Morgunblaðið - 05.04.1991, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 1991
íiCEAAim
Að bíta höfuð af skömminni
Til Velvakanda.
Mánudaginn 25. mars hringdi
stúlka í Þjóðarsálina á Rás 2 og
sagði frá því að hún ásamt annarri
stúlku hefði orðið fyrir því í Hag-
kaup í Kringlunni, að vera sökuð
um að stela páskaeggi. Móðir ann-
arrar stúlkunnar hringdi út af sama
atviki. Einnig hringdi Jón og vildi
koma á framfæri sjónarmiði fyrir-
tækisins. Hann beit þó- höfuðið af
skömminni með því að tala um ár-
vökulan starfsmann, sem alls ekki
átti við í þessu tilviki, þar sem við-
komandi starfsmaður hafði gert sig
sekan um þau alvarlegu mistök að
ásaka saklaust fólk um þjófnað og
jafnframt þrýst mjög á að stúlkurn-
ar játuðu á sig þjófnaðinn til að
sleppa við lögregluna. Þegar sann-
aðist að þær voru saklausar voru
stúlkurnar beðnar afsökunar —
kannski með hangandi hendi, hendi
af þeim „árvökula". Ekki voru boðn-
ar miskabætur sem hefði þó átt að
vera sjálfsagt.
Jón sagði aðspurður að þennan
dag hefðu 7 verið gripnir fyrir
þjófnað og að menn yrðu kaldrifjað-
ir í þessu. í framhaldi af þessu spyr
ég: Voru þessir 7 allir sekir eða
játuðu kannski sumir til þess að
sleppa við að lenda í lögreglumáli,
en voru þó ef til vill saklausir án
þess að geta sannað það!
Ég hef verslað við Hagkaup frá
stofnun þess og alltaf fengið fyrir-
myndarþjónustu, einnig í þau skipti
sem ég þurfti að kvarta. Ég vil því
gjarnan trúa því að í þessu máli
hafi orðið mistök, sem er undan-
tekning, en ekki að þessar aðferðir
séu að verða regla. Ékkert verslun-
arfyrirtæki getur tekið þá afstöðu
fyrirfram, að líta á alla viðskipta-
vini sína sem hugsanlega þjófa.
Að lokum óska ég Hagkaups-
mönnum góðs gengis hér eftir sem
hingað til. Haldið áfram að vera
„kaldriíjaðir" gagnvart þjófum, en
látið frekar einn og einn sleppa en
að gerast sjálfir mannorðsþjófar.
Viðurkennið hiklaust þegar ykkur
verða á mistök, það getur hent alla,
en reynið að bæta fyrir það að svo
miklu leyti sem það er hægt. Það
er góð auglýsing og ykkur til sóma.
Yngvi Jónsson,
220230-7169.
P.S. Það skal tekið fram að ég
þekki ekki viðkomandi stúlkur, en
vonandi fyrirgefa þær Hagkaups-
mönnum og eiga við þá ánægjuleg
viðskipti í framtíðinni.
Með
morgunkaffinu
Ást er...
I / ^
... að láta hann halda að
hann sé bjargvætturinn
mikli.
TM Reg. U.S. Pat 0«.—all rights reserved
© 1991 LoaAngelesTimesSyndicate
Við skulum bara borða nestið Verð að hætta. Það er beðið
núna. eftir að komast að.
Úr glataðist
Móðir hringdi og sagði son
sinn hafa týnt úri er hann var
að koma af júdóæfingu í Ein-
holti miðvikudaginn 27. mars.
Þetta var svart Casioúr og er
finnandi vinsamlega beðinn að
láta af því vitá í síma 74106.
Týndi verðlaunagrip
Ester hringdi og sagðist hafa
unnið til verðlauna á íþróttamóti
fatlaðra 26. mars síðast liðinn.
Annaðhvort innan dyra eða utan
við Hátún 14 eða utandyra við
Hátún 10 hefur hnútur á borða,
sem verðlaunapeningurinn var
þræddur upp á raknað, og pen-
ingurinn fallið til jarðar. Þetta
er gullpeningur með bogfimi-
skildi. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 28826 eða skili
gripnum í Hátún 14.
Myndir í óskilum
Jóhanna hringdi og sagðist
hafa fundið myndaumslag með
milli 25 og 30 myndum rétt hjá
Ikea í Kringlunni. Sá sem saknar
þessára mynda getur vitjað
þeirra í síma 50269 eftir klukkan
16.
Vill einhver kettlinga?
Kona ein hafði samband við
Velvakanda og sagði að vegna
flutninga vildi hún gefa tvo
stálpaða vel vanda kettlinga.
Hún sagðist vera í síma 45021
eftir klukkan 17 á daginn.
Laufey Bjarnadóttir hringdi
í Velvakanda og sagði farir sínar
ekki sléttar. Ungur frændi henn-
ar hafði brugðið sér í sundlau-
gamar í Laugardal og var hann
í nýjum Nike-íþróttaskóm. 7.000
króna skóm sem hann dró á
fæturna við þetta tækifæri í ann-
að sinn frá því skómir voru
keyptir. Hann lagði skó sína á
skóhillu eins og vani er, en er
hann kom úr lauginni vom
skórnir horfnir. Mátti hann halda
til síns heima á sokkunum einum
saman. Laufey vildi segja frá
þessum þjófnaði ef hann mætti
verða öðrum víti til varnaðar.
