Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 34
Auglýsendur VORDAGAR — FYrirtækið Glit hf. tók að sér framleiðslu á flugdrekum sem ætlaðir eru til kynningar fyrir Húsasmiðjuna. Er þeim dreift. til barna á vordögum Húsasmiðjunnar sem hófust sl. föstudag. Vegna framleiðslu flugdrekanna hefur þurft að fjölga starfsmönnum tímabundið hjá Glit hf. Þetta hefur sérstaklega skap- að aukna vinnu fyrir öryrkja. Þannig hefur öryrkjum við störf hjá fyrirtækinu verið fjölgað tímabundið umfram þá 17 sem þar hafa starfað. MORGUNBLAÐIÐVlDSKIPn/iQVINNUlÍF ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 /i . i /.—r—7-:-rr Forseti Alþjóðasamtak- anna með fyrirlestur Skipana- og valmyndakerfi með ýtarlegum skýringum gera AS/400 bæði þjála í notkun og ====== mmmmm mmmmmmmm mmmm m mmmm FYRST Ög’fREMST SKAFTAHLlÐ 24 REVKJAVlK SlMI 697700 aðgengilega. FUNDAÐ — Ferðamálaráð og aðilar í ferðaþjónustu á Suðurlandi fyrir utan Hótel Selfoss að loknum fundi. Síðar í mánuðinum er fyrirhugað að opna upplýsingamiðstöð fyrir Suðurland í Tryggvaskála. Ferðaþjónusta Ferðamálaráðstefna á Suðurlandi íhaust Upplýsingamiðstöð Suðurlands opnuð í maí Selfossi. AÐALFUNDUR Samstarfs aug- lýsenda (SAU) verður haldinn í Skála á Hótel Sögu á morgun, miðvikudag, kl. 16.00. Gestur fundarins verður Paul P. de Win, Bílar Nýttsölumet hjá Toyota í SÍÐASTA mánuði var slegið nýtt met í sölu nýrra bíla hjá Toyota þegar afhentir voru 380 bílar í einum mánuði. Það eru að meðaltali 17,2 bílar hvern virkan dag mánaðarins. Gamla metið var frá því í desember árið 1987, en þá seldust 287 nýir Toyota bílar í einum mánuði. í fréttatilkynningu frá Toyota segir að sala á einstökum bílateg- undum hafi verið jöfn, en þó hafi rGorolla Special Series bflar verið mjög vinsælir. Þessir bílar voru sérstaklega pantaðir fyrir vorsöl- una. Þá kemur fram að nýr sjálf- skiptur 4Runner bíll, sem kynntur var í mars sl., hafí hlotið mjög góð- ar móttökur. forseti Alþjóðasamtaka auglý- senda (WFA), en hann kemur hingað til lands gagngert til þess að halda erindi á fundinum. Alþjóðasamtök auglýsenda voru stofnuð árið 1953 með það að leið- arljósi að vernda hagsmuni auglý- senda í alþjóðlegum viðskiptum. Samtökin vinna þannig að því að veija og útbreiða frelsi til þess að auglýsa vöru og þjónustu í öllum löndum heimsins. Innan samtak- anna er m.a. barist gegn því að auglýsendum sé gert erfitt fyrir með ströngum reglugerðum, hvort sem það er innan hverrar þjóðar, eða á alþjóðlegan mælikvarða. Samtökin eru öflug og í dag eru 23 þjóðir aðilar að þeim. Innan sam- takanna eru einnig 25_ alþjóðlegar fyrirtækjasamsteypur. Arlegar fjár- festingar meðlima samtakanna í auglýsingum eru taldar vera um 170 milljarðar dollara, eða um 10.000 milljarðar íslenskra króna. Paul P. de Win er vel þekktur maður á sviði auglýsinga og hefur haldið erindi viðsvegar um heim. Hann hefur einnig starfað sem ráð- gjafi á þessu sviði fyrir mörg alþjóð- leg samtök vegna reynslu sinnar og menntunar. Á aðalfundi SAU mun hann lýsa alheimssamtökun- um, hvernig þau vinna og gagnsemi þeirra. Ferðamálaráðstefna verður haldin á Suðurlandi næsta haust. Ekki hefur endanlega verið ákveðið hvort hún verður í uppsveitum Arnessýslu, á Flúðum, eða í Hveragerði. Þetta kom meðal annars fram á fundi Ferðamálaráðs íslands á Sel- fossi 6. maí. Fundurinn var haldinn á Sel- fossi samkvæmt þeirri ákvörðun Ferðamálaráðs að dreifa fundar- stöðum um landið. Undir lok venjulegs fundar var aðilum í ferðaþjónustu á Suðurlandi boðið til fundarins. Tilefni þess að Ferðamálaráð hélt þennan fund sinn á Selfossi að þessu sinni er að fyrirhugað er að opna upplýsingamiðstöð fyr- ir Suðurland á Selfossi, í Tryggva- skála, síðar í mánuðinum. Þá er og í fullum gangi uppbygging nýrrar aðstöðu, sumarhúsabyggð- ar, á tjaldsvæði Selfoss. Það er nýtt fyrirtæki, Gesthús hf., sem stendur að þessari uppbyggingu og hefur fengið úthlutað um íjög- urra hektara svæði við tjaldsvæði Selfoss til að byggja upp þjónustu við ferðamenn. Fyrirtækið mun starfrækja rekstur sumarhúsanna og reka tjaldsvæðið. Að loknum fundi ferðamálaráðs var fundarmönnum boðið í skoðun- arferð um Selfossbæ þar sem meðal annars var komið við á sum- arhúsasvæði Gesthúsa hf. ásamt því að skoða aðstæður í Tryggva- skála þar sem upplýsingamiðstöð Suðurlands verður starfrækt. Sig. Jóns Stjórnunarfélag islands Aðalfundur Stjórnunarfélags íslands 16. Aðalfundur Stjórnunarfélags Islands verður haldinn í Hótel Sögu, Ársal, maí kl. 16.00. Fyrirlesari: Charles E. Cobb, sendiherra Bandaríkjanna Fundarstjóri: Guðmundur Björnsson, aðst. póst- og símamálastjóri. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins 2. Kosning formanns og meðstjórnenda 3. Kosningí framkvæmdaráð 4. Kosningtveggja endurskoðenda 5. Tillaga um árgjöld einstaklinga 6. Lagabreytingar 7. Önnurmál Charles E. Cobb Erindi: Charles E. Cobb „Stategic planning is important to all leaders“. í tilefni 30 ára afmælis Stjórnunarfélagsins verður boðið upp á léttar veitingar að loknum aðalfundi. Stjórnin. Vaskhugi Vaskhugi er forrit sem nýtur mikilla vinsælda vegna einfald- leika í notkun. Fjárh.bókhald, viðskm.bókhald, sölukerfi, birgðir, uppgjör vsk., jafnvel einföld ritvinnsla... allt í einu kerfi á mjög hagstæðu verði. Fáðu frekari upplýsingar hjá okkur í síma 656510. íslensk tæki, Garðatorgi 5, Garðabæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.