Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 15
14
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
Um heilsuverndarmál
eftir Skúla G.
Johnsen
Saga Heilsuverndar-
stöðvarinnar
í fyrri grein var um það rætt,
að ekki hefðu orðið þær framfarir
í heilsuverndarmálum, sem ætla
mætti miðað við það hve mikið
menn tala um nauðsyn þess að
auka allar forvarnir. Því til stuðn-
ings var það rakið hvernig fjárfram-
lögum til Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur var hagað á árabilinu
1970-1986. Einnig var greint frá
því að sérstök framlög til forvarnar-
verkefna á fjárlögum hafa lítið auk-
ist á undanförnum árum. Hvort
tveggja er til vitnis um að hlutur
heilsuverndar hefur lítið vaxið.
Um það vitnar einnig saga
Heilsuvemdarstöðvar Reykjavíkur
sem tók til starfa árið 1954. Heilsu-
verndarstöðin var byggð sem full-
komin heilsuverndarstöð. Þar átti
að sinna fjölmörgum heilsuverndar-
greinum og taka upp margar nýjar.
Bréf Vilmundar Jónssonar
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
er fyrst nefnd í bréfi, sem Vilmund-
ur Jónsson, þáverandi landlæknir,
skrifaði bæjarstjóminni í Reykjavík
í febrúar 1934. í bréfinu er minnt
á, að Reykjavíkingar hafi notið þess
umfram aðra, sem ríkið hafði gert
í sjúkrahúsmálum með byggingu
Landspítalans. Hvetur hann til þess,
að í staðinn gerist Reykjavíkurbær
brautryðjandi í heilsuvemdarmálum
með því að reisa fullkomna heilsu-
verndarstöð fyrir Reykjavík „eftir
bestu erlendu fyrirmyndum og helst
tiltölulega fullkomnari, miðað við
fólksfjölda og aðrar aðstæður, en
annars staðar þekkjast". í bréfí
landlæknis er lýst fjölmörgum
greinum heilsuverndar, sem eigi að
rækja á slíkri stofnun: -
1. mæðravemd,
2. ungbamavemd,
3. barnavemd,
4. almennar sóttvamir,
5. berklavarnir.
Allar voru það heilsuvemdar-
greinar, sem tekist hafði að koma
á fót hér í Reykjavík en bjuggu við
mjög ófullnægjandi húsnæði. Þessi
starfsemi, að undanteknum sótt-
vörnum, var ekki síst að þakka
framtaki hjúkrunarfélagsins Lfkn-
ar. Til viðbótar eru nefndar nýjar
greinar heilsuverndar, sem eigi að
starfrækja í hinni nýju heilsuvernd-
arstöð og voru þær eftirfarandi:
1. kynsjúkdómar,
2. krabbameinsvarnir.
3. varnir gegn blindu,
4. slysavarnir,
5. áfengisvarnir,
6. tobaksvarnir,
7. vímuefnavarnir.
8. næringarráðgjöf,
9. eftirlit með íþróttamönnum,
10. kynfræðsla,
11. geðvernd.
Sá skilningur á hlutverki heilsu-
verndar, sem iýsir sér í bréfi Vil-
mundar, er aðdáunarverður og ein-
stakur. í þessu efni var hann langt
á undan sinni samtíð og þó bæjar-
stjórnin í Reykjavík hafí einnig sýnt
mikla framsýni á sínum tíma þegar
húsið var byggt, þá hefur þessi
skilningur enn ekki komið nægjan-
lega fram í verki.
