Morgunblaðið - 22.03.1991, Side 17
MORG,VN,BLAÐIfi FÖ^TyúAGUR 3?. Agftl
ið þér á krossgötum og eigið naum-
ast nema um tvennt að velja: Að
leysa með rausn þessa mjög smá-
vægilegu deilu við Eystrasaltsríkin,
Eistland, Lettland og Litháen, eða
fara „hina leiðina", en hún hefir
„mörgum körskum í koll komið“,
svo ekki sé fastara að kveðið. Gerið
yður ljóst, að það eru einatt smáu
málin, smáu steinvölumar, sem
valdið geta aldahvörfum.
Sem reyndur fjallgöngumaður
veit ég, að um hæstu tindana leikur
gjaman gustur kaldur. Úrgar þokur
hylja þá gjarnan fyrirvaralítið, svo
naumast sér handa skil. Sviftivindar
og grenjandi hríðir skella á, eins
og hendi sé veifað og þá er aðeins
eitt ráð til. Stáldra við. Þaulhugsa
hvert fótmál, því að minnsta feil-
spor getur leitt til hrösunar og þá
tekur þrítugt bergið við. Hafið því
ráð, þótt heimskur kenni. Gefið
Eystrasaltslýðveldunum frelsi, með
rausn. Skilið þéim fylgifé þeirra,
sem er sá hluti framleiðslu þeirra
sl. 50 ár, sem ýmist hefir verið seld-
ur Sovétríkjunum, gegn vægu verði,
eða afhent leppríkjum þeirra og
uppreisnarmönnum um víða veröld
og sett á einhvers konar biðreikn-
inga, sem enginn veit hvenær eða
hvert verða greiddir.
Að sjálfsögðu ber að draga frá
andvirði þeirra vara, sem Sovétríkin
hafa afgreitt Eystrasaltslanda.
Hvomm megin mismunurinn lendir
ber að greiða hann á sem sársauk-
aminnstan hátt. Fjarlægið í herrans
nafni öll hemaðarmannvirki Sovét-
veldisins í Eystrasaltsríkjunum,
þeim að kostnaðarlausu, svo fram-
arlega sem ekki verði sannað, að
þau hafi um þau beðið. Það er sið-
ferðileg skylda allra valdhafa og
höfðingja, að umgangast smælingj-
ana með fullri virðingu. Slíkt kann
heimurinn að meta að verðleikum
og sannast þar, að á reiðverinu
sést hvar heldri menn fara.
Herra Mikael Gorbatsjov: Þetta
er rödd hrópandans úr eyðimörk-
inni: Hlustið eitt andatak, vegna
þess að þessi rödd vill yður umfram
allt vel. Beitið vitsmunum yðar, sem
þér eigið nóg til af og farið að engu
óðslega. Sannleikurinn birtist-yður
hér. Einn vitur, víðsýnn og mildur
þjóðhöfðingi er heiminum meira
virði í dag, en allir stjórnmálaskúm-
ar heimsins samanlagt.
Nú kular aftur úr austrí. Það
kynni að vera fyrirboði um endur-
vakningu kalda stríðsins, sem ann-
ars virtist í rénun. Perestrojka yðar
er í mikilli hættu, ekki aðeins inn
á við, heldur einnig út á við og
væri það illa farið ef þéssi mikla
von heimsins yrði að engu, vegna
þess að „hin leiðin“ freistaði í bili.
Ef svo skyldi skipast veit enginn
hvað við tekur. En eitt er víst, að
þá hugsun þorir enginn skyniborinn
maður á heimsbyggðinni að hugsa
til enda í dag.
Að skilnaði sendi ég yður persón-
ulega, svo og hinni frábæru frú
Raisu Gotbatsjovu, hlýjar kveðjur
frá mínu kalda landi.
Lifið heil.
Höfundur er fyrrverandi
stórkaupmaður.
—---------------
Dagur harm-
onikkunn-
ar í Tónabæ
DAGUR harmonikkunnar verð-
ur haldinn í Tónabæ v/Skafta-
hlíð sunnudaginn 24. mars kl.
15-17.
Stórsveit Harmonikkufélags
Reykjavíkur leikur ásamt minni
hópum og einleikurum innan fé-
lagsins. Einnig koma fram ungir
nemendur frá Tónskóla Sigur-
sveins G. Kristinssonar. Heiðurs-
gestir dagsins þeir Grétar Geirsson
og Reynir Jónasson leika nokkur
lög.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir meðan húsrúm leyfír.
Kaffíveitingar á staðnum.
(Frcttatilkynning)
Taxtar byggingamóta hækka um 11,6%:
Löngn tímabært að leiðrétta taxtana
segir framkvæmdastjóri byggingameistara
HELSTA ástæðan fyrir 2,3% hækkun byggingavísitölunnar um næstu
mánaðarmót er hækkun á launum samkvæmt gildandi kjarasamning-
um. Launin hækkuðu um 2,8% um síðustu mánaðarmót og leiðir það
til 1,3% hækkunar vísitölunnar, að sögn Hallgríms Snorrasonar hag-
stofusljóra.
Steypa hækkaði um 5,2% í lok
febrúar og leiðir það til tæplega
0,6% hækkunar byggingavísi-
tölunnar. Hækkun á leigu bygg-
ingamóta, sem Hagstofan metur
11,6%, leiðir til 0,2% hækkunar
og verðhækkanir ýmissa efnisliða
leiðir til 0,2% hækkunar vísi-
tölunnar.
Leiga byggingamóta í vísitölu-
grunninum hækkar nú úr 744.156
krónur í 830.629 kr., eða um
86.473 krónur. Sverrir Magnús-
son, framkvæmdastjóri Meistara-
og verktakasambands bygginga-
manna, segir að taxtar sambands-
ins fyrir leigu byggingamóta hafi
hækkað á bilinu 9,45 til 11,95% í
október. Taxtarnir hefðu ekki
fylgt verðlagsþróun undanfarin ár
og því löngu tímabært að leiðrétta
þá með því að hækka umfram
annað. Sagði hann að taxtarnir
hefðu hækkað um 91% frá 1986,
á sama tíma og byggingarvísitalan
hefði hækkað um 157%. Sverrir
neitaði þegar hann var spurður
að því hvort þessi rök mætti ekki
nota til að réttlæta hækkanir á
flestum hlutum og ítrekaði að
taxtarnir hefðu dregist mikið aftur
úr. Hann sagði að taxtar sam-
bandsins væru leiðbeinandi lág-
márkstaxtar, langt undir því verði
sem sett væri upp fyrir þessa þjón-
ustu í almennum viðskiptum.
Sagði Sverrir að svipaða sögu
mætti segja um fleiri þætti bygg-
ingavísitölurinar, hún mældi ekki
réttan byggingarkostnað.
TCS
T" '. n
HUSEIGENDUR
ALLRA TÍMA
hafa leitað logandi Ijósi að réttu innréttingunum og öðru því sem prýða skal hólf
og gólf híbýla þeirra. Nú er leitin á enda því BYKO hefur opnað HÓLF & GÓLF
á neðri hæð verslunarinnar í Breiddinni.
[ HÓLF & GÓLF er heimilissýning allt árið með innréttuðum hólfum og klæddum
gólfum. Þar er bókstaflega allt fyrir heimilið: Gólfefni, hillur og skápar,
hreinlætistæki, innréttingar, Ijós, klæðningar og fleira og fleira.
Þú sparar tíma, fé og fyrirhöfn með því að fara á einn stað og finna allt
sem þú þarft á að halda fyrir heimilið - í hólf og gólf.