Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 52
- svo vel | sé tryggt ^sgustMjiMfr FOSTUDAGUR 5. APRIL 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Davíð Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins: Akvörðun um inngöngu í EB á að bera undir þjóðina ísafírði. Frá Agnesi Bragadóttur, blaðamanni Morgunblaðsins. DAVÍÐ Oddsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagði á almennum stjórnmálafundi í Stjórnsýsluhúsinu hér á Isafirði í kvöld, að hann teldi að ef samningaviðræður við Evrópubandalagið kæmust á það stig að innganga í EB blasti við, ætti að bera slíka ákvörðun undir þjóðina alla. Davíð svaraði fyrirspurn þess efnis hvernig ísland gæti vænst þess að njóta einhverra sérréttinda í viðræðum við EB á eftirfarandi hátt: „Ég held að það sé ekki óeðli- legt að gera ráð fyrir því að okkar sérstaða yrði metin að verðleikum. Við erum Evrópuríki og Evrópurík- Bón og bjór á Land- eyjasandi Hvolsvelli. UNDANFARIÐ hefur mikið af bóni og uppþvottaefni rekið á fjörur Landeyinga. Mest bar á þessu fyrir u.þ.b. þremur vikum og hefur nú mjög dregið úr rekanum enda átt snúist til norðurs. Að sögn bónda nokkurs í Landeyjum hefur töluvert bor- ið á reka í allan vetur. Fyrri hluta vetrar bar mest á því að bjór ræki og er sagt að það séu einungis bindindismenn sem þurfi að hafa með sér kaffi í fjöruferðir. í mars fór svo að reka á land þvottaefni og tvær teg- undir af bóni. Þess munu dæmi að eini og sami bóndinn hafi fundið allt að 50 brúsa af bóni. Þessi reki hefur borist allt austur til Víkur og mun vera úr gámi sem tók út af íslensku skipi snemma á þessu ári. Landeyingum þykir fengur að reka þessum. Þetta er hið besta bón og kostar skilding- inn útúr búð. - S.Ó.K. in vilja að við séum í því samfélagi með beinum eða óbeinum hætti. Við eigum að horfa til viðræðna við Evrópubandalagið og þau ríki sem það mynda af fullri einurð og sjálfs- trausti." En Davíð sagði að í þvf fælist ekki að íslendingar ætluðu óhikað, hvað sem það kostaði, að ganga inn í evrópskt efnahagssvæði annars vegar eða inn í Evrópu- bandalagið hins vegar. „Ef kostirnir eru okkur ekki hag- kvæmir þá höfnum við þeim. Við byggjum okkar afkomu — okkar tilverugrundvöll — svo mjög á ein- um meginþætti efnahagslífs að við getum ekki samið um inngöngu í Evrópubandalagið eða evrópskt efnahagssvæði ef þeir hagsmunir sem þeim málaflokki lúta eru fyrir borð bornir,“ sagði Davíð. Davíð sagði jafnframt: „Ég er þeirrar skoðunar að ef þessar samn- ingaviðræður komast svo langt að menn ætli að ganga inn í Evrópu- bandalagið, þá sé þar um að ræða slíka breytingu á stjórnskipun landsins og högum þess að slíka ákvörðun ætti með sérstökum hætti að bera undir þjóðina alla.“ Davíð var annar frummælandinn á þessum fjölmenna stjórnmála- fundi á Isafirði og Matthías Bjarna- son fyrsti þingmaður Vestfjarða hinn. Varðandi fyrirspurn um jöfn- un húshitunarkostnaðar sagði Dav- íð meðal annars: „Landsvirkjun greiðir ríkinu nú nálægt 100 millj- ónum króna sem hún hefur ekki gert áður. Annars vegar er það arðgreiðsla og Jiins vegar ríkis- ábyrgðargjald. Ég tel sjálfsagt að þær greiðslur gengju strax til verk- efnis eins og þessa. sem væri þá nálægt því að vera helmingur þeirr- ar upphæðar sem fyrirspyijandinn nefndi að þyrfti til.“ Akureyrartogararnir halda til veiða: Morgunblaðið/Rúnar Þór Harðbakur EA, einu af ísfisktogurum Utgerðarfélags Akureyringa, kominn frá bryggju á síðdegis í gær og á leið á miðin eftir nokk- urra daga stopp vegna uppsagna sjómanna. Sjómönnum á Fáskrúðs- firði boðið sama fiskverð Viðræður um fiskverð á Austfjörðum og Sauðárkróki HRAÐFRYSTIHUS Fáskrúðs- fjarðar hf. bauðst í gær til að greiða sjómönnum á togurunum Ljósafelli SU og Hoffelli SU sama fiskverð og_ sjómenn á ís- fisktogurum Utgerðarfélags Akureyringa hf. samþykktu í gær. Tilboðinu verður trúlega svarað í dag en sjómenn á Fá- skrúðsfirði sögðu upp störfum 26. mars sl. vegna óánægju með Pálmi Jónsson í _ Hagkaup látinn PÁLMI Jónsson, stofnandi og aða- leigandi verslunarfyrirtækisins Hagkaups, lést á Landspítalanum í gær. Hann var 67 ára að aldri. Pálmi fæddist 3. júní 1923 á