Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 Asparverkefni á Suðnrlandi — Rannsóknarstöðin á Mógilsá eftir Jóhann * Isleifsson í grein minni, „Skógrækt á refil- stigum", sem birtist í Morgunblað- inu 20. febrúar sl. fullyrði ég að verið sé að leggja niður tímamóta- verkefni í skógrækt á Suðurlandi, svokallað asparverkefni. Verkefni þetta nýtur þeirrar „virðingar“ að vera nr. 3 í röð stórverkefna í þess- ari starfsemi, sem aldrei verða að veruleika. Svargrein dr. Árna Brag- asonar, forstöðumanns Skógrækt- arinnar á Mógilsá, í Morgunblaðinu 2. mars breytir engu um þessa full- vissu mína. Annars er ekki margt um grein dr. Áma að segja. Hann þjáist greinilega orðið af sömu „veiru“ og yfirmenn hans; e.t.v. er hér um smit að ræða. Ég get samt ekki látið hjá líða að leiðrétta alvar- legustu rangfærslurnar í grein hans. Hversu hár var kostnaður við „asparverkefnið" árið 1990? Dr. Árni hefur fullyrt að kostnað- ur við verkefnið 1990 hafí farið langt fram úr kostnaðaráætlun fyrrum starfsmanna á Mógilsá. Samt sem áður tókst ekki að hrinda í framkvæmd nema broti af verk- efninu á árinu 1990. Ég mótmæli ekki þessari fullyrðingu dr. Árna. En hversu hár var kostnaðurinn á síðasta ári? Dr. Árni hefur látið hafa eftir sér í útvarpsviðtali að kostnaður við verkefnið á síðasta ári hafi verið á bilinu 18-20 milljón- ir kr. Á blaði sem var lagt fyrir okkur plöntuframleiðendur á fundi með landbúnaðarráðherra var talað um rúmar sjö milljónir, fyrir utan einhvern launakostnað. Síðan hefur maður heyrt alls konar tölur; það er reyndar dæmigert fyrir málflutn- ing Árna. Kostnaðaráætlun fyrrverandi starfsmanna, ásamt raunar öllu bókhaldi rannsóknarstöðvarinnar, var tekin til mjög nákvæmrar at- hugunar hjá Ríkisendurskoðun, eft- ir að beiðni þess efnis kom fram frá landbúnaðarráðuneyti. í niður- stöðum Ríkisendurskoðunar kom ekkert fram um að kostnaðaráætl- un stæðist ekki. Sömuleiðis voru allir ræktunarsamningar taldir vera innan ramma heimilda. Fullyrðing- ar dr. Árna um að yfirmenn Skóg- ræktar ríkisins hafi ekki frétt af gerð samninga við okkur ræktend- ur, fyrr en löngu eftir að þeir voru gerðir, eru rangar og ástæðulaust að deila lengi um það, þar sem til eru skjalfest gögn um að samning- arnir hafi verið gerðir með vitund æðstu yfirmanna Skógræktarinnar. Allan síðari hluta ársins 1990, eða í sjö mánuði, heyrðist heldur aldrei nein rödd frá stjórnendum þar sem kostnaðaráætlun væri dregin í efa. Síðan gerist það í ársbyijun 1991 að öllum framleiðslusamningum við okkur garðyrkjubændur er skyndi- lega sagt upp og dr. Árni fer að hrópa „úlfur, úlfur“ og fullyrðir að kostnaðaráætlunin hafi verið kol- röng og allt sé þetta fyrrverandi starfsmönnum að kenna. Staðreyndin er sú að allt þetta sjónarspil er einn blekkingarvefur. Það var aldrei ætlunin að halda þessu verkefni áfram, í sinni upp- haflegu mynd. Verkefnið átti að fá hægt andlát og kenna síðan öðrum um ófarimar. Vegna þessa verkefnis eru nú til ráðstöfunar u.þ.b. 500.000 plöntur. Jafnframt er ætlunin að láta fram- leiða ca. 150.000 plöntur til viðbót- ar á þessu ári fyrir verkefnið. Tveimur framleiðendum af fimm hefur verið gefinn kostur á áfram- haldandi þátttöku í verkefninu. Við okkur sem eftir stöndum hefur ekk- ert verið rætt. Dr. Árni hefur látið hafa eftir sér opinberlega að við höfum samþykkt þetta fyrirkomu- lag að einhverju eða öllu leyti; eða eins og hann segir; samþykkt að taka þátt í þessu happadrætti. Þetta eru rakin ósannindi. Riftun samn- inga var strax mótmælt formlega og aldrei hefur verið gerð nein minnsta tilraun til þess að komast að samkomulagi við okkur. Og nú ætlar dr. Árni auk þess að fara að dreifa þessum plöntum á fjölmarga staði á landinu. Hvers konar rannsóknir verða það með tiltölulega fáar plöntur á hveijum stað og þar að auki með asparteg- undir (klóna) sem hafa verið valdar „Það sem eftir stendur af asparverkefninu er mest lítið; málamynda- framleiðsla á plöntum, einungis í þeim tilgangi að geta sagt að verk- efnið sé ekki dautt; rannsóknarþátturinn er horfinn.