Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
Kröfur sovéskra kolanámamanna:
William Heinesen
Serbneskur
stjórnarand-
stöðuleiðtogi
laus úr haldi
Bel^rad. Reuter.
STJORNVÖLD í Serbíu hafa
látið lausan stjórnarandstöðu-
leiðtogann Vuk Draskovic í
kjölfar mótmæla tugþúsunda
stjórnarandstæðinga í
Belgrad. Draskovic var hand-
tekinn á laugardag og var
honum gefið að sök að hafa
skipulagt víðtæk mótmæli sem
eru þau mestu í landinu frá
stríðslokum.
Júgóslavneska ríkisstjórnin
hét því í gær að valdi yrði ekki
beitt til að brjóta mótmæli stjórn-
arandstæðinga á bak aftur. Ser-
bíustjórn gekk í gær að þeirri
kröfu stjórnararandstæðinga að
tveim af forráðamönnum sjón-
varpsins, sem sagðir voru draga
taum stjófnvalda, yrði vikið úr
starfi. Tveir menn féllu á laugar-
dag er skriðdrekum var beitt
gegn mótmælendum. Á mynd-
inni sést einn mótmælenda halda
á loft mynd af Draskovic en þess
má geta að Serbar nota kyrillískt
letur.
Reuter.
Hvatt til afsagn-
ar Gorbatsjovs
Moskvu, Genf. Reuter.
LEIÐTOGAR kolanámamanna á tveimur helstu námavinnslusvæðum
Sovétríkjanna hvöttu í gær til allsherjarverkfalla til að ná fram kröfum
um hærri laun og afsögn Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta Sovétríkjanna.
Starfsemi fjölda sovéskra kolanáma hefur verið lömuð undanfarna
tólf daga vegna verkfalla og eru þau farin að hafa veruleg áhrif á
efnahagslíf Sovétríkjanna. Á mánudag greiddu fulltrúar námamanna
atkvæði um hvort halda bæri verkföllununi áfram. Sögðu fulltrúar
verkalýðsfélaga í kolahéraðinu Donbass í Ukraínu í gær að úrslitin
hefðu ekki verið ótvíræð. .
Baker ræðir við Shamir og fulltrúa Palestínumanna:
Helstu námavinnslusvæði Sov-
étríkjanna eru annars vegar Donbass
í Ukraíriu og hins vegar Kúsbas í
Síberíu. Úkraínskir námamenn
ákváðu í gær að hvetja til áframhald-
andi verkfalla eftir að stjórnvöld í
Moskvu höfðu ekki orðið við kröfum
þeirra um 150% kauphækkun. Höfðu
námamenn gefið stjórnvöldum frest
til mánudags til að verða við þeim.
í Síberíu setja námamenn kröfuna
um afsögn Gorbatsjovs fyrst og
fremst á oddinn og segja verkföll sín
einvörðungu vera af pólitískum
ástæðum. Á laugardag verða greidd
atkvæði í allt að níu lýðveldum Sov-
étríkjanna um nýjan ríkjasamning
þar sem kveðið er á um samband
einstakra lýðvelda við Moskvustjórn--
ina. Nokkur lýðveldi neita að taka
þátt í atkvæðagreiðslunni. Heimild-
armenn telja að Gorbatsjov verði að
láta af völdum ef meirihluti hafnar
tillögum hans um ríkjasamning.
Vladislav Terekov, sendiherra
Sovétríkjanna í Þýskalandi, varaði í
gær þýska stjórnmálamenn við að
styðja Eystrasaltsríkin í frelsisbar-
áttu þeirra. í ræðu á fundi með jafn-
aðarmönnum sagði hann hættu á að
„hið eitraða andrúmsloft fortíðarinn-
ar“ myndi einkenna samband Þýska-
lands og Sovétríkjanna á ný en sam-
band ríkjanna hefur verið mjög náið
að undanförnu.
Egyptar segja alþjóðaráð-
stefnu ekki enn tímabæra
William
Heinesen
látinn
WILLIAM Heinesen, einn virt-
asti rithöfundur á Norður-
löndum á þessari öld, lést í
Þórshöfn í Færeyjum í gær,
91 árs að aldri. Heinesen rit-
aði verk sín á dönsku, en hann
var danskur í móðurætt. Bæk-
ur hans hafa verið þýddar á
fjölmörg tungumál þar á með-
al íslensku.
William Heinesen fæddist í
Þórshöfn þann 15. janúar árið
1900. Faðir hans var kaupmaður
og útgerðarmaður. Hann hélt
ungur til verslunarnáms í Kaup-
mannahöfn og starfaði þar sam-
hliða náminu sem blaðamaður
en aftur til Færeyja hélt hann
1932. Árið 1961 var Heinesen
gerður að félaga I Dönsku aka-
demíunni og árið 1965 hlaut
hann bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs að hálfu. Vat' verð-
laununum skipt á milli hans og
Svíans Olaf Lagercrantz en
Ileinesen fékk verðlaunin fyrir
skáldsöguna Vonin blíð.
Sjá greiti á miðopnu.
