Morgunblaðið - 05.04.1991, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
40
t
Eiginmaður minn,
PÁLMI JÓNSSON,
lést fimmtudaginn 4. apríl.
Jónína S. Gísladóttir.
t
Eiginmaður minn og faðir,
MARKÚS JÓHANN EIRÍKSSON,
Ásvallagötu 40,
lést í Borgarspítalanum 3. apríl sl.
Salóme Mariasdóttir,
Þórunn Stella Markúsdóttir.
t
Ástkær sambýlismaður minn og bróðir,
HERMANN JÓHANNSSON,
Hrafnistu,
Reykjavfk,
andáðist í Landspítalanum miðvikudaginn 3. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðný Kristjánsdóttir,
Ragnheiður Jóhannsdóttir.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐNÝ ÞORGILSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 84,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð miðvikudaginn 3. apríl.
Sigríður Þorsteinsdóttir, Óskar Þórðarson,
Þorleifur Þorsteinsson, Ragnheiður Jónasdóttir,
Þorgerður Gestsdóttir,
Inga Rósa Hallgrímsdóttir.
t
Faðir okkar og fósturfaðir,
SNORRI BRYNJÓLFSSON,
Eskihlíð 20a,
andaðist í Landspítalanum fimmtudaginn 4. apríl.
Bertha Snorradóttir,
Brynjar Snorrason,
Garðar Snorrason,
Garðar Jóhannsson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
STEFÁN ÞORVARÐSSON
skipasmiður,
Hrauntungu 63,
Kópavogi,
andaðist miðvikudaginn 3. apríl.
Ragna Skúladóttir,
Þorvarður Skúli Stefánsson,
Sigriður Stefánsdóttir.
Ásmundur J. Ás-
mundsson - Mmnmg
Fæddur 23. júlí 1919
Dáinn 28. mars 1991
Asmundur tengdafaðir minn hef-
ur kvatt þennan heim. Langvarandi
veikindi hafa leitt hann í burtu frá
okkur. Eftir lifa minningar, alls
kyns fallegar myndir frá liðnum
árum. Ógleymanlegar stundir með
þessum hógværa og fórnfúsa manni
sem var okkur öllum svo kær.
Ásmundur Jónatan Ásmundsson
var fæddur vestur í Grundarfirði, á
Hömrum árið 1919. Hann var
yngstur barna Ásmundar Sigurðs-
sonar og Kristínar Þorleifsdóttur.
Hann plst upp hjá móður sinni, en
Ásmundur faðir hans lést áður en
Ásmundur J. fæddist.
Ásmundur stundaði sjósókn og
almenn sveitastöf á Hömrum þar
til hann 17 ára fór í Héraðsskólann
í Reykholti. Eftir skólagönguna lá
leiðin suður til Reykjavíkur. Þar
lærði hann bókhald og vann ýmis
verslunarstörf þar til hann réðst til
bókhaldsstarfa hjá Sindrafyrirtæk-
inu 1953. Hjá Sindra starfaði hann
til loka starfsferilsins 1986. Ás-
mundur kvæntist Hönnu Helgadótt-
ur 17. mars 1951, svo þau höfðu
ný átt 40 ára brúðkaupsafmæli er
hann lést.
Það eru rúmlega 17 ár frá því
að ég kom fyrst í Stigahlíðina og
kynntist þeim Ásmundi og Hönnu
og fallegu heímili þeirra. Húsið
höfðu þau byggt upp frá grunni
með dugnaði og eljusemi og ræktað
fallega garðinn sinn.
Kynni mín af Asmundi voru öll
góð. Við áttum margar skemmtileg-
ar stundir sem áhorfendur á knatt-
spyrnuvellinum, hann sem gamall -
KR-ingur en hallur undir Valsliðið
eftir að synir hans fóru að keppa
í knattspyrnu. Ég sem stuðnings-
maður erkióvinanna ofan af Akra-
nesi. Alltaf gátum við gert góðlát-
legt'grín hvor að öðrum eftir því
hvernig leikar fóru hveiju sinni.
Þessar stundir rifjast nú upp
ásamt stundunum í Stigahlíðinni
þar sem við ræddum um ágæti
ólíkra pólitískra skoðana okkar.
