Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1991 Borgarstjóraefni valið á morgun: Meiri líkur á tillögu um borgarfulltrúa MEIRI líkur eru á því að Davíð Oddsson forsætisráðherra og borgar- stjóri geri á morgun tiilögu um að eftirmaður hans í embætti borgar- stjóra verði úr borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisfiokksins en utan hans. „Línur eru að skýrast, en þetta tafðist svolítið hjá mér, vegna sam- Siglingamálastofnun: Davíð Egil- son ráðinn deildarstjóri DAVIÐ Egilson hefur verið ráð- inn deildarstjóri mengunarvarna Siglingamálastofnunar ríkisins, en Þórir Hilmarsson afþakkaði boð fyrrverandi umhverfismála- ráðherra um stöðuna. Siglingamálastjóri mælti á sínum tíma með Davíð Egilsyni í starfið hjá mengunarvörnum Siglingamála- stofnunar. Júlíus Sólnes ákvað hins vegar að bjóða Þóri Hilmarssyni stöðuna. Hann hefur nú afþakkað boðið og fékk siglingamálastjóri þá umboð til að ráða Davíð í stöðuna. Davíð er 41 árs gamall jarðfræð- ingur og starfar hjá Náttúruvernd- arráði. ♦ ♦ ♦ Aðstoðarfor- stjóri Alumax í heimsókn BOND Evans, aðstoðarforstjóri Alumax, kemur til landsins í dag * í stutta heimsókn til viðræðna vegna álvers Atlantsáls, sem ætl- unin er að rísi á Keilisnesi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun Evans ræða hér við fulltrúa verktaka og einnig er ætl- unin að hann ræði við forsætisráð- herra og iðnaðarráðherra. ráðsfundar með aðilum vinnumark- aðarins í gær. Þeir Ásmundur Stef- ánsson og Ögmundur Jónasson þurftu að fara utan í dag, og því varð sá fundur að vera í gær,“ sagði Davíð í samtali við Morgunblaðið í gær. Davíð hélt í gærkveldi áfram að ræða við borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins og í dag hyggst hann ljúka slíkum samtölum og taka að því búnu ákvörðun um hvern hann geri tillögu um sem eftirmann sinn í sæti borgarstjórans í Reykja- vík á fundi með borgarfulltrúum á morgun. „Það eru frekar líkur á því að ég geri tillögu um borgarstjóra úr borg- arstjómarflokki Sjálfstæðisflokks- ins en utan hans,“ sagði Davíð. Fulltrúar RKÍ gera upp söfnunina um helgina. Rauði krossinn: 24,5 millj- ónir safnast RAUÐI kross íslands gekkst fyrir landssöfnun á sunnudag- inn til hjálpar stríðshrjáðum. Ekki liggur enn fyrir live mik- ið safnaðist, en í gær voru komnar um það bil 24,5 millj- ónir króna. Söfnunarfénu verður annars vegar varið til hjálpar kúrdískum flótta- mönnum og hins vegar til að koma á fót gervilimasmiðju í Kabúl í Afganistan. Skafti Jónsson hjá Rauða krossinum nefndi sem dæmi um hvernig féð nýttist að lauslega áætlað myndi framlag íslendinga til gervilimasmiðjunnar í Kabúl duga til að veita um 400 manns meðferð. Skafti nefndi af einstökum framlögum, að Rafiðnaðarsam- band Islands hefði gefið hálfa milljón króna í söfnunina í tilefni af 20 ára afmæli sínu. Formaður Félags íslenskra stórkaupmanna: Enginn þrýstingnr á skipafélög- in fyrr en þau ákveða verð sjálf BIRGIR R. Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, segir nauðsynlegt að gefa frjálsar verðákvarðanir í fraktflutningum til og frá landinu. Hafi félagið ritað Verðlagsráði bréf þar sem farið er fram á þetta fyrr á árinu. Þau félög sem FÍS á aðild að og sitja í ráðinu, Vinnuveitendasamband Islands og Verslunarráðið, hafi hins vegar ekk- ert aðhafst í málinu. Hann segir Ijóst að enginn þrýstingur verði á skipafélögin fyrr en þau verði að taka sínar verðákvarðanir sjálf og standa síðan og falla með þeim. Birgir ritaði grein í Morgunblaðið sl. fimmtudag, þar sem m.a. kom fram, að FÍS telur nauðsynlegt að afnema ákvæði í lögum um há- marksverð í fraktflutningum. Það sé besta leiðin til uppskurðar á verð- myndun í flutningakerfínu til og frá landinu enda séu í dag aðstæður til að ná fram aukinni samkeppni og virkari markaðsöflum til lækk- unar á frakt. „Við höfum átt í viðræðum við skipafélögin um breytingar á þess- um málum en þær hafa hingað til verið árangurslausar," segir Birgir í samtali við Morgunblaðið. Alltaf væri verið að reyna að hnika þess- um málum áfram og væri það að ná fram breytingu á fyrirkomulagi flutningamála eitt af meginvið- fangsefnum félagsins. „Það er eng- inn þrýstingur á skipafélögin, hvorki frá neytendum né skipafé- lögum, meðan þessi mál eru frosin inni í Verðlagsráði. Þau ættu auð- vitað að taka sínar verðákvarðanir sjálf og standa síðan og falla með þeim. Ástandið getur ekki orðið verra en það er í dag.“ Hann segir að í gjaldskrármálum hafi verið við lýði ákveðið kerfí ára- tugum saman sem byggist á því að verð fari eftir því hvaða vöru sé verið að flytja. Þetta væri úrelt sjónarmið enda keyptu menn nú gám undir vöruna og kæmi skipafé- laginu ekkert við hvað sett væri í hann. Hann segist ekki vita til að kerfi af þessu tagi sé við lýði ann- ars staðar en hér á landi. „Það er líka einsdæmi að skipafélögin skuli ekki vilja gefa flutningsmiðlurum gámaverð eða safnsendingaverð. Slíkt er nauðsynlegt til að virkja samkeppnina.“ Fundir ráðherra og aðila vinnumarkaðarins: Farið yfir stöðu ríkisfjármála DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, Friðrik Sophusson, fjármálaráð- herra, og Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, áttu á sunnudag og í gær fundi með fulltrúum aðila vinnumarkaðarins. Fyrsti fundur ráðherra með aðilum vinnumarkaðarins var á sunnu- daginn með fulltrúum ASÍ og BSRB. Frá vinstri eru Ragnhildur Guðmundsdóttir, varaformaður BSRB, Ögmundur Jónasson, formað- ur BSRB, Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, Davíð Oddsson, forsæt- isráðherra, Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, Ásmundur Stefáns- son, forseti ASÍ, og Ragna Bergmann, varaforseti ASÍ. Ragnhildur Guðmundsdóttir, varaformaður BSRB, sagði eftir fundinn á sunnudag, að ríkisstjóm- in hefði kynnt stöðu ríkisfjármála og auk þess hefði verið rætt um vanda í húsnæðismálum og vaxta- hækkanir en ríkisstjórnin hefði eng- ar tillögur kynnt á fundinum. „Við gátum lftið sagt vegna þess að við fengum engar upplýsingar um til hvaða aðgerða verður gripið. Það var rætt um að sérfræðingar ríkis- stjómarinnar og launþegasamtak- anna hittustf í vikunni og færu yfir ýmsar hugmyndir, meðal annars í verðlagsmálum. Það kom hins veg- ar fram að ríkisstjórnin mun ekki hafa tilbúnar neinar ákvarðanir fyrr en í lok vikunnar," sagði Ari Skúla- son, hagfræðingur ASÍ. Einar Oddur Kristjánsson, for- maður VSÍ, sagði eftir fundinn með ráðherrum í gær, að farið hefði verið yfir stöðuna, en um málið væri ekkert frekar að segja á þessu stigi. Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi, að á fundinum hefðu ráð- herramir gert grein fyrir stöðu rík- isfjármála og farið yfir atriði, sem að nokkrum hluta hefðu verið kom- in fram í launanefnd Kennarasam- bandsins vegna kjarasamningsins. Þá hefðu fulltrúar KÍ lýst skoðunum sínum á þeim gögnum sem fyrir liggja frá Þjóðhagsstofnun, m.a. um viðskiptakjör og verðlag, en Svan- hildur sagðist líta á þetta í beinum tengslum við síðustu endurskoðun á kjarasamningnum, sem aðilar inn- an Kennarasambands íslands búa við. Ekki náðist í forystumenn BHMR vegna þessa máls í gær. Viðskiptakjarabati Hagstofan vinnur nú að útreikn- ingfum á viðskiptakjörum fyrir launanefndir aðila vinnumarkaðar- ins en launþegar krefjast hlutdeild- ar í viðskiptakjarabata. Ari sagði ljóst að Hagstofan myndi ekki skila af sér fyrr en á föstudag og verða þær niðurstöður þá sendar Þjóð- hagsstofnun. Er búist við að launa- nefndimar muni vinna yfír helgina við að ná samkomulagi um launa- breytingar 1. júní þegar mat Þjóð- hagsstofnunar liggur fyrir. „Þessi fundur með ríkisstjóminni var hvorki upphaf né endir á neinu. Við emm nú að fara af stað við endurskoðun samninganna. Fram- færsluvísitala er komin 0,56% fram yfir rauða strikið og viðskiptakjara- batinn er töluvert meiri en gert var ráð fyrir. Er beðið eftir upplýsing- um frá Þjóðhagsstofnun sem liggja væntanlega fyrir í Iok vikunnar og þá verður þessu líklega lokið um helgina. Við munum sækja það fast að launafólk fái hlutdeild í þeim bata sem orðinn er. Ég vænti þess að þegar upplýsingar Þjóðhags- stofnunar liggja fyrir verði frekara framhald á þessum viðræðum við ríkisvaldið,“ sagði Ragnhildur. Ásmundur Stefánsson, forseti ASI, og Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB, eru staddir erlendis þar sem þeir munu sitja þing Evr- ópusambands verkalýðsfélaga í Lúxemborg fram á föstudag. Skýrsla um ríkisfjármál á Alþingi Talið er að halli ríkissjóðs á þessu ári verði um 10 milljarðar króna að öllu óbreyttu, en fjárlög þessa árs gerðu ráð fyrir rúmlega 4 millj- arða króna halla. Á ríkisstjórnar- fundinum á laugardag var farið yfir stöðu hvers ráðuneytis fyrir sig með sérfræðingum fjármálaráðu- neytis, Seðlabankaris og Þjóðhags- stofnunar. Friðrik Sophusson, fjár- málaráðherra, sagði að rætt hefði verið um hugsanlegar aðgerðir, en komið hefði í Ijós, að þegar ráðu- neytin tíndu upp úr pokunum, stækkaði vandinn með hveijum degi. Friðrik sagðist myndu leggja skýrslu fyrir Alþingi um þessi mál innan tíðar. Nú er talið að hrein lánsfjárþörf ríkisins, þ.e. ríkissjóðs og opinberra sjóða og stofnana, verði að óbreyttu 31-32 milljarðar króna á þessu ári, en þegar fjárlög voru samþykkt í desember vár áætlað að lánsfjár- þörfin yrði 24 milljarðar. Með hreinni lánsfjárþörf er átt við við- bótarlán, eftir að greitt hefur verið af eldri lánum. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs er talin verða um 12-13 milljarðar en afgangurinn er láns- fjárþörf opinberra lánastofnana, aðallega vegna húsnæðiskerfísins. Fjármálaráðherra hefur áður ságt að markmiðið væri að draga þannig úr lánsfjárþörf ríkisins að hún verði svipuð og fyrir lá þegar fjárlög voru afgreidd. „Það er þó alveg ljóst, að eftir því sem lánsfjár- þörf ríkisins eykst verður möguleik- inn minni á að það takist að ná henni niður í fjárlagatöluna,“ sagði Friðrik Sophusson í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.