Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991 19 V eiðar á villigötum? eftir Magnús Jónsson I fyrrasumar var ég staddur í fjö- runni norðut á Sauðárkróki með ungum syni mínum illa höldnum af veiðidellu (honum er jú eðlilegt að veiða eins og okkur flestum). Þá reik- aði hugurinn meira en 30 ár aftur í tímann, þegar ég, ásamt öðrum gutt- um á Króknum vorum daglega, sum- arlangt, að veiða silung á stöng. Nokkrum árum seinna tók ég sem unglingur þátt í að veiða silung og lax í nót við þesSa sömu fjöru og fá upp í nokkur hundruð stykki í kasti. Auðvitað sáu menn að þetta var rán- yrkja og bönnuðu ósómann. En enn- þá mega guttarnir á Króknum veiða á stöng. Frá landnámi hafa íslendingar getað gengið á tveim jafnfljótum um landið sitt án leyfis. Á þessari öld hafa hinsvegar komið alls konar far- artæki sem geta ofboðið náttúrunni ef þau fara um með fullu frelsi um landið. Þess vegna hafa verið settar reglur um ferðir ijórhjóla, jeppa og annarra farartækja og þau víða bönnuð á vissum tímum, þótt við fáum ennþá að fara fótgangandi um landið okkar, enda ekki ástæða til annars. Búsnilld Hrafna-Flóka í 1000 ár veiddum við fisk úr sjó og vötnum með önglum og lulum náttúrunni. Síðan koni tæknibylting- in. Upp úr miðri öldinni voru hér meira en 200 togarar sem öfluðu. allt að hálfri milljón tonna af þorski árlega. Þar kom að margir óttuðust ofveiði og við fórum í landhelgisstríð og unnum. Á þessum árum datt eng- um í hug að banna veiðar með öngl- um, þótt við vildum takmarka veiðar með trolli. En á áttunda áratugnum greip okkur rétt eitt íjárfestingaræð- ið og byggðum upp togaraflota sem getur afkastað eins og 500 síðutog- arar og auðveldle'ga gæti dregið eina milljón tonna af þorski að landi ár- lega. En áður en þessi uppbygging fór fram jusum við upp öðrum helsta fæðustofni þorsksins, síldinni, að hann hefur ekki sést síðan 1967. Og nú erum við í hinum fæðustofninum sem trúlega fer á sömu leið, ef held- ur fram sem horfir. Þannig hrekjum við þorskinn á flótta vegna fæðu-. skorts eða neyðum hann til sjálfsáts á þeim seiðum sem kafna ekki í leir- eða sandmekki troll- og snurvoðar- skarksins. Það liggur við að maður beri virðingu fyrir búmennskuráð- deild Hrafna-Flóka. Róið eftir beinum Og lítið betra tekur við þegar veitt er með netum og oft er lítið hugsað um samspil veðurs og veiða. Nú eru menn hættir að landa ónýtum neta- fiski eftir 5-10 daga brælur. En bræl- urnar eru ekki hættar, og netin ekki hætt að veiða nema síður sé. Ég þekki mann sem fyrir tólf árum dró net eftir 10 daga brælu í Reykjanes- röstinni. Og aflinn var allur hirtur: Nærri 20 tonn af beinum úr þorski og ufsa. Nú landa menn ekki svona afla, enda kvóti. En það er ekki nema hálfur annar mánuður síðan síðasta 10 daga bræla var hér SV-lands. Tálsýnin mikla Það er mikil tálsýn ef menn halda að sjómenn dagsins í dag séu al- mennt að hugsa um veiði sjómanna árið 2000 eða 2005, frekar en að sjómenn 1960 hugleiddu veiði starfs- bræðra sinna 1990 og ég lái þeim það ekki. Nýlegt dæmi staðfestir það, þar var sagt frá því, að meiri- hluti togaraflotans hafi verið í mok- „í ljósi þessara stað- reynda er að mínu mati stórmerkilegt að meiri- hluti löggjafarsam- kundunnar með sjávar- útvegsráðherrann í broddi fylkingar skuli sjá það sem mikilvirka leið til að takmarka veiðina að úthluta bát- um sem veiða með öngla allt niður í nokkra fiska á ári.