Morgunblaðið - 22.03.1991, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
"27
Reuter
Sjálfstæðishátíð
Sam Nujoma Namibíuforseti (t.h.) og Robert Mugabe forseti Zimbabwe aka í opinni jeppabifreið inn á
íþróttaleikvang í Windhoek, höfuðborg Namibíu. Myndin var tekin í gær við upphaf hátíðahalda í tilefni
þess að þá var eitt ár liðið frá því Namibía öðlaðist sjálfstæði.
April Glaspie varaði íraka við innrás í Kúveit:
Sagði Saddam að Bandaríkja-
menn myndu skerast í leikinn
Washington. Reuter.
APRIL Glaspie, sendiherra Bandarikjanna í Irak, kveðst hafa
varað Saddam Hussein Iraksforseta við afleiðingum innrásar í
Kúveit er jiún átti fund með honum 25. júlí í fyrra, viku fyrir
innrásina. I gær sat hún fyrir svörum hjá utanríkisnefnd Öldunga-
deildar Bandaríkjaþings og er það í fyrsta sinn sem hún tjáir sig
opinberlega um afstöðu Bandaríkjastjórnar til Bagdad-stjórnarinn-
ar fyrir innrásina í Kúveit.
Glaspie hefur beinlínis verið sök-
uð um að hvetja Saddam til innrás-
arinnar 2. ágúst með því að haida
því fram á fundinum með honum
að Bandaríkjamenn myndu láta
hana afskiptalausa. írakar birtu
afrit af viðræðum Glaspie og Sadd-
ams þar sem hún var látin segja
að Bandaríkjamenn tækju ekki af-
stöðu til landamæradeilna íraka og
Kúveita. Bandaríska utanríkisráðu-
neytið hefur hingað til ekki dregið
innihald skjalsins í efa og andstæð-
ingar James Bakers utanríkisráð-
herra hafa sakað hann um að nota
Glaspie sem blóraböggul fyrir eigin
mistök gagnvart Irökum síðustu
vikurnar fyrir innrásina.
„Ég mótmæli að þetta sé kallað
afrit. Skjalið er uppspuni, það er
liður í blekkingarstarfsemi, sann-
leikurinn hefur verið stórlega umrit-
aður,“ sagði Glaspie um skýrslu
íraka um fund þeirra Saddams. „Ég
sagði honum að við myndum veija
hina mikilvægu hagsmuni okkar,
við myndum koma vinum okkar við
Flóann til hjálpar og veija sjálf-
stæði þeirra,“ bætti hún við.
Nefndarmenn komu til yfir-
heyrslnanna tilbúnir til að rífa
Glaspie í sig en
hún sneri vörn í
sókn og vann þá
fljótt á sitt band.
„Éinu mistök
bandarískra
stjórnvalda
voru, að þau
töldu Saddam
ekki nógu heim-
skan til þess að
láta verða af
innrásinni,"
sagði sendiherann. „Okkar stjórn,
eins og ríkisstjórnum allra annarra
ríkja, varð á sú yfirsjón að átta sig
ekki á því að Saddam væri ónæmur
fyrir skynsemi og rökum.“
April Glaspic
Umhverfismál í Sovétríkjunum:
Tugmilljónir manna
búa við neyðarástand
Brussel. Reuter.
Á SEXTÁN prósentum af sov-
ésku landsvæði ríkir réttnefnt
neyðarástand í umhverfismál-
um. Þar búa fjörutíu til fimmtíu
milljón sovéskir borgarar, segir
Sérsveitirnar eltu langferðabif-
reiðina með sex litháíska landa-
mæraverði innanborðs í átt til Vil-
nius og virtust hafa í hyggju að
stöðva bifreiðina. Þegar það mis-
tókst hleyptu þeir af eftir að kom-
ið var inn í borgina. Gintaras
Alexej Jablokov, varaformaður
umhverfismálanefndar sovéska
þingsins, í samtali við belgíska
dagblaðið De Morgen.
