Morgunblaðið - 14.05.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAI 1991
27
Irak:
Skotbardagi milli Iiaka
og breskra hermanna
Lundúnum, Bagdad, Sumail í Irak. Reuter.
TIL skotbardaga kom í gær milli breskra landgönguliða og íraka
í norðurhluta Iraks, skammt frá sumarhöll Saddams Husseins,
forseta landsins. Fréttaritari breska útvarpsins BBC á svæðinu
sagði að tveir írakar hið minnsta hefðu særst í bardaganum.
Talsmenn varnarmálaráðuneyt-
isins í Lundúnum sögðu að skotið
hefði verið á landgönguliðana, sem
hefðu „misst sjónar á“ tveimur
árásarmannanna þegar skothríð-
inni var svarað. Enginn Bretanna
hefði orðið fyrir skoti.
Bardaginn átti sér stað í grennd
við borgina Dahuk, sem er skammt
frá griðasvæðinu þar sem bresku
hermennirnir hafa aðstoðað kúr-
díska flóttamenn. Landgönguliðar
settu upp vegatálma á svæðinu
og þyrlur leituðu árásarmannanna
en án árangurs. BBC sagði að
mikil spenna ríkti á svæðinu og
viðbúnaður vestrænu hersveitanna
væri mikill.
Bílalest á vegum Sameinuðu
þjóðanna flutti matvæli til Dahuk
í gær og voru þetta fyrstu sveitir
Sameinuðu þjóðanna sem komu
til borgarinnar. íbúar hennar voru
um 380.000 fyrir uppreisn Kúrda
gegn Saddam en-'flestir þeirra
flúðu hana af ótta við hefndar-
aðgerðir íraska hersins. Margir
þein’a neita að snúa aftur til
Dahuk fyrr en íraskir hermenn
fari úr borginni. Bandaríkjamenn
segjast helst ekki vilja senda her-
menn til borgarinnar.
Skæruliðaleiðtoginn Massoud
Barzani, sem fer fyrir kúrdísku
sendinefndinni er ræðir við íraska
ráðamenn í Bagdad, sagði í gær
að viðræðum um sjálfstjórn Kúrda
miðaði vel áfram. Samninganefnd-
irnar hefðu komið saman á sunnu-
dag til að ræða niðurstöður sam-
eiginlegrar nefndar, sem fjallaði
um leiðir til að koma á friði og
lýðræði í landinu.
Serbneski minnihlutinn í Króatíu:
i:rf J
11 i ■
'^rrmrnrtm
,íÆ
5* 4 9 •
Reuter
Stærsti sandkastali Evrópu
Tuttugu bandarískir verkfræðinemar og kennari þeirra luku við þenn-
an sandkastala í hollenska bænum Seheveningen í gær. Þeir reistu
mannvirkið á fjórum dögum.
Samþykkja að héraðið verði
sameinað lýðveldinu Serbíu
Zagreb. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
SERBAR á svæðinu Krajina í Kró-
atíu héldu kosningar á sunnudag
og samþykktu með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða að svæðið
skuli tilheyra Serbíu i framtíð-
inni. Stjórnvöld í Króatíu taka
ekki mark á kosningunum. Stipe
Mesic, fulltrúi Króatiu í forsætis-
ráði Júgóslavíu og varaforseti
sambandsrikisins, hefur sagt að
íbúar Krajina gætu eins samþykkt
að sameinast Kamerún og Serbíu
Sfyórnvöld í S-Afríku
hóta að setja neyðarlöar
Jóhannesarborir. Reuter. ^
Jóhannesarborg. Reuter.
STJÓRN Suður-Afríku sagði I gær
arlög í landinu að nýju og leiðtogar
ræðum eftir hörð átök um helgina,
og hvítra hins vegar.
Adrian Vlok, ráðherra lögreglu-
mála, sagði að neyðarlög kynnu að
verða sett og stjórnmálaflokkar
bannaðir að nýju ef ekki tækist að
binda enda á átök blökkumanna í
landinu með viðræðum. Forystu-
ipenn Afríska þjóðarráðsins (ANC),
samtaka Nelsons Mandela, frestuðu
hins vegar viðræðum við Inkatha-
frelsisflokkinn til föstudags. A
að til greina kæmi að selja neyð-
blökkumanna frestuðu friðarvið-
milli blökkumanna annars vegar
fimmtudag rennur út frestur, sem
ANC gaf stjórnvöldum til að banna
Zulu-mönnum, er fylgja Inkatha-
flokknum að málum, að bera hefð-
bundin vopn sín.
