Morgunblaðið - 16.04.1991, Side 67
JI5TCH 01 5HlOAClU(-0]fJ'T ŒCIAjaKUOHOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991
67
I léttri sveiflu.
16 til 24 ára. í þessum flokkum
væri kominn fram nokkuð góður
kjarni. í heild sagði hann að keppnin
hefði verið mun' meiri en í fyrra og
benti á að keppni í c-flokki, sem fram
fór fyrir stuttu, hefði verið í mun
hærri gæðaflokki en áður. í c-flokki
keppa dansarar sem ekki hafa keppt
áður. Jón Pétur sagði að mikill upp-
gangur væri í dansinum. Fleiri lærðu
dans og hann væri greinilega tekinn
niun alvarlegar nú en áður.
Úrslit
Fyrsta sætið í þeim flokkum sem
keppt var í á mótinu hrepptu eftir-
taldir: Arni Traustason og Helga
Þóra Björgvinsdóttir (Standarddans-
a,_' 7 ára og yngri), Rebekka Inga-
dóttir og Rut Þorsteinsdóttir (Latin-
dansar 7 ára og yngri), Andri Stef-
ánsson og Ásta Lára Jónsdóttir (
Standarddansar og Latindansar 8-9
ára), Brynjar Öm Þorleifsson og
Sesselja Sigurðardóttir (Standard-
dansar 10-11 ára), Daníel Trausta-
son og Hrefna Rósa Jóhannsdóttir
(Latindansar 10-11 ára), Davíð Arn-
ar Einarsson og Jóhanna Ella Jóns-
dóttir (Standarddansar og Latin-
dansar 12-13 ára), Ólafur Magnús
Guðnason og íris Ánna Steinarsdótt-
ir (Standarddansar 14-15 ára
(basic)), Gunnar Sverrisson og Anna
María Ragnarsdóttir (Latindansar
14-15 ára (basic))',Ólafur Magnús
Gunnarsson og íris Anna Steinars-
dóttir (Standarddansar 14-15 ára
(frjálst)), Gunnar Sverrisson og Anna
María Ragnarsdóttir (Latindansar
14-15 ára (frjálst)), Þröstur Jóhanns-
son og Sóley Þórarinsdóttir (Stand-
arddansar 16-24 ára), Þröstur Jó-
hannsson og Hildur Yr Ai-nardóttir
(Latindansar 16-24 ára), Ragnar
Sverrisson og Anna Björk Jónsdóttir
(Standarddansar 16 ára og eldri
(frjálst)), Ingvar Þór Geirsson og
Anna Sigurðardóttir (Latindansar 16
ára og eldri (ftjálst), Guðmundur
Ævar Guðmundsson og Aðalheiður
Jóhannsdóttir (Standarddansar
25-34 ára), Haukur Eiríksson og
Lizy Steinsdóttir (Latindansar 25-34
ára), Jón Stefnir Hilmarsson og
Berglind Freymóðsdóttir (Standar-
dansar og Latindansar 35-49 ára),
Árni Norðfjörð og Anna Norðfjörð
(Standarddansar 50 ára og eldri),
Sigurður Steingrímsson og Margrét
Sigurðardóttir (Latindansar 50 ára
og eldri, Jóhann Öm Ólafsson og
Petrea Guðmundsdóttir (Standard-
dansar í flokki atvinnumanna), og
JÓn Pétur Úlfljótsson og Kara Arn-
grímsdóttir (Latindansar í flokki at-
vinnumanna).
G—samtökin:
Sljóm kærir fyrmm
framkvæmdastjóra
STJÓRN G-samtakannna, samtaka gjaldþrota- og greiðsluerfiðleika-
fólks, hefur falið lögmanni sinum að kæra fyrrum framkvæmda-
stjóra félagsins fyrir að hafa fjarlægt félagaskrá og trúnaðarskjöl
af skrifstofu samtakanna en þar hætti framkvæmdastjórinn fyrir-
varalaust störfum fyrir skömmu.