Afleiðingarnar eru meðal ann-
Dapkus landamæravörður komst
við illan leik inn í þinghúsið í Vil-
nius og var hann með skotsár í
lærinu. Annar landamæravörður
sem særðist var hnepptur í varð-
hald í sovéskri herstöð.
ars þær að dauðsföllum af völdum
krabbameins íjölgar um 2% á ári
hveiju í Sovétríkjunum. Jablokov,
sem er í heimsókn í Brussel, segir
að í sumum landshlutum séu líf-
slíkur fólks ekki nema 55-60 ár
sem sé 10-15 árum minna en eðli-
legt megi teljast. Útblástur eitr-
aðra þungmálma frá þungaðnaði
og óheft notkun skordýraeiturs í
landbúnaði valdi mikilli mengun.
Mikil geislavirk mengun sé víða í
Moskvu og skógar í landinu hverfi
jafn hratt og regnskógurinn í
Brasilíu. Helmingur ræktunar-
lands sé í hörmulegu ástandi
vegna áníðslu. Hann sagði að ný-
legar rannsóknir á móðurmjólk
sýndu að í helmingi sýnanna væri
hættulegt magn af skordýraeitri.
Jakoblov gerði ástandið í
Tsjernobyl, þar sem varð kjarn-
orkuslys árið 1986, að umtalsefni.
„Fólk þar er öðru vísi, þjakað. Því
stekkur vart bros lengur."
Sérsveitir KGB særðu
tvo Litháa í skotárás
Moskvu. Reuter.
SÉRSVEITIR sovéska innanríkisráðuneytisins, svarthúfurnar svo-
kölluðu, skutu á langferðabifreið í Litháen á miðvikudag þar sem
voru litháískir landamæraverðir um borð. Tveir menn særðust í
skotárásinni, að sögn talsmanns litháíska þingsins og blaðamanna
í Vilnius.
Sony semur við
Michael Jackson
New York. Reuter.
Sony Software Corp. hefur gert víðtækan útgáfusamning við
bandarísku poppstjörnuna Michael Jackson. Sony Electronic Publ-
ishing, fyrirtækið sem Ólafur Jóhann Ólafsson veitir forstöðu, er
eitt af þremur Sony-fyrirtækjum sem standa að samningnum.
Fulltrúar Sony neituðu að gefa
upp hvað þeir borga Jackson mik-
ið fyrir samninginn en Michael
Schulhof, forseti Sony Software,
segir að fyrirtækið geri ráð fyrir
að geta selt vörur tengdar nafni
Jacksons fyrir meira en milljarð
dala (58 milljarða ÍSK) í kjölfar
samningsins. Þess má geta að
Schulhof réð Ólaf Jóhann til starfa
hjá Sony á sínum tíma.
Það eru þijú undirfyrirtæki
Sony-samsteypunnar sem standa
að samningnum, Sony Music Ent-
ertainment, sem áður hét CBS
Records, Columbia Pictures Ent-
ertainment og Sony Electronic
Publishing.
Sony ætlar að stofna nýtt fyrir-
tæki um framleiðslu Jacksons sem
á heita Jackson Entertainment
Complex. Gert er ráð fyrir að Jack-
son geri sex hljómplötur fyrir
Sony, auk kvikmynda, sjónvarps-
mynda og myndbanda.
NÁMSKEIÐ
sa'Mskipti
f oreldra og barna
Nú eru að heQast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér
ákveðnar hugmyndir og aðferðir í samskiptum
foreldra og barna. Þar verður m.a. íjallað um
hvað foreldrar geta gert til að:
• Aðstoða börn sín við þeirra vandamál.
• Leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi.
• Byggja upp jákvæð samskipti innan
íjölskyldunnar.
Námskeiðin byggja á hugmyndum dr. Thom-
asar Gordons, sálfræðings, höfundar bókar-
innar „Samskipti foreldra og barna“.
Leiðbeinendur hafa hlotið þjálfun til að halda
þessi námskeið á íslandi.
Námskeiðin verða 3 klst. í einu í 8 skipti.
Upplýsingar og skráning í símum 621 132 og
626632.
Hugo Þórisson, Wilhelm Norðfjörð,
sálfræðingur. sálfræðingur.
saNski pti
FRÆÐSLA OG RÁÐGJÖF SF.
Samskipti foreldra og barna. Samskipti unglinga.
Samskipti á vinnustað. Samskipti við viðskiptavini.
Samskipti kcnnara og nemenda.
Samskipti stjórnenda og starfsmanna.
Mannleg samskipti/ákveðnisþjálfun.