Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991 Karl íkjól Leiklist Guðrún Þóra Gunnarsdóttir Leikfélag Dalvíkur: Frænka Charleys. Höfundur: Brandon Tiiomas. Leikstjóri: Björn Ingi Hilmars- son. Hönnun leikmyndar og ljósa: Kristján E. Hjartarson. Búningar: Þórunn Þórðardótt- ir. Karlmaður í hlutverki kven- manns hefur verið afar hlátur- vekjandi atriði í gegnum tíðina og sívinsælt á árshátíðum, þorra- blótum og öðrum samkomum. Er skemmst að minnast mikilla vin- sælda Elsu Lund í ónefndum sjón- varpsþætti. Þessi persóna, karl í kjól, er ein ástæða þess að leikri- tið Frænka Charleys hefur verið fært upp ótal sinnum hér á landi. Leikfélag Reykjavíkur hefur t.d. sýnt það fimm sinnum og þetta er í þriðja skipti sem Leikfélag Dalvíkur setur það á svið. Vinsældir þessa aldargamla leikrits felast í skoplegum atburð- um þess og ástir í Oxford í lok síðustu aldar eru í forgrunni. Leikritið gerist einn dagpart og atburðarásin er hröð. í upphafi eru öll ástamál í mikilli óvissu en þegar upp er staðið hafa allir fengið sína heittþráðu. Charles og Jack bjóða til sín tveimur yng- ismeyjum en þar sem ekki þótti siðlegt að konur væru einar með Frænkan (Sigurbjörn Hjörleifsson) að kljást við vonbiðil sinn (Steinþór Steingrímsson). ólofuðum karlmönnum buðu þeir stúlkunum undir því yfirskyni að hitta frænku Charleys. Vandræð- in eru þau að frænkan er ekki komin en vinirnir deyja ekki ráða- lausir heldur fá þeir skólafélaga sinn til þess að leika þá öldruðu sem er vellrík ekkja. Þá hefst heldur betur ófyrirséð atburðarás sem ekki verður rakin frekar því skopið í Frænku Charleys er öllu fremur sjónrænt en textalegt. Það byggist á því að áhorfendur vita betur en persónurnar sem eru í sífellu að gera sig að fífli, vita ekki að frænkan er karl í kjól. í sýningu Leikfélags Dalvíkur eru þessar skoplegu aðstæður undirstrikaðar með látbragði, árekstrum, hlaupum og snöggum skiptingum. Atriðin eru auðvitað misfyndin og það dofnaði yfir sýningunni í síðasta þætti og leik- ararnir áttu ekki eins auðvelt með að halda dampi þegar textinn, en ekki skondnar aðstæður, var ráð- andi. Ég sá fjórðu sýningu þannig að allt frumsýningarstress var horfið og fumleysi einkenndi leík flestra. I hlutverki frænkunnar var Sigurbjörn Hjörleifsson og átti hann hug og hjörtu áhorfenda í hvert skipti sem hann birtist á sviðinu í kvenmannsgervinu. Það var ekki að ófyrirsynju því Sigur- birni tókst bráðvel upp og átti smellinn leik, blakaði blævæng eins og hann hefði ekki gert ann- að um ævina. Frænkan er auðvit- að sú persóna sem allt snýst um og önnur hlutverk eru veiga- minni. Hlutverk kvennanna eru frekar sviplaus og falla alveg í skuggann af frænkunni. Leikur- inn var í heild þokkalegur og stundum alveg prýðilegur. Albert Ágústsson (faðir Jakes) og Björg- vin Hjörleifsson (þjónn Jakes) sköpuðu t.d. sniðugar persónur með hógværum og einföldum leik- máta. Leikiýmið var ágætlega hann- að og myndaði viðkunnanlega umgjörð. Skiptingin frá dagstofu í garðstofu reyndist hins vegar vera talsvert tímafrek og hefði verið réttara að hafa einfaldari leikmynd svo umstangið yrði minna. Það er gott að geta hlegið og þeir sem leggja á sig ómælt erfiði til þess að geta skemmt okkur hinum í eina kvöldstund eiga þakkir skildar. Rauður bær Bókmenntir Sigurjón Björnsson Helgi Guðmundsson: Þeir máluðu bæinn rauðan. Saga vinstri hreyfingarinnar á Norðfirði. Mál og menning. Reykjavík, 1990. 