Morgunblaðið - 13.03.1991, Blaðsíða 41
■'•V S5IAM .81 HUOACtTJ>nvaiM <JIG/.JfIVIU3flOM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. MARZ 1991
or -
41
VELVAKAMDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
iki . AV ’ Li II
Hvað er karate?
Til Velvakanda.
Er karate íþrótt? Er karate
kennsla í sjálfsvörn? Leiðir karate
til árásar- og ofbeldisverka?
Hvaða hvatir liggja til þess að
þessi ofbeldisleikur er kallaður
íþrótt? Er það ágóðavon þjálfara
eða eru það einstaklingar, sem hafa
orðið fyrir ofbeldi eða barsmíðum?
Hvað er.það sem fær foreldra til
að senda börn sín til að iðka þessa
svokölluðu „karateíþrótt“? Er verið
að byggja upp sjálfstraust hjá
feimnu barni, sem hefur orðið fyrir
aðkasti eða ofbeldi? Er þetta leiðin
til að ná upp sjálfsímyndinni hjá
drengjum og stúlkum, þannig að
þau þori að ganga óhrædd og örugg
í skólann eða á götum borgarinnar?
Þetta eru nokkrar áleitnar spurn-
ingar, sem hér er varpað fram og
svari nú hver fyrir sig. Ég mun
hins vegar, lesandi góður, segja þér
mína skoðun.
í mínum huga er karate ekki
íþrótt, karate er dýrkun á ofbeldi,
eða m.ö.o. ófyrirleitin slagsmála-
aðferð, þar sem greinilega er stefnt
að því að nota fætur og hendur til
að sparka og slá í höfuð og/eða bol
andstæðingsins. Tilgangurinn er
bersýnilega að gera fórnarlambið
óvígt, helst með einu sparki á rétt-
an stað, þ.e. í andlit eða háls.
Karete er ekki sjálfsvörn. Það
er ofbeldi, sem uþþ'hafsmennirnir
(Japanir) hafa markaðssett til að
selja íþróttina. Sannleikurinn er sá
að til að geta varið sig þarf alltaf
að geta beitt sókn. í þessari „íþrótt"
felst vörnin í því að vera snöggur
að gera andstæðinginn óvígan.
Þetta segir m.ö.o. að verið er að
innræta drengjum og stúlkum of-
beldi frá unga aldri undir fölsku
flaggi. Út í þennan ofbeldisgraut
er svo bætt einhverskonar jap-
anskri heimspeki með óskiljanleg-
um orðum og öskrum, sem væntan-
lega eiga að gefa einbeitingu og
sálarfróun.
Ofbeldisleik þennan kalla fyrir-
svarsmenn hans „íþrótt“, vegna
þess að hér eru hópar, sem telja
sig geta grætt á þessu, þegið styrki
frá sveitarfélögum, tekið stórfé af
foreldrum saklausra barna og tala
síðan fjálglega um nauðsyn þess
að geta varið sig, sé á mann ráðist.
Foreldrar reyna ýmislegt fyrir
sér til að hjálpa börnum sínum, ef
sú staða kemur upp að barnið verð-
ur fýrir aðsúg eða ofbeldi. Talsmenn
þessarar „íþróttar" telja karate vera
lausnarorðið fyrir örvæntingarfulla
for.eldra. Auðvitað getur sú staða
komið upp að foreldrar verði ráða-
lausir gagnvart ofbeldi, sem börn-
um þeirra er sýnt. Og þá hugsa
margir vafalaust að gjalda skuli
auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.
Ekki mun ég fara út í þær lausnir,
sem eru í boði, en eitt er víst að
það er óhugnanlegt að hvetja barn
til að læra villimannlegar slags-
málaaðferðir eins og^tíðkuðust í
Japan fyrr á öldum.
Mér hefur oft verið hugsað um
þetta aðflutta fyrirbæri, sem karate
kallast. Nú síðast tók steininn úr
er ég sá íþróttaþátt ríkissjónvarps-
ins 19. febrúar sl. fyrir börn og
unglinga. Þar voru litlar telpur látn-
ar sparka og kýla hver áðra svo
og ungir drengir á sama hátt. Ég
sá ekki betur en að lítil skemmtun
fylgdi þessari keppni, því t.d. var
greinilegt að einn drengjanna var
gráti nær af sársauka og niðurlæg-
ingu eftir að hafa fengið í sig spark.
Ég lýsi fyrirlitningu minni á þess-
ari villimennsku. Karate er og verð-
ur aldrei sönn íþrótt. Það getur
ekki verið drengilegt að sparka
leiftursnöggt í andlit annars manns,
jafnvel þótt því sé borið við að and-
stæðingurinn hafi mátt búast við
óvæntu höggi.
Ég skora á borgaryfirvöld og
sveitarstjórnir i landinu að láta af
öllum stuðningi við þessa „íþrótt"
með því að segja upp húsasleigu-
samningum við þau félög, sem hafa
karate á stefnuskrá sinni. Þá legg
ég og til að engir styrkir, hveiju
nafni sem þeir nefnast, verði veittir
til þeirra klúbba og félaga er stunda
karate. Karate á ekkert erindi til
æsku þessa lands.
M.B.B.
STJÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin,
Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377.
RÝMINGARSALA á flísum, marmara og skápahurðum.
Frá 26-80% afsláttur af staðgreiðslu.
16-70% afslóttur, ef greitt er með korti.
ALFABORG ?
BYGGINGAMARKAÐUR
KNARRARVOGI 4, SÍMI 686755
Sérverslun með flísar og flísalagningaefni
SKÍÐANÁMSKEIÐ
í FERMINGARGJÖF
EINHVER
HEILSUSAMLEGASTA
GJÖF SEM VÖL ER Á
í SUMAR:
5 unglinganémskeið
4 fjölskyldunámskeið
3 almenn námskeið
auk heigarnámskeiða
í júlí og ágúst
1
FÁIÐ KYNNINGARBÆKLING OG
VERÐSKRÁ HJÁ
NÝJA SÖLUAÐILANUM OKKAR:
SKÓGARHLÍÐ 18 - SÍMI 91-25855
S A M E I n A O » /si»