Morgunblaðið - 05.04.1991, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
I ÞINGHLEI STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Ofvaxinn útgjaldalið-
ur í ríkisbúskapnum
Tíunda hver króna fer í vexti
Stærsti útgjaldaflokkur hins opinbera árið 1989 var atvinnu-
mál (þ.m.t. samgöngumál og landbúnaðarmál) 21,8%. Þá koma
heilbrigðismálin 18,7% (sem skila sér í betri líðan fólks, fleiri
vinnudögum og lengri starfsævi). Næst koma trygginga- og vel-
ferðarmál 16,7%, fræðslumál 13,4%, vextir 9,5%, stjórnsýsla 8,3%,
menningarmál 6% og önnur útgjöld 5,6%. Sjá skýringarmynd.
Sá útgjaldaþáttur, sem vaxið hefur öðrum fremur næstliðin
ár, er lánakostnaður, vextir. Meginorsök þessa er að sjálfsögðu
viðvarandi mikill ríkissjóðshalli og tilheyrandi skuldasöfnun. Tí-
unda hver útgjaldakróna í ríkisbúskapnum brennur upp á báli
vaxta.
Öígjiddaflokkar hins opinbera
1 llutfall af heildargjöldum
Árið 1989
Örumr úiyjold (5.6%)^ f-Almenn sijórnsýsla (8.3%)
Atvinmunál (21.8%)—^^ —Frœdslumál (13.4%)
Heilbrigðisrnál (18.7%)
Vaxiagjöld (9.5%)-
Menningannál (6.0%■
Velferðartnál (16.7%)
I
Það gildir hið sama um ríkisbú-
skapinn og heimilisreksturinn.
Þegar útgjöldin eru meiri en tekj-
urnar, eins og verið hefur [heldur
betur] hin síðustu árin, þrátt fyrir
miklar skattahækkanir, verður að
fjármagna hallann með lántökum,
innlendum og/eða erlendum.
Vaxandi lánsfjárþörf ríkissjóðs
og ríkisbúskaparins, að stærstum
hluta vegna þess að opinber eyðsla
hefur vaxið langt umfram opinber-
ar tekjur, veldur því, að ríkissjóður
hefur gerzt æ frekari til fjárins á
takmörkuðum innlendum lánsfjár-
markaði. Nú stefnir í það að ríkis-
sjóður „fangi“ langleiðina í sjö af
hveijum tíu krónum af nýjum pen-
ingalegum sparnaði landsmanna
árið 1991 - í net spariskírteina,
ríkisvíxla og annarra opinberra
veiðarfæra á innlendum iánsfjár-
markaði. Atvinnulífið hefur eign-
ast skæðan keppinaut á þessum
vettvangi.
II
í riti Þjóðhagsstofnunar, „Bú-
skapur ríkisins 1980-1989“, segir,
að skuldir ríkissjóðs árið 1988
hafi numið 68.273 m.kr. Þar af
innlendar skuldir 28.068 m.kr. og
erlendar skuldir 40.205 m.kr. (sjá
skýringarmynd). Skuldabðltinn
hefur hlaðið utan á sig síðan.
Skuldir ríkisins vóru lægstar,
sem hlutfall af landsframleiðslu,
árið 1981 (22,6%) en hæstar 1983
(32,3%). Þetta skuldahlutfall var
26,8% árið 1988 en hefur hækkað
síðan sem „rökrétt framhald" af
viðvarandi halla ríkissjóðs.
Ef horft er til erlendra langtíma-
lána, einna og sér, hefur greiðslu-
byrði þeirra sem hlutfall af útflutn-
ingstekjum aukizt úr 16% árið
1987 í rúmlega 21% árið 1991 .
Staða erlendra langtímalána
hækkaði á sama tíma úr 40,4% í
52,9% af landsframleiðslu.
Hafa verður í huga að ríkissjóð-
ur yfirtók skuldir orkuveitna í
Iandinu sum þessara samanburð-
arára, sem og að sveiflur hafa
verið í landsframleiðslu. Mæli-
kvarðinn hefur sum sé sína ann-
marka, en gefur þó grófa mynd
af framvindunni.
III
Vaxtagjöid ríkissjóðs hafa
hækkað langt umfram flest önnur
ríkisútgjöld hin síðari árin. Úr 1,4%
af heildarútgjöldum ríkisins árið
1980 í 3,3% árið 1989. Úr 1,4%
af landsframleiðslu árið 1980 í
3,3%' árið 1989.
