an karlmenn. Og það er eins og
oftast sé vonartýra í verkum þessa
færeyska skálds sem skrifaði flest-
ar bækur sínar á móðurmáli sinu,
dönsku.
Heinesen verðskuldar öðrum
fremur tignarheitið sagnaskáld.
Það að hann ólst upp með lítilli
þjóð gerði hann ekki smærri heldur
beindi hann sjónum sínum sífellt
til alheimsins, til stjama og himin-
tungla og velti vöngum yfir því sem
býr dýpst í sálinni, en gætti þess
í leiðinni að gera sýnir sínar jarðn-
eskar, fínna þeim stað í eigin um-
hverfí hversdagsins.
í sagnasafninu Kur mod onde
Ánder sem Þorgeir Þorgeirsson,
helsti þýðandi Heinesens, kallar
Ráð við illum öndum er fremst
þátturinn Leónard og Leónóra „of-
urlítill skáldsögustúfur síðan á hin-
um sælu dögum olíulampanna".
Frásagnargáfa Heinesens er
ófölskvuð í þessari sögu eins og
öðrum í bókinni. Það sannast þrátt
fyrir vissar endurtekningar hve vel
honum lætur að íjalla um við-
kvæmni hjartans og undarlega og
oft ráðvillta hegðun fólks andspæn-
is örlögum sínum.
Það eru hinir sælu dagar sem
stíga fram, fortíð sem lifnar. Þann-
ig er undirrituðum lesa,nda tamt
ad hugsa ser William Heinescn.
s / • UT° ;t vT i iinnaw timnnol
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991
23
Enn um framsóknar-
tökín í heilsugæslunni
eftir Ölaf F.
Magnússon
Á fundi í Læknafélagi Reykjavík-
ur 20. febrúar sl. sagði einn fundar-
manna í ræðu sinni, að lítill munur
væri á því, hvort íhald eða kommar
réðu ríkjum í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Stefnan væri svipuð. Því miður
hafði þessi ræðumaður mikið til síns
máls, enda hafa sitjandi heilbrigðis-
ráðherrar um árabil lítið skipt sér
af stefnumörkun, sem virðist frem-
ur hafa verið látin í hendur embætt-
ismanna ráðuneytisins. Læknafé-
lögin og önnur samtök heilbrigðis-
stétta hafa einnig sýnt þessum
málum allt of lítinn áhuga, þar til
þau urðu neydd til þess á sl. ári.
Miðstýringaráform
framsóknarmanna
í heilbrigðisráðherratíð Guð-
mundar Bjarnasonar hafa orðið
veruleg umskipti varðandi stefnu-
mörk uní heilbrigðismálum. Áætl-
anir hafa verið uppi um það, að
draga stórlega úr einstaklingsfram-
taki í heilbrigðisþjónustu, ekki sízt
í þjónustunni utan sjúkrahúsa, þar
sem hlutur einkaframtaksins hefur
verið stór á liðnum árum.
Með frumvarpi um heilbrigðis-
þjónustu, sem leit dagsins ljós
haustið 1989, var stefnt að ríkisein-
okun í heilbrigðisþjónustu utan
sjúkrahúsa, bæði í heimilislækning-
um og í sérfræðiþjónustu utan
sjúkrahúsa. Koma átti ríkisreknum
heilsugæslustöðvum í einokunarað-
stöðu í heimilislækningum og af-
nema átti heimild ráðherra til að
semja við aðra aðila en ríkið um
rekstur heilbrigðisþjónustu. Síðar-
nefnda atriðið átti einkum að bein-
ast gegn sjálfstætt starfandi sér-
fræðingum utan sjúkrahúsa.
Sem von vár brugðust læknar
harkalega við þessu frumvarpi, sem
þeir töldu aðför að atvinnufrelsi
stéttarinnar. Miðstýringarhug-
myndir frumvarpsins voru í full-
kominni andstöðu við þróun mála í
Evrópu og hrun sósíalismans þar
og kölluðu á pólitíska andstöðu
fijálslyndra aðila, innan þings sem
utan.