“ með Suðurland í huga, þar sem til stóð að hrinda þessu verkefni í framkvæmd? Dr. Árni og „Æðsta ráðið" við Rannsóknarstöðina verða að svara þeirri spurningu. Plöntuverð og plöntusamningar Það fer ekki á milli mála, að sú veira sem ég nefndi í upphafi grein- arinnar, hefur leikið lausum hala í huga dr. Árna, þegar hann fór að reikna út framleiðslukostnað á plöntu. Dr. Árni fullyrðir að fram- leiðslukostnaður hafi numið 18,58 kr. á plöntu, í stað þeirra 12 kr. sem um var rætt í samningi. Það er rétt hjá dr. Árna að við framleið- endur komum inn í samninginn endurskoðunarákvæði þess efnis að ef raunkostnaður ykist verulega, yrði tekið tillit til þess. Þetta var gert vegna þess að hér var á ferð- inni nýjung í ræktunartækni og mikil óvissa um eiginleika hinna ýmsu „klóna“ sem ekki höfðu verið ræktaðir áður. Einn „klóninn" sem gengur und- ir nafninu „Salka", reyndist vera dýrari í framleiðslu en aðrir „klón- ar“ sem gerð var tilraun með í þessu verkefni; afföll í ræktun vegna lé- legrar rótunar reyndust vera á bil- inu 25-30%, meðan aðrir „klónar“ reyndust vera með afföll á bilinu 3-7%. Tilviljun réð því að megin- framleiðslan af þessum „klón“ var í framleiðslu hjá mér en ekki ein- hveijum öðrum; u.þ.b. 15% af heild- arframleiðslu verkefnisins var þessi „klónn“. — Hækkun á framleiðslu- verði hjá mér vegna áðurgreinds, reyndist vera kr. 2,52 á plöntu; heildarframleiðslukostnaður hjá mér var því kr. 14,52 á pjöntu en ekki kr. 18,54 eins og dr. Árni full- yrðir. Annars hefur „Salkan“ reynst að mörgu leyti yfirburða vel hér á Suðurlandi og menn verða að sætta sig við að greiða aðeins hærra verð fyrir hana, ef þeir óska eftir að fá hana. Við garðyrkjubændur höfum staðið við okkar hlut í þeim samn- ingum sem voru gerðir en það er meira en dr. Árni getur sagt. Ann- ar kostnaður sem Rannsóknarstöð- in hefur orðið að greiða okkur, og Árni vill bæta ofan á framleiðslu- kostnað plantnanna, er tilkominn vegna samningsbrota Rannsóknar- stöðvarinnar. Sá kostnaður á eftir að hækka og er hann einungis vegna tjóns sem við höfum orðið fyrir vegna þess að samningar hafa verið brotnir á okkur. Fullyrðingar dr. Áma, þess efnis að framleiðslukostnaður hjá mér hafi verið hærri en nemur fram- leiðslukostnaði Skógiæktar ríkis- ins, era rangar — og dr. Árna á líka að vera fullkunnugt um það. Ég verð að segja að málflutningur dr. Árna er bæði ómerkilegur og óheiðarlegur, en það kemur því miður ekki lengur á óvart. Galdraáætlanir - galdraofsóknir Dr. Árna verður tíðrætt í grein sinni um stórhuga áætlanir í skóg- rækt en þó sérstaklega áætlanir fyrrum starfsmanna Rannsóknar- stöðvarinnar á Mógilsá. Hann dreg- ur þær ályktanir að hér hafi verið á ferðinni einhvers konar galdra- áætlanir. Ég efast ekki um að svo sé í augum dr. Áma en á meðal óhlutdrægra vísindamanna held ég að almennt hafi verið viðurkennt að þessar áætlanir séu með þeim bestu sem hafi komið frá Skógrækt ríkisins; þessar áætlanir komu fyrst fram hjá fyrrum starfsmönnum Rannsóknarstöðvarinnar á Mógilsá, sem nú hafa — því miður — allir hætt störfum. Nefna má í þessu sambandi að virt erlend fagtímarit á þessu sviði sáu ástæðu til þess að birta greinar eftir þá félaga; hjá þeim aðilum er gerð mjög ströng krafa um vísindaleg vinnubrögð, vinnubrögð sem Skógrækt ríkisins hefur ekki getað státað mikið af hingað til. Dr. Árni vitnar m.a. í viðamikla skýrslu eftir þá félaga um flutnings- tæki og flutningsleiðir á trjákurli til Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Sú ályktun er hann dregur af lestri skýrslunnar er stór- undarleg