Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 4
teer sham .sr HUOAau^ivgiM aiciAjawuoíioM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991
Byggingarnefnd:
Meistarar og hönnuðir fá áminningu
BYGGINGARNEFND Reykjavík-
ur hefur áminnt meistara og
hönnuði hússins við Silungakvísl
12, vegna brota á byggingarlög-
um við hönnun og byggingu húss-
ins.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar
byggingarfulltrúa, veitti bygging-
arnefnd leyfi fyrir lítilli íbúð í kjall-
ara hússins þegar eftir þvi var
gengið þrátt fyrir að um einbýlis-
húsahverfi væri að ræða. Var það
gert vegna mikils hæðarmunar í
lóðinni, sem gerði það áð verkum
að niðurgrafinn kjallari varð að
jarðhæð á norðurhlið hússins.
Hekla hætt að gjósa
HEKLA hætti að gjósa á mánudag og hefur ekkert látið á sér kræla
síðan. Gosið í Heklu stóð því í tæpa 53 daga sem er mjög svipað og
árið 1970.
skemur, samtals í tíu daga,“ sagði
Ágúst.
Hraunið, sem komið hefur úr
fjallinu frá því síðdegis fímmtudag-
inn 17. janúar, þekur 23 ferkíló-
metra og er 150 milljón rúmmetrar
ef miðáð er við 6-7 metra meðal-
þykkt. Ágúst sagði mögulegt að
þykktin væri vanmetin en það kæmi
ekki í ljós fyrr en í sumar þegar
nákvæmar mælingar færu fram.
Þetta er heldur minna hraunmagn
en var í gosinu 1970 en alveg það
sama og kom upp 1980.
„Gosórói hætti upp úr miðnætti
aðfaranótt mánudags en það sáust
nokkrir bólstrar fram undir hádegi.
Við lítum þannig á að gosinu hafi
lokið klukkan 13 á mánudag," sagði
Ágúst Guðmundsson, jarðfræðing-
ur á Raunvísindastofnun.
„Það er auðvitað alltaf möguleiki
að hún taki sig upp aftur, en ætli
hún sé ekki búin að létta nóg á sér
að þessu sinni og þetta dugi henni.
Gosið stóð í tæpa 53 daga sem er
svipað og 1970 en þá gaus í 60
daga. Gosið 1980 og 1981 stóð mun
Breyta þurfti skipulagi svo að fjölga
mætti bílastæðum við húsið og var
það gert. Beiðni húsasmíðameistar-
ans en hann var lóðarhafi, um heim-
ild til að stækka íbúðina og setja
stóra glugga á norðurhlið var hins
vegar háfnað af nefndinni.
„Byggingarnefnd tekur hart á
því þegar menn bijóta reglur,"
sagði Gunnar. „íbúðin var stækkuð
til suðurs og settir tveir stórir
gluggar á norðurhlið, þar sem átti
að vera veggur samkvæmt sam-
þykktum teikningum og var það
gert þrátt fyrir að byggingarnefnd
hafði synjað beiðni um glugga á
þeirri hlið.“
Eftir að ljóst var að reglur höfðu
verið brotnar ákvað byggingar-
nefnd að samþykkja stækkun íbúð-
arinnar en veita um leið húsasmíða-
meisturum og hönnuðum <áminn-
ingu. Sagði Gunnar, að ekki hefði
þótt stætt á öðru en að samþykkja
húsið í núverandi mynd með stærri
íbúð í kjallara heldur en teikningar
gera ráð fyrir og stórum gluggum,
þar sem annar aðili en húsasmíða-
meistarinn, var orðinn eigandi að
húsinu.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 13. MARZ
YFIRLIT í GÆR: Um 500 km suður af Fagurhólsmýri er 1.000 mb
lægð sem þokast norðaustur. Yfir Grænlandi er 1.037 mb hæð.
SPÁ: Norð-austan átt, víðast kaldi en líklega stinningskaldi á Vest-
fjörðum. Austanlands má búast við slyddu en dálítilli snjókomu eða
éljum víða norðanlands. og á Vestfjörðum. Suðvestanlands verður
úrkomulaust og sums staðar nokkuð bjart veður. Hiti verður 2-5
stig sunnan til á landinu að deginum en víða um land má búast
við næturfrosti.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Norðaustan átt, sums
staðar nokkuð hvöss. Snjókoma eða éljagangur og vægt frost víða
um norðanvert landið en þurrt að mestu og allt að 5 stiga hiti að
deginum sunnanlands, þó heldur kólnandi á föstudag.
TAKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
/ * /
* ■* *
* * * * Snjókoma
* * *
•JQ Hitastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, 5 Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
% \ * /
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 0 alskýjað
Reykjavfk 2 alskýjað
Bergen 5 þokumóða
Heisinkl 1 þokumóða
Kaupmannahöfn 8 alskýjað
Narssarssuaq 4-3 léttskýjað
Nuuk +6 snjókoma
Oáló 2 skýjað
Stokkhölmur 3 þokumóða
ÞórshÖfn 8 rigning
Algarve 15 skýjað
Amsterdam 14 mistur
Barcelona 12 þokuruðningur
Berlín 10 rigning á s. klst.
