Morgunblaðið - 22.03.1991, Blaðsíða 55
i >■>! xam S'c ~ jfjiViijl y w jj! I <n(iAjaMUDJ]-.ii
MORGUNBLAÐIÐ iPROTTlR FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1991
KÖRFUKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIN
Morgunblaðið/Einar Falur
Teitur Örlygsson sækir að körfu Grindvíkinga í gærkvöldi. Guðmundur Bragason er til varnar — en þeir léku báðir
mjög vel í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni Úrvalsdeildarinnar.
„Að duga eða.
drepast
í næsta leik“
- sagði Gunnar Þorvarðarson þjálfari
Grindvíkinga sem steinlágu í Njarðvík
„Það er Ijóst að nú er að duga
eða drepast fyrir okkur í leikn-
um í Grindavík. Við vissum að
þetta yrði erf iður leikur og 17
stiga munur íhálfleikgerðrút-
slagið því Njarðvíkingar láta
slíkan mun ekki af hendi átaka-
laust,“ sagði Gunnar Þorvarðr-
son þjálfari Grindvíkinga eftir
að lið hans hafði beðið lægri
hlut gegn Njarðvíkingum í „Ljó-
nagryfjunni" í Njarðvík í gær-
kvöldi.
Þetta var fyrsti leikur liðanna í
úrslitakeppninni um íslands-
meistaratitilinn en það lið sem fyrr
sigrar í tveimur leikjum leikur til
BHi úrslita og mætast
Björn liðin að nýju í
Blöndal Grindavík á morg-
.. un.
Njarðvíkingar
léku vel í gærkvöldi og var sigur
þeirra fyllilega verðskuldaður. Í
upphafi virtist allt ætla að stefna í
hörkuleik, en undir lok fyrri hálf-
leiks náðu Njarðvíkingar afbragðs
leikkafla og 17 stiga forskoti. í
síðari hálfleik hægðu Njarðvíkingar
skrifarfrá
Keflavik
á ferðinni og léku eins og þeir sem
valdið hafa. Grindvíkingar börðusÚ"
þó allt til loka, en allt kom fyrir
ekki og nú eiga þeir á brattan að
sækja. „Ég er að vonum ánægður
með þessi úrslit og við erum stað-
ráðnir í að gera okkar besta og ljúka
þessu dæmi í Grindavík því liðið
getur meira en það sýndi í þessum
leik,“ sagði Friðrik Rúnarsson þjálf-
ari Njarðvíkinga sem beittu pressu-
vörn á köflum með góðum árangri,
sérstaklega í fyrri hálfeik. Béstir í
liði Njarðvíkinga voru þeir Rondey
Robinson, Teitur Örlygsson, ísak
Tómasson og Friðrik Ragnarsson.
Bestir hjá Grindvíkingum voru þeir
Dan Krebs, Guðmundur Bragason
og Jóhannes Kristbjörnsson.
í kvöld
ÍBK ög KR leika fyrsta
leik sinn í úrslitakeppninni
í körfuknattleik í íþrótta-
húsinu í Keflavík kl. 20.00.
UMFN - UMFG 86:69
íþróttahúsið ( Njarðvík, íslandsmótið í körfuknattleik, úrslitakeppni Úrvalsdeildar, fimmtu-
daginn 21. mars 1991.
Gangur leiksins: 8:0, 3:7, 17:7, 23:20, 29:27, 36:27, 48:31, 57:34, 61:41, 68:52, 74:60,
80:69, 86:69.
Stig UMFN: Rondey Robinson 25, Teitur Örlygsson 24, Friðrik Ragnarsson 10, ísak
Tómasson 9, Hreiðar Hreiðarsson 7, Kristinn Einarsson 6, Gunnar Örlygsson 5.
Stig UMFG: Dan Krebs24, Jóhannes Kristbjömsson 11, Hjálmar Hallgrímsson 9, Marel
Guðlaugsson 7, Guðmundur Bragason 7, Rúnar Ámason 7, Sveinbjöm Sigurðsson 4.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Leifur Garðarsson, þeir dæmdu vel og höfðu góð tök
á leiknum. Áhorfendur:Um 400.
HANDBOLTI / NEÐRI HLUTINN
ÍR - Selfoss 20:22
Se(jaskóli, úrslitakeppni neðri lið 1. deildar í handknattleik, fimmtudaginn 21. mars.
Gangur leiksins: 2:2, 2:5, 4:8, 8:12, 9:13, 12:14, 16:17, 16:20, 18:22, 20:22.
Mörk ÍR: Ólafur Gylfason 5, Róbert Rafnsson 5, Jóhann Ásgeirsson 3, Magnús Ólafss.
2, MatthíasMatthíass. 2, Guðmundur Þórðarson 1, Frosti Guðlaugss. og Njörður Ámason 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 9 (þar af 2 aftur til mótheija).
Utan vallar: 4 minútur.
Mörk Selfoss: Einar Guðmundsson 9, Gústaf Bjarnason 7/1, Einar G. Sigurðsson 4, Sig^
urður Þórðarson 1, Siguijón Bjarnason 1.
Varin skot: Ólafur Einarsson 10/1 (þar af 3 aftur til mótheija).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Guðmundur Sigurbjömsson.
Áhorfendun 70.