Hofi á Höfðaströnd í Skagafirði, sonur hjónanna Jóns Jónssonar bónda á Hofi og Sigurlínar Björnsdóttur. Pálmi varð stúdent frá Menntaskól- anum í Reykjavík árið 1942 og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla íslands 1951. Pálmi stofnaði verslunina Hag- rkaup árið 1959 og rak til dauða- dags. Hann ruddi nýjar brautir- í verslunarháttum, Hagkaup varð fyrsti íslenski stórmarkaðurinn og er nú eitt af stærstu verslunarfyrir- tækjum Iandsins. Eftirlifandi eiginkona Pálma er Jónína Sigriður Gísladóttir. Þau eignuðust fjögur börn, Sigurð Gísla, Jón, Ingibjörgu Stefaníu og Lilju Sigurlínu. Pálmi Jónsson fiskverð. Áhöfnin á togaranum Sunnutindi frá Djúpavogi hefur einnig sagt upp störfum en hún hefur krafist 417» heimalöndun- arálags. Þá vilja sjómenn á tog- urum frá Sauðárkróki, Nes- kaupstað, Eskifirði og Breið- dalsvík viðræður um nýtt fis- kverð. Fiskverkafólk hjá Hraðfrysti- húsi Fáskrúðsfjarðar hf., Fiskiðju- samlagi Húsavíkur hf. og Útgerð- arfélagi Dalvíkinga Hf. hefur skrif- að sig á lista, þar sem beðið er um viðræður um að laun þess verði nú þegar hækkuð í samræmi við fiskverðshækkanir hjá fyrirtækj- unura. Tryggvi Finnsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjusamlags Húsavíkur, segir að ekki sé svig- rúm til að hækka laun fískverka- fólks hjá fyrirtækinu. Hann segir að enda þótt fyrirtækið hafi hækk- að fiskverð hafi verð á rækju lækk- að. Sjómenn á toguruni frá Sauðár- króki, Neskaupstað og Djúpavogi hafa fengið 20% heimalöndunar- álag en hluti af aflanum er seldur á erlendum fiskmörkuðum. Við- ræður við sjómenn á togurunum Skafta SK, Skagfirðingi SK og Hegranesi SK um nýtt fiskverð hefjast í næstu viku, að sögn Ein- ars Sveinssonar framkvæmda- stjóra Fiskiðju Sauðárkróks hf. „Ég geri ráð fyrir að menn vilji skoða möguleika á markaðsteng- ingu,“ kegir Einar. Áhafnir á togurum Síldarvinnsl- unnar hf. á Neskaupstað setja fram kröfur með hliðsjón af Akur- eyrarsamningunum, að sögn Jóns Inga Kristjánssonar, trúnaðar- manns á Bjarti NK. Finnbogi Jóns- son, framkvæmdastjóri Síldar- vinnslunnar, .segir að samningar á Neskaupstað geti ekki orðið eins og Akureyrarsamningarnir, þar sem hluti af' afla togara Síldar- vinnslunnar sé seldur á erlendum fiskmörkuðum. Stefnt er að því að selja 15% af afla Sunnutinds SU á erlendum fiskmörkuðum í ár, að sögn Ingólfs Sveinssonar, fram- kvæmdastjóra Búlandstinds hf. á Djúpavogi. Sjómenn á togurum frá Fá- skrúðsfírði, Eskifirði, Þórshöfn, Þingeyri og Siglufirði hafa fengið 30% heimalöndunarálag en togar- inn Stakfell ÞH frá Þórshöfn fryst- ir hluta aflans. Fáfnir hf. á Þing- eyri greiðir sjómönnum á Slétta- nesi IS og Framnesi ÍS 30% heima- löndunarálag fyrir flokkaðan þorsk en 25% af aflanum er seldur á erlendum fiskmörkuðum, að sögn Andrésar Guðmundssonar hjá Fáfni. Sjómenn á Kambaröst SU sömdu í haust um 28% heimalönd- unarálag til 31. ágúst næstkom- andi, að sögn Jónasar Ragnarsson- ar, framkvæmdastjóra Hraðfrysti- húss Stöðvarfjarðar hf. Sjómenn á Þórhalli Daníelssyni SF og Stokks- nesi SF fá greitt fyrir hluta þess afla, sem landað er heima, það yerð sem fengist hefur á erlendum fískmörkuðum næstliðna 12 mán- uði, en lítill hluti af aflanum er seldur á erlendum mörkuðum, að sögn Hermanns Hanssonar, kaup- félagsstjóra KASK. Sjá einnig frétt á bls. 30. Eignarhaldsfélag Verslunarbankans: Einar Sveinsson stj órnarformaður Á AÐALFUNDI Eignarhaldsfélags Verslunarbankans hf. í gær voru tveir nýir stjórnarmenn kosnir í margfeldiskosningu sem þar fór fram. Haraldur Haraldsson formaður stjórnar félagsins og Þorvald- ur Guðmundsson náðu ekki kjöri í aðalstjórn en í þeirra stað voru kjörnir Rafn Johnson og Þórður Magnússon. í kosningunni hlaut Guðmundur H. Garðarsson flest atkvæði en næstir á eftir honum hvað atkvæða- magn snertir voru í þessari röð: Þórður Magnússon, Orri Vigfússon, Rafn Johnson, Einar Sveinsson, Þoi’valdur Guðmundsson og Harald- ur Haraldsson. Einar Sveinsson var kjörinn stjórnarformaður á fyrsta fundi stjórnar að afloknum aðalfundinum. Sjá fréttir af aðalfundum eigarhaldsfélaganna á bls. 2.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.