Nauðsyn einkaframtaksins
Það hefur verið margsýnt fram
á það, að með því að nýta einstakl-
ingsframtakið í heilbrigðisþjón-
ustunni er hægt að auka framboð
á margvíslegri þjónustu, sem er
heilbrigðiskerfinu nauðsynleg.
Þannig má koma í veg fyrir frekari
aukningu biðlista. Aðgerðir eru nú
framkvæmdar á læknastofum, sem
áður voru eingöngu framkvæmdar
á sjúkrahúsum. Með þessu móti
hefur sparast mikið fé og sjúklingar
hafa þurft að þjást skemur en ella
og komist fyrr til heilsu og starfa
á ný. Engu að síður hafa framsókn-
armenn í heilbrigðisráðuneytinu
haldið uppi áróðri gegn íslenzkri
læknastétt fyrir þessa miklu þjón-
ustu, vegna aukins kostnaðar. Þó
má fullyrða að hinn aukni kostnað-
ur vegna þjónustu sérfræðinga utan
sjúkrahúsa er aðeins brot af þeim
kostnaði, sem þessi þjónusta sparar
ríkisvaldinu og þjóðfélaginu.
En einstaklingsframtakið stuðlar
ekki aðeins að auknu framboði og
betri nýtingu fjármuna í heilbrigðis-
þjónustunni. Það veitir ríkisrekstr-
inum nauðsynlegt aðhald og sam-
keppni og stuðlar að frelsi fólks til
að velja sér lækni.
Varnarsigur á Alþingi
Hörð andstaða lækna, annarra
heilbrigðisstétta, borgarstjórans í
Reykjavík og fijálslyndra þing-
manna kom í veg fyrir, að áður-
nefnd áform um ríkiseinokun í heil-
brigðisþjónustunni yrðu að veru-
leika.
Lögfest var ákvæði um það, að
íbúar Reykjavíkur og Seltjarnar-
ness gætu jafnan valið sér heilsu-
gæslulækni á heilsugæslustöð eða
heimilislækni utan heilsugæslu-
stöðva. Við þetta hefur ekki verið
staðið og hefur ýmsum aðferðum
verið beitt, til að koma í veg fyrir
starfsemí fleiri sjálfstætt starfandi
heimilislækna. Þar sem áðurnefnt
lagaákvæði snýst um valfrelsi í
heilbrigðisþjónustu mun ég fylgja
þessu máli eftir, þar til fyrirheitin
í lögunum verða efnd.
Óvissan um
Heilsuverndarstöðina
Sem kunnugt er var horfið frá
áformum um að leggja niður Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur eftir mót-
mæli starfsfólksins og ábendingar
um, að þessi áform væru óraunhæf.
Eftir borgarstjórnarkosningarn-
ar sl. vor var undirritaður tilnefndur
fulltrúi Reykvíkinga í stjórn Heilsu-
verndarstöðvarinnar. Samkvæmt
skipunarbréfi ráðherra á stjórnin
að gera tillögur um framtíðarhlut-
verk stöðvarinnar fyrir árslok 1991.
Það hefur nú gerst, að samstarfsráð
heilsugæslustöðva, sem varð til með
reglugerðarákvæði sl. haust, er far-
ið að gera tillögur um starfsemi
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur,
án samráðs við stjórn eða starfsfólk
Heilsuverndarstöðvarinnar. Þannig
má nú lesa í fundargerðum sam-
starfsráðsins að þar hafi verið lagð-
ar fram í tvígang tillögur um flutn-
ing starfsfólks frá Heilsuverndar-
stöðinni út á heilsugæslustöðvam-
ar. Hveijar þessar tillögur eru veit
ég ekki, en ég tel þetta óviðunandi
vinnubrögð.