304 bls. Helgi Guðmundsson ritstjóri Þjóð- viljans, borinn og bamfæddur Norð- firðingur, ritar hér sögu vinstri hreyfingarinnar á Norðfirði, eins og hann nefnir bók sína í undirtitli. Það er hvorki saga Norðfjarðar yfír þetta tímabil (eftir 1920) né heldur ævisög- ur einstakra manna þó að hvort tveggja blandist saman við. Heldur er þetta pólitísk saga og saga bæjar- stjórnarmála, verkalýðsbaráttu og atvinnuuppbyggingar. Höfundur er verkalýðssinni og Alþýðubandalags- maður. Hann skrifar hér um félaga sína og skoðanabræður, sem hann hefur væntanlega dáð frá blautu bamsbeini og því getur hann vita- skuld ekki talist hlutlaus sagnfræð- ingur, enda þótt engin ástæða sé til þess að ætla að hann rangfæri stað- reyndir. En ljóst er frá upphafi til enda hvar hollustá hans er. Að loknum inngangi þar sem stað- hættir eru kynntir fyrir lesanda og höfundur bregður upp svipmyndum af bæjarlífi á uppvaxtarárum sínum eru þrír menn kynntir til sögunnar: Jóhannes Stefánsson (f. 1913), Lúð- vík Jósepsson (f. 1914) og Bjami Þórðarson (f. 1914). Þessir þrír menn em aðalheimildarmenn höfundar og er bókin að hluta til byggð á viðtölum við þá. Þeir em ef svo má segja burðarásar framvindunnar. Annarra heimilda er svo getið í eftirmála. Eftir að höfundur hefur fjallað allnokkuð um atvinnulíf og kjör verk- alýðs á öðmm tug aldarinnar, víkur hann sér að frásögn af upphafí verk- alýðsbaráttu, sem var eins og annars staðar barátta við kaupmannaveldið. Jónas Guðmundsson var þar framan-4 af í forsvari fyrir verkalýð og mesta driffjöður. Hann kom til Norðíjarðar árið 1921 aðeins 23 ára gmall. Fjór- um árum síðar fékk Alþýðuflokkur- inn undir forystu hans meirihluta í hreppsnefnd. Þann 1. janúar 1929 fékk Neshreppur (Neskaupstaður) kaupstaðarréttindi og átti Jónas þar mestan hlut að máli. Þegar kemur fram um 1930 taka kommúnistar að kveða sér hljóðs og endar það með klofningi Álþýðu- flokksins svo sem kunnugt er, því að það gerðist víðar en á Neskaup- stað. En ekki var Kommúnistaflokk- urinn beysinn þar í upphafi. í bæjar- stjórnarkosningunum 1934 fékk hann einungis 28 atkvæði (6,9%), en Alþýðuflokkurinn 222 atkvæði (54,5%) og fimm menn kjöma af níu. En brátt fóru hlutföllin að breyt- ast. Þrímenningarnir fyrrnefndu voru nú komnir um tvítugt og unnu saman að því af alefli að afla komm- únistum fylgis. Við næstu kosnsingar (1938) komust þeir allir þrír í bæjar- stjórn og 1946 voru þeir (Sósíalista- flokkurinn) komnir með hreinan meirihluta og halda honum enn. Neskaupstaður hefur því verið „rauð- ur“ í næstum hálfa öld. Samstarf þessara þriggja manna um málefni Neskaupstaðar stóð í fjóra áratugi. Bjami var lengst af bæjarstjóri (í rúm 20 ár) og sneri sér einkum að pólitík- inni. Jóhannes sinnti og stjórnaði atvinnurekstri á vegum bæjarins svo og félags- og menntamálum. Og Lúðvík var eins konar „sendiherra" eða „erindreki" í Reykjavík eftir að hann varð alþingismaður. Þessir þrír menn virðast hafa ráðið því sem þeir vildu. Á fjömtíu ára ferli tókst þeim í náinni sámvinnu og með ötulu fylgi meiri hluta bæjarbúa að gera Neskaupstað að einum blómlegasta byggðakjarna austanlands. Þetta er merkileg saga, sem gæti gefið tilefni til íhugunar, þó að lítt verði kafað í þá hluti hér. Allir voru þessir piltar bráðgáfaðir, þó að að- stæður leyfðu þeim litla skólagöngu. Þeir þekktu fátæktina ag kjör alþýð- Viðmiðun í Nor- ræna húsinu Myndlist Eiríkur Þorláksson Nú stendur yfir í sýningarsal Nor- ræna hússins einkasýning á verkum Erlu Þórarinsdóttur myndlistarkonu. Hún nefnir sýninguna Viðmiðun, og segir í sýningarskrá að um sé að ræða framhald af sýningu sem lista- konan hélt á Kjarvalsstöðum.haustið 1989. Þá sýningu nefndi hún Landið, og var fyrst