Zulu-menn drápu 27 manns í
Swaniesville, vestur af Jóhannesar-
borg, um helgina og að minnsta
kosti tíu blökkumenn biðu bana í
átökum annars staðar í landinu.
Fyrstu alvarlegu átökin milli
hvítra manna frá því stjórnin ákvað
að afnema-lög um kynþáttaaðskiln-
að brutust einnig út um helgina.
Hvítir lögi’eglumenn særðu þá tvo
af um 2.000 hægrisinnuðum bænd-
um sem reyndu að flæma í burtu
blökkumenn er freistuðu þess að
endurheimta land sem tekið var af
þeim fyrir þrettán árum. Robert van
Tonder, leiðtogi öfgamanna úr röð-
um Búa, spáði nýju Búastríði ef
lögreglan beitti aftur skotvopnum
gegn hvítum mönnum.
og Mario Nabilo, talsmaður for-
seta Króatíu, sagði: „Kosningarn-
ar eru ólöglegar samkvæmt lögum
Króatíu og lögum Júgóslavíu,“ í
samtali við Morgunblaðið í gær-
morgun. „Það er álíka mikið mark
takandi á þeim og úrslitum kosn-
inga á svæðinu í fyrra þegar 120%
kjóscnda samþykktu að Krajina
ætti að verða sjálfstjórnarsvæði í
Króatíu."
73% íbúa Krajina tóku þátt í kosn-
ingunum nú samkvæmt Tanjug,
júgóslavnesku fréttastofunni í Serb-
íu, og 99% greiddu atkvæði með því
að sameinast Serbíu. Þessar tölur eru
þó varla mjög áreiðanlegar. Frétta-
ritari Morgunblaðsins ók um svæðið
á sunnudag og sá að ekkert eftirlit
var með atkvæðagreiðslunni. Kjör-
kassinn í litlu þorpi, þar sem serb-
neski fáninn blakti við hún og karlar
sátu að sumbli á kjörstað, var til
dæmis ekki annað en pappakassi í
hvítum innpökkunarpappír. Bunka
af þunnum, fjólubláum atkvæðaseðl-
um var veifað framan í gesti um leið
og þeim var boðið upp á snafs. Eng-
in skrá virtist vera haldin yfir þá sem
greiddu atkvæði og karlarnir voru
ekki í neinum vafa um úrslit kosning-
anna.
Króatískir íbúar þorpsins Kijevo,
sem vopnaðir Serbar lokuðu af frá
umhverfinu í rúma viku og er nú
undir vemd júgóslavneska hersins
og króatísku lögreglunnar, höfðu
engin afskipti af kosningunum. „Við
myndum líklega ekki mega kjósa
þótt við vildum,“ sagði ung kona.
„Allar skrár yfir íbúa bæjarins hafa
verið teknar og það verður örugglega
ekki komið með nein kosningagögn
hingað.“
Kijevo er í 20 km fjarlægð frá
Knin, höfuðstöðvum leiðtoga Serba
í Krajina-héraði. Það er langt og
mjótt, strjálbýlt svæði sem liggur
meðfram landamærum Króatíu og
Bosníu-Hersegóvínu, skammt frá
Adríahafi. Krajina liggur hvergi að
Serbíu en fjöldi Serba fluttist þangað
á 16. öld. Nú er talið að um fjórðung-
ur Serba í Króatíu búi á svæðinu.
Um 600.000 Serbar búa í sambands-
lýðveldinu öllu, en það samsvarar um
11% íbúa þess.
Króatía mun halda kosningar úm
framtíð sambandslýðveldisins í Júgó-
slavíu á sunnudag. Talið er að þá
verði samþykkt að lýðveldið segi sig
úr sambandsríkinu. Serbar í Krajina
vilja ekki verða íbúar Króatíu ef hún
segir sig úr Júgóslavíu.
SIEMENS
1
Með SIEMENS heimilistœkjum verður lífið léttara!
Traustir umboðsmenn okkar eru víðs vegar um landið!
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13.
Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála.
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25.
Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42.
Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7.
Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12.
ísafjöröur: Póllinn hf., Aðalstræti 9.
Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1.
Sauöárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1.
Siglufjöröur: Torgið hf., Aðalgötu 32.
Akureyri: Sír hf„ Reynishúsinu, Furuvöllum 1.
• Húsavík: öryggi sf., Garðarsbraut 18a.
• Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3.
• Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24.
• Reyöarfjöröur: Rafnet, Búðareyri 31.
• Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1.
• Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13.
• Höfn í Hornafiröi: Kristall, Hafnarbraut 43.
• Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18.
• Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4.
• Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29.
• -Garöur: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2.
• Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25.