Chlcago 4-1 frostrlgning
Feneyjar 14 heiðskfrt
Frankfurt 12 þokumóða
Giasgow 8 rfgnlngogsófd
Hamborg 13 mlstur
Las Palmas 22 léttskýjað
London 12 mistur
LosAngeles 9 helðskírt
Lúxemborg 11 léttskýjað
Madrfd 13 mistur
Malaga 16 mlstur
Mallorca 16 skýjað
Montreal +4 alskýjað
New York +3 heiðskfrt
Orlando 6 helðskírt
París 16 léttskýjað
Róm 14 rlgning
Vín 10 mistur
Washíngton +2 léttskýjað
Winnlpeg +1 alskýjað
Morgunblaðið/Sverrir
Svanborg Kjartansdóttir með bekkjarsystkinum áður en lagt var
upp til Keflavíkur áleiðis til Bandaríkjanna.
Tólf grunnskólanemend-
ur heimsækja Hvíta húsið
TÓLF nemendur úr 7. bekk Eyrarskóla í Grundarfirði lögðu á
mánudag af stað í fjögurra daga ferð til Bandaríkjanna. í ferð-
inni hitta þau meðal annars Barböru Bush forsetafrú í Hvíta
húsinu.
Ferðin er verðlaun sem einn
nemandi skólans, Svanborg Kjart-
ansdóttir, hlaut í spumingakeppni
um Leif heppna og tengsl Islands
og Bandaríkjanna, sem haldin var
meðal allra nemenda í 5. til 10.
bekk í grunnskólum landsins.
Keppnin var liður í hátíðahöldum
Íslensk-ameríska félagsins í tilefni
50 ára afmælis félagsins í október
síðastliðnum. Yfir 6.000 réttar
lausnir bárust og var dregið um
verðlaunin.
Börnin sem hrepptu hnossið
komu við á veitingastaðnum
Sprengisandi á leið sinni til Kefla-
víkurflugvallar og þáðu þar veit-
ingar. Þau voru hin ánægðustu
er blaðamaður ræddi við þau, en
spennt og óróleg. að vonum. Sum
höfðu aldrei til útlanda komið en
önnur vom veraldarvanari og
nokkuð roggin. Flogið var til Balt-
imore á mánudag og fyrsta daginn
vár ætlunin að skoða höfnina,
sædýrasafnið og gamalt sögulegt
safn. Heimsókn og skoðunarferð
um Hvíta húsið á öðmm degi var
það sem hæst bar og munu þau
færa forsetafrúnni að gjöf sögu
Islensk-ameríska félagsins.
Greiðslur í fæðingarorlofi:
Tryggingastofnun
áfrýjar til Hæstaréttar
ÁKVEÐIÐ hefur verið í Tryggingastofnun ríkisins að áfrýja úr-
skurði Borgardóms Reykjavíkur í máli sem Lára V. Júlíusdóttir
höfðaði gegn stofnuninni vegna greiðslu fæðingarstyrks frá Trygg-
ingastofnun, sem stofnunin hafði neitaði að greiða henni þegar hún
var í fæðingaorlofí.
Lára V. Júlíusdóttir höfðaði mál
á hendur Tryggingastofnun vegna
þess að Tryggingaráð hafnaði um-
sókn Lám um greiðslu í fæðingaror-
lofi á þeim forsendum að hún nyti
greiðslna frá vinnuveitanda á með-
an hún var í fæðingarorlofi. Borgar-
dómur Reykjavíkur kvað upp dóm
21. desember í fyrra Lára í hag þar
sem sagði að greiðslur frá vinnu-
veitanda skerði ekki rétt til fæðing-
arstyrks. Tryggingastofnun var
gert að greiðá Láru 232 þúsund
krónur auk vaxta frá apríl 1989.
Málið verður þingfest í Hæsta-
rétti 3. apríl næstkomandi en síðan
getur liðið langur tími, allt að tveim-
ur árum, þar til málið verður tekið
fyrir.
Á vormánuðúm í fyrra dagaði
uppi á Alþingi frumvarp um breyt-
ingar á almannatryggingalögum
þess efnis að foreldri fái greiddan
fæðingarstyrk frá Tryggingastofn-
un þótt samið sé um greiðslu mis-
munar á fullum launum og fæðing-
arstyrk við launagreiðanda.
Sólveig Pétursdóttir lagði frum-
varpið fram aftur á yfirstandandi
þingi. í gær var málið afgreitt í
heilbrigðis- og trygginganefnd
neðri deildar og sagði Sólveig að
við venjulegar aðstæður ættu breyt-
ingarnar að ná fram á þessu þingi.
„Þegar samkomulag er í nefndum
um mál ætti það að ganga í gegn
og ég vona að svo verði því þetta
er mikið réttlætismál fyrir allar fjöl-
skyldur í landinu,“ sagði Sólveig.
Mokveiði af loðnu
við Bolungarvík
EINUNGIS er eftir að veiða nokkur þúsund tonn af 175 þúsund
tonna loðnukvóta. Mokveiði var hjá 10 loðnuskipum fyrir utan Bol-
ungarvík í gær en mjög óveiy'ujegt er að loðna veiðist á þeim slóðum.
í vetur fengu 45 skip loðnukvóta og 32 þeirra hafa farið á loðnuveið-
ar.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son kom úr ioðnuleiðangri á föstu-
dag en niðurstöður leiðangursins
gefa ekki tilefni til að auka loðnu-
kvótann, að sögn Sveins Svein-
bjömssonar leiðangursstjóra. Fiski-
fræðingar em heldur ekki bjartsýn-
ir hvað varðar næstu loðnuvertíð,
því samkvæmt mælingum Hafrann-
sóknastofnunar í ágúst síðastliðn-
um er 1989-loðnuárgangurinn, sem
verður í veiðinni næsta vetur, 3-5
sinnum minni en næstu 2 árgangar
á undan, sem ekki skiluðu sér.