Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 4
icex jism .5 HU0AauT8öi aiuAuaMuoHOM
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 5. APRIL 1991
Hitaveita Reykjavíkur og Borgarskipulag:
79 tillögur að húsum yfir borholur
Morgunblaðið/Sverrir
Pálmar Krístmundsson arkitekt og Björn Skaftason arkitekt,
hlutu fyrstu verðiaun í hugmyndasamkeppni um hönnun húsa
yfir borholur Hitaveitu Reykjavíkur.
ARKITEKTARNIR Pálmar
Kristmundsson og Björn Skafta-
son unnu 1. verðlaun kr. 520
þús. í samkeppni um hönnun
húsa yfir borholur Hitaveitu
Reykjavíkur, sem hitaveitan og
Borgarskipuiagið efndu til.
Rúmlega 50 holur eru í
Reykjavik og Mosfellsbæ. 83 til-
lögur bárust í samkeppnina,
tvær voru merktar höfundi og
aðrar tvær voru póstlagðar eftir
að skilafrestur var útrunninn.
Til dóms voru því teknar 79 til-
lögur.
Páll Gíslason formaður veitu-
stofnana, sagði í ávarpi sínu við
verðlauna afhendinguna, að Hita-
veita Reykjavíkur hefði notið þess
að fyrst og fremst væri litið á gildi
hennar og gagn án þess að mann-
virki hennar væru gagnrýnd. En
nú væri tími kominn til að úr því
yrði bætt og nefndi hann sem dæmi
yfirbyggingu veitunnar „Perluna“
á hitaveitugeymunum í Öskjuhlíð.
í keppnislýsingu kemur fram, að
flestar holur hafí verið virkjaðar á
árunum 1960 til 1970 og að þá
hafi þær verið á óbyggðum svæðum
og ekki vandað til þeirra húsa sem
yfir þær voru reist. Á síðari árum
hefði byggðin færst nær holunum
í báðum sveitarfélögunum og því
rétt að yfir þær verði reist hús er
falla betur að umhverfinu.
í umsögn dómnefndar segir að
verðlauna tillagan sé hnitmiðuð og-
svari vel þeim meginkröfum, sem
gerðar voru í keppnislýsingu um
notagildi, fegurð og frumleika.
Byggt sé á samspili samhverfra
flata, sem höfundar ná betri tökum
á en aðrir keppendur. „í hugmýnd-
inni býr hreinleiki og kraftur, sem
gefur fyrirheit um enn betri lausn
við ítarlegri útfærslu."
„Við byggjum hugmyndina á
tveimur aðskildum skeljum er um-
lykja búnaðinn,“ sagði Björn
Skaptason arkitekt um tillöguna.
Sögðust höfundar hafa lagt áherslu
á mjúkar bogadreignar lágréttar
línur til mótvægis við lóðrétta línu
vatnsins sem úr holunni kemur.
Jafnframt að um hlut eða form
væri að ræða fremur en hús. Mann-
virkið samanstæði úr tveimur
skermum sem auðvelt væri að taka
niður og flytja og gera hönnuðir
ráð fyrir að það verði lýst upp að
næturlagi.
2. verðlaun kr. 310 þús., hlaut
Guðmundur Jónsson arkitekt, 3.
verðlaun kr. 210 þús., hlutu Bjöm
S. Hallsson arkitekt og Jón Þór
Þorvaldsson arkitekt. Auk þess
voru þrjár tillögur keyptar inn, 1.
innkaup var tillaga arkitektanna,
Halldórs Gíslasonar, Jóhannesar
Þorðarsonar og Sigurðar Halldórs-
sonar. 2. til 3. innkaup voru tillög-
ur frá þeim Ólafi Tr. Mathiesen
arkitekt og Ólafi Þóri Hersissyni
arkitektanema.
tveiraur bogadreignum skerm-
um og er gert ráð fyrir að áferð
þeirra falli að umhverfinu á
hveijum stað.
