Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991
2
Morgunblaðið/RAX
i frá Dómkirkjunni til setningarat-
rþing-
íginu
að stýra fleyi okkar til farsældar og
vera um leið aflgjafi þess að þegnar
landsins tryðu á landið og skynjuðu
að þeir væru ómissandi hluti heil-
steyptrar þjóðar sem stefndi fram á
bjarta tíma.
Forseti bað þingheim að minnast
ættjarðarinnar. Þingmenn hylltu
forseta og fóstuijörð með ferföldu
húrrahrópi. Að endingu bað forseti
Islands aldursforseta þingmanna,
Matthías Bjarnason, að stýra þing-
fundi. Matthías bauð þingmenn og
starfsmenn Alþingis velkomna til
þingstarfa. Matthías árnaði einnig
nýrri ríkisstjórn velfarnaðar í störf-
um. Að svo búnu frestaði hann fundi
til kl. 14. í dag.
Sérnefndir
Á fundi sameinaðs þings í dag
verða kjörbréf rannsökuð og nýir
þingmenn vinna drengskaparheit að
stjórnarskránni. Forseti og varafor-
setar og skrifarar deildarinnar verða
kosnir og valið verður í kjörbréfa-
nefnd. Einnig verður nú í síðasta
sinn valið í þingdeildir, þ.e.a.s. efri
og neðri deild.
Morgunblaðið/Þorkell
Matthías Bjarnason aldursforseti
Alþingis stjórnar þingsetningar-
fundi.
Að loknum fundi í sameinuðu
þingi verða fundir í þingdeildum, og
verður dregið um sætaskipan og
forsetar, varaforsetar og skrifarar
kjörnir.
Gert er ráð fyrir að Salome Þor-
kelsdóttir (S-Rn) verði forseti sam-
einaðs þings, Matthías Bjarnason
(S-Vf) forseti neðri deildar og Karl
Steinar Guðnason (A-Rn) forseti
þeirrar efri.
Stefnt er að því að frumvarp til
laga um ný þingsköp verði lagt fram
í dag og komi til umræðu á morg-
un. Samhliða þessu frumvarpi verð-
ur lagt fram frumvarp það um breyt-
ingu á stjórnarskrá lýðveldisins sem
gerir ráð fyrir því að Alþingi starfi
framvegis í einni málstofu. Frum-
varpið var samþykkt á síðasta þingi
en þar sem um stjórnarskrárbreyt-
ingu er að ræða verður að sam-
þykkja frumvarpið á nýjan leik að
loknum alþingiskosningum til þess
að það öðlist lagagiidi. Kjörnar verða
sérstakar þingnefndir til að fjalla
um þessi frumvörp.
I gær fundaði Davíð Oddsson for-
sætisráðherra með formönnum
flokkanna og þingflokkanna um
hvernig starfi þingsins og afgreiðslu
þingmála verði hagað. Margrét Frí-
mannsdóttir formaður þingflokks
Alþýðubandalags segir stjórnarand-
stöðuna áskilja sér allan rétt til þess
að vekja máls á málum eftir því sem
ástæða þykir til. Stefnt er að því
að ljúka störfum þessa vorþings eigi
síðar en um næstu mánaðamót.
Þingi verður þá slitið en nýtt þing
sem starfi í einni þingdeild sett strax
í kjölfarið en því þingi verði síðan
frestað. Unnt verður að kaila það
þing saman með stuttum fyrirvara
ef ástæða þykir til en samkomudag-
ur reglulegs Alþingis verður 1. októ-
ber.
sráðherra flytur
eðu sína að viku
flytur stefnuræðu sína í Alþingi á
mun í trúnaði afhenda þingmönn-
í stjórnarandstaðan setti fram þá
ingheimi stefnuræðu og um hana
hafði ætlað að sér að flytja stutt-
um væri stutt aukaþing að ræða,
afmarkaða þætti,“ sagði Davíð
Oddsson forsætisráðherra í samtali
við Morgunblaðið í gær. Forsætis-
ráðherra sagði að hann myndi samt
sem áður verða við þessari kröfu
stjórnarandstöðunnar. “Ég mun af-
henda þingheimi ræðuna í trúnaði
nú á föstudag, flytja hana á þriðju-
dag og svo verða umræður um stefn-
uræðu forsætisráðherra á miðviku-
dag,“ sagði Davíð.
Margrét Frímannsdóttir formaður
þingflokks Alþýðubandalagsins
sagði að stjórnarandstaðan hefði
sett fram óskir um að ræða forsæt-
isráðherra yrði ekki í formi tilkynn-
ingar, heldur yrði flutt stefnuræða,
eins og þingskaparlögin kveða á um.
„Við samþykktum að það nægði að
fá stefnuræðu forsætisráðherra í
hendur næsta föstudag, en hjá okk-
ur réð sú grundvallarafstaða að fá
að heyra forsætisráðherrann flytja
stefnuræðu,“ sagði Margrét.