og hlægileg. Mætti einna helst líkja henni við fullyrðingu sem væri eitthvað á þá leið að dr. Árni þekkti ekki mun á furu og greni. Ef orðið galdrar er einhvers stað- ar viðeigandi í kringum þessa at- burði, þá er það í sambandi við þær ofsóknir sem fyrrverandi starfs- menn Rannsóknarstöðvarinnar á Mógilsá hafa orðið fyrir eftir að þeir voru flæmdir burt fyrir þær sakir einar að gagnrýna ríkjandi starfshætti og fyrir það að reyna að innleiða ný vinnubrögð í stein- geldu og illa lyktandi ríkisfyrirtæki. Lokaorð í þessari grein hef ég leitt getum að því að embættismenn sem hafa umsjón með yfirstjórn Skógræktar ríkisins, séu að leggja niður stórt tímamóta-þróunarverkefni í skóg- rækt á Suðurlandi. Ástæður þessa era ekki byggðar á neinum fagleg- um grunni né heldur kostnaðarleg- um, eins og marg hefur verið hald- ið fram. Ástæðan er sú að þetta er einn þátturinn í skipulegri her- ferð gegn fyrrverandi starfsmönn- um á Rannsóknarstöðinni á Mó- gilsá, þar sem megiritilgangurinn er hefnd, og öll brögð eru notuð. Það sem eftir stendur af aspar- verkefninu er mest lítið; málamynd- aframleiðsla á plöntum, einungis í þeim tilgangi að geta sagt að verk- efnið sé ekki dautt; rannsóknarþátt- urinn er horfinn. Og síðan á að halda áfram með „frímerkjaskóg- ræktina", eins og undanfarin ár og dreifa þessum fáu plöntum á allt of marga staði. — Áð lpkum þetta Árni Bragason; það er mesti mis- skilningur að ég sé á villigötum. Ég er á réttri leið en þú ættir að athuga þinn gang nánar áður en lengra er haldið. Höfimdur er garðyrkjubóndi í IJveragerði. Aðalfundur Vinnuveitendasambands íslands verður haldinn í dag, þriðjudag 14. mai, í Súlnasal Hótels Sögu. Dagskrá: Kl. 10.15 Kjörfundur beinna meðlima. Kl. 10.30 Fundarsetning. Skýrsla framkvæmdastjóra fyrir liðið starfsár og önnur aðalfundarstörf. Almenn dagskrá aðalfundar VSÍ 1991. Kl. 11.30 Ræða formanns VSÍ, Einars Odds Kristjánssonar. Ávarp forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Kl. 12.15 Hádegisverður aðalfundarfulltrúa og gesta. Kl. 13.30 EINKAVÆÐING. 1. The Privatization Revolution -How Privatization and Deregulation improve performance. Dr. Madsen Pirie, formaður Adam Smith Institute. 2. Einkavæðing - hvernig? Dr. Sigurður B. Stefánsson, framkvæmdastjóri VÍB. 3. Úr viðjum reglugerða. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs. 4. Útboð framkvæmda og þjónustu hins opinbera - nýjar lausnir. Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri Iðntæknistofnunar. Kl. 15.30 Kaffihlé Kl. 15.45 Panelumræður með forystumönnum stjórnmálaflokka á Alþingi: Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra. Jón Sigurðsson, iðnaðarráðherra. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins. Kristín Einarsdóttir, Kvennalista. Halldór Ásgrímsson, varaformaður Framsóknarflokksins. Stjórnandi umræðna: Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri B.M. Vallá. Kl. 16.30 Ályktun aðalfundar. Fundarslit. |Fundurlnn er öllum opinn frá kl. 13.30. PP Ljóðabók barnanna var kynnt á sýningu í Listasafni ASÍ og þar afhentiÁsmundur Stefánsson forseti ASI höfundum bókarinnar verðlaun. Ljóðabók barn- anna komin út LJOÐABOK barnanna með ljóðum eftir börn fyrir börn og full- orðna er komin út í tilefni af sjötíu og fimm ára afmæli ASÍ. Menntamálaráðuneytið hefur lagt málinu lið og bókaforlagið Iðunn gefur bókina út. Efni í bókina barst hvaðanæva af landinu og færir ASI öllum þeim börnum þakkir sem sendu ljóð og myndir. Ljóðin sem bár- ust voru um 6.000 svo og mikill fjöldi mynda. I bókinni kemur fram fjölbreytt mynd af þeim hugarheimi sem birtist í ljóðum barnanna. I útgáfunefnd bókarinnar voru Bergþóra Ingólfsdóttir, Hörður Zóphaníasson, Kristín Mar, Olga Guðrún Árnadóttir og Þórgunnur Skúladóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.