Allar tillögur sem bárust í sam-
keþpnina verða til sýnis hjá Bygg-
ingarþjónustunni, Iðnaðarmanna-
félagshúsinu, Hallvegarstíg 1, Sýn-
ingin stendur fram til 15. apríl og
er opin frá kl. 10 til 18 virka daga
og frá kl. 14 til 16 um helgar.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 5. APRÍL
YFIRLIT í GÆR: Yfir vestanverðu landinu er minnkandi lægðardrag
og víðáttumikil 960 mb lægð skammt vestur af Skotlandi, þokast
austur. Yfir Grænlandi er 1008 mb hæð.
SPÁ: Norðlæg átt um mestallt landið, víða stinningskaldí en hvasst
á stöku stað við norður- og austurströndina. Á Norður- og Austur-
landi og norðantil á Vestfjörðum má búast við snjókomu eða élja-
gangi, einnig gaetu orðið stöku él vestanlands en sunnanlands
ætti að verða bjart veður að mestu. Kalt verður áfram, þó ætti að
verða frostlaust um hádaginn sunnanlands og austan.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðanátt, sums stað-
ar nokkuð hvöss, einkum á laugardag. Éljagangur um norðanvert
landið en nokkuð bjart veður sunnanlands, þó gætu orðið él við
suðurströndina. Frostlaust að deginum sunnanlands og austan en
annars frost, víðast 2-5 stig.
TÁKN:
'(jj' Heiðskirt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Ceisius
SJ Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J~ Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl 12:00 í gær að ísl. tíma
Mcureyri Reykjavík hiti +5 +4 veður alskýjað snjókoma
Bergen 9 skýjað
Heisinki 10 þokumóða
Kaupmannahöfn 8 þokumóða
Narssarssuaq +5 snjók. á s.klsL
Nuuk +10 hálfskýjað
Os!ó 4 rigning
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Þórshöfn 7 alskýjað
Algarve 15 skýjað
Amsterdam 12 skýjað
Barcelona vantar
Beriín 13 alskýjað
Chicago 12 aiSKyjBO
Feneyjar 14 rigning á s.klst.
Frankfurt 13 rigning á s.klst.
Glasgow 8 alskýjað
Hamborg 12 skýjað
Las Palmas vantar
London 6 rignlng
Los Angeles 13 helðskirt
Lúxemborg 10 skýjað
Madríd vantar
Malaga 19 iéttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal 3 léttskýjað
NewYork 6 iéttskýjað
Oriando vantar
Paris 9 rigning
Róm 17 léttskýjað
Vín 14 skýjað
Washington vantar
Winnipeg 5 heiðskirt
Hugsanlegt að Reykja-
vík missi þingsæti
í þamæstu kosningum
MIÐAÐ við yfirlit sem Hagstofa íslands hefur tekið saman um fjölda
kjósenda á kjörskrárstofni kemur í ljós að breyting hefur orðið á
hlutfallslegum fjölda kjósenda eftir kjördæmum. Að sögn Ólafs
Walter Stefánssonar, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu sýna
útreikningar miðað við þessar tölur að Norðurlandskjördæmi eystra
mun missa þingsæti sem lendir í hlut Reykjaneskjördæmis í þeim
alþingiskosningum sem fram eiga að fara næst á eftir kosningunum
í vor, en jafnframt að litlu munar að þingsæti færist frá Reykjavík
til Norðurlandskjördæmis eystra.
Skipting kjördæma ákvarðast
samkvæmt kosningalögum af tölu
kjósenda á kjörskrá í hverju kjör-
dæmi í næstu almennu alþingis-
kosningum á undan. Miðað við tölur
Hagstofunnar verður þingsætatala
kjördæma í þeim kosningum sem
fram eiga að fara næst á eftir kosn-
ingunum í vor þannig að Reykjanes-
kjördæmi verður með 12 þingsæti
í stað 11 og Norðurlandskjördæmi
eystra 6 í stað 7. Þingsætatala
Reykjavíkurkjördæmis verður
óbreytt, eða 18, svo og annarra
kjördæma. Ólafur Walter sagði að
hér munaði hins vegar ckki miklu,
aukning á kjörskrá í Norðurlands-
kjördæmi eystra um 230 eða fækk-
un í Reykjavíkurkjördæmi um 904
flytti þingsæti frá Reykjavík til
Norðurlands eystra. Sama yrði upp
á teningnum ef 184 flyttust frá
Reykjavík til Norðurlands eystra.