Kvennalistinn:
Anna Olafs-
dóttir formað-
ur þingflokks
ANNA Ólafsdóttir Björnsson hef-
ur tekið við formennsku í þing-
flokki Kvennalistans, en því starfi
gegndi Málmfríður Sigurðardótt-
ir.
Jafnframt var ákveðið að Kristín
Ástgeirsdóttir gegni starfi vara-
formanns þingflokksins.
Gunnlaugur Stefánsson mættur til þings á nýjan leik.
Gunnlaug’ur Stefánsson:
Fátt virðist hafa breyst
„VIÐ fystu sýn virðist mér að
fátt hafi breyst í þingstörfunum
en það kann að vera að afgerandi
breyting fylgi þegar þingið tekur
til starfa í einni málstofu," sagði
Gunnlaugur Stefánsson, nýkjör-
inn alþingismaður Álþýð-
ugflokksins, en hann sat á alþingi
1978-1979.
„Þingmennskan leggst vel í mig
og ég vona að það verði góður ár-
angur bæði af störfum ríkisstjórn-
arinnar og einig vona ég að ég
megi gera gagn,“ sagði Gunnlaug-
ur. Hann var beðinn að bera stutt-
lega saman stjórnarmyndunina nú
og 1978, þegar Alþýðuflokkur tók
sæti í ríkisstjórn með Alþýðubanda-
lagi og Framsóknarflokki og sagði
hann að helsti munurinn væri hve
stjórnarmyndunin nú hefði tekið
skamman tíma. „Ég er ekki frá því
að hún hefði mátt taka lengri tíma ' ’
þannig að við hefðum getað bundið
fastar ýmsa málaflokka,“ sagði
■ Gunnlaugur.
Björn Bjarnason:
Þriðji ættliður í beinan karl-
1 egg sem tekur sæti á þingi
Arni M. Mathiesen:
„VISSULEGA er það sérstök til-
finning að koma hér til starfa á
þinginu með þessa sögu úr minni
fjölskyldu að baki og það hlýtur
að hafa áhrif á það hvernig
maður lítur á þetta starf að vita
af þessum tveimur forfeðrum
sínum í þingsögunni sem báðir
létu mikið að sér kveða hvor með
sínum hætti,“ sagði Björn Bjarn-
ason, nýkjörinn 3. þingmaður
Reykvíkinga, en hann er þriðji
ættliður í beinan karllegg sem
tekur sæti á alþingi. Faðir hans
Bjarni Benediktsson, fyrrum for-
sætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins sat á alþingi
frá 1942 til dauðadags, 1970, og
faðir Bjarna, Benedikt Sveins-
son, var þingmaður N-Þing-
eyinga frá 1908-1931 og forseti
Neðri deildar alþingis 1920-1930.
„Vissulega hugsar maður til
þeirra á þessum degi,“ sagði Björn.
„Við komum hér núna á sögulegum
timamótum þar sem verið er að
fjalla um að sameina þingið í eina
deild. Faðir minn skrifaði á sínum
tíma mikla ritgerð um deildir al-
þingis þar sem hann telur að tví-
skipting alþingis í deildir muni
smám saman hafa minni þýðingu
en áður þótt hann leggi ekki bein-
línis til að þingið verði sameinað í
eina deild. Áfi minn var þingforseti
hér og þótt ég muni ekki eftir hon-
um á þingi hef ég lesið um hans
framgöngu hér,“ sagði Björn Bjarn-
ason.
Eftir því sem Morgunblaðinu er
best kunnugt er þetta í annað skipt-
ið í þingsögunni, sem sama fjöl-
skylda á þingmenn í þremur ættlið-
um í beinan karllegg. í fyrra skip-
tið var um að ræða Jónas Árnason,
föður hans Árni Jónsson frá Múla
og föður Árna, Jón Jónson í Mula.
Morgunblaðið/Sverrir
Alþingismennirnir Björn Bjarnason og Árni M. Mathiesen.
Eini þingmaður Hafnfírðinga
„ÞAÐ má segja að ég taki við sem
þingmaður Hafnarfirðinga, sá
eini á þessu kjörtímabili, og út
frá því iná segja að ég taki ekki
bara við af föður minum, heldur
líka Geir Gunnarssyni og Kjartani
Jóliannssyni, sem báðir voru
kjörnir í síðustu kosninguin,"
sagði Árni M. Mathiesen, nýkjör-
inn 3. þingmaður Reykjaneskjör-
dæmis, sem tekur sæti á alþingi
um leið og faðir hans, Matthias
Mathiesen, lætur af þingmennsku
eftir 32 ára setu á alþingi. Árni
er jafnfraint yngstur þingmanna,
33 ára gamall.
„Ég tel ekki að þetta leggi mér
neinar sérstakar skyldur á herðar
að taka við þegar faðir minn hætt-
ir. Maður reynir alltaf að standa sig
eins vel og maður mögulega getur
og það eru allir möguleikar til að
gera mjög góða hluti en það tekst
ekki nema allir leggist á eitt og vinni
vel saman,“ sagði Árni M. Mathie-
sen.