Um það leyti sem Vilmundur
skrifaði bréf sitt var kreppunni
varla lokið og í mörg horn að líta
í ört vaxandi byggðarlagi, sem
Reykjavík var á þessum árum. Það
var svo árið 1946, að hugmyndin
um byggingu fullkominnar heilsu-
verndarstöðvar í Reykjavík var end-
urvakin. Þann 7. febrúar það ár
samþykkti bæjarstjórn samhljóða
tillögu sjálfstæðismanna um að
kjósa fimm fulltrúa í nefnd, til að
gera tillögur um stærð og fyrirkom-
ulag fullkominnar heilsuvernd-
arstöðvar í Reykjavík. í nefndina
voru kjörin þau Jóhann Hafstein,
bæjarráðsmaður, Jóhann Sæ-
mundsson, prófessor, Katrín Thor-
oddsen, læknir, Sigríður Eiríksdótt-
ir, hjúkrunarkona, og Sigurður Sig-
urðsson, yfirlæknir, síðar landlækn-
ir, sem var formaður. Það er
skemmst frá að segja, að nefnd
bæjarstjórnar sýndi ekki minni stór-
hug en landlæknir þegar hún lagði
tillögur sínar fyrir bæjarráð 4 mán-
uðum síðar. Þar var gert ráð fyrir
fimmtán heilsuverndargreinum:
1. heilbrigðiseftirlit,
2. mæðravernd,
3. ungbarnavernd,
4. smábarnavernd,
5. heilsuvernd í skólum,
6. eftirlit með íþróttamönnum,
7. berklavamir,
8. sóttvarnir,
9. þrifadeild,
10. vinnuvernd,
11. manneldisrannsóknir,
12. geðvernd,
13. tannvernd,
14. ljósböð,
15. fræðslustarfsemi.
Einnig var gert ráð fyrir að hér-
aðslæknir/borgarlæknir hefði þar
aðsetur. Þegar tillögur nefndarinn-
ar eru bornar saman við bréf land-
læknis frá árinu 1934 má sjá, að
samtals eru nefndar 24 greinar
heilsuverndar. Það vantar átta
greinar landlæknis í tillögur nefnd-
arinnar en þar voru aftur á móti
sex greinar, sem hann nefndi ekki.
Þegar tillögur nefndarinnar
Skúli G. Johnsen
„Þessi urðu því hinnar
örlög „fullkomnu“
Heilsuverndarstöðvar.
Allt frá því hún tók til
starfa hafa nýjungar í
heilsuverndarstarfsemi
oftast verið útilokaðar
vegna þess að húsnæði,
sem byggt var fyrir
nýjungarnar var í notk-
un fyrir annað.“
komu fram voru liðin tvö ár frá því
sett voru sérstök lög um heilsu-
verndarstöðvar. Þar bjó ríkið vel
að sveitarfélögunum. Þeim var ætl-
aður styrkur úr ríkissjóði til bygg-
ingar heilsuverndarstöðva er næmi
40% og rekstrarkostnaði áttu ríkis-
sjóður, sjúkrasamlag og sveitar-
sjóðir að skipta með sér jafnt. Það
hefur því verið þannig allt frá því
Heilsuverndarstöðin tók til starfa,
~að fyrir hverja krónu, sem borgar-
sjóður lagði til viðbótar í rekstur-
inn, fengust tvær krónur til viðbót-
ar, önnur frá sjúkrasamlagi hin frá
sveitarsjóði. Bæjarráð samþykkti
tillögu nefndarinnar og er fundinn
hafði verið staður fyrir hina nýju
byggingu við Barónsstíg var hafín
vinna við hönnun hennar. Því lauk
árið 1949 og voru framkvæmdir
hafnar það ár.
Heilsuverndarstöð breytt
í sjúkrahús
En brátt kom afturskippur í
málin. Þegar byggingin var langt
Rcykjavík, 20. júní 1952.
Eins og kunnugt er hefur sjukraruaaskortur veriS mikill í
Rejrkjavík undanfarandi ar. Nokkur bot var á þessu ráfiin raeS fjöleun
sjukrarúma í Landakotsspítala á s.l. ári, en náSi alltof skararat. Er
synt, aS ur skortinura verSi ekki batt til fullnustu, fyr en hiS fyrir-
hugaSa bæjars jukrahus kerast í notkun.
har sera nu er stöSugt unniS aS byeeintu beilsuvenxlarstöSvar-
innar oe fjarfestinearleyfi hafa veriS veitt til hennar í ár, er full-
rue^ja til aS koraa husinu undir pak o* hcfja innanbússsaíSi, er augljóst
aS byeeineu hennar muni verSa lokiS talsvert fyrr en nokkur hluti sjúkra- I
hússins getur tekiS til starfa.
Eins og háttvirtu bæjarraSi raun kunnuet, er aetlast til þess,
aS a annarri og priSju hxS aSalbyeeingar heilsuvemdarstöSvarinnar fari
einkum fran sú heilsuverndarstarfserai, sea fyrirhugaS er aS taka upp í
framtíSinni, en i öSrura hlutura bygeinearinnar fari fraa peir peettir
starfserainnar, sera nú eru frarakvandir á ýnsura stöSura í beHium.