„Tölur sem settar eru fram í Morg-
uiiblaðinu í gær fjalla um breyting-
ar á Norðurlandskjördæmi eystra
annars vegar og Reykjaneskjör-
dæmi hins vegar en það sem er nær
því að valda breytingu væri tilflutn-
ingur á kjósendum milli Reykjavík-
ur og Norðurlands eystra,“ sagði
Ólafur Walter. Hann sagði fremur
ólíklegt að reyndin yrði þessi eink-
um þegar litið væfi tiL-breyttra
reglna um kjörskrárgerð,' sem nú
skal miðuð við skráð lögheimili sjö
vikum fýrir kjördag.
Kjósendum á landinu öllu hefur
fjölgað um 6,7% frá kosningunum
1987. Fjölgunin er mest á Reykja-
nesi 12,8%, 8,9% í Reykjavík, 2,9%
á Norðurlandi eystra, 2,6% á Suð-
urlandi, 1,1,% á Austurlandi en
fækkun hefur orðið á Vesturlandi,
Vestfjörðum og Norðurlandi vestra.
Ólafur sagði að í þessum útreikn-
ingum væru allir kjósendur teknir
með, einnig þeir sem búsettir eru
erlendis og kosningarétt hafa. Ef
þeir væru ekki taldir með yrði niður-
staðan hins vegar sú að Reykjavík-
urkjördæmi missti þingsæti til
Reykjaneskjördæmis en þingsæta-
tala Norðurlandskjördæmis eystra
.yrði sama og hún er nú. Flestir
kjósenda með lögheimili erlendis
koma frá Reykjavík, eða 4% allra
á kjörskrá í landinu, 3,5% í Reykja-
nesi, 2,8% á Vestfjörðum, 2,4% á
Vestlandi, 2,2% í Norðurlandskjör-
dæmi eystra og 2,2% á Austurlandi.
Eignarhaldsfélagið krefst
frávísunar á matsbeiðni
LÖGMAÐUR Eignarhaldsfélags Verslunarbankans krafðist þess fyr-
ir bæjarþingi Reykjavíkur í gær að vísað verði frá ósk Fjölmiðlunar
sf., sem að standa stærstu hluthafarnir innan íslenska sjónvarpsfé-
lagsins að dómurinn kveði til matsmenn til að skera úr um ágrein-
ingsatriði vegna kaupa þessara aðila á hlutabréfum í Stöð 2. Hlutha-
farnir innan Fjölmiðlunar telja að skuldastaða sjónvarpsfélagsins
hafi verið nokkur hundruð miHjónum verri en lánasvið Verslunar-
bankans hafi gefíð upp. Krafa eignarhaldsfélagsins var þingfest í
bæjarþingi í gær og verður tekin fyrir 22. apríl nk.
Lögmaðurinn byggir frávísunar-
kröfuna m.a. á því að Verslunar-
bankinn hafí ekki verið seljandi
hlutabréfanna á sínum tíma heldur
íslenska sjónvarpsfélagið. Þá hafi
Fjölmiðlun sf. ekki fundist á firma-
skrá hinn 2. apríl sl., enda þótt
fyrir liggi að sameignarfélög séu
"skrámngáfskýr(r, "ög þaraf léiðán'di
skorti matsbeiðanda aðildarhæfi í
máli þessu. Samkvæmt hlutahafa-
skrá íslenska sjónvarpsfélagsins
um áramót séu hluthafar þar rétt
um 200 en matsbeiðandi finnist
hvergi þar á meðal.
Þá krefst lögmaðurinn einnig frá-
vísunar vegna ákveðinna efnisat-
rið’a f gfélnáfgércf rfiáfsbéiðándá.’
)