Ólýðræðislegt samstarfsráð
Sem kunnugt er eiga Reyk-
víkingar enga kjörna fulltrúa í sam-
starfsráði heilsugæslustöðva borar-
innar, sem er að mestu skipað fram-
sóknarmönnum, og er aðstoðar-
maður heilbrigðisráðherra formað-
ur ráðsins. Þar sem samstarfsráð-
inu er greinilega ætlað að taka
vaxandi þátt í stjórn heilbrigðis-
mála i Reykjavík á. næstunni er
rétt að ítreka eftirfarandi:
Samstarfsráðið á sér hæpna stoð
í lögum og er skipan þess því ólýð-
ræðisleg í tvennum skilningi. Ráðið
er að verða nýtt pólitískt vald, sem
telur það hlutverk sitt að semja
áætlanir um heilsugæslu og heilsu-
vernd í Reykjavík, án samráðs við
stjórnir heilsugæsluumdæmanna
eða stjórn Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur.
Ólafur F. Magnússon
„Miðstýringarhug-
myndir frumvarpsins
voru í fullkominni and-
stöðu við þróun mála í
Evrópu og hrun sósíal-
ismans þar og kölluðu
á pólitíska andstöðu
frjálslyndra aðila, inn-
an þings sem utan.“
Álitsgerð Læknafélagsins
I upphafi þessarar greinar var
vikið að nauðsyn þess, að heilbrigð-
isstéttirnar hafí stefnu í heilbrigðis-
málum, þar sem fagleg sjónarmið
ráði ferðinni. Það er ekki nóg fyrir
stjórnmálamenn, að leita eingöngu
ráðgjafar hjá embættismönnum, en
gleyma þeim sem sjá um heilbrigð-
isþjónustuna við landsmenn. Hið
dæmalausa frumvarp um heilbrigð-
isþjónustu, sem lagt var fram sl.
vetur sannar þetta.
Því er það fagnaðarefni að þessa
dagana kemur út á vegum Lækna-
félags Reykjavíkur álit starfsnefnd-
ar félagsins um skipulag og mark-
mið heilbrigðisþjónustunnar á höf-
uðborgarsvæðinu. Er það von mín
að sú þekking og víðsýni, sem fram
kemur í þessari álitsgerð, nái brátt
alla leið inn í heilbrigðisráðuneytið!
Höfundur er læknir og
varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
Hann A sæti í stjóm
Hcilsuverndarstöðvar
Reykja víkur og
beilsugæsluumdæmis
Vesturbæjar.
HUSBREF
Hvers vegna?
eftir Jóhönnu
Sigurðardóttur
Því hefur verið haldið fram að
húsbréfakerfið sé síðri kostur til
íbúðarkaupa fyrir láglaunafólk en
lánakerfið frá 1986. Greiðslubyrðin
sé hærri og íbúðarkaup séu erfið-
ari. Þetta er ekki rétt. Greiðslubyrð-
in er svipuð eða lægri í húsbréfa-
kerfinu og íbúðarkaup eru mun
auðveldari en áður hefur þekkst.
Lánakerfið frá 1986
Þegar húsbréfakerfíð og lána-
kerfið frá 1986 eru borin saman
er nauðsynlegt að hafa í huga hvers
vegna húsbréfakerfið kom til. Al-
menna húsnæðislánakerfið sem tók
gildi 1. september 1986, eftir kjara-
samninga aðila vinnumarkaðarins,
gekk ekki upp. 13. mars 1987, þeg-
ar kerfið hafði verið starfrækt í
rúma 5 mánuði, var því í raun lok-
að, þegar húsnæðismálastjórn hætti
að afgreiða lánsloforð eins og lög
gerðu ráð fyrir. Forsendur kerfisins
brustu þegar í tíð ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokksins og Framsókn-
arflokksins.
Lánakerfið frá 1986 var ekki
opnað aftur fyrr en um áramótin
1987/1988, eftir að Alþingi hafði
samþykkt frumvarp sem ég lagði
fram, þar sem stigið var fyrsta
skrefið, til að draga úr sjálfvirkni í
útgáfu lánsloforða frá Húsnæðis-
stofnun. Ef þær breytingar hefðu
ekki verið gerðar á lánakerfinu, og
húsbréfakerfið hefði ekki komið til,
væri meðalbiðtími eftir húsnæðis-
láni nú um 5 ár og Húsnæðisstofn-
un væri búin að binda um 30 millj-
arða króna í lánsloforðum til ársins
1995. Rangt er því að kenna hús-
bréfakerfinu um hrun lánakerfisins
frá 1986, eins og stundum heyrist.