Enda pótt aukning heilsuvemdarstarfseainnar hér £ fcEenum sé
mjög nauSsynleg, vill sjúkrahússnefndin eindreeiS lezgja til, aS vistaS-
ir verSi fyrst ura sinn - eSa paneaS til boejarsjúkrahúsiS hefur tekiS til
starfa - hjúkrunarsjuklingar a hínum tveimur áSumefndura hæSum beilsu-
vemdarstöSvarinnar (p.e. a annarri og priSju h»S aSalbyeginearinnar).
Hefur sjúkrahússnefndin athueaS petu atriSi sérstakleea x saaráSi viS
húsameistarana og virSast svo til enear breytinear á húsinu vera pörf,
pó vistaSir vaeru par sjúklincar. Hinsveear verSur aS auka nokkuS raf-
magnskerfi hussins, setja í paS lyftu og#innrétta eldhús £ pakhaeðinni.
Telst nefndinni svo til, aS í pessu húsrými natti vista 50 - 60 hjúkrunar-
sjuklinea.
F.h. sjukrahussnefndar
Til hæjarraSs Reykjavikur.
t~ 'rr.,
Með þessu bréfi var bráðabirgðalausn í sjúkrahúsmálum komið til
leiðar í Reykjavík, sem kæfði framfarir í heilsuverndarmálum.
Enn virðast menn vera að reyna að fullnægja þörfinni fyrir sjúkra-
rúm svo að þá Ioks geti komið að heilsuverndinni. Sannleikurinn er
sá, að sé það á annað borð mögulegt, að fullnægja þeirri þörf, þá
verður það aðeins gert með því að hvers konar heilsuvernd og for-
varnir blómstri. Með því einu fækkar sjúkdómstilfellunum.
Ábending til fjölmiðlafræðings
eftir Erling E.
Halldórsson
í vinsamlegum leikdómi í Morg-
unblaðinu hinn 28. febrúar um út-
varpsleikrit mitt, Marbehdil, vitnar
SILVER REED
SKÓLARITVELAR
Þægilegar í notkun, íslenskur
leiðarvísir og sérstaklega hljóðlátar.
Sjálfvirk leiðrétting, feitletrun
og undirstrikun.
5 íslensk letur.
SKRIFSTOFU VÉLAR sund HF
NÝBÝLAVEGI16 • SÍMI 641222
-Unkni og þjóiuiMta á IrauHtum grumii
gagnrýnandi á þann veg í textann
að valdið gæti misskilningi; setning-
ar eru teknar úr samhengi, og ortar
um. í nafni þeirra sem kjósa helst
að rétt sé farið með það sem eftir
þeim er haft, leyfí ég mér að biðja
ritstjóra Morgunblaðsins að birta
þá stuttu kafla, sem tilvitnanirnar
eru teknar úr:
omRon
SJOÐSVELAR
Gera meira
en að uppfylla
kröfur
fjármálaráðuneytisins.
Yfir 15 gerðir fyrirliggjandi
Verð frá kr. 29.800.-
SKRIFSTOFUVÉLAR sund hf
NÝBÝLAVEGI ÍQ-.SM 641222
-Ufkni og þjóiiUHta á truu.sUnii grunni
MAÐURII:... Ég er hálfpartinn
utangarðs hér, ef satt skal segja!
Finnst það reyndar betra, maður
er fijálsari þannig... Reyndar ólst
ég hérna upp ... En það er nú langt
um liðið ... Fór á hausinn með fyr-
irtæki fyrir sunnan. Einn af þeim,
ha! Það var ekki um annað að ræða
en flytja ... til mömmu sinnar ...
Hann flissar.
MAÐUR I: Fyrirtæki.. .?
MAÐUR II: Já. Skömm frá því
að segja, en um annað var ekki að
ræða. ..
Þögn.
: Vilja ekki allir koma manni á
kné? ... ef maður ber af...!
MAÐUR II, makindalega: Mér
líður vel. Já, alveg afskaplega vel.
Ég hef ekki yfír neinu kvarta! Ég
er sjálfs mín herra. Loksins ...