og fremst um að ræða myndir sem tóku mið af landinu og formum þess, einfölduðum og sterk- um. Sú sýning var hin áhugaverð- asta og hlaut ágætar móttökur. Erla fylgir sýningunni í Norræna húsinu úr hlaði með örstuttri hugleið- ingu, þar sem hún leggur fram þann grunn sem hún vinnur eftir í mál- verkunum: „Ferðalaginu og ástand- inu í ferðalaginu má líkja við mynd- list. Ferðalangurinn sér hið áður óséða, kynnist hinu óþekkta, öðlast víðsýni og heldur áfram. Listin er Hvað er sagnfræði? Bókmenntir Helgi Guðmundsson unnar af eigin raun. Þeir voru reg- lusamir, hugsjónaríkir og réttlætis- kenndin ólgaði í blóði þeirra. Auðvit- að hlutu þeir því a verða róttækir, eins róttækir og hægt var að verða. En róttækni þeirra var í því fólgin að tryggja atvinnutækifæri í bænum, sjá til þess að atvinnufyrirtæki væru vel rekin og verkafólkið nyti góðs af velgengninni. Þetta varð ekki gert nema bæjarfélagið ætti og ræki fyrir- tækin. Og svo varð. í höndum þrí- menninganna og fylgismanna þeirra varð Neskaupstaður svo til eini at- vinnurekandinn á staðnum og þeir Bjarni og Jóhannes slyngir og hag- sýnir „sameignarkapítalistar". Þó að þeir teldust „rauðir" náði liturinn yfirleitt ekki langt út fyrir bæjar- félagið og þeir gættu þess að flækj- ast ekki í deilur um heimsmál eða annað þess háttar. Helgi Guðmundsson segir alla þessa sögu vel. Hann ritar lipran og lifandi stíl og þarf engum að leiðast lestur hans. Vafalaust fer hann oft fljótt yfir sögu, en við því er ekki að gera þar sem hann markaði sér - eða honum var mörkuð - lengd í upphafi. Eftir er að sjálfsögðu að skrifa sögu Neskaupstaðar (held ég), en í þeirri sögu hljóta málin að verða reifuð á breiðari grundvelli og frá öðrum sjónarhóli. Erlendur Jónsson SAGA. Tímarit Sögufélags. 286 bls. Sögufélag. 1990. Hrefna Róbertsdóttir: REYKJAVÍKURFÉLÖG. 167 bls. Sagnfræðistofnun Háskóla ís- lands. Reykjavík, 1990. Hvað er sagnfræði? Þessu eru vísir menn að velta fyrir sér í Sögu. Guðmundur Hálfdanarson skrifar um Fransí biskví eftir Elínu Pálma- dóttur og dregur í efa að þar sé um hreint sagnfræðirit að ræða en áréttar síðan: »Ég er þó alls ekki viss um að ég geri Fransí biskví rétt til með þessari gagnrýni. Hvergi kemur fram hjá Elínu að hún hafi ætlað sér að skrifa sagn- fræðirit og.því er erfitt að nota mælikvarða sagnfræðinnar við mat á bókinni.« Ekki ólíkar verða niður- stöður Lofts Guttormssonar um Snorra á Húsafelli er hann segir að Þórunn Valdimarsdóttir hafi »gerst vísvitandi rithöfundur«. Vitanlega er sagnfræði eitt, sög- uritun annað. Umrædd rit munu bæði hafa verið samin til fróðleiks og skemmtunar eins og sagt er. Enda er markaður fyrir hrein fræði- rit jafnan takmarkaður á landi hér. Árangurinn varð líka sá að bæði ritin náðu athygli fjölmiðla og þar af leiðandi markaðshlutdeild langt fram yfir það sem gerist og gengur um ómenguð fræðirit. En eftir á að hyggja — hver leyf- ir sér ekki að skálda í fræði sín? Sagnfræðingar, sem mikils meta orðstír sinn, láta að vísu sjaldnast eftir sér að gera söguhetjum upp hugsanir og tilfinningar. Hins vegar setja þeir oft fram háalvarlegar »kenningar« í þeim yfirlýsta til- gangi að varpa skýrara ljósi á efn- ið; rökstyðja þær vitanlega en geta sjaldnast sannað þær beinlínis. Þess háttar fræðikenningar mættu því gjarnan flokkast sem hugarburður og eru því, þegar öllu er á botninn hvolft, eins konar skáldskapur! Framt að helmingur þessarar Sögu fer undir ritdóma og and- mæli við umsögnum. Að öðru leyti ber ritið sinn venjulega svip. Lengsta ritgerðin er eftir Aðalgeir Kristjánsson og Gísla