Jerúsalem, Nikosiu, Kaíró, Damaskus.
Reuter, Daily Telegraph.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti telur að viðræður James
Bakers, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, við leiðtoga í
Mið-Austurlöndum gefi vonir um
árangur í friðarviðleitni Banda-
ríkjastjórnar, að sögn talsmanns
forsetans. Baker ræddi í gær við
fulltrúa Palestínumanna á her-
numdu svæðunum og lögðu hinir
síðarnefndu áherslu á kröfuna
um sjálfstætt ríki Palestínu-
manna. Fyrr um daginn hafði
ráðherrann átt fund með Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra ísra-
els. Talsmaður Shamirs ítrekaði
eftir fundinn að ísraelar myndu
ekki láta hernumdu svæðin af
hendi gegn friðarsamningum við
nágranna sína eins og Bush hefur
lagt til en sagði viðræðurnar
hafa verið „vinsamlegar“ og ekki
væri útilokað að hægt yrði að
þoka málum í friðarátt. Egyptar
segja að enn sé ekki tímabært
að kalla saman alþjóðlega ráð-
stefnu um málefni Mið-Austur-
landa en arabaríki hafa lengi
lagt ríka áherslu á kröfuna um
ráðstefnu sem Israelar hafna.
Hosni Mubarak Egyptalandsfor-
seti sagði að slíka ráðstefnu þyrfti
að undirbúa vel, m.a. með traust-
vekjandi aðgerðum af ýmsu tagi;
Reuter
Faisal al-Husseini, fulltrúi Pa-
lestínumanna, og James Baker,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í Jerúsalem.
annars yrði hún fyrirfram dæmd
til að mistakast. Með þessari yfir-
lýsingu sýna Egyptar Bandaríkja-
mönnum stuðning en stjórnvöld í
Washington vilja forðast að þvinga
Israela til að fallast á alþjóðaráð-
stefnu, vilja fremur beita fortölum.
Mubarak sagði að Frelsissamtök
Palestínumanna (PLO) væru eftir
sem áður í Torsvari fyrir Palestínu-
menn, þrátt fyrir stuðning samtak-
anna við málstað íraka í Persaflóa-
stríðinu. PLO lagði blessun sína
yfir viðræður Bakers og Palestínu-
leiðtoga á hernumdu svæðunum en
Bandaríkjamenn slitu öllu sambandi
við PLO í fyrra. Mubarak sagði að
ekkert ríki hefði rétt til að skipta
sér af innanbúðardeilum PLO eða
reyna að koma þar á leiðtogaskipt-
um.
„Hindranirnar eru óteljandi en
sú mikilvægasta er skortur á gagn-
kvæmu trúnaðartrausti,“ sagði er-
lendur stjórnarerindreki í Kaíró um
möguleika á friði. Annar taldi að
Bush Bandaríkjaforseti nyti trausts
margra arabaleiðtoga sem álitu að
hann skildi vel vandamálin sem við
er að etja. Baker utanríkisráðherra,
sem heldur til Sýrlands í dag, telur
að talsmenn átta arabaríkja, sem
börðust með Bandaríkjamönnum
gegn Saddam Hussein íraksforseta,
séu reiðubúnir til að slaka á kröfum
sínum og hvatti hann í gær ísraeia
til að koma til móts við arabaríkin.
Sýrlenskt dagblað í eigu stjórn-
valda sagði í gær hrósvert að
Bandaríkjamenn hefðu breytt af-
stöðu sinni og styddu nú alþjóðaráð-
stefnu. Þessi stefnubreyting væri
„mikilvægt spor í framfaraátt".
Utanríkisráðherra Sýrlands, Faro-
uk al-Shara, sagði á blaðamanna-
fundi í Damaskus að Bush Banda-
ríkjaforseti liefði með ræðu sinni
fyrir skömmu túlkað grundvallarat-
riðin í afstöðu umheimsins til deiln-
anna. „Ég er sannfærður um að
hlíti ísraelar ekki ályktunum Sam-
einuðu þjóðanna munu þeir verða
að kljást við öll önnur ríki hei.ms,
einnig Bandaríkin," sagði al-Shara.
Hann bætti því við að Sýrlendingar
æsktu þess ekki að svo færi, þeir
vildu friðsamlega lausn.
Sjá bls. 20.
Konu bjargað
úr álskjafti
Papetee, Tahiti. Reuter.
ÞJÁLFARI í köfun bjargaði
konu frá drukknun við strönd
Tahiti um helgina þegar risa-
stór áll var um það bil að
draga hana í kaf.
Christine Gillot, sem er 27 ára
gömul, var að æfa köfun úti fyr-
ir eynni Moorea skammt fyrir
norðan Tahiti í S-Kyrrahafi, þeg-
ar 1,3 metra langur múrenuáll
læsti kjaftinum um úlnlið hennar
og dró hana niður með sér. Þjálf-
arinn, sem ekki er nafngreindur,
meiddist á höndum, þegar hann
reyndi að losa konuna úr kjafti
ófreskjunnar. En þegar hann
beit stórt stykki úr holdi álsins,
flúði skepnan af hólmi.