Selfoss upp fyrir KR og ÍR
Leikurinn einkenndist af miklum mistökum. Selfoss náði fljótlega forystunni,
í byijun síðari hálfleiks þéttu iR-ingar vörnina og minnkuðu muninn. Það
dugði þó ekki til, Selfyssingar héldu forystunni til leiksloka, þrátt fyrir örvænt-
ingarfullar tilraunir ÍR-inga til að rétta sinn hlut með því að leika maður gegn
■■■■ manni. í liði Selfyssinga voru þeir Einar Guðmundsson og
Sigurður Gústaf Bjarnason bestir og Ólafur Einarsson varði á mikilvæg-
Hrafnsson urn augnablikum. ÍR-ingar áttu slæman dag og nýttu færi sín
skrifar illa, einkum hraðaupphlaupin. Það vóru einungis Olafur Gylfa-
son og Róbert Rafnsson sem eitthvað sýndu.
Með sigrinum skaust lið Selfoss upp fyrir bæði KR og ÍR. KR-ingar eru nú
í neðsta sæti með 5 stig, jafn mörg IR-ingum, en hafa lakara markahlutfall.
Selfyssingar eru komnir með 6 stig, Grótta hefur 6, Fram 7 og KA er efst með^-
8. Öll lið hafa lokið fimm leikjum af tíu.
HANDKNATTLEIKUR / URSLITAKEPPNIISLANDSMOTSINS
Stjaman flengd opinberiega!
Stjarnan fékk ærlega f lengingu á heimavelli sínum gegn ákveðn-
um Vestmannaeyingum í gærkvöldi. Mótspyrna Stjörnunnar var
lítil og leikmenn liðsins, hefðu allt eins getað sleppt því að leika
í vörninni því hún var engin fyrirstaða fyrir ákveðna Eyjamenn
sem skoruðu 37 mörk gegn aðeins 23.
Eyjamenn léku af fullum krafti
allan leiktímann, vöm liðsins
var mjög sterk og heimamenn heldu
aðeins í við þá í ellefu mínútur,
staðan var þá jöfn
5:5 en eftir það
skildi í sundur með
liðunum, mark-
varsla Sigmars
Þrastar gaf tóninn og oft nýttist
markvarsla hans til hraðaupp-
hlaupa. Fimm marka munur var á
liðunum í leikhléi og því enn von
fyrir Stjömuna, að minnsta kosti
hefði verið hægt að ætla það. En
leikmenn höfðu þá flestir gefíð upp
alla von, vörnin var vanstillt og
sóknarleikurinn var of hægur til að
opna fyrir skotmönnum. IBV hélt
sínu striki í síðari hálfleiknum,
vörnin var góð og hraðaupphlaupin
nýttust til ellefu marka í leiknum.
„Þessi sigur sýnir það að sigurinn
í bikarnum var ekki heppni, eins
og sumir hafa ýjað að, þar á meðal
fjölmiðlar. Lítil mótspyma þeirra
kom okkur á óvart en það leikur
ekkert lið betur en andstæðingurinn
leyfír. Við hlökkum til að mæta Val
í næstu umferð og við ætlum að
taka vel á móti þeim,“ sagði Sig-
bjöm Óskarsson, leikmaður ÍBV
eftir leikinn.
Sigmar Þröstur var besti maður-
inn í annars jöfnu liði ÍBV sem
hefur tekið ótrúlegum framföram í
vetur og það skyldi enginn gera lítið
úr möguleikum liðsins gegn toppliði
Vals í næstu umferð.
Stjarnan lék mjög vel gegn
Víkingi fyrr í þessari viku en var
óþekkjanlegt í þessum leik. Axel
Björnsson var besti leikmaður
Stjömunnar og sá eini sem barðist
allan tímann.
I EYJÓLFUR Bragason, þjálfari
Stjörnunnar, fékk ekki að svara
spurningum . Morgunblaðsins um
frammistöðu liðsins. „Ég, sem formað-
ur handknattleiksdeildar banna Ey-
jólfí að tala við fjölmiðla," sagði Guð-
jón E. Friðriksson við Morgunblaðið.
„Þetta er niðurlæging á heimavelli,
ég hef .ekkert meira um þennan leik.
að segja,“ sagði formaðurinn.
Stjarnan-IBV 23:37
íþróttahúsið Ásgarði, 1. deild karla í hand-
knattleik, úrslitakeppni efstu liða, fimmtu-
daginn 21. mars 1991.
Gangur leiksins: 4:4, 5:9, 10:15, 12:17,
13:23, 15:26, 19:27, 19:32, 28:37.
Mörk Stjörmmnar: Sigurður Bjamason
5, Axel Bjömsson 5, Patrekur Jóhannesson
4, Magnús Sigurðsson 4/2, Magnús Eg-
gertsson 2, Hilmar Hjaltason 2/1, Hafsteinn
Bragason 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 5, BrypjaíJ
Kvaran 1. Utan vallar-. Ekkert.
Mörk ÍBV: Guðfinnur Kristmannsson 8,
Gylfi Birgisson 8/3, Jóhann Pétursson 5,
Erlingur Richardsson 5, Sigurður Friðriks-
son 5, Sigurður Gunnarsson 2, Helgi Braga-
son 2, Haraldur Hannesson 1, Sigbjöm
Óskarsson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson
18/2. Utan valiar: 2 mínútur.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon,
Sigutjónsson, dæmdu vel en leyfðu stundum
fellirakið-..........................
Áhorfendur: Um 150.
Frosti
, Eiðsson
skrifar