Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 49
leei jííha .a HJOAQUTaö’í QiQAjanuoHOM MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAÖUR 5. APRÍL 1991 8L ~49 Bílbelti eru gagnleg Frá því var greint í blöðunum nýlega, að lögreglan hefði sektað marga ökumenn fyrir að nota ekki bílbelti. Fram kom, að margir öku- menn og farþegar í framsætum not- uðu ekki bílbelti. Mig langar hér til þess að segja frá reynslu manns af bílbeltum og gagnsemi þeirra. Maður þessi hafði hér áður fyrr ekki mikla trú á bílbeltum og notaði þau ekki innanbæjar, enda var það ekki skylt þá. Svo var það einn morg- uninn fyrir fáeinum árum, að úti var fjúk og akstursskilyrði með lakara móti. Þá ákvað maðurinn allt í einu mót venju að spenna á sig belti. Maður þessi hafði allmikía reynslu af akstri, sem jafnan var áfallalaus, og hann hélt, að svo yrði áfram, hann myndi ekki lenda í neinu. En þá gerðist það, — og mistök mannsins fólust í þvi, að hann fór af sérstökum ástæðum að hugsa um óskylda hluti. Hugurinn hvarflaði frá umferðinni smástund, og hann ók í veg fyrir stóran flutningabíl. Högg, skyndilegt og mikið högg! Og margt gerðist í einu: Það rigndi yfir mann- inn glerbrotum og málmflísum. Snjóflygsur komu inn í bílinn, og svo mikið var höggið, að gleraugun þeyttust af honum. Bíllinn „flaug“ alllanga leið, en kom þó niður á hjól- in, vélin hætti að ganga. Maðurinn fann fyrir verkjum, bæði í mjöðm og öxl. Kuldinn var mikill og skynj- unin undarleg, en smám saman varð vitundin skýrari. Hann hafði lent í allhörðum árekstri og bfllinn hafði skemmst mikið. Stóri flutningabíllinn virtist lítt skemmdur og menn í hon- um ómeiddir. Bflnum var síðar komið fyrir í geymslu, og maðurinn fór heim. Nokkru síðar kom læknir, sem skoð- aði manninn vel. Er læknirinn hafði séð bílinn, varð honum að orði: „Það get ég fullyrt, að ef þú hefðir ekki notað bflbelti, þá hefðir þú áreiðan- lega ekki sloppið svona vel, heldur slasast illa.“ Maðurinn var fljótur að jafna sig, en var þó með mar um tíma. Reynsla þessa manns er skýr: Ekki er ráðlegt að vera annars hug- ar smástund í umferðinni, og auðvit- að ber að aka með gát. En reynslan sýnir einnig þetta: Ef menn lenda í allhörðum árkestri, geta bflbelti verið afar gagnleg. Fyrrgreindur maður er sá sem þetta ritar. Frá þessu er sagt hér í þeim tilgangi að benda mönnum vin- samlegast á, hve gagnlegt það getur reynst að nota bílbelti, reyndar bæði í fram- og aftursætum. Annað er í raun afar heimskulegt. Rétt er og að benda á, að þetta er lagaleg skylda núna, og brot varða sektum. Og eitt atriði að lokum vegna nýlegra blaðaskrifa urn áfengi og akstur: Ef menn hafa fengið sér i glas eða bjór, eiga þeir auðvitað alls ekki að aka bfl. Og ef þeir hafa þannig verið að skemmta sér fram á nótt, eru þeir alls óhæfír til að aka þá, en einnig næsta morgun. Rétt er að benda á tvennt í þessu sambandi, sem stund- um vill gleymast: Þeir sem valda tjóni eða slysi, þegar þeir aka undir áhrif- um, missa ekki bara ökuleyfi og hljóta þunga sekt. Tryggingafélögin eiga endurkröfurétt á þá, og þau hafa nýtt sér þann rétt. Hér er oft um stórfé að ræða. Það kom fram opinberlega nú um daginn, að ýmsir, einkum ungir menn, hafa orðið að greiða háar fjárhæðir af þessum ástæðum. Þetta hefur breytt fjármál- um þeirra og lífí mjög til hins verra. Einnig er hér rétt að fliuga, — og það skiptir auðvitað mestu máli —, að menn geta með því að aka undir áhrifum valdið annarri manneskju óbærilegu og óbætanlegu tjóni, jafn- vel dauða. Vilja menn bera ábyrgð á því? Ef menn hafa neytt áfengis, ber þeim því að ganga heim eða taka leigubíl. Það kostar ekki mikið, í raun sáralítið, sé hugað að því, hvað í húfi er. Hugum að því, að íslensk menning kemur ekki bara fram í bókmenntum og listum. Hún kemur líka fram í umferðinni. Það er skynsamlegt og menningarlegt að aka með gát, hafa búnað í góðu lagi og nota belti. En það er mannfjandsamleg og giæp- samleg háttsemi að aka undir áhrif- um. Það getur hæglega valdið hlutaðeigandi og öðrum stórtjóni, örkumlum, — og dauða. Allreyndur ökumaður (6778-7919) RAÐSTEFNUR Morgunverðarfundir, hádegisverðarfundir, stórar og smáar ráðstefnur. Höfum uppá að bjóða 12 glœsilega funda- og ráðstefnusali - fyrir þig Upplýsingar gefnar i síma 22322. FLUGLEIDIR HÓTEL LOFTLEIDIR - þegarfundimir liggja í loftinu VI HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 L . Stutt námskeiö í apríl - Þæfing 8.-29. apríl kl. 19.30 Leðursmíði 9., 10. og 11. apríl kl. 19.00 Fataskieytingar 9.-30. apríl kl. 19.30 Pappírsgerð 16., 17. og 18. apríl kl. 19.30 Bútasaumur 29. og 30. apríl og l. maí kl. 19.00 Prjóntækni 22. og 24. apríl kl. 19.30 og 27. apríl kl. 10.00 Útskurður 7.-30. maí kl. 18.00 Upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans í síma 1 7800. 3., 4. og 5. apríl er skrifstofan opin frákl. 9.30-1 2.00 f.h. j TS UTSJUAN HEUDUR AHtAM Nýir eigendur, T.S. húsgögn og hurðir, heldur nú út- sölu á lager Bústofns hf. til að rýma fyrir nýjum vörum. Sjaldan hefur gefist betra tækifæri til að eignast vönduð og falleg húsgögn í stofuna, eldhúsið, borðstofuna, svefnherbergið, anddyrið, garðskálann, sumarhúsið eða garðinn. Öll húsgögn á lægra verði en áður: Leðursófasett - T ausófasett - Sófaborð - Svefnsófar - Vegghillur og veggsamstæður - Borðstofusett - Stakir stólar og borð - Skrifborðsstólar - Reyrborð og hillur - Veggspeglar - Rimlagluggatjöld - Fatahengi og margt, margtfleira. Ath: 10% kynningarafsláttur af hurðum meðan á útsölunni stendur. ÚTSALA með allt að 60% afslætti! SMIÐJUVEGI6, KOPAVOGI. SÍMAR 44544 OG 44117.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.