Jafnframt harmar stjóm samtak-
anna að nafn og félagaskrá þeirra
hafi verið notað í tilgangi óviðkom-
andi þeim og stjóm þeirra. Að sögn
Kristjáns Einarssonar formanns
G-samtakanna notaði fram-
kvæmdastjórinn félagaskrána með-
al annars til að senda út bréf á eig-
in vegum, óviðkomandi samtökun-
um.
Þá neitaði framkvæmdastjórinn,
að sögn formannsins, að undirgang-
ast siðareglur G-samtakanna, sem
em fyrst og fremst mannúðar- og
líknarsamtök að sögn formannsins
og setti einkum fyrir sig ákvæði
um að starfsmönnum væri óheimilt
að þiggja nokkurn hlut af skjól-
stæðingum sínum, að sögn Kristj-
áns Einarssonar.
Innflutningur Sunds
til lögreglurannsóknar
RLR og rannsóknardeild tollgæslunnar hafa undanfarnar vikur haft
til rannsóknar meint brot í tengslum við innflutning heildverslunar-
innar Sunds lif. Að sögn Arnars Guðmundssonar deildarstjóra hjá
RLR er enn verið að afla gagna erlendis frá og er rannsókn hvergi
nærri lokið. Upphaf rannsóknarinnar var skýrsla til RLR frá tollgæsl-
unni um að fyrritækið hefði hugsanlega ástundað ólögmætan inn-
flutning.
Arnar vildi ekkert segja um rann-
sóknina, að hveiju hún beindist
nákvæmlega eða um hve háar upp-
hæðir væri að ræða, en þær munu
skipta milljónum króna.
Aðaleigandi Sunds, Óli Kr. Sig-
urðsson, mun ekki hafa annast dag-
legan rekstur fyrirtækisins á þeim
tíma sem rannsóknin tekur helst
til. Þeir sem það gerðu hafa látið
af störfum. Fyrirtækið hefur þegar
greitt til ríkissjóðs nokkrar milljónir
króna í leiðrétt aðflutningsgjöld.
Isafjörður:
Hrönn hf. kaupir meiri-
hlutann í Ishúsfélaginu
ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Hrönn hf. sem gerir út aflaskipið Guðbjörgu
á nú 62% hlutafjár í íshúsfélagi ísfirðinga hf., en félagið hefur um
áratugaskeið átt 35% hlutfár sem var jafngildi hlutafjár Gunnvarar
hf. sem nú gerir út frystitogarann Júlíus Geirmundsson.
Þá átti Bæjarsjóður ísafjarðar
13,5% hlutafjár og Togaraútgerðar-
félag ísafjarðar sama hlut. Nýlega
keypti íshúsfélagið hluti bæjarsjóðs
og togaraútgerðarfélagsins. Stjórn
íshúsfélagsins ákvað síðan að selja
Hrönn hf. þessa hluti á 30 milljón-
ir. Þessi kaup auka mönnum sem
starfa hjá íshúsfélaginu bjartsýni
um að aukinn afli komi til vinnslu
hjá fyrirtækinu, en menn hafa ótt-.
ast að Guðbjörgu yrði breytt í frysti-
togara. Hlutur Gunnvarar hf. verð-
ur samur.
Togaraútgerðarfélag Ísaíjarðar
hf. sem nú var að selja hluti sína
var stofnað fyrir um 30 árum, en
hefur ekki stundað útgerð fyrr en
að það keypti togarann Hafþór af
ríkissjóði fyrr í vetur. Skipið heitir
nú Skutull. Umtalsverðar endur-
bætur hafa verið gerðar á skipinu
og er ráðgert að það haldi til veiða
seinna í mánuðinum, en það mun
veiða rækju og frysta aflann um
borð.
Úlfar.
KJARAKAUP!
386T TÖLVA Á AÐEINS
KR. 299.000™ !!
Nú bjóðum við þessa öflugu HYUNDAI
tölvu á einstöku verði I
Tæknilýsing:
• Super VGA lítaskjar (1024x 768 línur).
• 4 Mb vlnnsluminnl.
• 52 Mb harður diskur, 17 ms miðsóknartími.
• 33 MHz vinnsluhraði, 64Kb „Cache" minni.
• Staögrelösluafsláttur er 10%
iSTOKNIVAL
SKEIFUNNI 17 • 108R. • S. 681665