Ríkisendurskoðun, Seðlabankinn
og sérfræðinganefnd á vegum ríkis-
stjórnarinnar hafa komist að þeirri
niðurstöðu, að nauðsynlegt sé að
loka lánakerfinu frá 1986, vegna
þess að forsendur kerfisins gengu
ekki upp.
Margra ára bið eftir lánum
Megingalli 86-kerfisins var að
það kallaði á umsóknir frá öllum
eftir gjafalánum. Fleiri en þeir sem
þurftu á niðurgreiddum lánum að
halda söfnuðust í biðröð og tóku
upp pláss frá þeim sem þurftu að-
stoðar við. Þess vegna væri biðtími
eftir lánum nú allt að 5 ár ef hús-
bréfakerfið hefði ekki verið lögfest
og ungu fólki væri því gert að bíða
í allt að 5 ár eftir lánum.
Annar stór galli við 86-kerfið var
að margir neyddust til að festa
kaup á íbúðarhúsnæði án þess að
hafa lánsloforð undir höndum, en
það irefur orðið' mörgum dýrkeypt.
Fjölmörg dæmi eru um fjölskyldur
sem hafa tapað miklu vegna hins
Jóhanna Sigurðardóttir
„Ef þær breytingar
hefðu ekki verið gerðar
á lánakerfinu, og hús-
bréfakerfið hefði ekki
komið til, væri meðal-
biðtími eftir húsnæðis-
láni nú um 5 ár og Hús-
næðisstofnun væri búin
að binda um 30 millj-
arða króna í lánsloforð-
um til ársins 1995.“
langa biðtíma. I þessu sambandi
er vert að hafa í huga, þegar talað
er um há afföll í húsbréfakerfinu,
að fjármagnskostnaður þeirra sem
hala .þurfi aðbíðaí 86-kerfmu hef-.. -
ur í mörgum tilvikum verið miklu
meiri en -sem-nemur afföllunum í
húsbréfakerfinu, en farið verður
nánar yfir það í annarri grein.
Kostir húsbréfakerfisins
framyfir 86-kerfið:
— Umsækjendur festa kaup á hús-
næði eða byggja þegar þeim
hentar.
— Biðtíminn eftir lánum er styttri,
rnælist í vikum í stað margra
ára.
— Hærra lánshlutfall, þörf fyrir dýr
• skammtímalán minnkar.
— Virkari ráðgjöf, sem á sér stað
á sama tíma og umsækjendur
taka ákvarðanir. Það stuðlar að
því að koma í veg fyrir greiðslu-
erfiðleika.
— Meiru er ekki lofað en Hús-
næðisstofnun getur staðið við.
— Vextir eru fastir og óbreytanleg-
ir. Greiðsluáætlanir verða ör-
uggari.
— Aðstoðin í skattakerfínu með
vaxtabótum beinist til þeirra
sem þurfa á henni að halda.
— Hinir efnameiru og tekjuhærri
fá ekki sömu aðstoð og áður.
— Nýju fjármagni er ekki beint inn
á fasteignamarkaðinn í sama
mæli og áður. Stuðlar að innri
fjármögnun fasteignaviðskipta.
— Seljendur fá greiðslur mun fyrr
en áður, sem leiðir til lækkunar
á fsteignaverði. :
— Stuðlar að vaxtalækkun, þegar
losna mun um fjármagn lífeyris-
sjóðanna inná almenna lána-
markaðinn eftir að þeir þurfa
ekki að fjármagna 86-kerfið.
í næstu grein mun ég fjatla um
greiðslubyrði vegna íbúðarkaupa og
hvernig húsbréfakerfið auðveldar
fasteignaviðskipti, jafnt fyrir kaup-
pjRÍIINl 6eljeníbu'í - - -
llöfundur er félagsmá la rá ðherra.