í bréfi Seðlabanka til fjárhags-
og viðskiptanefndar neðri deildar
Alþingis [21. febr. 1991] segir að
62% af nýjum peningalegum
sparnaði í landinu 1991 verði tekin
að Iáni af hinu opinbera, saman-
borið við 40% árið 1990. Frumvarp
til lánsfjárlaga fyrir árið 1991
hækkar iántökuáform um marga
milljarða króna (að hluta til að því
er virðist vegna kosningafyrir-
heita). Það stefnir því í að allt að
70% af líklegum peningalegum
sparnaði landsmanna á líðandi ári
þurfi til þess að mæta lánsfjárþörf
ríkisins. Þessi lánsfjárásókn [ríkis-
sjóðshalli] er meginorsök hárra
vaxta í landinu.
Fjárfestingar atvinnulífsins hafa
því miður dregizt mikið saman á
ferli núverandi ríkisstjórnar og eru
töluvert minni, hlutfallslega, en í
örðum OECD-ríkjum. Undir eðli-
legum kringumstæðum hefði sam-
dráttur af þessu tagi ótvírætt leitt
til lækkunar raunvaxta. Þetta hef-
ur þó ekki gerzt. Astæðan er, sem
fyrr segir, allt gleypandi lánsljár-
þörf ríkisbúskaparins.
IV
Mörgum finnst að nóg sé skraf-
að- og skrifað um þjóðarbúskapinn
og ríkisbúskapinn, skatta og skuld-
ir, ijármál og peninga. Lífið hafi
fleiri hliðar, betri, bjartari og
skemmtilegri.
Þetta er að hluta til rétt. Það
sakar hins vegar ekki að haga
akstri eftir aðstæðum, kunna fót-
um sínum forráð og ganga svona
nokkurn veginn sjálfbjarga inn í
morgundaginn. jjamþykkt láns-
fjárlaga á síðasta starfsdegi Al-
þingis, þar sem opinberar lántöku-
heimildir tóku nokkurra milljarða
heljarstökk út í óvissuna, benda
hinsvegar til þess, að pólitískir
ábyrgðarmenn ríkisfjármálanna
kjósi fremur kosningakelduna en
fyrirhyggjukrókinn.
SKULDIR RÍKISSJÓÐS 1d80>1988 1 H lm m
1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989
Skuldir rikissióðs (mrð.kr.) 3.937 5.507 11.820 21.287 27.426 36.532 44.287 52.026 68.273
Innlendar skuldir 1.833 2.759 5.088 8.805 7.929 10.901 14.980 22.071 28.068
Erlendar skuldir 2.104 2.748 6.732 12.483 19.498 25.631 29.307 29.955 40.205
Skuldir á verðlaqí 1980 3.937 4.133 5.159 5.462 5.345 5.954 6.424 6.820 7.325
Innlendar skuldir 1.833 1.817 2.237 2.158 1.453 1.529 1.686 2.116 2.181
Erlendar skuldir 2.104 2.316 2.922 3.304 3.893 4.425 4.738 4.705 5.144
Skuidir, % af VLF 25,4 22,6 31,0 32,3 31,4 30,7 28,0 25,1 26,8
Innlendar, % af VLF 11,8 11,3 13,3 13,4 9,1 9,2 9,5 10,6 11,0
Erlendar, % af VLF 13,6 11,3 17,7 19,0 22,3 21,6 18,5 14,4 15,8
VAXTAGJÖLD RÍKISSJÖÐS 1980-1989
Vaxtaqiðld (millj.kr.) 215 389 669 1.777 2.297 3.300 3.931 4.340 7.133 9.644
% af heildarútgjðldum 5,4 6,1 6,5 9,3 10,3 10,0 8,3 7,9 9,5 10,6
%afVLF 1,4 1,6 1,8 2,7 2,6 2,8 2,5 2,1 2,8 3,3
Afmæliskveðja:
Ingimundur Ingi-
mundarson Svanshóli
Hinn 30. mars sl. varð Ingimund-
ur Ingimundarson frá Svanshóli
áttræður. Af þvi tilefni fjölmenntu
ættingjar og vinir til að hylla hann
og heiðra á heimili sonar hans í
Fjarðarseli 15 í Reykjavík.
Það eru nú liðin hátt í tuttugu
ár síðan ég hitti Inigmund í fyrstá
sinni. Það mun hafa verið á haust-
nóttum 1971 að ég ásamt konu
minni lagði leið mína í Bjarnarfjörð
til fundar við Ingimund oddvita á
Svanshóli, en þetta haust tók ég
við starfi skólastjóra barna- og
unglingaskólans á Drangsnesi. Er-
indið var að ræða nauðsynleg sam-
skipti varðandi skólahald, og það
má mikið vera ef ég notaði ekki
tækifærið til að hafa út úr oddvitan-
um peninga í leiðinni. Erindið var
með öðrum orðum dæmigerður
hversdagsleiki og veraldarhyggja.
