Morgunblaðið - 22.03.1991, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
21
Halldór Ásgrímsson fundar með
Bandarí kj amönnum um hvalamálin
Mikil fundahöld í Reykjavík í vor
„ÞAÐ HEFUR orðið að ráði að við förum til Bandaríkjanna í næstu
viku til að kynna okkar mál og eigum síðan frekari samtöl við Banda-
ríkjamenn þegar þeir koma hingað fyrir ársfund Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins, sem haldinn verður í Reykjavík í síðustu viku maí,“ segir Halldór
Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra um hvalveiðimálin. Islendingar
funda með fulltrúum Norðurlandanna í Alþjóðahvalveiðiráðinu í
Reykjavík í byrjun næsta mánaðar og dagana 16. og 17. apríl næstkom-
andi verður haldinn hér fundur þjóða, sem kenndar hafa verið við
Norður-Atlantshafið. Þá mun vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins
koma saman í Reykjavík í byrjun maí og funda í tvær vikur.
„í Bandaríkjunum munum við sérstaklega í framhaldi af fundi vís-
indanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins
hér um langreyðina."
Halldór segir að fyrirhugað sé
samráð við fulltrúa Norðurlanda-
þjóðanna í Alþjóðahvalveiðiráðinu
munum við
meðal annars ræða við Knauss, að-
stoðarráðherra í viðskiptaráðuneyt-
inu, sem fer með sjávarútvegsmál
og Derwinski, sem er íslendingum
að góðu kunnur og er nú ráðherra
í ríkisstjórn Bush. Einnig verður
rætt við Ted Stevens, öldungadeild-
arþingmann frá Alaska, sem oft
hefur komið á fundi Alþjóðahvalveið-
iráðsins vegna hagsmuna síns
fólks,“ segir Halldój.
Hann •segir að íslendingar hafi
átt mikil samskipti við Bandaríkja-
menn um hvalamálin. „Við vorum
hins vegar ekki sáttir við atburði á
fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Holl-
andi í fyrra. Við viljum eiga sem
best samstarf um þessi mál við
Bandaríkjamenn og lengi hefur stað-
ið til að við ættum með þeim fundi,
þannig að reynt væri að samræma
sjónarmið fyrir fund Alþjóðáhval-
veiðiráðsins í Reykjavík í maí næst-
komandi. Við höfum verið að und-
irbúa þennan fund og erum að vinna
að okkar stefnumótun á fundinum,
um þessi mál á næstunni og haldinn
verði sérstakur fundur með þeim í
Reykjavík í bytjun næsta mánaðar.
„Síðan ætlum við að kynna okkar
mál fyrir nokkrum öðrum þjóðum í
Evrópu. Dagana 16. og 17. apríl
verður haldinn hér fundur þjóða, sem
kenndar hafa verið við Norður-Atl-
antshafið. Slíkir fundir hafa verið
haldnir hér á landi, í Færeyjum og
Noregi og halda átti næsta fund í
Grænlandi. Hins vegar hefur verið
óskað eftir að þessi fundur verði
haldinn hér, þar sem ég get ekki
komið því við að vera í Grænlandi
á þessum tíma:“
Sjávarútvegsráðherra segir að ís-
lendingar vilji vera áfram í Alþjóða-
hvalveiðiráðinu. „Við viljum hins
vegar að ráðið taki tillit til okkar
hagsmuna og taki mark á vísinda-
legum niðurstöðum rannsókna, sem
hér eru stundaðar. Til að svo geti
orðið þarf að verða nokkur breyting
á,“ segir Halldór.
Hann upplýsir að á síðasta fundi
Alþjóðahvalveiðiráðsins hafi margir
sagt fulltrúum Islendinga að þeir
vildu nokkuð á sig leggja til að koma
til móts við sjónarmið Islendinga en
betra tækifæri yrði til þess á fundin-
um í Reykjavík. „Við viljum láta á
það reyna og gera okkar besta til
að kynna stöðu mála hér og okkar
afstöðu til nýtingar á auðlindum
hafsins,“ segir Halldór.
FLEXON
VESTUR-ÞÝSKUR
HÁGÆÐA
DRIFBÚNAÐUR
Kristskirkja, Landakoti:
Tónleikar og upplestur í kvöld
TÓNLEIKAR og upplestur
verða í kvöld, föstudag, kl. 20.30
í Kristkirkju, Landakoti.
Dagskráin hefst á því að organ-
leikari kirkjunnar, Ulrik Ólason,
leikur á kirkjuorgelið. Því næst er
almennur söngur og þá ritningar-
lestur.
Síðan verður fluttur Píslargrát-
ur eftir Jón Arason Hólabiskup
og flytja hann Gunnar Eyjólfsson
og Baldvin Halldórsson. A undan
og eftir lestrinum verða tónlistar-
atriði, Zbigniew Dubik leikur á
fiðlu og kona hans, Alina Dubik,
syngur. Meðan á flutningi Píslar-
gráts stendur syngur kórinn með
í nokkrum versunum og frumflutt
verður tónverk eftir Atla Heimi
Sveinsson.
Að loknum tónlistaratriðunum
verður Faðir vor lesið sameigin-
lega og blessun veitt. Dagskránni
lýkur með almennum söng.
FLUTNINGSKEÐJUR
Allar stœrðir
Hagstœtt verð
Við veitum þér
allar tœknilegar
upplýsingar
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
SÍMI (91) 20680 • FAX (91) 19199
Landakotskirkja
.•>«<•«<
.A'.'.V,
SJCÍÐA
AFSLÁTTUR
• [niHIMSKÍÐAVÖRUM
7fl. NAARS - 5. APRÍL
SKÍÐAGLERAUGU.
Vertu velkominn á skíðadagana.
.■.*. »*#!» # • • •
* staðgreitt
-SkfiPAK FPAMMK
A.RRAUT 60 SÍM112045