Alltaf mátum við hvor annan að
verðleikum og virtum þó við værum
ekki alltaf sammála. Einnig rifjast
upp minningar um ótal samveru-
stundir, þar sem Ásmundur lék sér
við afabörnin sín, sem hann unni
svo mjög. Hann var óþreytandi við
að hugsa um þau og leika við þau,
enda undu þau vel hag sínum hjá
afa og ömmu. Ásmundur var alltaf
boðinn og búinn að hjálpa til, hann
var gæddur einstakri þjónustulund
sem allir nutu góðs af.
Allar eru minningarnar á einn
veg, fallegar, jákvæðar, góðar og
því margt sem ég á Ásmundi að
þakka á þessari kveðjustund.
Að baki er langt tímabil, þar sem
hin styrka og vinnufúsa hönd þurfti
í æ ríkara mæli að reiða sig á þjón-
ustu annarra. Tímabil þar sem Ás-
mundur hefur notið einstakrar natni
og umönnunar konu sinnar, hennar
Hönnu, sem hefur lagt óendanlega
mikið á sig til að gera líf hans sem
bærilegast.
Fyrir u.þ.b. mánuði var Ásmund-
ur fluttur á sjúkrahús en vera hans
þar varð ekki löng. Hann lést þar
að kvöldi skírdags, 28. mars sl.
Ásmundur hefur kvatt okkur og
eina huggun harmi gegn eru já-
kvæðar minningar, fallegar myndir
frá yndislegum samvistarstundum
með honum.
Elsku Hanna mín, ég votta þér
mína dýpstu samúð á erfiðri stundu.
Guðbjartur Hannesson
Hinn 28. marz lézt í Reykjavík
Ásmundur J. Ásmundsson, fyrrv.
aðalbókari, 71 árs að aldri. Utför
hans verður gerð í dag frá Dóm-
kirkjunni.
Ásmundur var fæddur á Hömrum
í Grundarfirði 23. júlí 1919. For-
eldrar hans voru Ásmundur Sig-
urðsson útvegsbóndi og Kristín Þor-
leifsdóttir síðari kona hans.
Að loknu skyldunámi i heima-
byggð sinni settist Ásmundur í hér-
aðsskólann í Reykholti og lauk það-
an brottfararprófi 1938. Hann
stundaði ennfremur bókhaldsnám í
tvo vetur hjá Þorleifi Þórðarsyni
kennara í Reykjavík. Árið 1942 hóf
Ásmundur störf hjá Veiðarfæra-
verzluninni Verðandi í Reykjavík
og starfaði þar til ársins 1953 er
hann réðst til Sindrafyrirtækjanna
í Reykjavík þar sem hann starfaði
í rúma þrjá áratugi, lengst af sem
aðalbókari.
Kynni okkar Ásmundar hófust
er hann kvæntist Hönnu Helgadótt-
ur, skólasystur okkar Sigrúnar. Fór
Ásmundur ekki dult með að þar
hefði hann stigið mesta heillaspor
lífs síns, enda fór það ekki fram
hjá okkur vinum þeirra, hve far-
sælt hjónaband þeirra var.
Ásmundur var félagslyndur og
skólafélagar mínir höfðu oft orð á
því hve fljótt og vel hann féll inn
í okkar hóp. Þessir kostir Ásmundar
munu hafa komið snemma í ljós.
Hann gerðist þegar á unglingsárun-
um virkur þátttakandi í félagslífinu
í heimabyggð sinni og var einn af
stofnendum Ungmennafélags Eyr-
arsveitar og í fyrstu stjórn þess.
Eftir að hann fluttist til Reykjavík-
ur gerðist hann m.a. félagi í far-
fuglahreyfingunni og var í nokkur
ár formaður Farfugladeildar
Reykjavíkur. Ennfremur var hann
í áratugi félagi í Frímúrarareglunni
og Lionsklúbbnum Þór.
Nú þegar leiðir skiljast hrannast
t
Ástkær eiginmaður minn,
MAGNÚS ELÍASSON
frá Nesi í Grunnavík,
Aðalstræti 25,
isafirði,
verður jarðsunginn frá ísafjarðarkapellu laugardaginn 6. apríl
kl. 14.00.
Björney Björnsdóttir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
ÞORBJÖRG ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Austurgörðum í Kelduhverfi,
sem andaðist 31. mars sl., verður jarðsungin frá Garðskirkju laug-
ardaginn 6. apríl kl. 14.00.