Mamma eldar góðan mat.Ég tek
lýsi á hveijum morgni ... I öðrum
tón: Mér hreinlega létti þegar ég
fór á hausinn. Reyndar... hefur
maður viss hamskipti, svona á ytra
borði. Og það er nú það sem aðrir
sjá... En hið innra...
MAÐUR I: Ég hélt ég myndi fá
að heyra harmsögu.
MAÐUR II: Mína? Hann hlær
ískrandi hlátri. Engin harmsaga.
Hvíslar draugslega: Kellingin .. .t
fór að læra félagsráðgjöf!. . . Hún
Erlingur E. Halldórsson
náttla þoldi ekki fallíttið!. . . Hann
hlær.
(Má maður benda á þá stað-
reynd, innan sviga, að þegar menn
lýsa sjálfum sér og sínum högum
er ekki þar með sagt að þeir fari
að öllu leyti með rétt mál!)
Með bestu þökkum.
.írrn--------------------------------
Höfundur er rithöfundur.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
15
Aukaaðild að
Evrópubandalaginu
komin í júní 1952, barst bréf til
bæjarráðs frá sjúkrahúsnefnd bæj-
arins. Þar var vitnað til þess, að
mikill sjúkrarúmaskortur hafí verið
í Reykjavík undanfarandi ár og yrði
ekki að fullu bætt úr þeim skorti
fyrr en bæjarsjúkrahús komist í
notkun. Óskaði sjúkrahúsnefnd eft-
ir því við bæjarráð, að önnur og
þriðja hæð aðalbyggingar heilsu-
verndarstöðvarinnar yrðu fyrst um
sinn, eða þangað til bæjarsjúkra-
húsið í Fossvogi tæki til starfa,
notaðar til vistunar hjúkrunarsjúkl-
inga. Á það var bent, að ekki væri
þörf á neinum breytingum á hús-
inu. Taldi nefndin, að í þessu hús-
rými mætti vista milli 50-60 hjúkr-
unarsjúklinga.
Þó ekki væru allir fulltrúarnir í
heilsuverndarnefnd ánægðir með
að sjá lokað fyrir nýjungar í heilsu-
vernd í hinu nýja húsi varð niður-
staðan sú, að um helmingur hús-
næðis hinnar nýbyggðu heilsu-
verndarstöðvar fór til annarra nota.
Þetta þýddi, að það, sem þá var
afgangs, gerði ekki mikið meira en
að duga fyrir þá heilsuverndarstarf-
semi, sem fyrir var, enda tóku rann-
sóknarstofur, skrifstofur, þvottahús
og geymslur íyrir sjúkrahúsið mikið
rými auk sjálfra sjúkradeildanna.
Varla er hægt að fínna betra
dæmi um það, sem sagt var í fyrri
grein, að heilsuverndarstarfsemi
hefur verið fórnað fyrir sjúkraþjón-
ustu.
Þessi ráðstöfun hefur allt síðan
reynst kverkatak á þróun heilsu-
verndarstarfseminnar í borginni
enda var ekki staðið við, að sjúkra-
húsrekstur flyttist úr Heilsuvernd-
arstöðinni að fullu, þegar Borg-
arspítalinn tók til starfa, en aðeins
önnur sjúkradeildin var lögð niður.
Fljótlega tók að bera á ásókn Borg-
arspítalans í að fá aftur meira hús-
næði. Því ætlaði seint að linna og
voru síðast hugmyndir uppi um það
árið 1984, að sjúkradeiidir færðu
stórlega út kvíarnar í Heilsuvernd-
arstöðinni að nýju.
Þessi urðu því örlög hinnar „full-
komnu“ Heilsuverndarstöðvar. Ailt
frá því hún tók til starfa hafa nýj-
ungar í heilsuverndarstarfsemi oft-
ast verið útilokaðar vegna þess að
húsnæði, sem byggt'var fyrir nýjun-
garnar var í notkun fýrir annað.
Heimildir: Þórhallur Vilmundarson (1985), Með
hug og orði: af blöðum Vilmundar Jónssonar,
landlæknis. II. bindi, bls. 94-104, Iðunn,
Reykjavík. Bréf og greinargerðir, varðveittar
í Borgarskjalasafni.
Höfundur er héraðslæknir í
Reykajvík.
eftir Gunnar Helga
Kristinsson
HvaðerEES?