“ veiði dögum saman þar sem helming- ur aflans var smáfiskur. Og það er opinbert leyndarmál að mikill hluti smáfisksins fer dauður í sjóinn. Eng- inn veit hversu miklu er hent af smáum eða ónýtum fiski en ýmsir hafa giskað á a.m.k. 20% af magni sem þýðir miklu hærri tölu í fjölda fiska. Reykingabann við Persaflóa í ljósi þessara staðreynda er að mínu mati stórmerkilegt að meiri- hluti löggjafarsamkundunnar með sjávarútvegsráðherrann í broddi fylkingar skuli sjá það sem mikilvirka leið til að takmarka veiðina að út- hluta bátum sem veiða með öngla allt niður í nokkra fiska á ári. Veiðar- færi sem skilar-besta og nýjasta hrá- efninu, veiðarfæri þar sem fiskurinn ræður ferðinni og veðráttan tak- markar sóknina! Þvílíkt rugl!!! Það er svona álíka gáfulegt og að emírinn í Kúveit bannaði reykingar til að draga úr loftmengun f landinu, þar sem 600 olíulindir standa í björtu báli! Margar spurningar, fá svör Ótal spurningar koma upp þegar þessi mál eru hugleidd en oft er fátt um svör. Hvaða áhrif hefur t.d. hið gríðarlega togálag á miðunum á klak og uppvaxtarskilyrði seiða. Hvaða áhrif hefur það á mörg hrygningar- svæði að þau eru nánast þakin net- um. Sem leikmanni finnst mér afar líklegt að þetta rask geti haft veru- leg áhrif. Ég held að bændur teldu það ekki árangursríkt að keyra hey- biásara eða haugsugu á fullu í fjár- húsunum yfir fengitímann eða iáta sláturtíðina falla saman við sauð- burðinn! Er það tilviljun að 5 ár í röð hefur hrygning og klak mistekist að veru- legu leyti hjá þorskinum, þrátt fyrir að aðstæður í sjónum séu ekki slæm- ar? Hvaða áhrif hefur þessi mikla loðnuveiði og á árum áður síldveiðin sem leiddi til hruns stærsta síldar- stofns í N-Atlantshafi. Ileilbrigð skynsemi kallar fram varnaðarorð. Muna menn eftir því þegar við töluðum með mikilli fyrirlitningu um ryksuguflota annarra þjóða? Nú eig- um við öflugri ryksugur en nokkur önnur þjóð. Er svarið við útrýmingar- getu ryksuguflotans takmörkun á önglaveiðum við nokkur kíló af þorski og ýsu á bát á ári? Pólitískir valkostir Alþýðuflokkurinn er eini stjórn- málaflokkurinn í landínu sem vill gerbreytta fiskveiðistefnu. Fram- sókn vill að sjálfsögðu halda í kerfið enda tryggir það skömmtun og fyrir- greiðslu með endalausum bjargráð- um handa einhveijum. Framsóknar- vist þar sem spiluð er nóló, og mark- miðið er að þjóðin fái sem fæsta slagi og að ásarnir séu alltaf lægstir. Sjálf- Magnús Jónsson stæðisflokkurinn spilar að vísu bridge en nýkjörinn formaður, sem ku lúnkinn spilari, fékk það óvenju- lega verkefni í einu stærsta hags- munamáli þjóðarinnar að spila sögn- ina pass í fyrstu rúbertunni á landsv- ísu. Hjá hinum flokkunum er vitlaust gefið enda þeir uppteknir í innri málum s.s. tilvistarkreppu, útrým- ingarhættu eða kynskiptingu. Alþýðuflokkurinn vill að í stað skömmtunar komi frelsi, samkeppni og markaðssetning og að öll þjóðin en ekki bara kvótakóngarnir njóti góðs af þessari sameiginlegu auðlind. Með því að auka vægi önglaveiða í framtíðinni, má færa sterk