Að sjálfsögðu hafði ég ekki hug-
mynd um hvern ég myndi fyrir hitta
þetta haustkvöld fyrir hartnær tutt-
ugu árum þegar ég hélt á fund
oddvita Kaldrananeshrepps. En nú
og ávallt síðan lifír það mér í minni,
að það var gott og notalegt að koma
að Svanshóli. Það lá í loftinu eitt-
hvað þjóðlegt, látlaust og alúðlegt.
Ingimundur var eins og örlítið var-
kár í fyrstu, kurteis og hafði á sér
yfirbragð mikillar prúðmennsku og
fágaðrar framkomu, en umfram
allt alþýðlegur, viðræðugóður og
gersneyddur öllu yfirlæti. Með
árunum lærðist mér, að þetta gilti
ekki bara á yfirborðinu. Maðurinn
reyndist í áranna rás gegnheill,
traustur og vandaður til orðs og
æðis.
„Hörðum höndum
vinnur hölda kind
ár og eindaga.
Siglir særokinn,^
sólbitinn slær,
stjömuskininn stritar.
Traustir skulu hornsteinar
hárra sala.
í kili skal kjörviður.
Bóndi er bústólpi,
því skal hann virður vel.“
Mér þykir sem þessi tvö erindi
úr kvæðinu Alþing hið nýja eftir
Jónas Hallgn'msson falli einkar vel
að lífshlaupi og ævistarfi Ingimund-
ar frá Svanshóli. Hann var og er
fyrst og síðast íslenskur bóndi af
bestu gerð. Hann var bóndi á Svans-
hóli í fjöratíu ár. Hann er búfræð-
ingur frá Hvanneyri 1938. Sú
menntun ásamt farsælum eðliskost-
um í vöggugjöf dugðu honum til
að leysa af hendi ætlunarverk ís-
lenska bóndans með glæsibi;ag í
harðbýlli sveit, norður við ysta haf,
þrátt fyrir margslungin iðuköst og
flúðaflaustur í tímans sfraumi.
Til viðbótar við búskapinn hlóð-
ust með tíð og tíma fjölmörg trún-
aðar- og þjónustustörf í þágu sveit-
ar og hérað á Ingimund, svo sem
títt er um slíka menn, þar sem þá
er að finna. Ingimundur lagði hug
sinn og hjarta í að rækja sérhver
þau störf er hann tókst á hendur
með alúð, ósérplægni og trúnaði,
enda hafa honum hlotnast margvís-
legar viðurkenningar í því sam-
bandi, bæði stórar og smáar.
Ingimundur Ingimundarson var
oddviti í Kaldrananeshreppi í tutt-
ugu ár, 1954-74. Mesta afrek hans
í félagsmálum var sambygging
Klúkuskóla og félagsheimilisins
Laugarhóls í Bjarnarfirði. Enda
þótt fjölmargir aðilar innan sveitar
sem utan legðu þar hönd á plóginn,
fer það ekki á milli mála að Ingi-
mundur var þarna verkadrýgstur,
að öllum öðrum ólöstuðum.
Ingimundur var óg er stoltur af
þessu mennta- og menningarsetri
sveitar sinnar og hefur látið sér
annt um þessa stofnun og hagi
hennar allt til þessa dags. En þar
gerist mörg búmannsraunin. Á
hverfanda hveli íslenskrar búsetu
okkar daga gengur4 ýmsu og skelf-
ur gjarnan storðin svo gnestur í.
Hvað af þessu eru váboðar og hvað
traustabrestir, það mun framtíðin
leiða í ljós. En eitt er víst. Klúku-
skóli, sem vígður var með viðhöfn
13. ágúst 1972, hefur nú þjónað
hlutverki sínu í ein tuttugu ár í
núverandi mynd. Stór hópur fyrr-
verandi nemenda vítt og breitt um
landið á mismunandi aldursskeiði
geymir með sér minningar um
æskuglaða daga í Klúkuskóla. í
þeim stóra hópi eru fjórar dætur
skóiastjórahjónanna í Drangsnes-
skóla. Vil ég nota þetta tækifæri
og þakka Ingimundi frá Svanshóli
fyrir einstaklega hugljúfa fram-
komu, þjóðlegt og skemmtilegt við-
mót, er þær geyma sér í minni frá
þessum árum.
