Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 7
78
reer jiífq/. .ai :MoiíGUNHiiA<ÐSflAlflflíH2iV*lJÍA\fHJ GiaMaK'joar
verið úthlutað 14 miljónum króna
úr Norræna kvikmyndasjóðnum
og 7 milljónum úr þeim íslenska.
Þá kom fram að Evrópuráðið
myndi væntanlega styðja verkef-
nið. Eigið framlag hvers lands er
um 10% af heildarkostnaði.
Samstarfsaðilar íslendinga eru
á Grænlandi fyrirtækið Nanoq-
film en á Færeyjum Kaleiscope-
film. Reiknað er með að hægt
verði að sýna myndina um næstu
áramót.
Morgunblaðið/Sverrir
Kvikmyndatökuvélum pakkað niður fyrir Grænlandsferð. Frá vinstri: Karl Sigtryggsson, Halldór Þor-
geirsson og Sigurður Grímsson.
Morgunblaðið/Sig. Jónsson
Sjö meiddust
er rúta valt
SJO manns slösuðust, enginn
alvarlega, er rúta full af fólki
hafnaði út af veginum í Grafn-
ingi, skammt frá Villingavatni
á laugardag.
Vegurinn var erfiður yfirferðar
vegna ofankomu og hálku þegar
slysið varð, að sögn lögréglu á
Selfossi. Missti ökumaðurinn vald
á rútunni svo að hún valt á hliðina
út fyrir veg.
í rútunni voru rúmlega tuttugu
Akurnesingar. Þeir voru fluttir á
sjúkrahús á Selfossi þar sem gert
var að sárum þeirra sem kenndu
sér meins.
Ritstjórnarsíminn er69 11 00
Þumall tekur þátt í
gerð fyrstu græn-
lensku myndarinnar
ÁTTA kvikmyndatökumenn frá
kvikmyndagerðinni Þumli
héldu um helgina til þorpsins
Sissimut við Biskajaflóa á
Grænlandi þar sem hópurinn
tekur þátt í gerð fyrstu leiknu
grænlensku kvikmyndarinnar.
Islendingarnir munu sjá um tök-
ur á myndinni en Grænlending-
ar semja handrit og leikstýra
grænlenskum leikurum. Græn-
lenski hlutinn verður 30 mín-
útna langur og einn þriðji af
90 mínútna langri þrískiptri
kvikmynd sem þrjár þjóðir, Is-
lendingar, Grænlendingar og
Færeyingar, gera í samvinnu.
Færeyski hluti myndarinnar
verður kvikmyndaður í Suður-
eyjum í ágúst en sá íslenski á
Þingvöllum og við Heklurætur
í september.
Sagan sem kvikmynda á heitir
að sögn Halldórs Þorgeirssonar
hjá Þumli „Alein á ísnum“. „Mynd-
in fjallar um strák og stelpu sem
fara í óleyfi út á ísinn til að veiða
vegna þess að ekki hefur veiðst
neitt lengi. Á ísnum hitta þau
móður hafsins sem ræður því hvort
fiskast eða ekki. Ef farið er vel
að henni verður nægur afli og ef
ekki, lítill afli. Krakkarnir koma
vel fram við hana og þá fer að
veiðast,“ sagði Halldór í samtali
við Morgunblaðið.
íslenski hluti myndarinnar sem
heitir „Siggi og folinn“ verður
myndaður á Þingvöllum og við
rætur Heklu í september. Handri-
tið samdi Guðný Halldórsdóttir en
Kristín Pálsdóttir sér um leik-
stjórn. Færeyski hlutinn hefur enn
ekki fengið nafn en hann verður
kvikmyndaður á Suðureyjum í
ágúst. Katrín Ottósdóttir leikstýrir
þeim hluta en hún er einnig höf-
undur handrits. Þess má geta að
færeyska myndin er önnur leikna
kvikmyndin sem Færeyingar gera.
í samtalinu við Halldór kom
fram að samstarfsverkefninu hefði
xTl»
Sjálfstæbisflokkurinn
- vi& erum framtí&in
Opinn fundur í Hafnarfirði 16. apríl
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjaneskjördæmi heldur opinn fund
í Skútunni, Hafnarfirði, þriöjudaginn 16. apríl kl. 20:30.
✓
Frummælendur á fundinum verða Olafur G. Einarsson,
✓
Sigríður A. Þórðardóttir og Arni M. Mathiesen.
Við hvetjum Hafnfirðinga og nágranna til að koma á fundinn,
ræða við okkur um framtíðina og hvert við stefnum.