rök fyrir því að . fiskigengd og heildarveiði myndi smám saman aukast í stað þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað allan síðasta áratug, þar sem heildarveiðin hefur minnkað eftir því sem afkastageta flotans hefur auk- ist. Því fyrr sem við byijum þeim mun betra. Höfundur er veðurfræðingur og skipar 4. sætiá lista Alþýðuflokksins í Reykjavík. ‘Dcmslýir vordagar 1991 '"‘Va ttkz íqitturm OPIÐTIL 5. MAI Listasafn íslands: Sýningin: "DANSKIR SÚRREALISTAR 1930- 1950" opnar. Verk eftir Harry Carlsson, Wilhelm Freddie, Rita Kernn Larsen, Vilhelm Bjerke Petersen og Elsa Thoresen. Sýningin stendurfram til 5. maí og er a&gangur ókeypis. Laugardagur 6. apríl kl. 14:00 Hóskólabíó: Opnun kvikmyndaviku. VERÖLD BUSTERS - BUSTERS VERDEN (1984) Leikstjóri: Bille August. NÚTÍMAKONA - DAGENS DONNA (1990) Leikstjóri: Stefan Henszelman. VIÐ VEGINN - VED VEJEN (1988) Leikrtjóri: Max von Sydow. JEPPI Á FJALLI - JEPPE PÁ BJERGET (1981) Leikstjóri: Kaspar Tostrup. ÁRÓSAR UM NÓTT - ÁRHUS BY NIGHT (1989) Leikstjóri: Niels Malmros. ÍSBJARNADANS - LAD ISBJÖRNERNE DANSE (1990) Leikstjóri: Birger Larsen. Sjá nánar í auglýsingum Háskólabíós. LAUGARDAGUR 6. APRÍL KL. 15:00 Norræna húsib: Opnun á norrænni bókbandssýningu. Danski bókbindarinn og forvörburinn Arne Moller Pedersen sýnir verblauna bækur úr norrænu bókbandskeppninni. Sýningunni lýkur 21. apríl. SUNNUDAGUR 7. APRIL KL. 20:00 Hóskólabíó: Tónleikar Jazzvakningar og Háskólabíós. Niels Henning Órsted Pedersen, bassi, Ulf Wakenius, gítar, Alvin Queen, trommur. Forsala abgöngumiba hefst í hljómplötudeild Fálkans og í Háskólabíó þribjud. 2. apríl. SUNNUDAGUR 7. APRÍL KL. 20.30 Bústabakirkja: . Tónleikar Kammermúsikklúbbsins. Danska Damgárd-tríóib leikur verk eftir Mozart, Bentzon og Dvorak. Verb abgöngumiba kr. 1.000,- MÁNUDAGUR 8. APRÍL KL. 13:00 Norræna húsib: Hanne Vibeke Holst, rithöfundur, talar um bækur sínar "Til sommer", "Nattens kys" og Hjertets renhed". MÁNUDAGURINN 8. APRÍL KL. 15:00 Mól og menning: Kynning á dönskum nútímabókmenntum í Bókabúb Máls og menningar, Lauga- vegi 18. Danski rithöfundurinn Hanne Vibeke Holst verbur á stabnum. MÁNUDAGUR 8. APRÍL KL. 20.30 Norræna húsib: Lars Kohler, forstöbumabur U.M. grafík- verkstæbisins í Kaupmannahöfn flytur fyrirlestur um grafíklist. LAUGARDAGUR 13. APRÍL KL. 14:00 Listasalurinn Nýhöfn: Opnun sýningar á danskri grafíklist frá U.M. grafíkverkstæbinu í Kaupmannahöfn. Sýningunni iýkur 23. apríl. LAUGARDAGUR 13. APRÍL KL. 20.30 Norræna húsib: Fyrirlestur danska rithöfundarins og tónlistarmannsins Peter Bastians: "Hvab er tónlist?" SUNNUDAGUR 14. APRÍL KL. 17:00 Norræna húsib: Danski listfræbingurinn og gagnrýnandi Politikens, 0ysten Hjort, flytur fyrirlestur um danska myndlist. SUNNUDAGUR 14. APRÍL KL. 20:30 Norræna húsib: Tónleikar danska píanóleikararns Peter Westenholz. MÁNUDAGUR 15. APRÍL KL 17:15 Norræna húsib: Danski tónlistarmaburinn og rithöfundurinn, Peter Bastian, flytur fyrirlestur: "Vitsmunir og tónlistargáfa". MÁNUDAGUR 15. APRÍL KL 20.30 Norræna húsib: Tónleikar Blásarakvintetts Reykjavíkur ásamt danska píanóleikaranum Peter Westenholz. styrkir vordagana

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.