Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 61
MORtiliXBiiAÐii) Mtm-UrDMiUK .t<6i uVWMi, WHc
©B
Garðarsdóttur og Ástu Björk Sig-
urðardóttur innanbroðs. í þriðja
sæti varð hópurinn Umbreytir sem
skipaður er Unni Pálmarsdóttur,
Asdísi Sif Gunnarsdóttur, Helgu
Guðrúnu Ásgeirsdóttur og Klöru
Ósk Hallgrímsdóttur. í einstakl-
ingsdansi varð skipaður íslands-
meistari Unnur Pálmarsdóttir, en
annað sætið hreppti Anna María
Ragnarsdóttir. Melkroka Árný
Kvaran varð þriðja.
Þá voru það yngri krakkarnir,
en þeir kepptu 6. apríl síðast lið-
inn. í þessum hópi voru keppendur
um 90 talsins og engu minni áhorf:
endaskari en í fyrra skiptinu. I
hópdansi sigraði hóður sem kallar
sig Wicked Witches, eða illar norn-
ir. Nornirnar eru Anna S. Sig-
urðardóttir, Ingunn Guðbrands-
dóttir, Guðfínna B. Björnsdóttir,
Haddý Anna Hafsteinsdóttir og
Bergþóra Björnsdóttir. í öðru sæti
urðu Talíur sem eru þær Kristín
Ögmundsdóttir, Halla Ólafsdóttir
og Esther ír Steinarsdóttir. í þriðja
sæti varð hópurinn Kúnst með þær
Þorgerði Einarsdóttur, _ Báru
Brandsdóttur, Birgittu Gröndal og
Sigríði Láru Elnarsdóttur innan
borðs. í einstaklingsdansi sigraði
Guðfínna Björg Bjömsdóttir, önn-
ur varð Anna S. Sigurðardottir og
þriðja Birgitta Blöndal.
Margt var um manninn í húsinu og stemming góð.
Þær skipuðu þijú efstu sætin í einstaklingsdansi yngri flokksins,Guð-
finna í miðið sigraði, en t.v. er Anna sem varð önnur og t.h. Birg-
itta sem varð þriðja.
Danshópurinn ímynd sem sigraði í hópdansi í eldri flokki.
LIST
List eða af-
afsprengi úrkynjaðs
þankagangs?
Listaverkið sem sjá má á með-
fylgjandi mynd vakti gífur-
lega athygli er það var til sýnis á
mikilli myndlistasýningu í Ottawa
í Kanada fyrir skömmu. Um er
að ræða dragsíðan „samkvæmi-
skjól“ úr hráu kjöti! Listamaðurinn
Jana Sterbak, segir að á sex vikna
fresti verði skipt um kjöt þar sem
reikna megi með að ekki yrði að
öðrum kosti komandi nærri verk-
inu vegna ýldulyktar. Ýmsir kana-
dískir stjórnmálamenn og þó alveg
sérstaklega aðstandendur líknar-
og hjálparstofnanna hafa fordæmt
verkið og segja það vera dæmi um
sóun og úrkynjaðan hugsunarhátt.
Það eigi ekkert skylt við list. Sum-
ir andstæðinga listamannsins'
segja reyndar að þetta sé ná-
kvæmlega það umtal sem lista-
maðurinn óski eftir og því hafí þau
gengið í vatnið og vakið feiknaat-
hygli á verkinu með fordæmingum
sínum. Stundum væri bara ekki
hægt annað en að láta í sér heyra.
Margir hafa brosað að uppátæk-
inu og ekki síst að myndinni sem
hangir við hlið „kjólsins“, en á
myndinni hefur fyrirsæta rennt sér
í flíkina og brosir sínu blíðasta.
Þingmaður einn sem var viðstadd-
ur opnunina segir á móti, að
kreppa sé í Kanada og vaxandi
atvinnuleysi. Innan fárra kíló-
metra radíus frá sýningunni séu
líklega 4-500 manns sem eigi ekki
nægan mat til að metta sig og því
sé verk á borð við kjötkjólinn
óhæfa af verstu gerð. Talsmaður
Hjálpræðishersins í Ottawa tók í
sama streng og sagði að sitt fólk
gæti gefíð 200 þurfandi fólki góða
máltíð með 25 kg af kjöti. Tals-
maður Listasafns Ottawa var var-
færin og sagði að um „kröftugt“
verk væri að ræða. Það væri hins
vegar umdeilanlegt og ljóst væri
að margur væri ekki reiðubúinn
til að kvitta undir að um list væri
að ræða. Kjötkjóllinn er hluti af
farandsýningu sem fer síðar um
Bandaríkin og loks víða um Evr-
ópu. Reiknað er með að skipta
þurfi um kjöt oftar en einu sinni
á þeirri leið allri.
Kjötkjóllinn
íListasafni
Ottawa.
Reuter
COSPER
15. leikÝika -13. apríl 1991
Röðin : 1XX-222-1XX-211
HVER VANN ?
994.198- kr.
12 réttir: O raöir komu fram og fær hver: O-kr.
11 réttir: 4 raðir komu fram og fær hver: 62.125 - kr.
10 réttir: 55 raðir komu fram og fær hver: 4.518 - kr.
Tvöfaldur pottur - næst!
Léttir - mjúkir - sveigjanlegir
Nú fást þessir vinsælu dönsku vinnuklossar einnig með
sveigjanlegum sóla. Nýju gá-let fótlaga klossarnir eru enn
mýkri, léttari og þægilegri. Gá-let þola, bensín, sýrur o.fl.
Verða ekki hálir.
Komdu og prófaðu gá-let, finndu muninn. RV býður einnig
uppá hvít og græn vinnustígvél með grófum sóla sem ekki
verður háll. Spáðu í verðið - líttu á gæðin.
Lever-Otarés
Þekking - Úrval - Þjónusta
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi2 -110R.vik - Simar31956-685554
A HARD ROCK CAFE
Elskum alla ★ þjónum öllum
Isaac B. Tigrett
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888
wi jynsljl
.