Hvatti hún sundlaugagesti til að
gæta vel að eigum sínum, því
óprúttnir og fólskulegir þjófar
væru greinilega í felum í fjöldan-
um.
Týndi tösku
Ásta Sig. hringdi til okkar og
hafði týnt svartri hliðartösku í
miðbæ Akureyrar miðvikudag-
inn fyrir páska. í töskunni voru
öll skilríki og kort Ástu, en sára-
lítið af peningum. Ásta bað þess
að finnandi hefði samband í síma
621273.
Burt með kg-gjaldið...
Jón Tr. Halldórsson lét í sér
heyra og taldi fulla ástæðu til
að gera að kosningamáli kílóg-
rammagjaldið sem sett var á bif-
reiðaeigendur fyrir þremur
árum. „Þetta átti að vera í eitt
ár til reynslu til að bjarga vega-
gerðinni fyrir horn, en hefur nú
verið í þijú ár og hækkað þús-
undfalt. Þetta er ósanngjarnt og
þessu ættum við öll að mót-
mæla. Ég skora á yfirvöld að
taka þennan skatt til endurskoð-
unar strax, og kjósendur ættu
að gera þetta að kosningamáli,"
sagði Jón.
Páfagaukurinn stakk af
Hringt var og frá því greint
að páfagaukur hefði stungið af
frá heimili sínu á Skeljagranda
9 á annan í páskum. Þetta-er
svokallaður dísarpáfagaukur,
nokkuð stór með gult í höfði og
vængjum, en grár að öðru leyti.
Viti einhver um afdrif fuglsins
er hinn sami beðinn að gera við-
vart í síma 619262.
Úr í óskilum
Afgreiðslustúlka í verslun-
inni Markinu í Ármúla 40’
hringdi og sagðist lýsa eftir
konu. Nánar tiltekið konunni sem
var að máta skíðagalla í búðinni
30. mars síðastliðinn. Hún skildi
nefnilega úrið sitt eftir, úr með
hvíta skífu og svarta leðuról.
Þjófnaður
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrífar
Víða erlendis spila dóms- og lög-
gæslumál stóra rullu í bar
áttu stjórnmálamanna fyrir kosn-
ingar og loforð um herta dóma,
úrbætur í fangelsismálum, bætta
löggæslu og svo framvegis þykja
vænleg beita þegar farið er á
atkvæðaveiðar.
En þrátt fyrir mikla umræðu um
glæpi og refsingar undanfarnar vik-
ur og mánuði í kjölfar hörmulegra
ofbeldisverka hefur Víkveiji ekki
orðið var við að stjórnmálamenn,
hvar í flokki sem þeir standa, hafi
séð ástæðu til að kynna kjósendum
með hvaða hætti þeir hyggist ta-
kast á við þessi mál.
Þó er hér um að ræða þá óum-
deildu frumskyldu ríkisvaldsins að
gæta öryggis borgaranna og halda
uppi lögum og reglu.
xxx
Nú þegar fjöldi fólks er, með
réttu eða röngu, farinn að
veigra sér við að ganga um mið-
borgina að kvöld- og næturlagi,
sýnist Víkveija málið komið á það
stig að stjórnmálamenn, þeir sem
hafa haft og sækjast eftir að kom-
ast í aðstöðu til að útdeila skattpen-
ingunum og ákveða forgangsröð
verkefna, þurfi að taka þessi mál
til athugunar af alvöru.
Er til dæmis ástæða til að endur-
skoða þá ákvörðun sem tekin var
fyrir um tuttugu árum að löggæsla
sé á verksviði ríkis en ekki
sveitarfélaga?
Hafa ekki sveitarstjórnir á hveij-
um stað betri yfirsýn yfir það hver
þörfin er og er ekki líklegt að með
því móti verði þessi mál undir virk-
ara aðhaldi borgaranna?
Sýna ekki dæmin víðs vegar um
landið þar sem vinnueftirlit hefur
verið að loka ævagömlum, þröngum
og tæpast veðurheldum lögreglu-
stöðvum og fangageymslum, að
miðstýringai’valdið í Reykjavík
bregst ekki við fyrr en í óefni er
komið?
Nýting í fangelsum landsins er
vel yfir 90%, að því er Harald
ur Johannessen fangelsismálstjóri
hefur upplýst. Hann sagði í sjón-
varpsviðtali um daginn á þá leið
að fangelsiskeifið væri í raun löngu
sprungið og aðbúnaður fanga og
starfsfólks standist ekki kröfur
tímans. Aðeins elja og dugnaður
starfsmanna geri kleift að reka
þetta kerfi frá degi til dags við
núverandi aðstæður. Hvernig ætla
stjórnmálamenn að bæta úr?
Fjölmörgum spurningum af
þessu tagi er ósvarað í þessum
málaflokki og Víkveija finnst fuil
ástæða til að rifja upp ummæli
Péturs Kr. Hafstein bæjarfógeta á
Isafirði í viðtali hér í blaðinu hinn
17. júní síðastliðinn. Þar sagði hann
að dómsmálaráðuneytið hefði verið
afgangsstærð við stjórnarmyndanii
undanfarin ár og mjög skorti þar á
stefnumarkandi forystu. Af sam-
tölum við fjölmarga embættismenr
í dóms- og réttargæslukerfinu, veit
Vikveiji að Pétur Kr. Hafstein ei
alls ekki einn um þessa skoðun.