Ágúst Gunn- laugsson og heitir Félags- og hag- þróun á íslandi á fyrri hluta 19. aldar. Þeir, Aðalgeir og Gísli Ágúst, minna á að allt fram undir miðja 19. öld hafi verið talið að ísland framfleytti ekki fleiri en 50 þúsund manns, og þá miðað við hagstætt árferði. Á síðari hluta 19. aldar tók íbúatalan i fyrsta skipti að stíga upp fyrir þau mörk. Niðurstaðan af athugunum þeirra verður sú að »umbætur í búnaði, sjávarútvegi og verslun . . . hafi lyft því „þaki“ sem innri og ytri skilyrði settu íbúa- fjölda á 18. öld«, þannig að fólki hafi þá fyrst getað fjölgað áfalla- laust. Ennfremur benda þeir á veru- lega útþenslu byggðar sem skapaði skilyrði fyrir fjölgun heimila á 19. öld. Ævilöng vinnumennska haí'i samt enn um sinn orðið hlutskipti margra, eða þar til er þéttbýlis- myndun hófst við sjávarsíðuna og aðrar atvinnugreinar gátu tekið við fjölguninni. Athyglisverð er og ritgerðin Forn hrossreiðalög og heimildir þeirra. Drög til greiningar réttarheimilda Grágásar, eftir Sveinbjörn Rafns- son. Sveinbjörn telur að áhrifa suð- ræns réttar á skandínavískt réttar- far hafi tekið að gæta hér er líða tók á miðaldir og sjái þess stað í íslenskum lögum frá þeim tíma. í lánsfjárleit heitir þáttur sem Lýður Björnsson hefúr tekið saman eftir bréfum Péturs Halldórssonar sem var borgarstjóri í Reykjavík 1935-40. Hitaveituframkvæmdir voru þá í sjónmáli en til þeirra varð að taka erlent lán. Að fá þess hátt- ar lán var þá hvergi nærri auðvelt. Bankastjórar, hvort heldur var í Englandi eða Skandínavíu, drógu í efa að íslendingar gætu staðið í skilum, jafnvel þótt lánið væri tryggt með ríkisábyrgð. Danskur bankastjóri sagði í gamni og alvöru að íslendingar væru svo skuldseigir að þeir borguðu ekki fyrr en þeir væru rukkaðir! Athyglisvert er að Pétur vildi halda máli þessu strang- lega leyndu til að »forðast allt glam- ur og þvaður, ekki síst blaðaskrum og illdeilur og fjandskap, sem alltaf rís um hvaða mál sem er«. Þegar þarna var komið var skjótlega búist við heimsstyijöld og auðveldaði það síður en svo lánsfjárleitina. Þá ritar Haukur Sigurðsson Upp- haf íshúsa á íslandi og Árni Daníel Júlíusson Áhríf fólksfjöldaþróunar á atvinnuhætti gamla samfélagsins og er þá að mestu upptalið efni þessarar Sögu. Bókin Reykjavíkurfélög eftir Hrefnu Róbertsdóttur fjallar um félagshreyfingu og menntastarf á ofanverðri 19. öld, eins og það er orðað á titilsíðu. Svo sem mörg fyrri rit Sagnfræðistofnunar er þetta að stofni til prófritgerð sem síðan var búin til prentunar með »dálitlum breytingum«. Og Hrefna hefur í raun af nógu að taka. En sem kunnugt er varð víðtæk félagsvakning á seinni hluta 19. aldar, bæði hérlendis og erlend- is, vegna frelsisöldu þeirrar sem þá gekk yfir Evrópu. Aður — undir einveldinu — urðu félög annað tveggja: að lúta vilja yfirvalda eða fara leynt. En leynt urðu að fara þau félög sem á einhvern hátt var stefnt gegn ríkjandi stjórnarfari. Leynd Kvöldfélagsins, sem stofnað var í Reykjavík upp úr miðri öld- inni, verður varla skilin öðruvísi en svo að félagar hafi talið sig arftaka þess háttar leyniféiaga þó þeir þyrftu í sjálfu sér ekkert að óttast og hefðu þess vegna getað starfað fyrir opnum tjöldum. Nema leyndin hafi verið höfð til gamans einungis! En hver var svo tilgangurinn með stofnun þessara félaga? Pólitísk voru þau ekki, að minnsta kosti ekki í þeim skilningi sem nú væri lagður í orðið. Með óbeinum hætti má þó segja að þau hafi tengst sjálf- stæðisbaráttunni. Þar sem fræðslu- skylda var ekki k'omin á buðu sUm 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.