íslendingar hafa nú um nokkurt
skeið, ásamt öðrum aðildarríkjum
EFTA, átt í formlegum samninga-
viðræðum við Evrópubandalagið
um svokallað Evrópskt efnahags-
svæði (EES). Þetta er sennilega
umfangsmesta samningsgerð sem
ísland hefur tekið þátt í við önnur
ríki, auk þess sem samningurinn —
ef af verður — mun hafa víðtæk
áhrif á athafnalíf og löggjöf hér-
lendis. Með þátttöku í EES opna
íslendingar Évrópugluggann. Við-
skipti verða fijálsari milli landa,
réttur til búsetu og menntunar
rýmri auk þess sem gera má ráð
fyrir samstarfí á sviði vísinda, um-
hverfís- og félagsmála, svo nokkur
dæmi séu nefnd. J>á verður um
reglubundið samráð að ræða á sviði
stefnumótunar og stjórnmála í þeim
málaflokkum sem samstarfið nær
til.
Gera má ráð fyrir að samstarfið
innan EES verði að flestu leyti lík-
ara samstarfinu innan Evrópuband-
alagsins en innan EFTA, sem ís-
lendingar eru aðilar að. Þannig mun
almenn stefnumótun á svæðinu fara
fram innan sérstaks EES-ráðs, sem
í sitja ráðherrar aðildarríkjanna auk
fulltrúa úr framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins. Eftirlit með fram-
kvæmd reglna verður á hendi sérs-
takrar eftirlitsstofnunar innan
EFTA, sem að því leytinu til verður
hliðstæð framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins. Sameiginlegur
EES-dómstóll, sem starfar í tengsl-
um við EB-dómstólinn, mun úr-
skurða í deilumálum sem upp kunna
að koma á svæðinu um túlkun
reglna. Helsti munurinn í reynd á
aðild að EES og Evrópubandalag-
inu verður sá að samstarfíð í EES
nær til færri sviða en samstarfíð
innan EB og að EFTA-ríkin munu
ekki hafa áhrif á ákvarðanatöku
innan svæðisins á sama hátt og ríki
Evrópubandalagsins.
Aukaaðild að
Evrópubandalaginu
Hitt hefur ekki farið mjöjg hátt
hér á landi að ríkisstjórn Islands
er ekki einungis að semja um náið
samstarf við EB á Evrópska efna-
hagssvæðinu, heldur beinlínis um
aukaaðild að bandalaginu.
í samningsumboði því sem samn-
ingamenn Evrópubandalagsins
starfa eftir í EES-viðræðunum seg-
ir í fyrstu grein:
„Niðui-staða samningaviðræðn-
anna ætti að verða víðtækur auka-
aðildarsamningur, á grundvelli 238.
gr. sáttmála EBE, milli Evrópu-
bandalagsins annars vegar og
EFTA-landanna og Liechtenstein í
einu lagi hins vegar.“
Umrædd grein Rómarsáttmál-
ans, stofnsamnings Efnahagsband-
alags Evrópu, fjallar eingöngu um
möguleikann á því að bandalagið
geri aukaaðildarsamninga við ríki
utan bandalagsins, hóp slíkra ríkja
eða alþjóðastofnanir. Hvað í slíkum
samningi getur falist er ekki rætt
að öðru leyti en því að nefnt er að
um skuli vera að ræða gagnkvæm-
ar skyldur og réttindi, sameiginleg-
ar aðgerðir og samráð. Ekkert kem-
ur fram um hvort aukaaðild skuli
leiða til fullrar aðildar með tíð og
tíma eða ekki, en hins vegar er
krafist samþykkis meirihluta Evr-
ópuþingsins til staðfestingar auka-
aðildarsamningi.
Af þessu leiðir að ef samningar
takast um hið Evrópska efnahags-
svæði og samningurinn hlýtur stað-
festingu Alþingis verður ísland orð-
ið aukaaðili að Evrópubandalaginu
1993, þegar ætlunin er að samning-
urinn taki gildi.
Hvert leiðir aukaaðild?
