Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 10
10
.MQRQUNBLAÐII) FÖ3T.UDAGUR 5. .APRÍL 1991
MorgunDiaoio/övemr
í Baðstofunni, frá vinstri: Sigríður Bjarnadóttir í varasljórn, Siguroddur Magnússon ritari, Gissur
Símonarson formaður, Helgi Hallgrímsson varaformaður og Guðmundur J. Krisljánsson gjaldkeri.
Baðstofa iðnaðarmanna
komin í upprunalegt horf
BAÐSTOFA iðnaðarmanna á efsta Iofti Gamla iðnskólahússins
við Lækjargötu, sem gjöreyðilagðist í bruna í júní árið 1986, er
nú komin í upprunalegt horf. Baðstofan var endurbyggð að öllu
Ieyti, því ekki var hægt að nota neitt af því, sem bjargaðist úr
brunanum nema ljósakrónur, sem voru gerðar upp og komið
fyrir á sínum stað.
Baðstofan var fyrst tekin í
notkun 18. desember 1926. Hún
var fundarsalur Iðnaðarmannafé-
lagsins í Reykjavík og hafði
stjómin þar aðstöðu fyrir bækur
og skjöl félagsins. Iðnaðarmanna-
félagið notaði Baðstofuna fyrir
félagsstarfsemi sína og stjórninni
var heimilt að Ieigja hana sériðna-
félögum og félagsmönnum Iðnað-
arfélagsins til funda og annarra
athafna í þágu iðnaðarins. Fyrsta
Iðnþing íslendinga var þar haldið
og síðustu árin, sem Iðnskólinn
var í húsinu, var kennt þar. Síð-
ast notaði félagið Baðstofuna fyr-
ir aðalfund um mánuði fyrir bmn-
ann.
Rishæðin gjöreyðilagðist í
brunanum og eins loft milli ann-
arrar hæðar og risins. Brunavam-
arveggur varnaði því að eldur
kæmist í Búnaðarfélagshúsið, en
búið var að blása steinull í
útveggjagrindina, sem bjargaði
Gamla iðnskólahúsinu frá því að
brenna til grunna.
Borgarráð tók þá ákvörðun að
endurbyggja húsin og var verkinu
hraðað samkvæmt tillögum Dav-
íðs Oddssonar, borgarstjóra. Um
tveimur árum síðar var ákveðið
að Dómkirkjusöfnuðurinn í
Reykjavík fengi húsið til leigu
gegn því að sjá um frekari endur-
byggingu og vora teikningar, sem
Leifur Blumenstein gerði, sam-
þykktar í Byggingamefnd
Reykjavíkur 14. september 1989.
Framkvæmdir hófust í nóvember
sama ár og lauk með vígslu safn-
aðarheimilisins 14. september
1990. Kjartan Gunnarsson sá um
framkvæmdiraf hálfu Dómkirkju-
safnaðarins, en verktakafyrirtæk-
ið Istak var aðalverktaki. Gissur
Símonarson og Helgi Hallgríms-
son ásamt öðrum stjórnarmönn-
um Iðnaðarmannafélagsins gáfu
forsögn um endurbygginguna, en
þegar búið var að endurnýja burð-
arviði, einangra þak og ganga frá
gólfi í rishæð tók félagið að sér
framkvæmdir við Baðstofuna.
Markmiðið var að færa Bað-
stofuna í upprunalegt horf og var
stuðst við ljósmyndir og það af
þiljum, öndvegissúlum og burðar-
viðum, sem bjargaðist úr brunan-
um. Trésmiðjan Grein hf. annaðist
alla smíði undir forystu Geirs
Oddgeirssonar. Húsgagnasmið-
irnir Þorlákur Hermannsson og
Bjöm Karlsson önnuðust smíði á
byggingarstað. Sveinn Ólafsson
skar út kyndla, og Halldór Sig-
urðsson og Hlynur Halldórsson
skáru út öndvegissúlur og höfða-
letur yfir gluggum og dyram.
