Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.05.1991, Blaðsíða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MAÍ 1991 V egnrinn til lífsins Nokkrar hugleiðingar vegna greinar Arna Þórðarsonar 7. maí eftir Kristján Baldursson Upphaf greinar Árna Þórðar- sonar er tilvitnun í hið fagra vers Jóh. 17:3: „En í því er hið eilífa líf fólgið að þeir þekki þig, hinn eina sanna Guð og þann sem þú sendir Jesúm Krist.“ Síðan fer hann nokkrum almennum orðum um kristna skírn og fermingu ep svo kemur að því í greininni að Árni skýrir frá frels- un sinni þá tuttugu og eins árs gamall. Þessi frelsun sem hann lýsir sem náð og mikilli blessun fyrir hann persónulega hefur greinilega orðið til þess að hann fer að greina sjálfan sig frá fjöld- anum og vorkenna þeim sem ekki eru í náðinni. Því miður virðist þetta ekki bara vera vorkunnsemi við hina syndsömu heldur fer hann að taka djarflega uppí sig og dæma hart og nú vitnar hann í V. Mósebók. Árni segir að menn stundi nú það sem Drottinn hafi bannað og fyrirskipað að mætti ekki, hann talar um gjörningar og særingar, spásagnir og að leita frétta af framliðnum. Hann boðar hegningu með logandi eldi, tortím- ingu og glötun fyrir þá sem ekki þekkja guð eða hlýða. Þetta er ekki ýkja mikið umburðarlyndi eða kærleiksríkur boðskapur hins kristna inanns. Hvað felst í þessum orðum að þekkja guð og í því sé hið eilífa líf fólgið. Getur einhver haft einka- rétt á því að þekkja guð? Er það. ekki alger fullkomnun ef einhver getur sagt með sanni að hann þekki guð? Hafi öðlast hinn eina sanna skilning og þekkingu á Guði almáttugum og boðskap Jesú Krists. Er ekki átt við það að þegar þessu stigi er náð sé lífið svo þrungið af visku og fegurð og hamingju að lengra verði ekki náð. Þannig sé hægt að fara að lifa hinu eilífa lífi þegar hér á jörðu ef og aðeins ef þetta þroskastig næst. Verðum við ekki að vera alfullkomin, vitur, kærleiksrík, elska náungann eins og sjálf okk- ur, þekkja sjálf okkur, kunna að stjórna skapi okkar, hafa víðsýni andans, vera í sambandi við guð, skynja sannleikann í öllu og öllum. Þegar við höfum lyft okkur í þess- ar miklu hæðir guðsþroskans þekkjum við guð og getum farið að lifa eilífa lífinu. Það er aíveg augljóst að einstaklingar fara margar leiðir til þess að þroska sjálfa sig og stefna að þessu mikla takmarki sem hlýtur að vera tak- Hveiti, sykur og mjólk hrært vel saman, íjóminn þeyttur út í og svo eggjunum bætt í einu í senn. Bakað- ir klattar og þeim haldið heitum. Ofan á er hægt að setja ýmislegt góðgæti: sultu, ber, ís, þeyttan rjóma, krem, flórsykur, ferska ávexti, svo sem eplasneið, niðursoðna ávexti svo sem jarðarber. „Guðstrúin þarf að leiða af sér góða og fullkomna breytni, guðsþekkingu og skiln- ing svo menn geti öðl- ast hið eilífa líf og farið að lifa því.“ mark allra manna, það er að segja læra að þekkja guð og þekkja sjálf- an sig. Þessvegna verðum við að virða það hvernig aðrir nálgast sannleikann. Hvað um allar millj- ónirnar sem aðhyllast önnur trúar- brögð og frelsast fyrir sína trú. Getur það ekki verið eilítið vara- samt á þroskabrautinni ef frelsun- in kemur svo skyndilega yfir menn og leiðir til þess að menn telji sig hafa fundið stóra sannleikann og öðlast hinn eina rétta skilning á orðum ritningarinnar, verði þess umkomnir í einu vetfangi að geta farið að dæma aðra og boða hefnd og tortímingu. Ef á hinn bóginn frelsuninni er þann veg farið að menn svífi upp í hæðir þess mikla guðsþroska sem fólginn er í því Kristján Baldursson að þekkja guð í raun og sannleika er þetta stórkostlegt undur og kraftaverk og jafngildir aftur- hvarfi Páls og fleiri spámanna. Þá hlýtur þessi mikli þroski að leiða af sér mikla blessun ekki bara fyrir viðkomandi einstakling heldur líka alla sem í kringum hann eru og fá að njóta ávaxta verka hans. Því eins og stendur í Matt. 7:20-22: „Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Ekki mun hver er við mig segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá er gjörir vilja föður míns sem er í himnunum.“ Hér virðist vera átt við það að það sé breytni mann- anna sem er aðalatriðið. Guðstrúin þarf að leiða af sér góða og full- komna breytni, guðsþekkingu og skilning svo menn geti öðlast hið eilífa líf og farið að lifa því. Höfundur er tæknifræðingur og stnrfar á Akureyri. Nútíöinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 j i i ! I í i l i I !
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.