Morgunblaðið - 14.05.1991, Page 5

Morgunblaðið - 14.05.1991, Page 5
ÍSliNSIA AUGlTSINGASIOfAN HF. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1991 5 Boonoonoonoos! Hreint yndislegt! Sjáðu fyrir þér sykurhvíta strönd, blágrænar öldur á tærum sjó, há fjöll, blikandi fossa og gróskumikinn skóg ... og þú sérð fyrir þér Hvar annars staðar Jamaica... frá og með deginum í dag bjóða Flugleiðir í fyrsta skipti ferðir til Jamaica, einnar af fegurstu eyjum Karíbahafs þar sem þú upplifir ævintýri engu öðru líkt. FLUGLEIDIR/HT Verðið er ótrúlega hagstætt: flug (fram og til baka um Baltimore) til Jamaica og gisting þar í hálfan mánuð kostar aðeins frá 70.200 kr. fyrir manninn í tvíbýli. Við bjóðum fyrsta flokks gististaði við allra hæfi. Þjónusta við ferða- menn er til fyrirmyndar og verðlag mjög gott. Stórkostlegar baðstrendur bíða þín á Jamaica, mikil náttúrufegurð, lífsgleði og einstakt tækifæri til hvíldar, hressingar og afþreyingar. Frábær aðstaða til íþróttaiðkana og útivistar, bæði á sjó og landi, og síðast en ekki síst: Golf er íþrótt sem nýtur sérstakrar hylli á Jamaica. Þar eru margir af bestu og fegurstu golfvöllum þessa heimshluta og vallargjald að jafnaði aðeins 1000 ísl. kr. Finndu í huganum þegar golan leikur um sólgullið hörund, finndu þróttinn streyma í líkama og sál, finndu ilm af blómum, svalandi veigum og heitu rökkri í paradís á jörð ... og þú finnur í huganum Jamaica. Irie! Stórkostlegt! Hafðu samband og leitaðu nánari upplýsinga í síma 690300 eða á söluskrifstofum Flugleiða og hjá öllum ferðaskrifstofum og umboðsmönnum um land allt. en í ilmhöfgum skógum vié ströndina djamaica skín sólin allt drið d reggae-afbrigði af ftamingóhlémi? Ferðamálaráð Jamaica • Sunburst Holidays • Sandals • Super Clubs • Ciboney • Air Jamaica

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.