Á árunum 1961-63 urðu á ís-
landi miklar deilur um aukaaðild
að Evrópubandalaginu. Viðreisnar-
stjómin taldi að ef vissum skilyrðum
væri fullnægt gæti slík aðild þjónað
hagsmunum Islendinga vel, en
stjómarandstaðan taldi að slíkar
hugmyndir stefndu efnahagslegu
og pólitísku sjálfstæði þjóðarinnar
í voða og jöðruðu við landráð. Svip-
aðar deilur komu upp í tengslum
við aðild íslands að EFTA á árunum
1967-70, þótt ekki væru þær jafn
harkalegar.
Það er ef til vill eðlilegt að íslend-
ingar séu hikandi í samskiptum sin-
um við umheiminn vegna smæðar
þjóðarinnar. Það má að vísu færa
gild söguleg rök fyrir því að ekkert
sé hér hættulegra blómlegu þjóðlífi
og menningu heldur en einangrun-
in. Engu að síður hefur stjórnmála-
mönnum oft reynst auðvelt að slá
á strengi óttans við hið óþekkta í
tengslum íslands við umheiminn. í
dag blandast hins vegar engum
hugur um að aðild íslands að EFTA
á sínum tíma var að flestu leyti
heillaspor, og um það ríkir breið
pólitísk samstaða að ísland eigi
erindi inn í viðræður um aukaaðild
að Evrópubandalaginu, á hinu Evr-
ópska efnahagssvæði. Raunar er
sá aukaaðildarsamningur sem
bandalagið er nú að gera við EFTA-
ríkin mun umfangsmeiri en nokkur
aukaaðildarsamningur sem það hef-
ur gert áður, og þar með væntan-
lega mun umfangsmeiri en nokkur
samningur sem gerður hefði verið
1961-63; í raun má alveg eins tala
um hlutaaðild eins og aukaaðild í
því sambandi.
Það er ekki sjálfgefið að aukaað-
ild ieiði með tíð og tíma til fullrar
aðildar að bandalaginu. Það fer eft-
ir þróun mála innan bandalagsins
sjálfs og því hvernig aukaaðild-
arríkin meta reynsluna og hags-
muni sína af að stíga skrefið til
fulls. Aukaaðild felur í sér viður-
kenningu á sameiginlegum hags-
munum þegar til lengri tíma er litið
og samvinnu í hagnýtum efnum án
þess að ríki séu að fullu tilbúin til
að takast á við þær pólitísku skuld-
bindingar sem fullri aðild fylgja.
Kostir aukaaðildar eru þannig eink-
um að gefa ríkjum færi á að átta
sig, slá á óttann við hið óþekkta,
án þess að þau missi á meðan alveg
af lestinni og einangrist frá þróun-
inni í kringum sig. Þegar fram líða
Gunnar Helgi Kristinsson
Úr flokki greina há-
skólamanna þar sem
reifuð eru þjóðmál nú
þegar kosningar fara í
hönd.
stundir má hins vegar gera ráð
fyrir að í flestum tilvikum leiði
aukaaðild til fullrar aðildar að Evr-
ópubandalaginu. Austurríkismenn
og Svíar hafa þegar gert upp hug
sinn um að stefna að fullri aðild,
og umræðan er yfírleitt komin mun
lengra í öðrum EFTA-ríkjum en hér
á landi. Jafnvel Færeyingar og
Grænlendingar, sem ekki eiga þess
þó kost að gerast fullgild aðildarríki
bandalagsins, eru farnir að huga
að aðild.
Það er ekki víst að full aðild ís-
lands að Evrópubandalaginu sé
möguleg eða hentug fyrir íslend-
inga. Hvort svo er getum við hins
vegar ekki vitað fyrr en hér hefur
farið fram opinská umræða um
málið og sennilega ekki á endanum
fyrr en viðræður hafa farið fram
við Evrópubandalagið um það efni.
Aukaaðild er gagnlegur áfangi sem
gefur okkur færi á að vega kostina
og gallana, en hún er ekki endastöð
umræðunnar um tengsl okkar við
Evrópubandalagið.
Höfundur er lektor í
stjórnmáhifræði við
félagsvísindadeild Háskóla
Íslands.
ENN GLÆSILEGRL.
...ENN BETRA VERÐ
SYNING UM HELGINA:
LAUGARDAG KL. 10.00 -17.00
SUNNUDAG KL. 13.00 -17.00
G/obus?
lagmula 5. sími 681555
■
■
m/Á
Æá
Æm
';/
Wm L
i «
.uiVmuAnviii
%