Aðalsteinn Tryggvason fann
myndlista af kúplunum, sem voru
síðan pantaðir frá París. Áklæði
á bekkjum og stólum er sérofið
hjá Álafossi á Akureyri. Ásgrímur
P. Lúðvíksson sá um bólstran.
Húsgagnavinnustofa Guðmundar
Ó. Eggertssonar smíðaði húsgögn
og Órn Guðmundsson sá um út-
skurð í þeim. Málningarverk-
smiðjan Harpa gaf efni til gljá-
burðar á skarsúð og annað tré-
verk og Blikksmiðja Breiðfjörðs
gaf ristar undir setbekki. Málm-
steypa Ámunda Sigurðssonar sá
um að koma ljósakrónunum í
upprunalegt form ásamt Málm-
steypunni Hellu og fleiri aðilum.
Siguroddur Magnússon annaðist
raflagnir í ljósakrónur og kyndla
og uppsetningu á þeim.
Eyjólfur Konráð Jónsson
Þessi samningur hefði orðið eins-
dæmi í allri sögu Evrópubandalags-
ins.
Evrópusamfélagið er réttnefni,
Evrópubandalagið naumast, þó að
líklega verði erfitt að þýða heitið
rétt úr þessu. Þó er það hugsanlegt
því að flest er í breytingu nú og
stöðnun óhugsandi hvað þá að horf-
ið verði til gamalla hugmynda.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins í
Reykja víkurkjördæmi.
Vilt þú vera sólarmegin?
Sýning í dag í Golfskálanum, Grafar-
holti, frá kl. 15.00-18.00
Nýr valkostur á Spáni: Hús við golfvöll.
Kynning á húsum á Spáni í Golfskálanum, Graf-
arholti, í dag frá kl. 15.00-18.00 og laugardag
frá kl. 10.00-18.00.
Við kynnum hágæða íbúðabyggð á Costa Blanca strönd
Spánar. Um er að ræða íbúðir, raðhús og einbýlishús
íýmsum verðflokkum. Öll húsin eru einangruð og byggð
með loftrými undir gólfi. Öll þjónusta er á svæðinu.
Húseignir í þessari byggð hafa hækkað í verði um
8-10% á ári á síðustu árum.
Komið og kynnið ykkur freistandi valkost fyrir þá, sem
vilja vera sólarmegin.
Kynningarferð verður farin fljótlega.
Fasteignasalan Framtíðin, Quesada Norden.
sími622424.
Sala víns í
verslunum
stuðlar að
aukinni á-
fengisneyslu
TVEIR bandarískir vísinda-
menn, Wagenaar og Holder,
benda á í Journal ofStudies
in Alcohol að sala veikra
vína í matvörubúðum auki
áfengisneyslu.
í ýmsum ríkjum vestra er
einkasala á áfengi eins og á
Norðurlöndum, í nokkrum
fylkjum Kanada og víðar. í
Iowa og Vestur-Virginíu var
leyft að selja veik vín og bjór
í vissum matvörabúðum.
Vísindamennirnir fylgdust með
áhrifunum af því. Niðurstaðan
var sú að ekki einungis
víndrykkjan jókst heldur og
heildarneysla áfengis. I
Vestur-Virginíu jókst
víndrykkjari um 48% og í Iowa
um 93%, segir í frétt frá
Áfengisvamaráði.
jEkkert sem heit-
ir aukaaðild
eftir Eyjólf Konráð
Jónsson
Ekki er að furða þótt umræður
um Evrópuhræringar séu miklar
enda allt á fleygiferð ekki síst á
álfunni austanverðri þar sem vonir
glæðast dag frá degi um að frelsi
og lýðræði muni sigra um það er
lýkur. Síðustu gleðitíðindin eru frá
Litháen þar sem við komum nokkuð
við sögu. Við iékum djarfan leik,
og engan á að saka þótt hann gagn-
rýndi það, en öll hljótum við að
gleðjast ef okkar atbeini hefur orð-
ið til góðs.
Rétt er að játa það umbúðalaust
að vegir Evrópuþjóða eru nú vand-
rataðir. Gamlar kennisetningar og
hálfguðir fjúka eins og fis um allar
jarðir og Evrópubandalagið er kom-
ið með hálfan hugann „austur fyrir
tjald“. Það er í óðaönn að gera
samninga við fyrri fjendur. Slíkir
samningar geta verið með ýmsum
hætti. I lokagreinum Rómarsátt-
málans, „biblíu“ bandalagsins, er
annars vegar rætt um aðild að því
í 237. grein og hins vegar um tengsl
með ýmsum hætti í 238. grein. Þar
er notað orðið tengsl, association
á ensku.