Þórarinn Björnsson,
Sigriður Björnsdóttir, Egill Friðleifsson,
Guðný Björnsdóttir, Jónas Þórðarson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Minning:
Bjarni Stefánsson
Fæddur 13. september 1923
Dáinn 27. mars 1991
Bjarni Stefánsson var fæddur á
Akureyri 1923 en foreldrar hans
bjuggu þá í Steinholti í Glerár-
þorpi. Skömmu síðar fluttu þau til
Reykjavíkur með syni sína Braga
og Bjarna. Yngri bræður Bjarna,
Baldur og Höskuldur, fæddust síðar
í Reykjavík.
Bjarna kynntist ég sem drengur
á heimiii systur minnar og mágs,
þar sem Bjarni hafði herbergi. Eg
hændist fljótt að þessum hlýlega
og glaðlega manni og mér varð star-
sýnt á skyggðar teikningar eftir
hann er héngu uppi á vegg. Bjarni
var maður, sem gott var að ræða
við og uppörvandi að hitta. Síðar
liðu mörg ár milli þess er við hitt-
umst, en .alltaf var. hann sá sami
og fagnaði því innilega að rekast á
yngri kunningja.
Listrænir hæfileikar Bjarna nýtt-
ust honum við starf hans, sem form-
listamanns við Þjóðleikhúsið en
aldrei lék neinn vafi á því hvert
áhugamál hans var. Það var óperu-
söngur, sérstaklega einsöngur og
aríur. Þar var hann sérfræðingur
og kunni að njóta einstakra smáat-
riða út í æsar. Ég minnist þeirra
stunda er hann bauð mér, unglingn-
um, heim til sín á Laugarnesveginn
í aríuveislu. Ég hreifst af tónlistinni
en ég hreifst ekki síður af Bjarna
er hann fræddi mig af ákafa um
einstaka söngvara, mismunandi
upptökur og ólíka tjáningu á einni
og sömu óperuaríunni.
Við minnumst Bjarna með þakk-
læti og söknuði. Mætti einhver
. koma. fram með þeirri kynslóð, sem
upp minningar frá liðnum árum.
Ásmundur var bæði vinmargur og
vinfastur. Hann var háttvís og eitt
hið mesta prúðmenni, sem ég hefi
kynnst um dagana. Minnisstæðar
eru mér ýmsar ferðir, sem við Sig-
rún fórum um landið með þeim
Hönnu og Ásmundi og kom þá vel
í ljós áhugi hans á íslenzkri náttúru
og sögu landsins. Einkum var fróð-
legt að hlusta á Ásmund rifja upp
sögur frá heimabyggð sinni og ná-
lægum héruðum. Fór þá ekki fram
hjá þeim sem hlustuðu hve tryggð
hans við æskustöðvarnar í Grundar-
firði var mikil.
Við hjónin minnumst hlýju þeirr-
ar og gestrisni, er við ótal sinnum
nutum á heimili þeirra Ásmundar
og Hönnu en í rausn sinni og mynd--
arskap voru þau ætíð samstiga.
Síðustu árin voru þeim erfið sök-
um alvarlegra veikinda Ásmundar.
Hanna gerði allt sem í mannlegu
valdi stóð til að létta honum byrðina
og var umhyggja hennar einstök.
Með Ásmundi J. Ásmundssyni
er fallinn frá mikill drengskapar-
maður. Við Sigrún þökkum trygga
vináttu hans og flytjum Hönnu,
bömunum og öðrum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur.
Gunnar Flóvenz
Einn ljúfasti maður sem ég hef
kynnst er látinn. Ásmundur föður-
bróðir minn var þeirrar gerðar að
öllum sem þekktu hann þótti vænt
um hann. Umhyggja hans fyrir sín-
um nánustu og tryggð hans og
ræktarsemi við frændfólk sitt og
vini var einstök. í dag munu marg-
ir kveðja hann með söknuði.
Ásmundur var fæddur á Hömrum
í Eyrarsveit 23. júlí 1919. Foreldrar
hans voru Ásmundur Sigurðsson
bóndi á Suður-Bár og seinni kona
hans, Kristín Þorleifsdóttir. Ás-
mundur Sigurðsson var frá Vallá á
Kjalarnesi og bjó þar fram að þrít-
ugsaldri og var jafnframt kennari
í sveitinni. Hann kvæntist fyrst
Katrínu Einarsdóttur frá Skraut-
hólum á Kjalarnesi. Þau fluttust
1898 vestur á Fróðá á Snæfellsnesi
nú er að vaxa upp, með slíka eigin-
leika er Bjarni hafði.
Gísli H. Friðgeirsson