Það má því með fullum sanni
segja að atorka sú og dugnaður er
Ingimundur frá Svanshóli og sam-
heijar hans lögðu í byggingu Klúk-
uskóla í Bjarnarfirði hafi nú þegar
borið góðan og dijúgan ávöxt, hvað
svo sem framtíðinni þóknast að
bera í skauti sér.
Af því gem ég hefi lauslega rak-
ið hér að framan mætti ætla að það
hefði komið eins og af sjálfu sér
að við Ingimundur frá Svanshóli
ættum að mestu leyti samleið varð-
andi menn og málefni í Kaldrana-
neshreppi. En forlögin geta verið
grágíettin. Atvikin urðu með þeim
hætti, að þetta átti ekki fyrir okkur
að liggja alla tíð, og urðum við Ingi-
mundur á öndverðum meiði í ör-
lagaríkum innansveitarmálum um
árabil. Þó fullyrði ég að aldrei gekk
þetta svo langt að við yrðum óvin-
ir. Hann var harður og einarður í
vörn og sókn fyrir málstað sinn og
hugsjónir, en drengskapurinn vgr
ávallt með í för, hvað sem hann
sagði og gerði, og maður þurfti
aldrei að hafa áhyggjur af því að
hann kæmi aftan að manni. Þetta
heitir að fornu og nýju að vera
drengur góður. Við slíka er gott
að eiga, hvort heldur þeir erif sam-
heijar eða andstæðingar.
Eigi er það gott að maðurinn sé
einsamall, heldur skal hann hafa
meðhjálp við sitt hæfi. Svo segir í
helgri bók. Ingimundur fann sér
tvímælalaust meðhjálp við hæfi þar
sem er eiginkona hans, Ingibjörg
Sigvaldadóttir frá Sandnesi. Það er
öllum ljóst sem til þekkja að hún á
sinn ríka þátt í reisn og farsæld
Svanshólsheimilisins og fjölskyld-
unnar þar. Þau hjón eignuðust fimm
syni sem allir komust á legg og vel
til manns auk einnar dóttur, er þau
misstu tveggja mánaða gamla. Syn-
irnir eru: Tvíburarnir Ingimundur
kennari í Borgarnesi og Sigvaldi
kennari í Reykjavík, Pétur hús-
gagnasmiður í Reykjavík, Svanur
Ásmundur málarameistari í Reykja-
vík og Ólafur bóndi og húsasmiður
á Svanshóli.
Við Sigrún óskum Ingimundi
Ingimundarsyni til hamingju með
lífsförunautinn og fimm mannvæn-
lega syni. Við óskum honum til
hamingju með áttræðisafmælið og
ötult ævistarf í faðmi sveitar sinnar
og mörg þau góðu málefni sem
honum auðnaðist að leiða fram til
sigurs sveit sinni og samfélagi til
eflingar.
Fyrir nokkrum misserum varð
Ingimundur fyrir heilsufarslegu
áfalli og hefur ekki borið sitt barr
að fullu síðan. Eg sagði einhvern
tímann við Ingimund að mér þætti
þetta í hæsta máta ósanngjarnt
þrátt fyrir aldur hans, og hafði þá
einkum í huga heilbrigt og vamm-
laust líferni hans í skauti íslenskrar
náttúru og ái-vökult starf við rækt-
un og nýtingu ættaróðalsins sem
hann hefur helgað líf sitt og starf
gullroðna morgna, sólríka daga og
bjartar nætur.
Ingimundur svaraði engu þessu
rausi mínu en brosti kankvíslega,
og ég fann það og skildi að hans
vegna var engin þörf að kvarta og
því vart við hæfi að vera með slíka
tilburði í návist hans. Og hver er
ég, að mér megi auðnast að átta
mig ætíð á forsjón hins hæsta við
að rækta og þroska, herða og stæla
gegnum súrt og sætt manndóm
þann og atgervi, er endast skal út
yfir gröf og dauða.
Þrátt fyrir þetta áfall er ég þess
fullviss að Ingimundur Ingimund-
arson frá Svanshóli mun þreyta
fang við elli kerlingu með fullri reisn
og án þess að biðjast griða, eftir
því sem forsjónin ann honum fremst
og best, og ekki láta leiknum lokið
fyrr en þeirri gömlu er vel tekið
að volgna.
Guð blessi afmælisbarnið/ástvini
þess og ættmenni um ókomin ár.
Þórir Haukur Einarsson