Lengi hefur í umræðu hér á landi
verið notað orðið aukaaðild um ótil-
greinda samninga, fyrst við EFTA
en síðan Evrópubandalagið, vænt-
anlega þó nokkuð efnismikla samn-
inga. Nú virðist enginn vita hvemig
á því standi að orðið aukaaðild var
notað um þessa þjóðréttarsamn-
inga. Hefur þó verið gerð tilraun
til að grafast fyrir um það. Kannski
má segja að það skipti ekki miklu
máli nú, en þó getur það valdið
raglingi og misskilningi viljandi eða
óviljandi.
íslendingar hafa gert merkan
samning við Evrópubandalagið á
grandvelli 238. greinar Rómarsátt-
málans. Það var 1972 eins og kunn-
ugt er og síðan voru felldir niður
tollar gagnkvæmt. Af íslands hálfu
var um að ræða niðurfellingu tolla
á iðnvamingi frá bandalaginu, en
af þess hálfu á fiski frá íslandi.
Þennan samning þekkja menn vel
og engum hefur dottið í hug að
kenna hann við aðild að EB. Gagn-
„Ekki ætti að saka að
skjóta því hér inn að
þessi samningsgerð og
tveggja áratuga fram-
kvæmd samningsins er
gleggsta sönnun þess
að bandalagið krefst
ekki ætíð veiðiheimilda
gegn tollabreytingu.
Samningurinn hefur
verið í fullu gildi 115
ár án þess að Evrópur
bandalagið hefði hér
veiðirétt.“
kvæmu tollafríðindin tóku að fullu
gildi 1976 við lok síðasta þorska-
stríðsins.
Ekki ætti að saka að skjóta því
hér inn að þessi samningsgerð og
tveggja áratuga framkvæmd samn-
ingsins er gleggsta sönnun þess að
bandalagið krefst ekki ætíð veiði-
heimilda gegn tollabreytingu.
Samningurinn hefur verið í fullu
gildi í 15 ár án þess að Evrópuband-
alagið hefði hér veiðirétt. Menn
verða nú að fara að vita þetta.
Evrópubandalagið er sí og æ að
semja um hin margvíslegu málefni
um víða veröld og ekki síst í Evr-
ópu. Þessir samningar eru gerðir á
grandvelli 238. greinarinnar áður-
nefndu og koma veiðiréttinum auð-
vitað ekkert við. í greininni segir
að vísu að eitthvað eigi að koma
fyrir eitthvað, eða endurgjald eigi
að koma á móti þessu einhverju.
Við íslendingar segjum t.d. núna
að viðauki við svonefnda bókun 6
sé eðlilegt endurgjald vegna vax-
andi tollagreiðslna á íslenskar vörur
við inngöngu Portúgal og Spánar í
EB. Henning Christofersen varafor-
seti framkvæmdastjórnar banda-
lagsins ræddi málið við Evrópu-
stefnunefnd í september sl. og sagði
að vissulega hefðu íslendingar opn-
að markaði sína fyrir iðnvarning frá
EB og án þess að fá fríverslun með
fisk og fískafurðir. Jafnvægi þyrfti
að nást á þessu sviði. Um þetta
flutti Sjálfstæðisflokkur og Kvenn-
alisti þingsályktunartillögu fyrir
hálfu öðru ári en ríkisstjórnin hefur
þverskallast við.
Mistúikun á ummælum og að-
stæðum erlendis getur orðið okkur
dýrt spaug. Á hinn bóginn gæti
verið notalegt að sigrast á tilbúnum
óvinum svo að allir sjái nú afrekin.
En einkennilegast er það þó þegar
þeir sem telja sig harðast beijast
gegn aðild að EB eða auknum
tengsium við bandalagið skuli álíta
„kröfu" þeirra um veiðiréttindi eina
og hina sömu hvort sem við verðum
utan þess eða innan. Jafnvel heyr-
ist sú skoðun að kostur okkar I
þessu efni yrði verri ef við væram
utan EB en innan. Þess vegna
gæti verið hættulegt að við tækjum
upp almennar tvíhliða viðræður um
samskipti okkar og ríkjasamfélags-
ins.
Þegar Mitterrand Frakklandsfor-
seti fór hinum vinsanriegustu orðum
um ísland og stöðu íslendinga hér
í Reykjavík afneitaði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra t.d.
eigin orðum og lítið var með það
gert að forsetinn bauð okkur tví-
hliða saminga við Evrópubandalag-
ið um öll samskipti okkar við það.